Rútuferðir Airport Direct ekki almenningssamgöngur og ættu að rukka vask Rútuferðir Airport Direct milli Keflavíkurflugvallar og Reykjavíkur teljast ekki til almenningssamganga að mati Skattsins. Rútufyrirtækið hefur undanfarin ár ekki innheimt virðisaukaskatt af farmiðasölunni ólíkt keppinautunum. Viðskipti innlent 20. janúar 2022 14:57
Samfélagssáttmáli, er það raunhæft? Í 23 mánuði höfum við verið í ástandi þar sem allt hefur gengið út á það að lifa af, sjá fyrir næsta horn, bíða eftir næsta fréttatíma, heyra tölur, fjölda, stöðuna, hvað næst? Bíða aðeins, vona það besta, reyna að plana, endurplana, endurplana endurplanið. Gefast upp, byrja aftur, reyna betur. Skoðun 19. janúar 2022 12:31
Mikil bjartsýni fyrir ferðasumrinu 2022 Mikill hugur er í þeim sem stunda ferðaþjónustu í Mýrdalshreppi fyrir sumrinu enda verið að skipuleggja sumarið á fullum krafti með fjölbreyttri dagskrá. Oddviti sveitarfélagsins spáir góðu sumri í ferðaþjónustu. Innlent 16. janúar 2022 15:30
Þau sem urðu verst úti Nú standa vonir til þess að heimsfaraldri kórónuveiru fari fljótlega að ljúka. Miðað við orð þeirra sem best til þekkja, gæti verið um nokkrar vikur eða mánuði að ræða, þar til mesta hættan er liðin hjá. Skoðun 15. janúar 2022 16:03
Þórdís Anna komin í stjórn Arctic Adventures Þórdís Anna Oddsdóttir hefur tekið sæti í stjórn Arctic Adventures en hún kemur í stað Grétu Maríu Grétarsdóttur sem var nýlega ráðin forstjóri ferðaþjónustufyrirtækisins. Klinkið 14. janúar 2022 20:01
Áfellisdómur yfir framkomu Isavia við ferðaþjónustuna Nýleg skýrsla Samkeppniseftirlitsins um starfshætti Isavia á Keflavíkurflugvelli er vægast sagt þungur áfellisdómur. Isavia brýtur aftur og aftur gegn samkeppnislögum og hagar sér eins og handrukkari gagnvart þeim fjölmörgum fyrirtækjum sem eru með starfsemi á Keflavíkurflugvelli og í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Skoðun 13. janúar 2022 08:01
Nýársmálstofa ferðaþjónustunnar 2022: Ferðaþjónusta nýrra tíma Nýársmálstofa ferðaþjónustunnar 2022 fer fram í dag, þriðjudaginn 11. janúar kl. 9.00, í beinu streymi hér á Vísi. Á Nýársmálstofunni verður horft inn í nýtt ár og helstu tækifærum og áskorunum framundan verður velt upp. Innlent 11. janúar 2022 08:31
Ferðaþjónustuaðilar frekar bjartsýnir Þeir sem reka ferðaþjónustufyrirtæki hér á landi virðast frekar bjartsýnir fyrir árið sem nú er nýhafið ef marka má nýja könnun. Þar segist forsvarsfólk ferðaþjónustufyrirtækja telja að samkeppnisstaða Íslands sem áfangastaðar muni styrkjast, eða standa í stað á milli ára. Innlent 11. janúar 2022 07:50
Leita til Hæstaréttar og starfa áfram í greiðsluskjóli Allrahanda GL, sem rekur ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line, hyggst leggja fram beiðni um kæruleyfi til Hæstaréttar eftir að Landsréttur staðfesti úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að hafna staðfestingu nauðasamnings félagsins. Á meðan á því ferli stendur frestast rétttaráhrif úrskurðar Landsréttar og heldur Allrahanda GL því áfram rekstri í greiðsluskjóli. Viðskipti innlent 7. janúar 2022 08:44
Staðfestir úrskurð héraðsdóms um að hafna nauðasamningi Gray Line Landsréttur staðfesti fyrr í dag úrskurð héraðsdóms Reykjavíkur frá því í nóvember síðastliðnum um að hafna staðfestingu nauðasamnings Allrahanda GL sem rekur ferðaþjónustufyrirtækið Gray Line en það hefur verið í greiðsluskjóli frá því í júní árið 2020. Innherji 6. janúar 2022 18:21
