Schumacher og Vettel unnu fjórða meistarabikar Þýskalands Michael Schumacher og Sebastian Vettel tryggðu Þýskalandi meistarabikar þjóða í kappakstursmóti meistaranna í kvöld. Þeir lögðu lið Breta, skipað þeim Andy Pirlaux og Jason Plato að velli í úrslitum. Formúla 1 27. nóvember 2010 21:33
Vettel og Schumacher reyna að verja titil Þýskalands í kappakstursmóti meistaranna í dag Þjóðverjarnir Michael Schumacher og Sebastian Vettel keyra fyrir hönd Þýsklands í kappakstursmóti meistaranna, Race of Champions í Dusseldörf í Þýskalandi í dag, en 16 ökumenn úr ýmsum akstursíþróttum taka þátt í mótinu. Mótið er sýnt beint á Stöð 2 comSport kl. 17.45 í dag. Formúla 1 27. nóvember 2010 13:30
Schumacher og Prost saman í riðli í kappakstursmóti meistaranna Skipan í riðla í kappaksturmóti meistaranna er klár, en mótið verður á laugardag og sunnudag í Þýskalandi og fer fram á alskyns ökutækjum. Mótið verður á sérútbúnu malbikuðu mótssvæði á knattspyrnuvelli Í Dusseldorf sem og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Formúla 1 26. nóvember 2010 13:04
Breyttar tímasetningar á beinum útsendingum á kappakstursmóti meistaranna Breyttar tímasetningar verða á beinum útsendingum frá kappakstursmóti meistaranna á Stöð 2 Sport um helgina, þegar sýnt verður beint frá Dusseldorf í Þýskalandi. Útsendingar hefjast liðlega klukkustundu áður en kynnt hafði verið. Formúla 1 25. nóvember 2010 16:17
Formúlu 1 meistarinn keppir í kappakstursmóti meistaranna Sextán ökumenn eru skráðir í kappkstursmót meistaranna, Race of Champions sem fer fram í Düsseldorf í Þýskalandi um helgina. Meðal ökumanna er Sebastian Vettel, nýbakaður heimsmeistari í Formúlu 1, auk Michael Schumacher, Alain Prost, Sebastian Loeb og Michael Doohan, sem allr eru heimsþekktir akstursíþróttamenn Formúla 1 25. nóvember 2010 11:27
Persónulegt markmið Kobayashi að gera engin mistök 2011 Japaninn Kamui Kobayashi hjá Sauber telur að hann hafi bætt sig á öllum sviðum hvað Formúlu 1 varðar í ár og segir að ein áhugaverðasta keppni hans hafi verið á heimavelli hans í Japan. Hann náði sjöunda sæti fyrir framan landa sína eftir góðan endasprett. Formúla 1 24. nóvember 2010 11:39
Barrichello líst vel á 2011 bíl Williams Rubens Barrichello verður áfram hjá Williams liðinu á næsta ári, en ekki er vitað um hver verður liðsfélagi hans sem ökumaður, en rætt hefur verið um að GP2 meistarinn Pastor MalDonado komi til greina hjá liðinu. MalDonado prófaði bíl liðsins í Abu Dhabi á dögunum. Formúla 1 23. nóvember 2010 16:18
Vettel gæti verið í Formúlu 1 í 15 ár Mario Thiessen hjá BMW telur að landi hans Sebastian Vettel geti orðið í Formúlu 1 næstu 15 árum, ef allt gengur hjá nýbökuðum meistaranum. Formúla 1 22. nóvember 2010 12:55
Vettel: Nýju dekkin betri en flestir áttu von á Sebastian Vettel, nýbakaður Formúlu 1 meistari prófaði nýju Pirelli dekkin sem verða notuð á næsta ári í dag og í gær ásamt fjölda ökumanna keppnisliða. Prófunin er mikilvægur þáttur í þróun dekkjanna fyrir komandi keppnistímabil þar sem Pirelli tekur við því hlutverki að útvega dekk í stað Bridegstone sem hefur gert það síðustu ár. Formúla 1 20. nóvember 2010 17:21
