KR sigraði Stjörnuna Keppni í Landsbankadeild kvenna hófst í gærkvöldi þegar KR sigraði Stjörnuna, 3-1. Vanja Stephanovic skoraði tvö mörk fyrir KR og Fjöla Dröfn Friðriksdóttir eitt. Harpa Þorsteinsdóttir skoraði mark Stjörnunnar. Sport 17. maí 2005 00:01
Nýliðarnir með 5 erlenda leikmenn Nýliðarnir í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu, Keflavík, tefla fram fimm erlendum leikmönnum í sumar. Tvær serbneskar stúlkur eru á leiðinni: Katarina Jovic, 27 ára varnar- eða miðjumaður, og Vesna Smilijkovic, 22 ára framherji. Sport 11. maí 2005 00:01
Bandarískar stúlkur með KR Kvennalið KR í knattspyrnu hefur samið við tvær bandarískar stúlkur sem spila með liðinu í Landsbankadeildinni í sumar. Þær heita Carmen Watley og Katherine Winstead og að sögn Írisar Eysteinsdóttur, þjálfara KR, koma þær til landsins 11. maí og munu þær styrkja KR-liðið til mikilla muna. Sport 3. maí 2005 00:01
Olga frá út tímabilið? Markadrottningin Olga Færseth, leikmaður knattspyrnuliðs ÍBV, meiddist illa á hné í æfingaleik og verður frá í nokkrar vikur. Hún missir því af fyrstu umferð Landsbankadeildar kvenna. Í versta falli eru liðbönd slitin og þá mun Olga ekkert spila með ÍBV í sumar sem er gríðarlegt áfall fyrir bikarmeistarana. Sport 27. apríl 2005 00:01
Helena tekur við KR Helena Ólafsdóttir, fyrrverandi landsliðsþjálfari í knattspyrnu, tekur við þjálfun meistaraflokks kvenna hjá KR af Írisi Eysteinsdóttur í sumar. Íris á von á barni í sumar og getur ekki stýrt liðinu út leiktíðina. Helena skoraði 222 mörk í 275 leikjum með meistaraflokki KR frá 1986 til 2001 og var fyrirliði fjögurra Íslandsmeistaraliða félagsins.</font /> Sport 26. febrúar 2005 00:01
Sigurlás þjálfar Eyjastúlkur Sigurlás Þorleifsson hefur verið ráðinn þjálfari meistaraflokks kvenna ÍBV knattspyrnu. Sigurlás er margreyndur þjálfari, þjálfaði karlalið ÍBV og Stjörnunnar á sínum tíma og einnig kvennalið ÍBV með góðum árangri. Sigurlás tekur við af Heimi Hallgrímssyni sem gerði ÍBV að bikarmeisturum í sumar. Sport 21. desember 2004 00:01
Guðrún Sóley í háskólaliði ársins Guðrún Sóley Gunnarsdóttir, knattspyrnukona úr KR, hefur bætt enn einni fjöður í hatt sinn en hún var um helgina valin í háskólalið ársins í Bandaríkjunum. Guðrún varð sem kunnugt er háskólameistari með liði sínu Notre Dame fyrir skömmu. Sport 20. desember 2004 00:01
15,8 milljónir til íslenskra liða Knattspyrnusamband Evrópu hefur úthlutað 15,8 milljónum króna til íslenskra félagsliða en þetta er hluti af tekjum Meistaradeildarinnar og er eyrnamerkt barna- og unglingastarfi. Stjórn KSÍ hefur ákveðið að tekjurnar renni til félaga sem voru í Landsbankadeildinni 2002 og fær hvert þeirra 1.580 þúsund krónur í sinn hlut. Sport 9. desember 2004 00:01
