Ætlar ekki að snúa aftur á Twitter Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segist ekki sjá ástæðu til þess að snúa aftur á samfélagsmiðilinn Twitter. Erlent 20. nóvember 2022 10:25
Trump mættur aftur á Twitter Búið er að opna aftur fyrir Twitter-reikning Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta. Elon Musk, forstjóri Twitter, tilkynnti í nótt um að aðgangurinn yrði opnaður aftur eftir skoðanakönnun sem yfir fimmtán milljón notendur tóku þátt í. Viðskipti erlent 20. nóvember 2022 02:28
Leyfir almenningi að kjósa um endurkomu Trump Elon Musk, eigandi Twitter og stofnandi Tesla, hefur boðið almenningi að kjósa um hvort Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti ætti að snúa aftur á Twitter. Á tólf klukkutímum hafa rúmlega tíu milljónir manna kosið. Viðskipti erlent 19. nóvember 2022 13:49
Murdoch snýr baki við Trump Rupert Murdoch er sagður hafa tilkynnt Donald Trump fyrrverandi forseta Bandaríkjanna að hann ætli ekki að styðja framboð hans til endurkjörs sem Trump tilkynnti um í gærkvöldi. Murdoch rekur stóra fjölmiðlasamsteypuna News Corp sem er mjög áhrifamikil á hægri væng stjórnmála víða um heim meðal annars í Bandaríkjunum. Erlent 16. nóvember 2022 11:30
Trump lýsir yfir framboði Donald Trump fyrrverandi forseti Bandaríkjanna tilkynnti í nótt um formlegt framboð sitt fyrir næstu kosningar árið 2024. Erlent 16. nóvember 2022 06:37
Beina spjótum sínum að Trump Áhrifamenn innan Repúblikanaflokksins notuðu spjall- og fréttaþætti í Bandaríkjunum í gær til að reyna að fjarlægja sig frá Donald Trump, fyrrverandi forseta. Deilt er innan flokksins vegna slæms gengis hans í þingkosningum síðustu viku og vilja margir beina spjótum sínum að Trump. Erlent 14. nóvember 2022 09:21
Kjósendum hugnist ekki frambjóðendur sem afneita kosningaúrslitum Prófessor í sagnfræði segir að úrslit nýafstaðinna þingkosninga í Bandaríkjunum bendi til þess að pólitískur klofningur sé í algleymingi í landinu. Erlent 13. nóvember 2022 22:35
Trump liggur undir feldi og íhugar næstu skref Innsti hringur stuðningsmanna Donald Trump er sagður klofinn þegar kemur að því hvort forsetinn fyrrverandi ætti að tilkynna um forsetaframboð 2024 í næstu viku, eins og hann hefur gefið í skyn að hann hyggist gera. Erlent 11. nóvember 2022 07:11
Slæmt gengi kemur niður á draumum McCarthy Kevin McCarthy, leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, vill verða forseti þingsins. Hann hefur ekki farið leynt með það en slæmt gengi flokksins í þingkosningunum á þriðjudaginn mun líklegast koma niður á vonum hans. Erlent 10. nóvember 2022 15:40
„Repúblikanar hafa fylgt Donald Trump fram af klettabrún“ Áhrifamiklir Repúblikanar hafa ráðlagt Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, að fresta yfirlýsingu um nýtt forsetaframboð vegna slæms gengis flokksins í þingkosningunum á þriðjudaginn. Margir innan flokksins beina spjótum sínum að honum og þeim frambjóðendum sem hann studdi í kosningunum. Erlent 10. nóvember 2022 10:30
Meiri líkur á að demókratar geti stöðvað Trump-málin Prófessor í sagnfræði segir varnarsigur demókrata í nýafstöðnum þingkosningum í Bandaríkjunum hafa komið sér talsvert á óvart. Demókratar gætu vel haldið meirihluta í öldungadeildinni, einkum í ljósi mikilvægs sigurs í Pennsylvaníu, en repúblikanar taka líklegast yfir fulltrúadeildina, sem verður Biden þungur baggi. Erlent 9. nóvember 2022 12:12