Ferrari menn fljótastir á nýju dekkjunum Fernando Alonso var fljótastur allra á Pirelli dekkjunum sem hafa verið prófuð af kappi í Abu Dhabi í dag. Í gær var Felipe Massa á Ferrari fljótastur að sama skapi, en Pirelli dekk verða notuð í Formúlu 1 á næsta ári í stað Bridgestone, en aðeins einn dekkjaframleiðandi hefur verið í íþróttinni síðustu ár til að spara kostnað Formúla 1 20. nóvember 2010 16:59
Sebastian Vettel: Keppi ekki til að slá met Schumachers Sebastian Vettel segist ekki vera að keppa í Formúlu 1 til að slá met Michael Schumacher sem hefur tryggt sér sjö meistaratitlina á ferlinum. Vettel skrifaði hugleiðingar sínar í þýska dagblaðið Bild samkvæmt frétt á autosport.com. Formúla 1 19. nóvember 2010 14:47
Massa fljótastur í dekkjaprófun Pirelli Formúlu 1 kappar æfðu á Abu Dhabi brautinni í dag og óku á Pirelli dekkjum sem verða notuð á næsta ári. Felipe Massa náði besta tíma dagsins á Ferrari á undan meistaranum Sebastian Vettel á Red Bull. Formúla 1 19. nóvember 2010 14:34
Ascanellli: Vettel hefur viljastyrk til að vera á toppnum í langan tíma Tæknistjóri Torro Rosso, Giorgio Ascanelli vill meina að nýbakaður heimsmeistari, Sebastian Vettel sé sérlega hæfileikaríkur ökumaður Vettel hóf Formúlu 1 ferilinn með Torro Rosso og vann sinn fyrsta sigur með liðinu á Ítalíu 2008. Formúla 1 19. nóvember 2010 09:15
GP 2 meistarinn Maldonaldo prófaði Hispania og Williams Pastor Maldonado frá Venúsúela prófaði Hispania og Willams bíla á æfingum í Abu Dhabi í vikunni, en nokkur umræða hefur verið um að hann taki autt sæti sem Nico Hulkenberg skildi eftir sig þar. Hulkenberg ætlar að leita á önnur mið, en Rubens Barrichello verður áfram hjá Williams Formúla 1 18. nóvember 2010 16:57
Draumur Perez frá Mexíkó rætist um borð í Sauber Formúlu 1 bíl Sergio Perez frá Mexikó verður fyrsti sá fyrsti frá sínu heimalandi í 30 ár sem keppir í Formúlu 1 á næsta ári, þegar hann mætir á Sakhir brautina í Barein í mars. Formúla 1 18. nóvember 2010 16:13
Rússinn Petrov líklega áfram hjá Renault Eric Boullier, framkvæmdarstjóri Formúlu 1 liðs Renault telur líklegt að Vitaly Petrov frá Rússlandi verði áfram hjá liðinu á næsta ári, en hann stóð sig vel í lokamótinu í mikilli báráttu við Fernando Alonso hjá Ferrari. Formúla 1 17. nóvember 2010 16:49
Ástralskur nýliði fljótari en meistarinn Nýliði Red Bull, Daniel Ricciardo var fljótari en heimsmeistarinn Sebastian Vettel náði að vera í tímatökum, þegar hann ók Red Bull bíl á æfingum í Abu Dhabi í dag. Formúla 1 17. nóvember 2010 14:00
Webber og Vettel sáttir hvor við annan Mark Webber telur að spennan á milli hans og Sebastian Vettel hafi frekar verið hvatning til dáða, en neikvætt afl. Red Bull liðið fagnaði titlum sínum með fréttamannafundi í flugskýli í Austurríki í gær. Formúla 1 17. nóvember 2010 10:23
Vettel og Schumacher í beinni útsendingu í meistarakeppni ökumanna á Stöð 2 Sport Stöð 2 Sport hefur náð samningum um að sýna beint frá meistarakeppni ökumanna sem fer fram á leikvangi Fortuna Dusseldorf í Þýskalandi helgina 27. og 28. nóvember. Meðal keppenda verður nýbakaður heimsmeistari í Formúlu 1, Sebastian Vettel og félagi hans Michael Schumacher. Formúla 1 16. nóvember 2010 09:36
Vettel merkilegur og svalur persónuleiki Christian Horner, yfirmaður Red Bull Formúlu 1 liðsins telur að Sebastian Vettel sé vel að Formúlu 1 titli ökumanna kominn, en hann nældi í hann í lokamótinu í Abu Dhabi á sunnudaginn. Red Bull landaði bæði titli bílasmiða og ökumanna á þessu keppnistímabili. Formúla 1 16. nóvember 2010 09:11
