Stólarnir halda áfram að safna liði: Hafa samið við sænskan landsliðsmann Tindastóll heldur áfram að safna liði fyrir næsta tímabil og hefur nú samið við reynslumikinn sænskan landsliðsmann. Körfubolti 12. júlí 2021 11:27
„Erfitt að mæta í vinnu ef maður fær ekki borgað“ „Fyrir mér hefði þetta mál aldrei átt að þurfa að fara alla þessa leið. Rétt skal hins vegar vera rétt,“ segir Kristófer Acox, landsliðsmaður í körfubolta, eftir að hafa unnið mál sitt gegn KR vegna ítrekaðra vanefnda á samningi. Körfubolti 2. júlí 2021 13:01
KR gert að greiða Kristófer tæpar 4 milljónir Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag körfuknattleiksdeild KR til að greiða Kristófer Acox, landsliðsmanni og fyrrum leikmanni KR, tæpar 3,8 milljónir króna í vangoldin laun. Auk þess var KR gert að greiða málskostnað Kristófers. Körfubolti 1. júlí 2021 17:00
Tindastóll fær verðlaunavarnarmann sem tók þátt í nýliðavali NBA Tindastóll heldur áfram að styrkja lið sitt fyrir næstu körfuboltaleiktíð eftir vonbrigðaniðurstöðu á síðustu leiktíð þar sem liðinu var sópað út af Keflavík í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Körfubolti 1. júlí 2021 13:00
Írskur landsliðsmaður fylgdi Arnari á Krókinn Körfuknattleiksdeild Tindastóls heldur áfram að semja við leikmenn og hefur tryggt sér krafta Taiwo Badmus á næstu leiktíð. Körfubolti 30. júní 2021 12:22
„Ekki verðlaunin sem ég var að sækjast eftir“ Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður Keflavíkur, var í dag valinn besti leikmaður tímabilsins í Domino's deild karla en hann hefði viljað skipta verðlaununum út fyrir Íslandsmeistaratitil. Körfubolti 29. júní 2021 19:31
Sara og Hörður best en Styrmir og Elísabeth efnilegust Leikmenn ársins í Dominos-deildunum í körfubolta koma ekki úr Íslandsmeistaraliðunum heldur úr karlaliði Keflavíkur og kvennaliði Hauka. Körfubolti 29. júní 2021 13:00
Slökktu fyrst á deildarmeisturum Keflavíkur og svo í gosinu Keflvíkingar voru ekki búnir að tapa leik síðan í febrúar þegar þeir mættu Þórsurum í úrslitaeinvígi Domino's deildar karla í körfubolta. Þór vann þrjá af fjórum leikjum og tyggði sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil. Körfubolti 29. júní 2021 11:30
Landsliðsmaður heim á Krókinn Sigtryggur Arnar Björnsson, landsliðsmaður í körfubolta, hefur ákveðið að snúa aftur heim úr atvinnumennsku og spila með Tindastóli á næstu leiktíð. Körfubolti 29. júní 2021 08:01
Styrmir Snær fékk frí í beinni útsendingu í morgun til að skjótast til Hawaii Þórsarinn Styrmir Snær Þrastarson var í lykilhlutverki þegar Þórsarar urðu Íslandsmeistarar í fyrsta skiptið á föstudaginn var. Næst á dagskrá er að ákveða með hvaða skóla hann ætlar að spila í bandaríska háskólakörfuboltanum á næsta ári. Körfubolti 28. júní 2021 14:15
Mætti í settið og hermdi eftir þjálfaranum sínum Davíð Arnar Ágústsson, betur þekktur sem Dabbi Kóngur, mætti í settið hjá Domino's Körfuboltakvöldi í gær og fór á kostum. Körfubolti 26. júní 2021 13:15
Íslandsmeistaramyndband: Gæsahúð fyrir Þorlákshafnarbúa Þór Þorlákshöfn varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn eftir sigur á Keflavík í fjórða úrslitaleik liðanna. Körfubolti 26. júní 2021 11:46
Hamingjuóskum rigndi yfir Þórsara: „Besta bikarafhending allra tíma“ Þór Þorlákshöfn varð í gær Íslandsmeistari í fyrsta sinn er liðið hafði betur gegn Keflavík í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. Körfubolti 26. júní 2021 09:01
Umfjöllun og viðtöl: Þór - Keflavík 81-66 | Þórsarar Íslandsmeistarar í fyrsta sinn Þór Þorlákshöfn varð Íslandmeistari í körfubolta í fyrsta sinn með sigri gegn Keflavík en liðin mættust í fjórða leik úrslitaeinvígisins í kvöld. Körfubolti 25. júní 2021 23:32
Styrmir Snær: Það eru bókstaflega allir hérna Styrmir Snær Þrastarson vissi eiginlega ekki alveg hvernig hann átti að haga sér eftir að Þór Þorlákshöfn tryggði sér titilinn Körfubolti 25. júní 2021 22:42
