Toyota að skoða framhaldið í Formúlu 1 Svo virðist sem Toyota sé að skoða gaumgæfilega hvort liðið verður í Formúlu 1 til frambúðar eður ei. Toyota vill ekki staðfesta þátttöku í mótaröðinni á næsta ári fyrr en eftir stjórnarfund þann 15. nóvember. Formúla 1 8. október 2009 13:43
Renault ræður Kubica til starfa Pólverjinn Robert Kubica mun stýra Renault á næsta ári, en Fernando Alonso yfirgefur liðið fyrir sæti hjá Ferrari. Óljóst er hver verður liðsmaður með honum, en Romain Groesjean kemur til greina. Formúla 1 7. október 2009 13:52
Massa stóðst þolpróf í Ferrari ökuhermi Felipe Massa er á góðri leið í endurhæfingu sinni eftir slysið í Ungverjalandi í sumar. Hann ók sex tíma í ökuhermi Ferrari liðsins og er að vonast eftir að geta keppt í lokamótinu í Abu Dhabi í byrjun nóvember. Formúla 1 7. október 2009 09:50
Piquet: Ég er fórnarlambið í svindlmálinu Nelson Piquet sem varð uppvís að því að keyra viljandi á vegg til að hlýða yfirboðurum sínum í Singapúr kappakstrinum í fyrra segist vera fórnarlamb í málinu. Hann telur ólíklegt að hann fái starf í Formúlu 1 aftur. Formúla 1 6. október 2009 09:36
Þriggja manna slagur um Formúlu 1 titilinn Eftir Formúlu 1 mót helgarinnar er ljóst að slagurinn um meistaratitilinn í lokamótunum tveimur verður á milli þriggja ökumanna. Sebastian Vettel steig stórt skref með því að vinna á Suzuka brautinni í Japan og komst 9 stig nær Jenson Button sem hefur forystu í stigamótinu. Formúla 1 5. október 2009 08:22
Vettel vann en vildi ekki hætta keyra Sebastian Vettel hafði svo gaman af Suzuka brautinni í nótt að hann vildi halda áfram að keyra hring eftir hring, eftir að hann kom í endamark. Formúla 1 4. október 2009 12:24
Vettel sótti sigur á Suzuka brautinni Þjóðverjinn Sebastian Vettel vann verk sitt vel á Suzuka brautinni í Japan í nótt og kom fyrstur í endamark í japanska Formúlu 1 kappakstrinum á Red Bull. Formúla 1 4. október 2009 08:09
Glock keppir ekki vegna meiðsla Þjóðverjinn Timo Glock mun ekki keppa í Suzuka kappakstrinum í nótt, vegna meiðsla sem hann hlaut í tímatökum í dag. FIA hefur bannað þátttöku hans þar sem hann tognaði ´ði baki og þurfti að sauma sár á fæti hans. Formúla 1 3. október 2009 21:04
Button býst ekki við titili í nótt Jenson Button gerir ekki ráð fyrir að landa meistaratitlinum í Formúlu 1 í nótt í japanska kappakstrinum á Suzuka. Hann ræsir tólfti af stað, en keppinautar hans um titilinn, Rubens Barrichello er tíundi og Sebastian Vettel er fremstur. Formúla 1 3. október 2009 18:28
Button og Barrichello dæmdir brotlegir Keppinautunum um heimsmeistaratitilinn var refsað i dag fyrir brot í tímatökum á Suzuka brautinni. Bæði Jenson Button og Rubens Barrichello voru dæmdir brotlegir þegar þeir óku of geyst þegar viðvörunarflöggum var veifað í brautinni vegna óhapps. Formúla 1 3. október 2009 11:22
Óhapp Glock gæti heft þátttöku hans Þjóðverjinn Timo Glock keyrði harkalega útaf í tímatökum fyrir japanska kappakustrinn í Suzuka í nótt. Grófst Toyota bíll hans inn í dekkjavegg eftir að hann missti vald á honum í lokabeygju brautarinnar. Formúla 1 3. október 2009 08:17
Röð óhappa í tímatökum í Japan í nótt Fjöldi ökumanna lentu í slæmum óhöppum í tímatökum fyrir Formúlu 1 kappaksturinn í Japan í nótt, en allir sluppu við meiðsli. Sebastian Vettel náði besta tíma á Red Bull, rétt marði Jarno Trulli á Toyota. Formúla 1 3. október 2009 07:18
Mjótt á munum á á lokæfingu Toyota menn brostu i kampinn þegar Jarno Trulli á Toyota náði besta tíma á lokaæfingu keppnisliða á Suzuka brautinni í Japan í nótt. Hann varð 0.062 sekúndum fljótari en Sebastian Buemi á Torro Rosso. Formúla 1 3. október 2009 03:05
Hamilton: Elska að aka Suzuka brautina Bretinn Lewis Hamilton er heillaður af Suzuka brautinni í Japan eftir að hafa frumkeyrt hana í nótt. Aðstæður voru þó erfiðar en það rigndi á báðum æfingum. Keppt verður á brautinni um helgina og getur Jenson Button, landi Hamiltons tryggt sér titilinn með góðum árangri. Formúla 1 2. október 2009 15:30