Markadrottningar KR enn á förum Kvennalið KR í knattspyrnu hefur misst tvo markahæstu leikmenn sína frá því í sumar því Hólmfríður Magnúsdóttir hefur ákveðið að ganga til liðs við ÍBV og Guðlaug Jónsdóttir er á leiðinni til Breiðabliks. Sport 5. nóvember 2004 00:01
Guðlaug og Þóra til Blika Eins og greint var frá í fréttum Stöðvar 2 í gær þá hefur landsliðskonan Guðlaug Jónsdóttir gengið til liðs við Breiðablik frá KR. Þá hefur íþróttadeildin heimildir fyrir því að landsliðsmarkvörðurinn Þóra B Helgadóttir ætli að spila með Breiðablik á næstu leiktíð. Sport 2. nóvember 2004 00:01
Margrét Lára í Val Það er ljóst að Íslandsmeistarar Vals í kvennafótboltanum ætla sér lítið annað en að verja titilinn á komandi tímabili. Þær hafa fengið Eyjastúlkuna Margréti Láru Viðarsdóttur í sínar raðir en Margrét Lára var valinn efnilegasti leikmaður Landsbankadeildar kvenna annað árið í röð fyrir skömmu auk þess sem hún var markahæst í deildinni í sumar. Sport 29. október 2004 00:01
Halldóra hætt hjá KR Halldóra Sigurðardóttir mun ekki halda áfram þjálfun kvennaliðs KR í knattspyrnu. Sport 21. september 2004 00:01
Bikarinn til Eyja Stelpurnar úr ÍBV voru rétt í þessu að tryggja sér bikarmeistaratitilinn í knattspyrnu með 2-0 sigri á Íslandsmeisturum Vals. Sport 11. september 2004 00:01
ÍBV bikarmeistari ÍBV tryggði sér bikarmeistaratitilinn í knattspyrnu í gærdag með sanngjörnum 2-0 sigri á Íslandsmeisturum Vals. Sport 11. september 2004 00:01
Valsstúlkur enduðu með sigri Lokaumferðin í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu var leikin í gær. Nýkrýndir Íslandsmeistarar Vals lögðu ÍBV að velli í Eyjum 3-1. FH vann Fjölni 2-1, Stjarnan skellti Blikum 4-1 og KR bar sigurorð af Þór/KA/KS 3-1. Sport 6. september 2004 00:01
Mörg lítil markmið hjá Val Elísabet Gunnarsdóttir skilaði Íslandsmeistaratitlinum á Hlíðarenda á sínu fyrsta ári með liðinu. "Ég held að við höfum sýnt í þessum leik að við erum vel að þessum titli komnar," sagði hún þegar titilinn var í höfn hjá Valsliðinu. Sport 28. ágúst 2004 00:01
Valur Íslandsmeistari í dag? Valur getur í dag tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn í kvennaflokki í knattspyrnu í fyrsta sinn í fimmtán ár. Valur mætir Breiðabliki á Valsvellinum klukkan 14 en á sama tíma keppa Fjölnir og ÍBV. Valur hefur sex stiga forystu og nægir jafntefli, svo framarlega að ÍBV vinni Fjölni. Sport 28. ágúst 2004 00:01
Valsstúlkur Íslandsmeistarar Valsstúlkur urðu í dag Íslandsmeistarar í knattspyrnu þegar þær unnu Breiðablik 3-0 á heimavelli sínum á Hlíðarenda. Nína Ósk Kristinsdóttir, Dóra María Lárusdóttir og Kristín Ýr Bjarnadóttir skoruðu mörk Valsliðsins. Fimmtán ár eru liðin síðan Valur varð síðast Íslandsmeistari í meistaraflokki kvenna í knattspyrnu. Sport 28. ágúst 2004 00:01
Valskonur vængjum þöndum Valsmenn fjölmenntu á Hlíðarenda í gær og sá langþráða stund renna upp þegar Íris Andrésdóttir varð fyrsti fyrirliði knattspyrnuliða félagsins til að lyfta Íslandsmeistaratitlinum í fimmtán ár. Sport 28. ágúst 2004 00:01