Trump hótar DeSantis Donald Trump fyrrverandi forseti kaus Ron DeSantis í ríkisstjórakosningunum sem fram fóru í gær en notaði þó tækifærið í viðtali við Fox sjónvarpsstöðina til að vara DeSantis við mögulegu framboði til forseta eftir tvö ár. Erlent 9. nóvember 2022 07:55
Trump boðar „mjög stóra tilkynningu“ Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti fór um víðan völl í aðdraganda kosninganna í dag og kom fram á fjöldafundum til að styðja við sitt fólk. Erlent 8. nóvember 2022 07:54
Repúblikanar hagnast mjög á breyttum kjördæmum Gengið verður til kosninga í Bandaríkjunum á morgun en kosið verður um sæti í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, þriðjung sæta í öldungadeildinni og ríkisstjóraembætti víða um Bandaríkin, svo eitthvað sé nefnt. Miðað við kannanir vestanhafs er útlit fyrir að Repúblikanar nái stjórn á báðum deildum þingsins. Erlent 7. nóvember 2022 16:24
Biden og Trump keppast við að afla flokkum sínum fylgis Joe Biden núverandi forseti og Donald Trump fyrrverandi forseti Bandaríkjanna komu báðir fram á fjöldafundum í gærkvöldi til að reyna að afla flokkum sínum atkvæða fyrir komandi þingkosningar í landinu. Erlent 7. nóvember 2022 08:27
Trump strax farinn að efast um lögmæti þingkosninganna Donald Trump fyrrverandi Bandaríkjaforseti er strax farinn að efast um lögmæti kosninga til Bandaríkjaþings. „Falsaðar kosningar,“ segir Trump um þingkosningarnar sem fara fram á þriðjudaginn. Erlent 6. nóvember 2022 23:30
Þremur forsetum trillað út á lokametrum kosningabaráttunnar Þrír forsetar Bandaríkjanna tóku þátt í framboðsfundum á lokametrum kosningabaráttunar í lykilríkinu Pennsylvaníu í gær. Kosið verður til Bandaríkjaþings og fjölda ríkisembætta á þriðjudag. Erlent 6. nóvember 2022 11:59
Dómari segir að vakta eigi fyrirtæki Trumps Óháður aðili verður fenginn til að vakta fyrirtæki Donalds Trumps, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Dómari í New York-ríki komst að þeirri niðurstöðu í dag í tengslum við lögsókn ríkissaksóknara New York gegn fyrirtækinu. Erlent 4. nóvember 2022 12:14
Trump segir „mjög, mjög, mjög líklegt“ að hann bjóði sig aftur fram Donald Trump fyrrverandi forseti Bandaríkjanna gaf það sterklega í ljós í ræðu í gærkvöldi að hann hyggi á endurkomu í næstu forsetakosningum. Erlent 4. nóvember 2022 07:38
Kvartar yfir „grimmum, hlutdrægum og kvikindislegum“ dómara Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, segir að sem stjórnmálamaður eigi hann rétt á grið frá dómskerfi Bandaríkjanna þar til þingkosningarnar í næsta mánuði eru búnar. Trump fór í gær hörðum orðum yfir dómara sem heldur utan um eitt af þremur dómsmálum gegn honum í New York-ríki. Erlent 29. október 2022 09:18
Vildi ekki binda sig við ríkisstjórastólinn Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, vill ekki heita því að sitja heilt kjörtímabil sem ríkisstjóri, nái hann endurkjöri í kosningunum í næsta mánuði. Charlie Crist, mótframbjóðandi hans, gagnrýndi ríkisstjórann í kappræðum þeirra í gær og sagði hann ekki hafa áhuga til að sinna embættinu áfram. Öll hans athygli beindist að mögulegu forsetaframboði. Erlent 25. október 2022 14:07