Hátt hlutfall fjölgunar starfa í ferðaþjónustu byggt á ráðningarstyrkjum Mikil fjölgun starfa hefur orðið í íslenskri ferðaþjónustu undanfarna mánuði en mjög hátt hlutfall er byggt á ráðningarstyrkjum. Innherji 4. janúar 2022 20:01
Óbreyttar reglur á landamærunum Ákveðið var á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun að sóttvarnaráðstafanir á landamærunum ættu að vera óbreyttar til 28. febrúar. Tillaga um fyrirkomulag sóttvarna á landamærunum fyrir vorið verður kynnt fyrir þann 20. febrúar. Innlent 4. janúar 2022 14:05
Rúmur þriðjungur beri illa skuldir sínar Umtalsverðar skammtímaskuldir hafa safnast upp hjá ferðaþjónustufyrirtækjum hér á landi eftir að kórónuveirufaraldurinn skall á og í árslok 2020 voru þær allt að 25 milljarðar króna umfram það sem eðlilegt var. Erfitt getur reynst að vinna á þessum skuldum nema með frekari lántöku eða nýju eigin fé. Viðskipti innlent 4. janúar 2022 12:15
Ljós við enda ganganna í ferðaþjónustu en skuldirnar mesta áhyggjuefnið Tekjur ferðaþjónustu eru áætlaðar um 240 milljarðar króna árið 2021 en tæplega 700 þúsund ferðamenn sóttu landið heim á árinu. Tap greinarinnar er talið nema um 24 milljörðum króna eftir skatta árið 2021. Innherji 4. janúar 2022 11:01
Búa sig undir að taka á móti fjölda erlendra verkamanna Hundrað herbergi bætast við farsóttarhúsin í dag þegar tekið verður yfir restina af Icelandair Hotel Natura við Reykjavíkurflugvöll. Í kringum hundrað einstaklingar eru á biðlista eftir að komast í einangrun á farsóttarhúsi. Reiknar forstöðumaður með að tæma fyrirliggjandi lista en að fleiri sæki í húsin eftir sýnatöku í dag. Innlent 3. janúar 2022 12:21
Færði smituðum farþega mat og jólaskraut í einangrun: „Það er ýmislegt sem gerist þegar fólk er á ferðalögum“ Ragnhildur Eiríksdóttir, flugfreyja hjá Icelandair, sem fjallað var um í dag að hefði hjálpað hinni bandarísku Marisu Fotieo, sem fékk jákvæða niðurstöðu úr hraðprófi um borð í vél Icelandair hingað til lands, segist aðeins hafa verið að gera það sem hún hefði viljað að yrði gert fyrir sig ef hún hefði verið í sömu stöðu. Innlent 30. desember 2021 20:18
Einangraði sig inni á klósetti eftir jákvætt heimapróf í miðju flugi til Íslands Hún var afar sérstök, flugferð bandaríska kennarans Marisa Fotieo til Íslands skömmu fyrir jól. Í miðju flugi tók hún Covid-19 heimapróf sem reyndist jákvætt og ákvað hún því að einangra sig inn á klósetti flugvélarinnar til þess að freista þess að vernda aðra farþega. Innlent 30. desember 2021 08:50
Fyrirhugaður ísfirskur milljarðakláfur þarf í umhverfismat Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur staðfest ákvörðun Skipulagsstofnunar þess efnis að fyrirhugaður kláfur í hlíðum Eyrarfjalls í Ísafirði þurfi í umhverfismat. Innlent 29. desember 2021 15:42
„Það er dálítið í land en þetta er allt að koma“ Farþegum sem fara um Keflavíkurflugvöll hefur fjölgað töluvert á milli ára. Ferðamálastjóri býst við að fjöldi ferðamanna nálgist eðlilegt horf á næsta ári. Enn sé þó mikil óvissa um þróunina vegna faraldursins. Innlent 28. desember 2021 22:02