KSÍ aðhefst ekkert frekar Forráðamenn KSÍ hafa ákveðið að aðhafast ekki frekar vegna atviks sem átti sér stað á leik KR og FH á KR-velli á dögunum í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu. Sport 18. ágúst 2004 00:01
Samfélag stjarnanna Ólympíuleikar Ólympíuþorpið í Aþenu er fyrir margra hluta sakir merkilegur staður. Þar búa hátt í 20 þúsund manns á meðan leikarnir fara fram – bæði íþróttamenn og fararstjórar. Þorpið var byggt sérstaklega fyrir Ólympíuleikana en að þeim loknum verða íbúðirnar á svæðinu seldar til fátækra heimamanna fyrir lága upphæð. Sport 16. ágúst 2004 00:01
Einum sigri frá titlinum Valsstúlkur eru aðeins einum sigri frá fyrsta Íslandsmeistaratitli sínum í 15 ár eftir 6–0 sigur á Fjölni á Hlíðarenda í gær. Valsliðið getur tryggt sér titilinn með sigri í síðasta heimaleik sínum sem er gegn Breiðabliki eftir tólf daga. Sport 16. ágúst 2004 00:01
Þrenna Olgu í 7-0 sigri ÍBV ÍBV vann sjötta heimaleik sinn í röð í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í gær. Að þessu sinni unnu þær lið Þór/KA/KS 7-0 en ÍBV-liðið hefur skorað 7,7 mörk að meðaltali í leik á Hásteinsvellinum í sumar, minnst 6 mörk og mest 11 mörk. Olga Færseth skoraði þrennu í leiknum og hefur skorað í öllum 15 leikjum sínum á Hásteinsvellinum. Sport 14. ágúst 2004 00:01
Allt óbreytt í kvennadeildinni Efstu liðin unnu öll í 11. umferð Landsbankadeildar kvenna í knattspyrnu í gær og staðan breyttist ekkert í deildinni, hvorki á toppi né botni. Valskonur halda áfram fimm stiga forskoti og botnbaráttan er enn í einum hnút. Sport 10. ágúst 2004 00:01
Fjórir leikir hjá konunum Fjórir leikir eru í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu í kvöld. Þór/KA/KS fær efsta liðið Val í heimsókn á Akureyri, Stjarnan tekur á móti ÍBV, Fjölnir og Breiðablik eigast við og KR og FH. Leikirnir hefjast klukkan 19. Sport 10. ágúst 2004 00:01
Valur styrkir stöðu sína Valsstúlkur tryggðu stöðu sína á toppi Landsbankadeildar kvenna ennfrekar með öruggum sigri á Stjörnunni á Hlíðarenda í gær. Eins og við var að búast voru yfirburðir Vals miklir og þegar yfir lauk hafði liðið skorað sjö mörk gegn engu marki gestanna. Sport 7. ágúst 2004 00:01
Dregið í bikarnum hjá konunum Dregið var í undanúrslitum bikarkeppninnar í knattspyrnu í hádeginu í dag. Sport 6. ágúst 2004 00:01
Olga skoraði fjögur gegn KR Olga Færseth fór á kostum gegn sínum fyrrum félögum í KR í kvöld er þær heimsóttu hana til Eyja. Hún skoraði fjögur mörk og lagði grunninn að 6-2 sigri Eyjastúlkna. Sport 6. ágúst 2004 00:01
FH sigraði Breiðablik FH-stúlkur gerðu sér lítið fyrir í kvöld og lögðu Breiðablik í Kópavogi, 2-1. Sport 6. ágúst 2004 00:01
Þór/KA/KS sótti stig í Krikann Þór/KA/KS gerði góða ferð í Kaplakrikann þar sem þær sóttu stig gegn FH í Landsbankadeild kvenna. Sport 26. júlí 2004 00:01