Ólafur Ragnar segir Trump fyndinn Trump hefur í tvígang tíst illskiljanlegu myndbandi með óljósum skilaboðum, án nokkurra skýringa. Lífið 28. júní 2019 11:28
Trump virtist gera grín að kosningaafskiptum Rússa með Pútín Þegar bandarískir blaðamenn spurðu út í kosningaafskiptin virtist Trump skipa Pútín að skipta sér ekki af í gríni. Erlent 28. júní 2019 08:34
Demókratar samþykktu landamærafrumvarp með semingi Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur samþykkt frumvarp sem mun verða til þess að 4, 6 milljörðum dala verður veitt til að takast á við þann mannfjölda sem freistar þess að komast yfir landamærin frá Mexíkó til Bandaríkjanna. Erlent 28. júní 2019 00:00
Vöktu athygli á mannréttindabrotum í veislu bandaríska sendiráðsins: „Þetta er gleðskapur, ekki pólitískur viðburður“ Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson og Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir voru gestir í 4. júlí veislu bandaríska sendiráðsins á Hilton í dag. Innlent 27. júní 2019 23:15
Staðfesta að þær hafi heyrt um meinta árás Trump New York Times hefur rætt við tvær konur sem E. Jean Carroll trúði fyrir frásögn af kynferðislegri árás sem hún segist hafa orðið fyrir að hálfu Bandaríkjaforseta um miðjan 10. áratuginn. Erlent 27. júní 2019 12:06
Tekist á um heilbrigðis- og innflytjendamál í fyrstu kappræðum demókrata Tíu frambjóðendur í forvali Demókrataflokksins fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum öttu kappi í sjónvarpi í fyrsta skipti í gærkvöldi. Erlent 27. júní 2019 08:24
Trump gagnrýnir fyrirliða bandaríska kvennalandsliðsins Donald Trump lét gamminn geysa í dag. Fótbolti 26. júní 2019 22:30
Öldungadeildin felldi frumvarp um mannúðaraðstoð á landamærunum Öldungadeild Bandaríkjaþings greiddi atkvæði gegn því að ráðstafa 4,5 milljörðum Bandaríkjadala í mannúðaraðstoð á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. Erlent 26. júní 2019 19:18
Noah og Fallon þróuðu nýja týpu af Trump-eftirhermu Það geta að hermt eftir frægum einstaklingum er eitthvað sem allir grínistar þurfa að geta gert án vandkvæða. Tveir af þekktustu grínistum heimsins, þáttastjórnendurnir Jimmy Fallon og Trevor Noah, eru löngu búnir að fínstilla hæfileikann, líkt og þeir sýndu á dögunum í The Tonight Show, spjallþætti Fallon. Lífið 26. júní 2019 16:00
Ameríski draumurinn sem drukknaði í Río Grande Mynd af feðginum frá El Salvador sem drukknuðu við að reyna að komast til Bandaríkjanna hefur vakið athygli á hættunni sem fólk frá Rómönsku Ameríku leggur sig í við leit að betra lífi. Erlent 26. júní 2019 11:45
Mueller samþykkir að bera vitni fyrir þingnefnd Formenn tveggja nefnda fulltrúadeildar Bandaríkjaþings stefndu fyrrverandi sérstaka rannsakandandum til að bera vitni um rannsókn hans og niðurstöður um afskipti Rússa af forsetakosningunum árið 2016 og mögulega glæpi Trump forseta. Erlent 26. júní 2019 07:37
Trump segir að öllum árásum verði svarað af fullum krafti Forseti Írans segir Bandaríkjaforseta stríða við þroskahömlun eftir tilkynningu um nýjar þvinganir. Sá bandaríski segir yfirlýsinguna móðgandi og segir að hverri árás á bandarískt skotmark verði svarað af fullum krafti, í sumum tilfellum af gjöreyðingarmætti. Erlent 26. júní 2019 07:30
Forstjóri tolla- og landamæraeftirlits Bandaríkjanna segir af sér eftir gagnrýni vegna aðbúnaðar flóttabarna John Sanders, starfandi forstjóri tolla og landamæraeftirlits Bandaríkjanna hefur ákveðið að segja stöðu sinni lausri í kjölfar fréttaflutnings vestra um aðbúnað barna innflytjenda sem eru í haldi stofnunarinnar í Texas. Fréttir höfðu borist af því að sum börnin hafi verið látin dúsa í stöðinni í fleiri vikur og við illan aðbúnað. Aðstæður í innflytjendaskýlum sætir harðri gagnrýni réttindasamtaka og stjórnarandstæðinga. Erlent 25. júní 2019 21:50
Grisham skipuð fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins Stephanie Grisham hefur verið skipuð nýr fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins og tekur hún við starfinu af Söruh Huckabee Sanders sem sagði af sér í mars síðastliðinn. Erlent 25. júní 2019 17:43
