Líklegast að krafturinn haldi áfram að minnka „Gosið er klárlega minna núna en það var bara fyrir viku, maður sér það bara að þetta hefur farið minnkandi og hægst hefur mjög mikið á útbreiðslu þess. Það er búið að vera minnkandi og það er svo sem ekkert ólíklegt að það haldi þannig áfram en engu hægt að slá föstu um það.“ Innlent 1. ágúst 2023 10:53
Opið að eldstöðvunum í dag en gosmengun gæti safnast upp Gönguleiðir að eldgosinu við fjallið Litla-Hrút verða opnar almenningi til klukkan 18 í dag líkt og fyrri daga. Opið er inn á gossvæðið frá Suðurstrandavegi. Lokun gekk vel í gær, að sögn lögreglustjórans á Suðurnesjum. Fáir hafi þurft á hjálp að halda en líkt og alla daga þurfi að koma einhverju fólki til aðstoðar á svæðinu. Innlent 1. ágúst 2023 08:41
Þoka víða um land: Hafa ekki séð til gossins í nótt Víða um land er lágskýjað og þoka og er lítill vindur á landinu. Flestar mælistöðvar Veðurstofu Íslands sýna minna en fjóra metra á sekúndu. Líklega mun þó birta til í dag og er von á skúrum og þá sérstaklega síðdegis. Innlent 1. ágúst 2023 07:44
Ótrúlegt sjónarspil við Litla Hrút Eldgosið í Litla-Hrút á Reykjanesskaga kann að vera senn á enda en um er að gera að njóta þess á meðan það er. Gosið er enn þá gríðarlega mikið sjónarspil eins og sjá má af þessum drónamyndum sem Björn Steinbekk tók. Innlent 31. júlí 2023 19:51
Youtube-stjarna eldaði örbylgjurétt á glóandi hrauninu Breska YouTube-stjarnan Max Fosh kom til landsins á dögunum í þeim tilgangi að sjá eldgosið við Litla-Hrút. Á meðan flestir hefðu látið sjónarspilið við hraunið nægja sér gerði Fosh sér lítið fyrir og eldaði sér örbylgjurétt á hrauninu. Lífið 31. júlí 2023 14:17
Á fjórða þúsund gengu á gossvæðið sem verður aftur opið í dag Opið verður fyrir almenning inn á gossvæðið við Litla-Hrút frá Suðurstrandavegi til klukkan 18 í dag. Lokun gekk vel í gær og þurftu fáir á aðstoð að halda. Innlent 31. júlí 2023 08:34
Ekki sniðugt að plana gosferð í september Jarðeðlisfræðingur segir að fólk ætti ekki að geyma það að sjá eldgosið við Litla Hrút fram í september, þar sem senn kunni að líða að goslokum. Hann segir um eðlilega lengd á eldgosi sé að ræða, og því gæti lokið eftir eina til tvær vikur. Innlent 30. júlí 2023 13:00
Goslok möguleg eftir eina til tvær vikur Dregið hefur úr afli gossins um 30 til 50 prósent síðustu vikuna. Goslok eru möguleg eftir eina til tvær vikur ef framleiðni gossins heldur áfram að falla með sama hraða. Innlent 29. júlí 2023 23:07
„Leiðin var styttri en við héldum“ Erlendir ferðamenn sem fréttastofa hitti nærri gosstöðvunum í gær voru í skýjunum með upplifun sína. Sumir áttu von á erfiðari göngu en tuttugu kílómetra hringferðinni inn að Litla-Hrúti og til baka. Innlent 28. júlí 2023 11:02
Rifu niður lögregluborða á gosstöðvum Tveir hópar erlendra ferðamanna voru til vandræða við eitt bílastæðið á gosstöðvum við Litla-Hrút í gær. Þetta kemur fram í tilkynningu lögreglunnar á Suðurnesjum, þar sem tekið er fram að svæðið sé opið í dag en loki klukkan 18:00. Innlent 28. júlí 2023 08:33
