Verðmætabjörgun í líflínu Jörð heldur áfram að gliðna í Grindavík og frekari skemmdir að verða á húsum í bænum. Fimmtíu starfsmönnum fyrirtækis í Grindavík var sagt upp vegna hamfaranna. Eldgos gæti hafist á næstu vikum eða jafnvel dögum. Innlent 2. febrúar 2024 18:02
Hópuppsögn í Grindavík: „Erfiðasta ákvörðun sem við höfum tekið í lífinu“ „Þetta er erfiðasta ákvörðun sem við höfum tekið í lífinu, að gera þetta. Það var bara ekki annað hægt,“ segir Hermann Th. Ólafsson, framkvæmdastjóri Stakkavíkur ehf. í samtali við fréttastofu vegna hópuppsagnar sem fór fram hjá fyrirtækinu um nýliðin mánaðamót. Viðskipti innlent 2. febrúar 2024 14:58
Rafmagn tekið af Grindavík vegna eldingaveðurs Veðurspáin í dag gerir ráð fyrir eldingaveðri á Reykjanesi. Til að koma í veg fyrir tjón ef til eldingarveðurs kemur, var ákveðið að taka spennu af strengnum sem liggur yfir hraunið við Grindavík. Innlent 2. febrúar 2024 14:17
Farið yfir forgangsröðun vegna mögulegs goss Forsætisráðherra mun funda með almannavörnum um stöðuna í og við Grindavík síðar í dag. Hún segist vona að línur skýrist fyrir Grindvíkinga í næstu viku þegar von sé á að frumvarp um stuðning þeim til handa verður kynnt. Innlent 2. febrúar 2024 12:15
Veðurstofufólk með augun límd á mælitækjum Dregið gæti til tíðinda á Reykjanesi á næstu dögum og starfsmenn Veðurstofunnar eru á sólarhringsvakt með augun límd á mælitækjum. Fyrirvarinn gæti orðið styttri en áður þar sem jarðskorpan er heit og minna brotgjörn. Innlent 2. febrúar 2024 11:52
Ný mislæg gatnamót í hrauninu fyrir framtíðar byggingarsvæði Gerð nýrra mislægra gatnamóta í hrauninu milli Straumsvíkur og Hvassahrauns fylgir breikkun Reykjanesbrautar, sem hófst fyrr í vetur. Gatnamótunum er ætlað að greiða leið að nýjum framtíðar byggingarsvæðum Hafnarfjarðar, að því er fram kom í fréttatilkynningu Vegagerðarinnar. Innlent 2. febrúar 2024 09:11
Skjálftar við Djúpavatn í nótt Í nótt urðu tveir skjálftar við Djúpavatn á Reykjanesi, sá fyrri klukkan rétt rúmlega fjögur sem var 3,3 stig og sá seinni upp á 2,6 stig klukkan hálf fimm. Innlent 2. febrúar 2024 07:52
Mikilvægt að undirbúa sig vel fyrir stóra skjálftann Búast má við jarðskjálftum að stærðinni um eða yfir sex á höfuðborgarsvæðinu. Fagstjóri náttúruvár segir mikilvægt að vera vel undirbúinn þegar að því kemur. Innlent 1. febrúar 2024 20:01
Segja fyrirvara á næsta gosi við Grindavík geta orðið stuttan Jarðvísindamenn Veðurstofu og Háskóla Íslands segja að líkurnar á nýju eldgosi norðan Grindavíkur teljist núna verulegar og vara við að fyrirvarinn geti orðið stuttur. Þeir segja líklegt að á næstu tveimur vikum eða jafnvel dögum nái kvikumagnið í kvikuhólfinu undir Svartsengi svipuðu rúmmáli og var fyrir síðasta eldgos þann 14. janúar. Innlent 1. febrúar 2024 19:53
Í leyfi frá löggæslustörfum: „Hef líka skyldur gagnvart sveitarfélaginu mínu“ Hjálmar Hallgrímsson, lögreglumaður og formaður bæjarráðs í Grindavík, er í leyfi frá löggæslustörfum og hefur verið það í á þriðju viku. Það staðfestir hann í samtali við fréttastofu. Innlent 1. febrúar 2024 18:50
