Bóndinn ábyrgur fyrir kindinni Héraðsdómur Reykjavíkur gerði með dómi sínum í gær bónda ábyrgan fyrir kind sem slapp upp á þjóðveg og olli tjóni á bíl sem ók á hana. Lausaganga búfjár er bönnuð þar sem atvikið varð og er bóndinn talinn bera ábyrgð á því að hún slapp upp á veg. Innlent 8. apríl 2005 00:01
6 mánuðir fyrir tvær líkamsárásir Maður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af fimm mánuði skilorðsbundna, fyrir tvær líkamsárásir. Maðurinn réðst á tvo menn í miðbæ Reykjavíkur í júlí árið 2003 og sló annan þeirra með flösku í höfuðið og réðst á hinn manninn með brotinni flösku og stakk hann í aftanverðan hálsinn með þeim afleiðingum að hann hlaut fjóra skurði. Innlent 5. apríl 2005 00:01
Lögreglumaður dæmdur í Héraðsdómi Lögreglumaður var í dag dæmdur til að greiða hátt í hálfa milljón króna í sektir og skaðabætur fyrir að hafa keyrt í veg fyrir ökumann bifhjóls á Ægisíðu í fyrravor. Innlent 31. mars 2005 00:01
Lögreglumaður greiði skaðabætur Lögreglumaður, sem stöðvaði bifhjól með því að aka í veg fyrir það á Ægissíðu síðastliðið vor, var dæmdur til að greiða ökumanni bifhjólsins skaðabætur í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Innlent 31. mars 2005 00:01
Greiði bætur upp á 3 milljónir Alþjóða líftryggingafélagið hf. var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmt til að greiða konu tæpar þrjár milljónir króna vegna sjúkratryggingar sem konan hafði keypt hjá félaginu. Konan höfðaði málið þegar henni var neitað um greiðslu út á sjúkratrygginguna. Innlent 22. mars 2005 00:01
Hæstiréttur staðfesti dóminn Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Austurlands um að Fjarðabyggð og verktakafyrirtækið Arnarfell skuli greiða húseigenda í Neskaupstað eina og hálfa milljón króna í skaðabætur vegna sprungna sem urðu í steinsteypu í húsi hans þegar verið var sð sprengja í hlíðinni fyrir ofan það vegna byggingar snjóflóðavarna. Innlent 22. mars 2005 00:01
18 mánuðir fyrir kynferðisbrot Hæstiréttur dæmdi í gær mann í 18 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn tveimur stúlkum sem áttu sér stað þegar önnur þeirra var átta til tíu ára og hin þrettán til fjórtán ára. Brot mannsins gegn annarri stúlkunni voru hins vegar talin fyrnd. Innlent 22. mars 2005 00:01
10 mánaða fangelsi fyrir fjársvik Karl og kona voru í Hæstarétti í gær dæmd í tíu mánaða fangelsi fyrir fjársvik, skjalafals og fjárdrátt í viðskiptum með bíla en þau ráku bílasöluna Evrópu á árunum 2000 og 2001. Hæstiréttur þyngdi dóm Héraðsdóms yfir fólkinu þar sem konan var dæmd í sjö mánaða fangelsi og karlinn í sex mánaða fangelsi, bæði skilorðsbundið. Innlent 22. mars 2005 00:01
Dæmdur eftir níu ár í felum Stefán Aðalsteinn Sigmundsson var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir Skeljungsránið. Fyrrverandi eiginkona hans kom lögreglunni á sporið. Aðeins lítill hluti af sex milljóna króna ránsfeng hefur komist til skila. Innlent 22. mars 2005 00:01
Stígamót óttast afleiðingarnar Talskona Stígamóta segist óttast að dómur yfir tveimur stúlkum, sem lugu nauðgun upp á varnarliðsmann, ýti undir ranghugmyndir um að vitni segi almennt ósatt í nauðgunarmálum. Innlent 21. mars 2005 00:01