„Sagan endalausa“ í baráttunni við gróðureldana Enn standa slökkviliðsmenn í stríði við gróðurelda sem kviknað hafa í kringum gosstöðvarnar við litla Hrút. Slökkviliðsstjóri segist hræddur um að ástandið verði eins þar til það tekur að rigna, mikilvægt sé að eldunum sé haldið niðri á meðan þurrt er. Innlent 27. júlí 2023 22:36
Mikilvægt að forðast svæðið norðaustan við gíginn Gígbarmurinn við Litla hrút á Reykjanesskaga er í góðu jafnvægi sem stendur, að sögn eldfjallafræðings. Lítið þurfi þó að breytast til að kvika fari að flæða til norðurs. Varað er við því að vera norðaustan við gíginn. Innlent 27. júlí 2023 14:36
Slasaðist á fæti á gönguleið að gosinu Maður slasaðist á fæti á gönguleið að gosstöðvunum á Reykjanesskaga í gær. Þá þurfti einnig að aðstoða ferðamann sem var lúinn. Gönguleiðir inn á svæðið eru opnar í dag en þeim verður lokað klukkan 18 í gær líkt og síðustu daga. Innlent 27. júlí 2023 08:38
Neitar að játa sig sigraðan gagnvart gróðureldunum Þrjátíu slökkviliðsmenn hafa barist í dag á gosstöðvunum, með meiri tækjabúnaði en áður, við að koma í veg fyrir að gróðureldar breiðist út á Reykjanesskaga. Á sama tíma undirbúa Almannavarnir aðgerðir til bjargar innviðum. Þá hyggst lögregla vísa fólki burt af útsýnisstaðnum á Litla-Hrúti vegna þess að Veðurstofan skilgreinir hann sem hættusvæði. Innlent 26. júlí 2023 23:23
Segir Ísland núna besta stað í heimi til að rannsaka eldgos Nýsjálenskur eldfjallafræðingur við Háskólann á Hawaii, sem kom sérstaklega til að fylgjast með Reykjaneseldum, segir Ísland besta stað í heimi um þessar mundir til að rannsaka eldgos. Hér gefist stórkostlegt tækifæri til að skýrari mynd af hraungosum. Innlent 26. júlí 2023 09:56
Meradalaleið lokuð til eitt Opið er inn á gossvæðið frá Suðurstrandarvegi í dag en Meradalaleið verður þó lokuð til klukkan 13. Ástæðan er sú að það þarf að nota gönguleiðina fyrir flutning tækja slökkviliðs vegna gróðurelda sem loga ennþá á svæðinu. Þá verður gönguleiðum inn á svæðið lokað klukkan 18 í dag eins og síðustu daga. Innlent 26. júlí 2023 08:23
Segir þyrlur nánast ofan í kaffibollum íbúa Íbúi í Skerjafirði segir að gríðarleg umferð þyrlna, sem nýttar eru til að flytja ferðamenn að eldgosinu við Litla-Hrút, sé hreinlega skerðing á lífsgæðum. Innlent 25. júlí 2023 23:56
Þetta er útsýnisstaðurinn sem gosferðamenn vilja komast á Eldgosið á Reykjanesi heldur enn sama krafti og undanfarna daga. Æ fleiri ferðamenn velja að sjá gosið af fjallinu Litla-Hrúti, þótt það þýði lengri göngu. Almannavarnir hefja tilraunir á gossvæðinu á morgun á aðferðum til að verja mikilvæga innviði eins og háspennulínur og jarðstrengi. Innlent 25. júlí 2023 20:21
Eldgosið hafi komið á besta tíma Síðan eldgosahrina hófst á Reykjanesskaga fyrir tveimur árum hefur Björn Steinbekk verið fastagestur á svæðinu með dróna á lofti. Segja má að gosið sem hófst í júlí hafi ekki getað komið á betri tíma fyrir Björn. Samstarf 25. júlí 2023 15:07
Gönguleiðum að gosinu lokað í kvöld Líkt og síðustu daga mun gönguleiðum inn á gossvæðið á Reykjanesskaga vera lokað klukkan 18 í kvöld. Fyrir það verður opið inn á svæðið frá Suðurstrandarvegi. Samkvæmt lögreglunni á Suðurnesjum gekk lokun vel í gær og voru engin óhöpp skráð. Innlent 25. júlí 2023 09:09
