Nýtt eldgos líklegt Gera má ráð fyrir nýju kvikuinnskoti og/eða eldgosi á næstu vikum á Sundhnjúkasvæðinu. Þetta kemur fram í frétt á vef Veðurstofunnar. Innlent 28. júní 2024 12:13
Heildarkostnaður við varnargarða nærri sjö milljarðar Guðrún Hafsteinsdóttir dómsmálaráðherra hefur gefið ríkislögreglustjóra heimild til að hefja vinnu við hækkun og styrkingu varnargarða í nágrenni Grindavíkur. Heildarkostnaður við garðana er metinn á nærri sjö milljarða króna. Innlent 27. júní 2024 13:37
Eldgosinu lauk á laugardaginn Eldgosinu við Sundhnúk lauk á laugardaginn. Landris við Svartsengi er þegar hafið á ný og að mati náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofunni er atburðarásin svipuð þeirri sem áður hefur sést milli gosa. Innlent 24. júní 2024 15:43
Landris gæti aukist en of snemmt að segja til um goslok Veðurstofa Íslands tilkynnti í gær að eldgosinu við Sundhnúkagígaröð, sem hófst þann 29. maí, væri sennilega lokið. Benedikt Ófeigsson, fagstjóri aflögunarmælinga hjá Veðurstofu Íslands, segir of snemmt til að fullyrða um það og bendir á að goslok gætu haft áhrif á landris í Svartsengi. Innlent 23. júní 2024 12:18
Af hættustigi niður á óvissustig Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum, hefur ákveðið að færa almannavarnastig af hættustigi á óvissustig vegna umbrota á Reykjanesi. Gosórói hefur farið minnkandi á síðustu sólarhringum en svæðið verður áfram vaktar af Veðurstofunni og lögreglunni á Suðurnesjum. Innlent 22. júní 2024 18:15
Eldgosinu líklegast lokið Eldgosinu sem hófst 29. maí virðist vera lokið. Þetta kemur fram í Facebook-færslu Veðurstofu Íslands. Innlent 22. júní 2024 15:18
Vonast til að geta stöðvað flæði yfir varnargarð fyrir lok dags Enn er glóð í gíg eldgossins við Sundhnúk. Hraunflæðið er nokkuð stöðugt. Enn er unnið að hraunkælingu við varnargarðana við orkuverið í Svartsengi en síðustu daga hefur runnið nokkuð stöðugt yfir varnargarðinn á nokkrum stöðum. Innlent 22. júní 2024 12:08
Enn glóð í gígnum og unnið að hraunkælingu Enn er glóð í gígnum í eldgosinu við Sundhnúk. Órói hefur minnkað en hraunflæðið virðist nokkuð stöðugt. Enn er unnið að hraunkælingu við varnargarða. Innlent 22. júní 2024 08:02
„Landrisið er hægara en það hefur verið“ Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir ólíklegt að gosið við Sundhnjúka nái sér upp aftur. Hann segir landris sem mælst hefur vera hægara en það hefur áður verið. Innlent 21. júní 2024 21:37
Unnið dag og nótt við varnargarðana Hraunkæling við varnargarðana við Svartsengi hefur staðið yfir síðan í gærkvöldi með góðum árangri. Slökkviliðið og aðrir á svæðinu fagna því að eldgosið virðist vera að syngja sitt síðasta í bili. Innlent 21. júní 2024 20:39
Ný heitavatnshola gjörbreytir stöðunni á Suðurnesjunum Ný tilraunaborhola á Miðnesheiði við Rockville á Suðurnesjunum, sem gefur um 30 sekúndulítra af yfir 70 gráðu heitu vatni, gjörbreytir stöðunni í heitavatnsmálum á Suðurnesjum til betri vegar. Innlent 21. júní 2024 15:50
Minnkandi virkni í gígnum bendi til gosloka á næstunni Á myndum sem teknar voru í morgun í drónaflugi Almannavarna sést að virkni í gígnum við Sýlingarfell fer minnkandi. Innlent 21. júní 2024 15:34
„Það er heilmikil kæling af þessu“ Hraunkæling við varnargarðana við Grindavík hefur staðið yfir síðan í nótt. Kælingin virðist hafa borið árangur að mati slökkvistjóra. Á sama tíma hefur vinna við hækkun varnargarðanna staðið yfir. Verkfræðingur hjá Verkís fagnar því minnkandi hraunrennsli. Innlent 21. júní 2024 15:14
Hraunið fer hægt yfir en hraunkælingu haldið áfram í dag „Hraunkælingin hélt áfram í nótt og vinnuvélarnar héldu áfram í nótt. Og það er bara verið að leita allra leiða til að koma í veg fyrir og hægja á rennslinu.“ Innlent 21. júní 2024 08:14
Samhæfingarstöðin virkjuð, hraunkæling hafin og fundað klukkan 8 Samhæfingarstöð almannavarna var virkjuð í gærkvöldi og gripið til hraunkælingar á ný vegna hraunspýja sem voru farnar að vella yfir varnargarða við Svartsengi. Innlent 21. júní 2024 06:14
Enn stöðugt streymi í Svartsengi Eldgosið sem hófst á Sundhnúksgígaröðinni þann 29. maí hefur nú staðið í rétt rúmar þrjár vikur og áfram gýs úr einum gíg rétt austan Sundhnúks. Landris helst stöðugt í Svartsengi og því ljóst að meiri kvika flæðir inn í kvikuhólfið en gýs upp úr því. Innlent 20. júní 2024 13:41