Réttarhöldin gegn fyrirtæki Trumps hefjast Réttarhöld í skattsvikamáli New York-ríkis gegn Trump Organization, fyrirtækis Donalds Trumps, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hefjast í dag. Fyrsta verkefnið í dómsal mun að öllum líkindum reynast gífurlega erfitt en það er að finna ellefu kviðdómendur sem hafa ekki sterka skoðun á forsetanum fyrrverandi. Erlent 24. október 2022 15:07
Háleynileg gögn um Íran og Kína á heimili Trumps Flugskeytaáætlun Írans og upplýsingaöflun bandarísku leyniþjónustunnar um Kína eru á meðal þess sem Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, hafði með sér við lok forsetíðar sinnar til heimilis hans í Flórída, Mar-a-Lago. Erlent 21. október 2022 20:42
Bannon dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi Bandarískur alríkisdómstóll dæmdi Steve Bannon, fyrrverandi skrifstofustjóra Hvíta húss Donalds Trump, í fjögurra mánaða fangelsi fyrir að hunsa stefnu nefndar Bandaríkjaþings í dag. Nefnd sem rannsakar árás stuðningsmanna Trump á þinghúsið stefndi Bannon til að bera vitni en hann óhlýðnaðist henni. Erlent 21. október 2022 15:27
Trump bar vitni í nauðgunarmáli í dag Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, bar í dag vitni vegna málaferla rithöfundarins E. Jean Carroll, sem hefur sakað hann um nauðgun. Þetta var í fyrsta sinn sem lögmenn hennar gátu spurt forsetann fyrrverandi spurninga þar sem hann er eiðsvarinn. Erlent 19. október 2022 23:31
Hafa áhyggjur af lýðræðinu en setja það ekki í forgang Mikill meirihluti bandarískra kjósenda segir lýðræðinu vera ógnað þar í landi. Það að verja lýðræðið er þó ekki í forgangi hjá þeim og hafa kjósendur meiri áhyggjur af efnahagsmálum vestanhafs. Erlent 19. október 2022 22:32
Sagður hafa okrað á ríkinu fyrir lífvörslu Fyrirtæki Donalds Trumps, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, rukkaði lífverði forsetans meira fyrir herbergi í eignum fyrirtækisins en opinberum starfsmönnum er heimilt að greiða. Þetta gerðist minnst fjörutíu sinnum, samkvæmt niðurstöðum rannsóknarnefndar, en tvisvar sinnum voru lífverðirnir rukkaðir fyrir meira en ellefu hundruð dali fyrir nóttina. Erlent 17. október 2022 22:00
Stefna Trump til að mæta fyrir þingnefndina Þingnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings sem rannsakar árásina á þinghúsið þann 6. janúar í fyrra samþykkti einróma á opnum fundi nefndarinnar að stefna Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, til að mæta fyrir þingnefndina. Erlent 13. október 2022 20:03
Bein útsending: Segja Trump enn ógna lýðræðinu í Bandaríkjunum Þingnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings sem rannsakar árásina á þinghúsið þann 6. janúar í fyrra heldur opin fund í kvöld þar sem til stendur að skoða hugarástand Donalds Trumps, fyrrverandi forseta, þegar árásin átti sér stað. Einnig ætla meðlimir nefndarinnar að ítreka það að lýðræði Bandaríkjanna stafi enn ógn af Trump og fylgjendum hans. Erlent 13. október 2022 16:00
Trump sagður hafa látið færa skjölin eftir að honum var stefnt Starfsmaður Donalds Trumps er sagður hafa tjáð alríkislögreglunni að fyrrverandi forsetinn hafi gefið skipanir um að færa kassa með skjölum sem hann hafði með sér úr Hvíta húsinu eftir að honum hafði verið stefnt til að skila þeim. Alríkislögreglan gerði síðar húsleit hjá Trump til að endurheimta skjölin. Erlent 13. október 2022 08:59