Skoðun

Hvað kjósa for­eldrar ósýni­legra barna?

Vigdís Gunnarsdóttir skrifar

Eins og venjulega fer mest fyrir umræðu um efnahagsmál í aðdraganda kosninga til Alþingis. Góð stjórn á þeim er vissulega lykilatriði, en þessi umræða getur virkað vélræn og ómennsk.

Aldrei grunaði mig að ég tæki þátt í stjórnmálum, en ég geri það nú í fyrsta sinn, því sem móðir fjögurra ára einhverfs barns, þá brenn ég fyrir málefnum barna sem ég kalla ósýnileg. Það geri ég því ég hef rekist á ótal veggi í kerfi, sem á að vera hannað fyrir fólkið og börnin, en ekki öfugt.

Ég tel þessum málaflokki best borgið hjá Sjálfstæðisflokknum, fjöldahreyfingu sem skilur mikilvægi þess að stuðla þurfi að varanlegri verðmætasköpun, til að fjármagna aukinn stuðning við þennan hóp og aðra.

Áhersla Sjálfstæðisflokksins á frelsi einstaklingsins er vel þekkt, en líklega vita færri að sjálfsstæðisstefnan leggur “mikla áherslu á að tryggja afkomu þeirra og verja velferð þeirra sem eiga undir högg að sækja í lífinu.”

Við foreldrar viljum snemmtæka íhlutun, stytta verulega biðlista eftir þjónustu, bæði fyrir greiningu og hjá sérfræðingum. Það þarf fjölskyldumiðaða þjónustu sem byggir á samvinnu fagfólks og foreldra með það að leiðarljósi að fjölskyldan þekkir best þarfir barnsins. Það þarf því að styrkja foreldrana og kerfin í kringum börnin. Kerfið á að vera til aðstoðar en ekki vandamálið eins og er orðið oft á tíðum í dag.

Í menntastefnu Sjálfstæðisflokksins er lögð áhersla á að endurskilgreina skóla án aðgreiningar þannig að foreldrar hafi aukið val. Ég er þessu persónulega mjög fylgjandi þó inngilding sé alltaf það sem sé stefnt að þá farnast fjölda barna betur í sérúrræði. Staðan er sú að fjöldinn allur af börnum eru ekki að komast inn á þær alltof fáu sérdeildir sem eru í boði.

En það er ekki nóg að tala bara um hvernig eigi að ráðstafa peningunum. Það þarf að afla þeirra, svo einhverju verði til að dreifa. Margsannað er að lægri skattar og góð efnahagsstjórn, sem skilar sér í lægri vöxtum, stækkar kökuna. Ég er sannfærð um að í krafti sjálfstæðisstefnunnar getum við breytt lífi þúsunda íslenskra barna og aðstandenda þeirra.

Ég á mikilla hagsmuni að gæta. Börnin eru mér allt og ég á allt mitt undir því að sameiginlegir sjóðir okkar verði varanlega aflögufærir í þágu þeirra sem mest þurfa á hjálp að halda. Því kýs ég að starfa innan og bjóða mig fram undir merkjum Sjálfstæðisflokksins, vegna mennskunnar sem í honum býr. Það er undir okkur komið, að virkja hana.

Höfundur er á lista Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi.




Skoðun

Sjá meira


×