Ítalskur ráðherra vill afsögn forstjóra Ferrari vegna mistaka í Formúlu 1 Ítalskur ráðherra, Roberto Calderoli vill að Luca Montezemolo segi af sér sem forstjóri Ferrari, eftir að Ferrari mistókst að krækja í titl ökumanna í Abu Dhabi Formúlu 1 mótinu í gær. Formúla 1 15. nóvember 2010 15:19
Hulkenberg yfirgefur Williams liðið, en Barrichello verður áfram Þjóðverjinn Nico Hulkenberg verður ekki áfram hjá Williams liðinu á næsta ári, en liðið vildi gera margra ára samning við kappann. Hulkenberg er með sama umboðsmann og Michael Schumacher hefur verið með, Willy Weber. Formúla 1 15. nóvember 2010 10:48
Íþróttir geta verið sársaukafullar Stefano Domenicali, framkvæmdarstjóri Ferrari segir að lið sitt hafi gert mistök sem kostuðu Fernando Alonso möguleikann á meistaratitli ökumanna í gær í lokamótinu í Abu Dhabi. Formúla 1 15. nóvember 2010 09:07
Íþróttaandinn færði Red Bull tvo titla Christian Horner hjá Red Bull telur að sterkur liðsandi hjá Red Bull hafi fært þeim báða meistaratitla í Formúlu 1, en Sebastian Vettel tryggði liðinu titil ökumanna í gær. Um síðustu helgi vann liðið titil bílasmiða. Formúla 1 15. nóvember 2010 07:39
Schumacher fagnaði Vettel eftir að hafa lent í stórhættu í lokamótinu Þjóðverjinn Michael Schumacher fagnaði landa sínum og vini, Sebastian Vettel vel í dag eftir að titilinn var í höfn hjá þeim síðarnefnda. Þeir eru einu ökumennirnir sem hafa orðið meistarar í Formúlu 1 frá Þýskalandi. Formúla 1 14. nóvember 2010 21:42
Vettel grét af gleði í endamarkinu Sebastian Vettel frá Þýskalandi, 23 ára gamall er yngsti Formúlu 1 ökumaðurinn í 60 ára sögu íþróttarinnar. Hann var hrærður þegar hann kom í endamark í Abu Dhabi í dag og grét i talkerfið þegar hann fagnaði sigri, þannig að heyrðist í útsendingu í sjónvarpi. Formúla 1 14. nóvember 2010 20:47
Alonso svekktur eftir mistök Ferrari Fernando Alonso segir að Ferrari hafi gert mistök þegar liðið lét hann taka þjónustuhlé í mótinu í Abu Dhabi í dag, skömmu eftir að Mark Webber tók sitt hlé. Báðir féllu þeir niður listann, Alonso úr því fjórða og náði aðeins sjöunda sæti, en þurfti það fjórða til að verða meistari á eftir Sebastian Vettel sem vann sigur í mótinu og varð meistari. Formúla 1 14. nóvember 2010 20:24
Sebastian Vettel heimsmeistari í Formúlu 1 Sebastian Vettel varð í dag yngsti heimsmeistari í Formúlu 1-kappakstrinum frá upphafi. Hann vann lokamótið í Abu Dhabi og það dugði honum til sigurs í stigakeppninni. Vettel er aðeins 23 ára gamall. Formúla 1 14. nóvember 2010 14:49
Íslendingar spenntir á lokamótinu í Formúlu 1 í Abu Dhabi Íslenskir áhorfendur er á mótssvæðinu í Abu Dhabi þar sem lokamótið í Formúlu 1 fer fram í dag og fjórir ökumenn keppa um meistaratitilinn. Meðal þeirra eru hjóninn Elín Reynisdóttir og Már Ormarsson, en Már starfar sem flugumferðarstjóri í Dubai. Formúla 1 14. nóvember 2010 11:14
Massa: Alonso með ásana í hendi Felipe Massa líkir stöðu Fernando Alonso í lokamótinu í Formúlu 1 í Abu Dhabi í dag við það þegar pókerspilari er með ásanna í hendi. Alonso er þriðji á ráslínu á eftir Sebastian Vettel og Lewis Hamilton. Alonso er efstur í stigamóti ökmanna á undan Mark Webber, en þeir og Vettel og Hamilton eiga möguleika á meistaratitlinum í dag. Formúla 1 14. nóvember 2010 09:20