„Ég sakna vina minna úr Grindavík“ „Hvenær getum við komist heim til Grindavíkur?“ er haft eftir ónefndu gríndvísku barni í nýrri skýrslu umboðsmanns barna. „Ég sakna vina minna úr Grindavík,“ segir annað barn. Innlent 20. júní 2024 10:35
„Sorglegt að þurfa að rífa þetta hús“ Grindvíkingar syrgja nýlegt íþróttahús bæjarins sem þarf að rífa en segja það einnig nauðsynlegt til að tryggja öryggi. Innlent 19. júní 2024 21:36
Stýra hvorki né stoppa hraunflæði með vatni Slökkvilið og verktakar hafa staðið í ströngu við að halda hraunflæði í skefjum við Svartsengi síðasta sólarhringinn. Innlent 19. júní 2024 21:01
Hætta hraunkælingu og meta stöðuna í dag Slökkviliðsmenn í Grindavík hafa hætt að dæla vatni yfir hraunið sem teygði sig upp yfir varnargarðinn við Svartsengi. Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarna segir fyrsta hraunkælingaraðgerð frá Heimaeyjargosinu hafa verið tilraun en að þegar hafi verið búið að stöðva framgang hraunsins. Innlent 19. júní 2024 09:15
Hraunkælingin ekki gengið snurðulaust fyrir sig Slökkviliðsmenn á vegum Brunavarna Suðurnesja voru í nótt að dæla vatni á hraun við varnargarðinn við Svartsengi. Kælingin hefur ekki gengið snurðulaust fyrir sig þar sem upp komu vandræði með vatnsþrýstinginn. Innlent 19. júní 2024 07:43
Hraunkælingin gengur vel og heldur áfram í alla nótt Slökkvilið Grindavíkur hóf fyrr í kvöld ásamt úrvalsliði viðbragðsaðila að dæla vatni yfir hraun sem hóf að teygja sig yfir varnargarðinn við Svartsengi. Um er að ræða fyrstu hraunkælingu af þessu tagi síðan í Heimaeyjargosinu. Innlent 18. júní 2024 22:50
Slökkvilið undirbýr hraunkælingu við varnargarð við Svartsengi Í dag fór lítil spýja úr eldgosinu við Sundhnúk yfir varnargarð við Sýlingafell. Varnargarðurinn ver orkuverið í Svartsengi. Slökkvilið Grindavíkur vinnur á vettvangi auk ýmissa verktaka á vegum almannavarna á vinnutækjum sem eru reyna að reyna að stöðva flæði yfir varnargarðinn. Ekki hefur sú aðferð verið notuð síðan í Vestmannaeyjagosinu 1973. Innlent 18. júní 2024 18:36
Eldgosið stöðugt og gosmengun til norðurs Eldgosið á Reykjanesi er stöðugt og áfram gýs úr einum gýg. Hraun flæðir mestmegnis til norðurs meðfram Sýlingarfelli. Landris heldur áfram í Svartsengi á svipuðum hraða, sem er þó minni en áður en eldgosið hófst. Gasmengun fer til norðvesturs og síðar norðurs í dag og mun mælast á norðanverðu Reykjanesi. Færist í átt til höfuðborgarsvæðisins á morgun. Innlent 18. júní 2024 14:10
Rífa íþróttahúsið Bæjarstjórn Grindavíkur hefur falið sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að hefja undirbúningsvinnu við niðurrif á Hópinu, fjölnotaíþróttahúsi Grindvíkinga. Innlent 18. júní 2024 09:06
Kostnaður ríkissjóðs vegna Grindavíkur um áttatíu milljarðar Áætlað er að kostnaður ríkissjóðs vegna fjölbreyttra stuðningsaðgerða við Grindavík í kjölfar jarðhræringa á Reykjanesskaga árin 2023 og 2024 nemi um áttatíu milljörðum króna. Fjármálaráðuneytið hefur tekið saman kostnað ríkisins sem fellur til vegna ýmissa stuðningsaðgerða við Grindavík. Þyngst vegu framlag ríkissjóðs vegna kaupa Þórkötlu á íbúðarhúsnæði í Grindavík. Innlent 14. júní 2024 15:33
Fáu spáð en vel fylgst með Vangaveltur eru margar um goslok við Grindavík, landris og -sig við Svartsengi og tengsl gosvirkninnar og þriggja eldgosa við Fagradalsfjall. Grunnmæligögn eru traust, um jarðskorpuhreyfingar, rúmmálsbreytingar í geymsluhólfi kviku og efnasamsetningu hennar, bæði úr gosunum við Grindavík og Fagradalsfjall. Gögnin segja forvitnilega sögu. Skoðun 14. júní 2024 15:00
Mikið svifryk í borginni og gosmóða líkleg síðar í dag Styrkur svifryks (PM10) var hár á nokkrum mælistöðvum í borginni í morgun, 14. júní. Skv. upplýsingum frá Veðurstofu Íslands orsakast hækkuð gildi af foksandi frá hálendinu og getur rykið legið yfir höfuðborgarsvæðinu í dag Innlent 14. júní 2024 10:55
Telur að þetta geti orðið síðasta eldgosið á Sundhnúkareininni Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur að yfirstandandi eldgos geti orðið það síðasta á Sundhnúkagígaröðinni og að umbrotin þar gætu stöðvast síðsumars. Hann vonar að hægt verði að huga að því að byggja Grindavík upp aftur með haustinu. Innlent 13. júní 2024 20:40
Nokkuð mikil gasmengun frá gosinu heldur áfram næstu daga Gasmengun frá eldgosinu við Sundhnúk er nokkuð mikil og líklegt er að hún haldi áfram næstu daga. Hraunbreiðan í þessu gosi er orðin 9,2 km2 og rúmmál um 41 milljón m3 og þar með sú stærsta síðan í desember 2023. Innlent 13. júní 2024 16:20