Hætta vegna hraunflæðis meiri í nýju hættumatskorti Hætta vegna hraunflæðis í Grindavík hefur verið fært upp í mikla hættu á nýju hættumatskorti Veðurstofunnar. Í tilkynningu frá Veðurstofunni kemur fram að heildarhættumatið sé það sama hafi fyrir Grindavík hafi þetta breyst. Einnig er hætta vegna jarðfalls ofan í sprungu metin mjög mikil. Innlent 1. febrúar 2024 17:26
Algjörlega ljóst að ekki sé búandi í Grindavík Prófessor í jarðeðlisfræði segir að gera verði greinarmun á búsetu og vinnu í Grindavík. Við núverandi aðstæður sé algjörlega ljóst að ekki sé ekki hægt að búa í bænum, en að hans mati sé ásættanleg áhætta að hafa starfsemi þar. Hópstjóri náttúruvár segir að ekki sé tímabært að velta búsetu í bænum fyrir sér fyrr en kvika sé hætt að streyma inn undir Svartsengi. Innlent 1. febrúar 2024 17:00
Mikilvægt að ala ekki á ótta um möguleg eldgos Jarðvísindamenn og bæjarstjóri Hafnarfjarðar segja fjölmiðla bera einhverja ábyrgð á umræðu um jarðhræringar og eldvirkni. Mikilvægt að sé að ala ekki á ótta. Innlent 1. febrúar 2024 15:18
Engum hleypt inn í Grindavík næstu tvo daga Íbúum og fyrirtækjaeigendum verður ekki hleypt inn í Grindavík næstu daga vegna slæmrar veðurspár. Vegna veðurs þykir ekki óhætt að halda því fyrirkomulagi sem búið var að setja upp. Innlent 1. febrúar 2024 13:42
Pallborðið á Vísi í dag: Er ógn eldgosa að færast nær höfuðborgarsvæðinu? Ógn sem íbúum höfuðborgarsvæðisins kann að stafa af eldsumbrotum verður umræðuefni Pallborðsins á Vísi í dag. Kristján Már Unnarsson fær til sín bæjarstjórann í Hafnarfirði, Rósu Guðbjartsdóttur, og tvo jarðvísindamenn, Kristínu Jónsdóttur, jarðskjálftafræðing á Veðurstofu Íslands, og Magnús Tuma Guðmundsson, jarðeðlisfræðing við Háskóla Íslands. Innlent 1. febrúar 2024 12:15
Fyrirkomulagið við verðmætabjörgun sé ómögulegt Formaður bæjarráðs Grindavíkur segir skipulag verðmætabjörgunar fyrir íbúa vera ómögulegt. Margir geti ekki nýtt sér úrræðið vegna erfiðra akstursskilyrða og annarra skuldbindinga. Innlent 1. febrúar 2024 12:00
Búast við eldgosi á næstu dögum Kvikusöfnun heldur áfram undir Svartsengi. Magn kviku er orðið svipað og það var fyrir síðasta gos. Jarðvísindamenn búast við nýjum atburði, kvikuhlaupi, sem gæti leitt til eldgoss á næstu dögum eða rúmri viku. Innlent 1. febrúar 2024 11:51
Grindvíkingar vitja um eigur sínar í dag Grindvíkingar sem búa á ákveðnum svæðum fá í dag að fara inn í bæinn til að vitja um eigur sínar. Innlent 1. febrúar 2024 08:23
Ólíklegt að menn fáist til að fjárfesta í uppbyggingu í Hvassahrauni Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segist telja ólíklegt að menn fáist til að fjárfesta í uppbyggingu í Hvassahrauni þar sem mikil óvissa ríkir um öryggi á svæðinu. Innlent 1. febrúar 2024 06:31
Ekkert bendir til að kvika sé að safnast saman undir Brennisteinsfjöllum Engar mælingar benda til þess að kvika sé að safnast saman eða brjóta sér leið undir Brennisteinsfjöllum. Um tuttugu skjálftar mældust um síðustu helgi milli Húsfells og Bláfjalla. Mikilvægt er þó að hafa í huga að skjálftar sem eiga upptök á Hvalhnúksmisgenginu séu stærstu skjálftar sem hafa riðið yfir Reykjanesskagann. Innlent 31. janúar 2024 08:49