Íranir segja Hvíta húsið „andlega fatlað“ vegna refsiaðgerðanna Forseti Írans segir Bandaríkjastjórn loka varanlega á viðræður með því að beita utanríkisráðherrann persónulega refsiaðgerðum. Erlent 25. júní 2019 10:49
Bandaríkjaforseti segir konuna sem sakar hann um nauðgun ekki hans „týpu“ Aftur ver forseti Bandaríkjanna sig fyrir ásökunum um kynferðislegt ofbeldi með því að gera lítið úr ásakandanum. Erlent 25. júní 2019 08:02
Ætla að beita Íran enn fleiri viðskiptaþvingunum Bandaríkjastjórn hyggst beita Íran enn harðari viðskiptaþvingunum komi þarlend stjórnvöld ekki að samningaborðinu. Erlent 23. júní 2019 23:45
Trump nefndi vopnakaup Sáda þegar hann var spurður um rannsókn á Khashoggi Trump ræddi málið í viðtali við NBC sjónvarpstöðina fyrr í dag og benti í því samhengi á mikil vopnaviðskipti Bandaríkjanna og Sádí-Arabíu. Kaup Sáda á bandarískum vopnum nemi háum fjárhæðum sem búi til störf í heimalandinu. Erlent 23. júní 2019 17:02
Hvíta húsið neitar að staðfesta "frábær“ bréfaskipti við Kim Jong-Un Ríkisfréttastofan KCNA í Norður-Kóreu greinir frá því í dag að Donald Trump Bandaríkjaforseti hafi sent Kim Jong-Un leiðtoga Norður-Kóreu fádæma bréf. Í fréttinni um bréfið er vitnað í leiðtogann sem segir bréfið frábært og að hann muni gaumgæfa innihald þess alvarlega. Erlent 23. júní 2019 10:34
Gerðu tölvuárás á vopnakerfi íranska hersins Bandaríkin gerðu tölvuárás á vopnakerfi Íran á fimmtudaginn í síðustu viku eftir að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hætti við loftárásir á landið á síðustu stundu. Tölvuárásin lamaði tölvukerfi sem stýra eldflaugavarnakerfi Írans. Erlent 23. júní 2019 07:23
Trump frestar brottvísunum og gefur tveggja vikna frest til að leysa vandann Bandaríkjaforseti Donald Trump hefur ákveðið að fresta brottrekstrarátaki sem hann hugðist koma af stað með það að markmiði að fækka ólöglegum innflytjendum innan landamæra Bandaríkjanna. Erlent 22. júní 2019 23:50
Trump kveðst ekkert kannast við pistlahöfundinn sem sakar hann um nauðgun Bandaríkjaforseti, Donald Trump, kveðst ekkert kannast við pistlahöfundinn E. Jean Carroll sem sakaði forsetann í gær um nauðgun á tíunda áratug síðustu aldar. Erlent 22. júní 2019 19:17
Trump varar Íran við gjöreyðingu ef til stríðs kemur Spenna milli ríkjanna hefur farið stigvaxandi undanfarið. Erlent 22. júní 2019 13:27
Pistlahöfundur sakar Trump um nauðgun Trump þvertekur fyrir ásakanirnar en fjölmargar konur hafa hingað til sakað hann um kynferðislega áreitni eða ofbeldi. Erlent 21. júní 2019 23:21
NATO sagt stefna að því að viðurkenna geimhernað Með þessu er talið að NATO vilji sannfæra Trump um mikilvægi bandalagsins. Erlent 21. júní 2019 17:10
Segja Trump hafa samþykkt loftárásir á Íran en snúist hugur Árásin átti að vera á fáein skotmörk, ratsjárstöðvar og eldflaugaskotpalla. Erlent 21. júní 2019 07:45
Vill hleypa glæðum í viðræður um kjarnorkuafvopnun á ný Á leiðtogafundi Kim Jong-un og Xi Jinping ræddu þeir meðal annars um stöðuna í viðræðum um kjarnorkuafvopnun. Erlent 20. júní 2019 16:19
Rannsókn á Deutsche Bank teygir anga sína til Trump Bandarísk yfirvöld hafa tekið til skoðunar hvort þýski fjármálarisinn hafi framfylgt lögum sem ætlað er að koma í veg fyrir peningaþvætti og annað glæpsamlegt athæfi. Viðskipti erlent 20. júní 2019 11:07
Sársaukafull fortíð ástæða þess að varnarmálaráðherraefni Trump hættir við Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í dag að Patrick Shanahan, starfandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, muni ekki verða skipaður ráðherra til frambúðar. Í gær birtu bandarískir fjölmiðlar upplýsingar um ofbeldisfullar heimiliserjur úr fortíð Shanahan. Erlent 18. júní 2019 22:00
Hellti sér yfir „hamfaraborgarstjórann“ eftir morðhrinuna í London Þetta er ekki í fyrsta skipti sem forsetinn hellir sér yfir Sadiq Khan borgarstjóra London en þeir hafa lengi eldað grátt silfur saman. Erlent 15. júní 2019 23:15