Skoðun

Gal(in) keppni þing­manna flokks fólksins

Þorsteinn Sæmundsson skrifar

Í fyrri pistli minntist greinarhöfundur á stefnu flokks fólksins um að hirða níutíu milljarða af lífeyrissjóðunum á hverju ári inn í framtíðina og rýra með því lífeyri fólks um alla framtíð með því að rýra fjárfestingargetu lífeyrissjóðanna. Auk þess greiðir launamaður á lífeyrisgreiðslualdri tekjuskatt í hærra þrepi af hærri upphæð en hann greiðir þegar lífeyristaka hefst. Skattahækkun af þessari ráðstöfun gæti numið um hálfri milljón á mann á ári auk þess að viðkomandi myndi síðan bera minni lífeyri úr býtum við starfslok. Það munar um það fyrir hvern og einn.

Nú eru þrír dagar til kosninga og nokkur sigling á flokki fólksins í skoðanakönnunum. Kjósendur sem segjast munu kjósa flokkinn hljóta að spyrja forystufólk hans fyrir kosningar nákvæmlega hvað felst í tillögum flokksins í þessum efnum og áhrifum þeirra á almenning. Flokkurinn þarf að svara því hversu mikið lífeyrir meðaleinstaklings rýrnar við að rífa 90 milljarða af lífeyrissjóðunum á hverju einasta ári eins og boðað er. Flokkurinn þarf að svara hversu mikið tekjuskattur einstaklings hækkar á hverju ári við framkvæmdina.

Nýlega var síðan sett fram nýtt atriði með talsverðum bægslagangi. Þingmaður flokks fólksins vill setja neyðarlög um Seðlabanka Íslands vegna vaxtaákvarðana bankans. Flokkur fólksins hlýtur að skýra fyrir kjósendum nákvæmlega hvernig slík lagasetning eigi að vera. Um nákvæmlega hvað á að setja neyðarlög og við hvaða aðstæður? Gal á torgum um jafn mikilsverð málefni og hér ræðir er óábyrgt. Sá sem lofar slíkum aðgerðum og að afleiðingar þeirra verði farsælar fyrir land og lýð er í besta falli populisti, í versta falli falsspámaður.

Ritari þessa pistils hefur ekki dregið af sér í gagnrýni á Seðlabanka Íslands vegna vaxtaákvarðana á hverjum tíma. Einkum hefur höfundur gert athugasemdir við þær röksemdir sem bankinn hefur haft uppi við hverja ákvörðun og mjög misvísandi og ófyndin rök Seðlabankastjóra. Einnig hefur ritari pistilsins gagnrýnt seinagang undanfarandi við vaxtalækkanir. Aldrei hefur þó hvarflað að höfundi að færa vaxtaákvarðanir í hendur stjórnmálamanna hvers tíma með lagasetningu, hvað þá ,,neyðarlögum.”

Varist falsspámenn sem gala á torgum!

Höfundur skipar annað sæti á lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður.




Skoðun

Sjá meira


×