Þrettán afbrot á einum degi Þrítugur karlmaður var í morgun dæmdur í sex mánaða fangelsi, óskilorðsbundið, fyrir tugi afbrota af ýmsum toga sem hann hefur framið upp á síðkastið. Einn daginn náði hann að fremja þrettán afbrot. Innlent 21. mars 2005 00:01
Mildaði kynferðisbrotadóm Hæstiréttur mildaði í dag dóm yfir kynferðisbrotamanni vegna mótsagnakennds framburðar eins fórnarlamba hans. Maðurinn var sakfelldur í Héraðsdómi fyrir gróf og alvarleg kynferðisbrot gagnvart tveimur dætrum sínum og þriðju stúlkunni og dæmdur í þriggja ára fangelsi. Stúlkurnar voru 11-14 ára þegar brotin áttu sér stað. Innlent 21. mars 2005 00:01
Báru ljúgvitni um nauðgun Átján ára stúlka hefur hlotið sjö mánaða fangelsisdóm fyrir að hafa borið ljúgvitni með jafnöldru sinni og vinkonu sem kærði ungan Varnarliðsmann fyrir að hafa nauðgað sér í fyrra. Sú hlaut níu mánaða fangelsisdóm og óttast sýslumaður að málið kunni að hafa áhrif á nauðgunarmál í framtíðinni. Innlent 21. mars 2005 00:01
Dómur í Skeljungsráninu þyngdur Hæstiréttur þyngdi í morgun um hálft ár dóm yfir Stefáni Aðalsteini Sigmundssyni fyrir Skeljungsránið svokallaða sem framið var fyrir áratug. Stefán fékk tveggja ára dóm í héraði en ránið framdi hann ásamt tveimur öðrum við Íslandsbanka í Lækjargötu í febrúar árið 1995. Innlent 21. mars 2005 00:01
Hákon Eydal á sér ekki málsbætur Hákon Eydal átti sér ekki málsbætur og var dæmdur í sextán ára fangelsi í gær. Honum er gert að greiða börnum Sri Rahmawati nær 22 milljónir króna. Verjandi hans segir hann ekki geta borgað. Verði svo fær hvert 600 þúsund krónur frá ríkinu. Innlent 18. mars 2005 00:01
Eignarhlutur konunnar 15% Helmingaskipti við skilnað gilda ekki um fólk í óvígðri sambúð miðað við dóm Hæstaréttar í dag. Dómurinn fjallaði um mál pars sem var í sambúð í fjögur ár. Þegar upp úr slitnaði hafði parið keypt íbúð, sem karlmaðurinn hafði þó greitt öll gjöld af, og greitt útborgun með hagnaði af íbúð sem hann átti áður einn. Innlent 17. mars 2005 00:01
Ástþór ákærður fyrir eignaspjöll Ástþór Magnússon, forsetaframbjóðandi með meiru, hefur verið ákærður fyrir eignaspjöll. Honum er gefið að sök að hafa í september síðastliðnum tekið myndavél úr höndum annars gests á skemmtistaðnum Glaumbar, slegið henni nokkrum sinnum í barborð og síðan hent henni frá sér þannig að hún týndist. Innlent 16. mars 2005 00:01
Dæmdur í 14 mánaða fangelsi Ungur karlmaður var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í 14 mánaða fangelsi fyrir fíkniefnabrot og fyrir að hafa stolið tæplega 30 bifreiðum, skemmt sumar þeirra og stolið úr þeim. Maðurinn hefur hlotið dóma áður og rauf skilorð með þessu. Innlent 16. mars 2005 00:01
Stofnunin sýknuð af kröfu föður Tryggingastofnun var í Hæstarétti í gær sýknuð af kröfu föður um ógildingu á ákvörðun Tryggingastofnunar um synjun á greiðslum í fæðingarorlofi. Maðurinn var ekki talinn uppfylla þau skilyrði laga um fæðingar- og foreldraorlof að hafa verið samfellt sex mánuði á innlendum vinnumarkaði fyrir upphafsdag fæðingarorlofs. Innlent 12. mars 2005 00:01
11 milljóna bætur vegna vinnuslyss Verktakafyrirtæki og tryggingafélag þurfa að greiða manni rúmlega ellefu milljónir í bætur vegna vinnuslyss samkvæmt dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í dag. Hann var að vinna á þaki nýbyggingar þegar hann féll niður um gluggaop á þakinu sem var hulið einangrun. Innlent 11. mars 2005 00:01
