Skömmuð af matvælaráðuneytinu degi áður en hún tók við Degi áður en Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir tók við sem matvælaráðherra fékk atvinnuveganefnd Alþingis, nefnd sem hún sat í þar til hún tók við ráðuneytinu, bréf frá matvælaráðuneytinu þar sem breytingar og vinnubrögð nefndarinnar voru gagnrýnd. Innlent 10. apríl 2024 16:44
Fyrrverandi þingmaður ráðinn yfirlæknir Ólafur Þór Gunnarsson hefur verið ráðinn yfirlæknir endurhæfingarhluta öldrunarlækninga á Landspítala frá 1. maí 2024. Hann sat á þingi fyrir Vinstri græn á árunum 2013 og 2017 til 2021. Innlent 10. apríl 2024 15:51
„Þetta er sama fólkið með sömu stefnu í nýjum stólum“ Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar var fyrst upp í ræðupúlt eftir að Bjarni Benediktsson nýr forsætisráðherra flutti ávarp sitt á þingi og hún gaf ekki mikið fyrir afrekaskrá ríkisstjórnarinnar. Innlent 10. apríl 2024 15:40
Magga Stína hrópaði að Bjarna af þingpöllunum Margréti Kristínu Blöndal, Möggu Stínu, var vísað af pöllum Alþingis eftir að hún hrópaði að forsætisráðherra Bjarna Benediktssyni á meðan hann flutti yfirlýsingu sína á þingi í dag. Innlent 10. apríl 2024 15:18
Lítið opið „bónbréf“ til forseta Alþingis Kæri Birgir. Það er ekki einfalt að halda uppi skipulagi í mannlegu samfélagi, enda flóran fjölbreytt. Meðan sumir eru eigingjarnir hugsa aðrir um almannahag; meðan sumir eru góðviljaðir ræður hatur för hjá öðrum. Skoðun 10. apríl 2024 14:31
Bein útsending: Yfirlýsing forsætisráðherra og umræður Bjarni Benediktsson forsætisráðherra mun fara með yfirlýsingu fyrir Alþingi klukkan 15. Þetta er fyrsti þingfundur eftir páskafrí og eftir að Katrín Jakobsdóttir sagði af sér sem forsætisráðherra og tilkynnti framboð til embættis forseta. Innlent 10. apríl 2024 14:27
Beitir nýr matvælaráðherra sér fyrir afnámi ólaganna? VR, Neytendasamtökin og Félag atvinnurekenda sendu í síðustu viku erindi til matvælaráðherra (sem þá var Katrín Jakobsdóttir) og fóru fram á að ráðherra beitti sér fyrir því að lögin um víðtæka undanþágu kjötafurðastöðva frá samkeppnislögum yrðu tekin til rækilegrar skoðunar, enda væru þau skaðleg neytendum, launþegum og verslun í landinu. Skoðun 10. apríl 2024 13:00
Telur málin miklu fleiri en menn grunar Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir nýr matvælaráðherra segir tækifæri fólgin í öllum breytingum. Hún tjáði sig um komandi verkefni áður en hún fór á ríkisráðsfund á Bessastöðum fyrr í kvöld. Innlent 9. apríl 2024 23:19
Píratar og prinsipp í pólitík Þann 8. nóvember 2017 var allt galopið varðandi myndun ríkisstjórnar, að sögn fráfarandi forsætisráðherra, Katrínar Jakobsdóttur. Þetta var eftir að Framsóknarflokkurinn sleit ríkisstjórnarviðræðum VG, Samfylkingarinnar, Pírata og Framsóknar. Skoðun 9. apríl 2024 23:01
Alveg óvíst hvort ríkisstjórnin lifi kjörtímabilið af Eiríkur Bergmann prófessor í stjórnmálafræði segir jafnvel meiri styr munu standa um ríkisstjórnina undir forystu Bjarna Benediktssonar en Katrínar Jakobsdóttur. Stólaskiptin feli ekki í sér mikla efnisbreytingu en mikla ásýndarbreytingu sem hann telur að geti reynst ríkisstjórninni erfið þegar fram í sækir. Innlent 9. apríl 2024 22:07
„Ekki biðja um að þetta sé auðvelt“ Bjarni Benediktsson, sem verður skipaður forsætisráðherra á eftir, segir að það liggi vel á sér. Hann segir að sitt fyrsta verk í nýja ráðuneytinu verði að stilla sama strengi við aðra ráðherra endurnýjaðrar ríkisstjórnar. Honum þyki mikilvægt að byrja vel. Innlent 9. apríl 2024 19:32
Sverðin slíðruð í orku, útlendinga- og lögreglumálum Bjarni Benediktsson forsætisráðherra segir endurnýjaða ríkisstjórn ætla að fara að krafti í orkumálin og aðlaga útlendingalöggjöfina að því sem þekkist á Norðurlöndunum. Bjarni og ráðherrar í ráðuneyti hans voru settir í embætti á ríkisráðsfundi á Bessastöðum sem hófst klukkan sjö í kvöld. Innlent 9. apríl 2024 19:20
Ráðherrar fjölmenna á Bessastaði klukkan 19 Ríkisráð Íslands mun koma saman til tveggja funda í kvöld á Bessastöðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá forsætisráðuneytinu. Innlent 9. apríl 2024 16:05
Vinstri græn ekki að gleypa eitraða pillu Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra og formaður VG segir ríkisstjórnarflokkana þrjá hafa sest niður um helgina, eftir að Katrín Jakobsdóttir tilkynnti framboð sitt til forseta, með það að markmiði að halda samstarfinu áfram. Innlent 9. apríl 2024 15:46
Framsókn geti ekki lengur falið sig á bak við „stóra bróður“ Formaður þingflokks Pírata fagnar því að losna við Sjálfstæðisflokkinn úr fjármálaráðuneytinu með uppstokkun á ríkisstjórninni. Nú geti Framsóknarflokkurinn hins vegar ekki lengur falið sig á bak við að „stóri bróðir“ komi í veg fyrir að hann uppfylli kosningaloforð sín. Innlent 9. apríl 2024 15:40