Samningar loks náðst um langþráða viðbyggingu við flugstöðina Isavia hefur samið við byggingafélagið Hyrnu á Akureyri um viðbætur og breytingar á flugstöðinni á Akureyrarflugvelli. Þetta staðfestir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, í samtali við fréttastofu en samningurinn verður undirritaður í flugstöðinni á morgun. Viðskipti innlent 27. desember 2021 13:01
Ferðaþjónustan geti ekki haldið öllu starfsfólki fram á vor án stuðnings frá ríkinu Þórunn Reynisdóttir, forstjóri ferðaskrifstofu Íslands, segir að stjórnvöld þurfi að taka ákvörðun sem allra fyrst um hvort þau hyggist styðja við ráðningar svo að fjöldi starfsmanna í ferðaþjónustu endi ekki á atvinnuleysisskrá. Á næstu mánuðum verði ekki nógu mikið að gera til að fyrirtækin geti haldið öllu starfsfólki. Innherji 25. desember 2021 14:00
Viðspyrnuárið 2022? Viðskipti við útlönd eru undirstaða lífskjara á Íslandi. Þannig hefur það verið frá því að samfélagið tók að þróast hratt í átt að nútímanum upp úr miðri 20. öldinni. Umræðan 24. desember 2021 10:01
Innlit í nýtt og öðruvísi hótel í Hveragerði Í Íslandi í dag á Stöð 2 í gær fengu áhorfendur að sjá Gróðurhúsið í Hveragerði, nýtt og spennandi hótel í hjarta bæjarins. Lífið 23. desember 2021 10:31
Forsendur undanþágu fyrir tónleika gildi einnig um veitingahúsin Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir það skjóta skökku við að heilbrigðisyfirvöld hafi veitt tónleikahöldurum undanþágu frá sóttvarnaraðgerðum þar sem samtökin hafi ítrekað óskað eftir undanþágum án árangurs. Forsendur þess að undanþágur voru veittar fyrir tónleikahaldi geti einnig átt við um veitingarekstur. Viðskipti innlent 22. desember 2021 13:01
Hellisop fullt af ferðamönnum hrundi vikum síðar Jöklaleiðsögumaður segir ferðamenn hér á landi oft hætta sér um of þegar þeir skoði íslenska jökla. Litlu geti um munað þegar komi að öryggi á jöklum enda séu þeir alltaf á hreyfingu. Innlent 21. desember 2021 20:36
Gray line léttir undir með slökkviliðinu Sjúkratryggingar Íslands hafa samið við rútufyrirtækið Gray Line um að annast flutninga Covid-smitaðra á höfuðborgarsvæðinu sem ekki þurfa á flutningi í sjúkrabíl að halda. Innlent 21. desember 2021 15:26
Túristarnir borða heima hjá íslenskum fjölskyldum Helga Kristín Friðjónsdóttir var með heimþrá til Íslands þegar að hún fékk hugmynd að fyrirtæki sem hún hefur starfrækt frá árinu 2015 og er að auka við sig. Atvinnulíf 20. desember 2021 07:00
Icelandair í nýjum litum Þotur flugfélagsins Icelandair munu taka miklum útlitsbreytingum á komandi misserum. Von er á fyrstu þotunni í nýja búningnum í janúar á næsta ári. Þoturnar verða í öllum regnbogans litum en blái liturinn hverfur þó ekki á bak og burt. Viðskipti innlent 18. desember 2021 13:42
Áningarstaður við Laufskálavörðu eitt af bestu verkefnum ársins að mati Archilovers Einstakur áningastaður við Laufskálavörðu úr smiðju Stáss arkitekta er eitt besta verkefni ársins að mati fagmiðilsins Archilovers, fyrir fagurfræði sína, sköpun og notkunarmöguleika. Tíska og hönnun 17. desember 2021 14:31
Ferðaþjónustufyrirtæki töpuðu 105 milljörðum á síðasta ári Tap af rekstri ferðaþjónustufyrirtækja nam 104,6 milljörðum króna á síðasta ári. Árið var versta rekstrarár í sögu íslenskrar ferðaþjónustu. Viðskipti innlent 17. desember 2021 11:40