Lögregluyfirvöld fá enn ákúrur Lögregluyfirvöld í Hafnarfirði fá enn á ný ákúrur frá dómstólum fyrir að draga í meira en eitt og hálft ár að gefa út ákæru. Hæstiréttur segir þetta vítavert, engar skýringar hafi komið fram og þetta sé brot á rétti fólks til réttlátrar málsmeðferðar. Innlent 11. mars 2005 00:01
Hæstiréttur vítti Sýslumann Dómsmálaráðherra lítur svo á að Hæstiréttur hafi vítt Sýslumanninn í Hafnarfirði í gær fyrir að draga úr hömlu að ákæra í sakamáli. Sýslumannsembættið leitar leiða til úrbóta. Innlent 11. mars 2005 00:01
Brennuvargur fyrir rétti Rúmlega tvítugur maður, sem ákærður er fyrir að kveikja í bílum við fjölbýlishús í Hafnarfirði, sagðist fyrir dómi ekki hafa haft í hyggju að stofna níu sofandi íbúum fjölbýlishússins í hættu. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Innlent 8. mars 2005 00:01
2 1/2 ár fyrir kynferðisbrot Maður á sextugsaldri var í Héraðsdómi Reykjaness í morgun dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa í fjölmörg skipti haft samræði við dóttur sambýliskonu sinnar á árunum 1993 til 1999. Stúlkan er fædd árið 1981. Innlent 7. mars 2005 00:01
Bar fyrir sig stundarbrjálæði "Ég iðrast gerða minna og vildi að þetta hefði aldrei átt sér stað," sagði Hákon Eydal fyrir dómi í Héraðsdómi Reykjavíkur en þar fór fram í gær aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn honum fyrir morðið á Sri Rhamawati í júlí síðastliðnum. Innlent 4. mars 2005 00:01
Dómurinn staðfestur af Hæstarétti Hæstiréttur staðfesti í dag tíu mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir fyrrverandi framkvæmdastjóra Lífeyrissjóðsins Framsýnar. Framkvæmdastjórinn fyrrverandi er sakfelldur fyrir að hafa misnotað aðstöðu sína og sett fé sjóðsins í stórfellda hættu. Innlent 3. mars 2005 00:01
Þrír dæmdir fyrir líkamsárásir Þrír menn um tvítugt voru í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdir í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárásir. Mennirnir voru sakfelldir fyrir að ráðast að tveimur mönnum í miðbæ Reykjavíkur með spörkum og höggum. Annar þolendanna nefbrotnaði og marðist illa en hinn hlaut heilahristing og tognaði á kjálka, auk annarra áverka. Innlent 3. mars 2005 00:01
Fyrrum framkvæmdastjóri dæmdur Hæstiréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Karli Benediktssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra lífeyrissjóðsins Framsýnar. Karl er dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa misnotað aðstöðu sína og stefnt fé sjóðsins í stórfellda hættu. Innlent 3. mars 2005 00:01
Hæstiréttur felldi niður refsingu Hæstiréttur felldi niður refsingu gegn manni sem hafði, að mati héraðsdóms, gerst sekur um alvarlega líkamsárás. Með þessu snéri Hæstiréttur við dómi Héraðsdóms Reykjaness sem hafði dæmt manninn í 30 daga skilorðsbundið fangelsi. Innlent 3. mars 2005 00:01
Tilefnislausar árásir Þrír ungir menn voru í gær dæmdir til fangelsisvistar fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa tvívegis sömu nóttina framið tilefnislausar líkamsárásir í miðbæ Reykjavíkur. Innlent 3. mars 2005 00:01