Segir ekki hægt að kalla fall mannsins í sprunguna slys Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir ekki hægt að kalla það þegar maður féll í sprungu í Grindavík slys. Hann telur óafsakanlegt að vinna hafi þegar verið hafin við að fylla í sprungur sem ekki var nauðsynlegt að fylla í, né heldur að hann hafi verið einn að störfum. Innlent 31. janúar 2024 08:30
Full ástæða til að fylgjast vel með virkni nærri Bláfjöllum Full ástæða er til að fylgjast vel með jarðskjálftavirkni nærri Bláfjöllum að mati fagstjóra náttúruvár hjá Veðurstofunni. Engin merki séu þó um kvikusöfnun á svæðinu. Innlent 30. janúar 2024 20:01
Engin verðmætabjörgun í Grindavík á morgun Íbúum og fyrirtækjum í Grindavík verður ekki gefinn kostur á að fara inn til Grindavíkur á morgun líkt og til stóð. Ástæðan er gul veðurviðvörun sem gefin hefur verið út á svæðinu, þar sem vestan hvassviðri eða stormur með dimmum éljum mun ganga yfir. Innlent 30. janúar 2024 15:33
Vonskuveður gæti komið í veg fyrir verðmætabjörgun á morgun Verðmætabjörgun í Grindavík hefur gengið vel það sem af er degi, að sögn lögreglustjórans á Suðurnesjum. Stefnt er að því að um 400 íbúar geti vitjað heimila sinna og eigna í dag, en hugsanlega þarf að gera breytingar á áætlun morgundagsins þar sem veðurspá er afar slæm. Innlent 30. janúar 2024 12:00
Áfram Grindavík! Við Íslendingar höfum þurft í gegnum aldir alda að eiga við all hrikalega krafta móður jarðar. Þau allra verstu á landnámstímum væntanlega móðuharðindin í kjölfar Skaftárelda, djöfulganginn í systrunum Heklu og Kötlu auk frændanna í Vatnajökli, Bárðarbungu og Öræfajökli. Skoðun 30. janúar 2024 07:30
Nota Suðurstrandarveg á morgun en leita fleiri leiða Suðurstrandarvegur verður áfram leiðin inn í Grindavík fyrir þá bæjarbúa sem þangað fara á morgun. Innlent 29. janúar 2024 23:19
Verði kannski komin á byrjunarreit eftir tíu daga Víðir Reynisson segir aðgerðir við verðmætabjörgun í Grindavík heilt yfir hafa gengið vel í dag, þrátt fyrir hnökra í upphafi dags. Hann segist vel skilja reiði og pirring Grindvíkinga. Með áframhaldandi landrisi aukist óvissan um hvað gerist næst. Innlent 29. janúar 2024 21:05
Vill hanna varnir strax Íbúar á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi eru að sigla inn í óvissutíma að sögn eldfjallafræðings. Eldgosin séu að færast nær byggð og við því þurfi að bregðast. Innlent 29. janúar 2024 19:47
„Ekki spurning um hvort það verði gos, heldur hvenær“ Þorvaldur Þórðarsson, eldfjallafræðingur, segist telja að skjálftahrina í Húsfellsbruna um helgina sé hluti af þeirri virkni sem er að eiga sér stað á Reykjanesskaga. Ekki sé spurning um hvort heldur hvenær muni gjósa í Brennisteinsfjöllum, þó hann telji ekki líkur á að það muni gerast á næstunni. Innlent 29. janúar 2024 17:21
Hefði verið til í fleiri til að bera hægindastólana Einar Dagbjartsson, íbúi í Grindavík, var á meðal Grindvíkinga sem fengu að sækja eigur sínar til Grindavíkur í dag. Hann segir að vel hafi gengið þó að hann hefði verið til í fleiri hendur til að aðstoða sig, við að sækja dót upp á þriðju hæð. Innlent 29. janúar 2024 14:43