Veðurguðirnir aldrei með slökkviliðsmönnum í liði Slökkviliðsstjórinn í Grindavík segir að mögulega þurfi að grípa til róttækari aðgerða svo hindra megi frekari gróðurelda í kringum eldstöðina við Litla Hrút. Veðurguðirnir séu ekki með slökkviliðinu í liði, hvernig sem viðri. Innlent 24. júlí 2023 19:02
„Þetta sýnir að fólk þarf að fara varlega“ Eldfjallafræðingur segir að viðbúið hafi verið að barmur gígsins við Litla-Hrút myndi gefa sig í dag strax í gær. Í gær hafi mikill fjöldi fólks verið á svæðinu þar sem hraun rann niður á sléttuna og það ítreki mikilvægi þess að fólk fari varlega og hlýði fyrirmælum. Innlent 24. júlí 2023 14:21
Björgunarsveitarmaður slasaðist við gosstöðvarnar Björgunarsveitarmaður velti fjórhjóli við gosstöðvarnar við Litla-Hrút í gærkvöldi. Hann var í kjölfarið fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann. Innlent 24. júlí 2023 08:49
Slæm loftgæði á Ísafirði og í Hveragerði í dag Mikil loftmengun er á Ísafirði og í Hveragerði í dag og gætu viðkvæmir fundið fyrir einkennum vegna slæmra loftgæða. Gasmengun frá gosinu berst til norðurs og austurs yfir suðvestanvert landið. Innlent 24. júlí 2023 07:46
Hraunrennslið nú alfarið neðanjarðar Hraunrennsli í eldgosinu virðist nú vera alfarið neðanjarðar og gígskálinn virkar einungis sem bullsjóðandi pottur án yfirborðsrennslis. Í kvöld má greina nokkra staði í hraunbreiðunni þaðan sem hraun vellur upp úr hraunrásum neðanjarðar. Innlent 23. júlí 2023 23:21
Gosmóðan verður degi lengur og líkur á súru regni Rigning á höfuðborgarsvæðinu, þar sem gosmóðan hefur hangið í loftinu gæti orðið súr. Náttúruvásérfræðingur segist telja litlar líkur á að rigningin verði til trafala til skamms tíma. Veðurspá bendir til þess að gosmóðan verði degi lengur yfir höfuðborgarsvæðinu en áður var reiknað með. Nú gera spár ráð fyrir að bæti í vind á miðvikudag en ekki þriðjudag, líkt og áður var gert ráð fyrir. Innlent 23. júlí 2023 22:10
Veggir gígsins muni hrynja innan skamms Eldfjallafræðingur segir að líklegt sé að gígurinn við Litla-Hrút muni bresta von bráðar. Brotni hann til austurs gæti stórslys orðið verði ekki búið að rýma svæðið. Hann segir að líkur séu á að nýr gígur opnist austur af Keili. Innlent 23. júlí 2023 19:15
Gossvæðinu alltaf lokað klukkan sex Lögreglan á Suðurnesjum lokaði aðgangi að gosstöðvunum við Litla-Hrút klukkan 18 í gær og í tilkynningu segir að lokunin hafi gengið vandræðalaust fyrir sig. Nú hefur verið ákveðið að svæðinu verði lokað klukkan 18 á meðan eldgos varir. Innlent 23. júlí 2023 09:38
Frekari ákvörðun um opnun tekin í fyrramálið: „Viðbragðsaðilar að hörfa frá“ Vel gekk í kvöld þegar gossvæðið við Litla-Hrút á Reykjanesi var lokað almenningi af lögreglu. Björgunarsveitarmaður segir þó aðeins hafa þurft að rökræða við einhverja göngugarpa. Ákvörðun um mögulega opnun svæðisins á morgun verður tekin í fyrramálið. Mikil mengun er nú á svæðinu. Innlent 22. júlí 2023 19:29
Gosmóðan komin til Vestfjarða: „Ef þú getur ekki komið að gosinu kemur gosið til þín“ Gosmóðan úr eldgosinu í Litla-Hrúti er nú komin til Vestfjarða. Búast má við því að hún haldi þaðan til austurs í átt að Tröllaskaga. Innlent 22. júlí 2023 15:01