Adomas Drungilas valinn verðmætasti leikmaðurinn Adomas Drungilas, leikmaður Þórs frá Þorlákshöfn, var valinn verðmætasti leikmaður úrslitakeppninnar í Domino's deild karla. Hann átti stórleik þegar Þórsarar tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í kvöld. Körfubolti 25. júní 2021 22:34
Við erum margir heimastrákar sem höfum gengið í gegnum margt saman Emil Karel Einarsson fyrirliði þórsara var sigurreifur í leikslok en ekki maður margra orða þar sem hann var rennblautur eftir fagnaðarlætin í leikslok. Körfubolti 25. júní 2021 22:26
„Fyrir klúbbinn og Jóhönnu“ Lárus Jónsson þjálfari Þórsara var að vonum sigurreifur eftir að hans menn tryggðu sér íslandsmeistaratitilinn. Körfubolti 25. júní 2021 22:16
Þórsarar vita örugglega af örlögum ÍR-inga, Stjörnumanna og Valsara Þórsliðið getur annan leikinn í röð tryggt sér fyrsta Íslandsmeistaratitil félagsins í kvöld þegar Keflvíkingar mæta í Icelandic Glacial höllina í Þorlákshöfn í fjórða leik úrslitaeinvígis Domino's deildar karla í körfubolta. Körfubolti 25. júní 2021 17:00
„Einhliða ákvörðun mín og snýst bara um tíma“ „Ég er búinn að segja upp sem aðalþjálfari liðsins vegna anna annars staðar,“ segir Darri Freyr Atlason sem er hættur sem þjálfari karlaliðs KR í körfubolta. Hann býður þó áfram fram starfskrafta sína í Vesturbænum. Körfubolti 25. júní 2021 10:58
„Þyrfti að henda ansi mörgum bolum og derhúfum“ Brynjar Þór Björnsson, sem unnið hefur átta Íslandsmeistaratitla með KR, hefur trú á því að Þór Þorlákshöfn verði Íslandsmeistari í körfubolta í fyrsta sinn í kvöld. Brynjar segir gríðarlega pressu vera á Keflvíkingum. Körfubolti 25. júní 2021 09:31
Darri sagður hættur hjá KR Darri Freyr Atlason er hættur sem þjálfari karlaliðs KR í körfubolta og einn af dáðustu sveinum þessa sigursæla liðs, Helgi Már Magnússon, gæti verið að taka við liðinu. Körfubolti 25. júní 2021 08:01
Dagur Kár áfram með Grindvíkingum: „Eigum bara eftir að verða betri“ Dagur Kár Jónsson hefur framlengt samning sinn við Grindavík og mun því spila áfram með liðinu í Domino's deild karla í körfubolta næsta vetur. Körfubolti 24. júní 2021 13:30
„Minnti á KR-liðið sem vann alla þessa titla“ Rætt var um magnaðan varnarleik Keflvíkinga og Þórslið sem var mjög ólíkt sjálfu sér í Dominos Körfuboltakvöldi, eftir að Keflavík minnkaði muninn í 2-1 í einvígi liðanna um Íslandsmeistaratitilinn. Körfubolti 24. júní 2021 10:00
Dominykas Milka felldi Drungilas í gær en komst upp með Þrír dómarar misstu af því í gær þegar Keflvíkingurinn Dominykas Milka felldi Þórsarann Adomas Drungilas í þriðja leik úrslitaeinvígis Keflavíkur og Þórs. Körfubolti 23. júní 2021 14:30
Hörður Axel ræddi atvikið þegar hann skemmdi tölvuna hans Rikka G Hörður Axel Vilhjálmsson, fyrirliði Keflavíkur, mætti ekkert syngjandi glaður á háborðið í Domino's Körfuboltakvöldi eftir sigur Keflvíkinga í gær. Góður sigur en Keflavík en ennþá undir í einvíginu. Körfubolti 23. júní 2021 11:32
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - Þór Þ. 97-83 | Keflavík fær líflínu Keflvíkingar eru ekki á leiðinni í sumarfrí alveg strax, en þeir unnu góðan 14 stiga sigur gegn Þórsurum þriðja leik úrslitaeinvígis Domino's deildar karla. Lokatölur 97-83 og staðan því 2-1 í einvíginu, Þórsurum í vil. Körfubolti 22. júní 2021 23:40
„Þórsarar ráða bara mjög illa við hann“ Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður Keflavíkur, var ánægður með leik sinna manna í sigrinum gegn Þór Þorlákshöfn í kvöld. Körfubolti 22. júní 2021 22:56
Íslenski körfuboltinn verður áfram á Stöð 2 Sport Keflavík og Þór Þorlákshöfn eigast nú við í þriðja leik liðanna í úrslitum Domino's deildar karla. Nú rétt fyrir leik var undirritaður nýr þriggja ára samningur milli Stöðvar 2 Sports og KKÍ. Körfubolti 22. júní 2021 20:21
Keflvíkingar risu fyrstir upp frá dauðum en ekkert lið náð því í úrslitunum Keflavík er 2-0 undir í úrslitaeinvígi sínu á móti Þórsurum. Staðan er einföld. Eitt tap í viðbót og yfirburðarlið deildarkeppninnar missir Íslandsmeistaratitilinn til Þorlákshafnar. Körfubolti 22. júní 2021 15:30