Líst ekkert á blikuna Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segir fráfarandi ríkisstjórn skilja eftir sig erfiða stöðu og að ekkert bendi til þess að ný ríkisstjórn geti leyst þau verkefni betur. Hún hefði viljað að frekar yrði boðað til kosninga í haust. Innlent 9. apríl 2024 15:17
„Þú lagar ekki ónýtan bíl með því að skipta um bílstjóra“ Þingmaður Viðreisnar segist enga trú hafa á því að nokkuð breytist hjá ríkisstjórninni með hrókeringum ráðherrastóla. Vandamálið hafi ekki verið hver sitji hvar heldur það hvernig ríkisstjórnarflokkunum þremur hefur illa tekist að ná saman málefnalega. Innlent 9. apríl 2024 15:12
Skoðar að leggja fram vantraust á ríkisstjórnina Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, varð fyrir miklum vonbrigðum með nýja skipan ríkisstjórnarinnar. Hún vonast eftir kosningum og íhugar að að leggja fram vantraust á ríkisstjórnina í heild sinni. Innlent 9. apríl 2024 14:49
Nýr ráðherra þurfti ekki að hugsa sig tvisvar um Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, verðandi matvælaráðherra, þurfti ekki að hugsa sig lengi um þegar boðið kom um að taka við matvælaráðuneytinu. Hún þekki vel til málaflokksins og hokin af reynslu. Innlent 9. apríl 2024 14:48
Ætlar að virkja meira Bjarni Benediktsson, sem tekur við forsætisráðuneytinu í kvöld, segir að virkja þurfi meira til þess að nýta sjálfbæra orku betur. Innlent 9. apríl 2024 14:40
Bjarni Benediktsson nýr forsætisráðherra Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins verður næsti forsætisráðherra, Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins tekur við sem fjármálaráðherra og Svandís Svavarsdóttir verður innviðaráðherra. Innlent 9. apríl 2024 14:03
Viðbrögð á samfélagsmiðlum: „Í hvaða trúðalýðræði lifum við?“ Netverjar hafa ekki setið á skoðunum sínum um væntanleg stólaskipti í ríkisstjórn landsins. Tíðinda er að vænta af viðræðum ríkisstjórnarflokkanna klukkan 14 en þá hefur verið boðað til blaðamannafundar í Hörpu. Innlent 9. apríl 2024 13:18
Bjarni leiðir og Bjarkey kemur ný inn Formenn Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Framsóknarflokks kynntu nýja ríkisstjórn undir forystu Bjarna Benediktssonar í dag. Ráðherrastóladans verður dansaður á Bessastöðum í kvöld. Innlent 9. apríl 2024 12:26
Ný ríkisstjórn fær handbók um siðareglur í sængurgjöf Forsætisráðuneytið hefur gefið út handbók um siðareglur ráðherra, sem samin var af Siðfræðistofnun Háskóla Íslands að beiðni og í samvinnu við ráðuneytið. Innlent 9. apríl 2024 12:22
Hafa nýtt tímann til að leysa ágreining VG og Sjálfstæðismanna Formaður Framsóknarflokksins segir viðræður forystumanna stjórnarflokkanna þriggja um helgina og í gær meðal annars hafa farið í að leysa ágreining sem hefur verið milli Sjálfstæðismanna og Vinstri grænna. Ríkisstjórnarflokkarnir boða til blaðamannafundar klukkan 14 í Hörpu til að kynna áherslur nýs ráðuneytis. Innlent 9. apríl 2024 11:53
Fjármálaráðherraflakkið minni á Tinder-sambönd Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir þingmaður Viðreisnar segir fólk vera í lengri samböndum á stefnumótaforritinu Tinder en í stól fjármálaráðherra. Hún fullyrðir að Sigurður Ingi Jóhannsson formaður Framsóknarflokksins verði þriðji fjármálaráðherrann á hálfu ári. Innlent 9. apríl 2024 10:56
Vaktin: Ný ríkisstjórn tekur við í kvöld Bjarni Benediktsson, Sigurður Ingi Jóhannsson og Guðmundur Ingi Guðbrandsson kynntu nýja ríkisstjórn og áherslumál hennar á blaðamannafundi í Hörpu í dag. Innlent 9. apríl 2024 08:40
Allt bendir til að Bjarni verði forsætisráðherra Allar líkur er á að Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, verði næsti forsætisráðherra í endurnýjuðu stjórnarsamstarfi núverandi stjórnarflokka, samkvæmt heimildum fréttastofu. Innlent 8. apríl 2024 22:33
Sjálfstæðismenn afgreiða samstarfstillögu Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins hefur tekið til afgreiðslu tillögu um stjórnarsamstarf. Óljóst er hvaða flokkar kæmu að því samstarfi. Að sama skapi er óljóst hvort samstarf Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar og Vinstri grænna haldi áfram. Innlent 8. apríl 2024 21:12
Alþingi óstarfhæft vegna óvissu um stjórnarmyndun Þingstörf eru í óvissu á meðan ekki hefur verið mynduð ný ríkisstjórn í landinu. Ekkert varð af þingfundi í dag þar sem þrettán stjórnarfrumvörp voru á dagskránni vegna anna ráðherra við stjórnarmyndunarviðræður. Innlent 8. apríl 2024 19:21