Kovalainen og Sutil sneggstir í nótt Finninn Heikki Kovalainen á McLaren og Adrian Sutil á Force India skiptust á því að ná besta tíma á æfingum Formúlu 1 liða á Suzuka brautinni í nótt. Formúla 1 2. október 2009 07:02
Button beitir ekki bolabrögðum í titilslagnum Jenson Button ætlar að keppa á heiðarlegan hátt til að landa fyrsta meistaratitli sínum í Formúlu 1 og heitir því að beita ekki bolabrögðum ná markmiði sínu um helgina eða í þeim þremur mótum sem eftir eru á tímabilinu. Hann gæti orðið heimsmeistari í fyrsta skipti um helgina. Formúla 1 2. október 2009 06:26
Flavio Briatore: Alonso mun blómstra með Ferrari Ítalinn Flavio Briatore telur að Fernando Alonso muni starfa vel með Ferrari og hann liðsinnti Alonso nokkuð við samningsgerðina. Formúla 1 1. október 2009 18:25
Alonso vill enda ferilinn með Ferrari Fernando Alonso gerði þriggja ára samning við Ferrari og byrjar að keyra með liðinu á næsta ári. Hann kemur í stað Kimi Raikkönen og ekur með Felipe Massa á næsta ári. Formúla 1 1. október 2009 09:11
Ferrari staðfestir samning Alonso Stefano Domenicali , framkvæmdarstjóri Ferrari staðfesti í dag að Fernando Alonso hefur veirð ráðinn til þriggja ára til Ferrari. Formúla 1 30. september 2009 14:38
Williams í viðræðum við Barrichello Rubens Barrichello er í viðræðum við Williams liðið og Nico Hulkenberg sem er meistari í GP 2 mótaröðinni hefur verið ráðinn til liðsins. Formúla 1 30. september 2009 09:11
Þungu fargi létt af Hamilton Heimsmeistarinn Lewis Hamilton segir að þungu fargi sé af sér llétt eftir sigurinn í Singapúr á sunnudaginn. Hann féll úr leik í tveimur mótum sem voru á undan og er ekki inn í myndinni í titilslagnum þetta árið. Formúla 1 29. september 2009 11:31
Ánægja í herbúðum Toyota Toyota liðið náði sínum besta árangri á þessu ári í Singapúr um helgina þegar Timo Glock kom annar í endamark á eftir Lewis Hamilton á McLaren. Formúla 1 29. september 2009 08:03
Raikkönen til McLaren og Alonso til Ferrari Allt bendir til þess að Finninn Kimi Raikkönen yfirgefi herbúðir Ferrari í lok þessa tímabils og gangi til liðs við McLaren að nýju. Hann ók hjá liðinu í fimm ár. Að sama skapi verður Fernando Alonso hjá Ferrari á næsta ári. Formúla 1 28. september 2009 09:52
Button þokast nær meistaratitlinum Jenson Button færðist skrefi nær meistaratitlinum í Formúluu 1 um helgina, þó langt sé síðan hann vann mót. Hann vann sex af sjö fyrstu mótum ársins á Brawn bílnum, en varð fimmti í Singapúr í keppni sem landi hans Lewis Hamilton vann. Formúla 1 28. september 2009 07:39
Hamilon fagnaði sigri í Singapúr Lewis Hamilton, ökuþór McLaren og núverandi heimsmeistari, fagnaði góðum sigri í Formúlu 1-keppninni í Singapúr í dag. Formúla 1 27. september 2009 14:25
Ross Brawn: Titilslagurinn verður heiðarlegur Ross Brawn, eigandi Brawn liðsins segir að titilslagurinn á milli Jenson Button og Rubens Barrichello verði opinn og heiðarlegur og engar liðsskipanir verði gefnar til að hygla að öðrum ökumanninum. Formúla 1 27. september 2009 09:23
Hamilton: Myndi elska að vinna í Singapúr Formúlu 1 mótið í Singapúr fer fram í dag og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 11.30 í opinni dagskrá. Lewis Hamilton er fremstur á ráslínu á McLaren. Formúla 1 27. september 2009 08:13
Klessukeyrsla Barrichello lán Hamiltons í tímatökum Bretinn Lewis Hamilton á McLaren ræsir fremstur af stað á ráslínu í Singapúr kappakstrinum á morgun. Við hlið hans Sebastian Vettel á Red Bull, en forystumaður stigamótsins, Jenson Button er aðeins tólfti á ráslínu. Formúla 1 26. september 2009 15:40
Hamilton sló öllum við á lokaæfingunni Bretinn Lewis Hamilton var fljótastur á lokaæfingu keppnisliða í Singapúr í dag, en tímakan fer fram eftir hádegi. Fremstur þeirra sem er í titilslagnum varð Sebastian Vettel sem náði öðrum besta tíma og varð 0.277 sekúndum á eftir Hamilton. Formúla 1 26. september 2009 12:08
Titilslagur framundan í Singapúr Einvígið um meistaratitilinn í Formúlu 1 er framundan á flóðlýstri braut í Singapúr í dag, en fjórir ökumenn eiga möguleika á titlinum. Sýnu mesta þeir Jenson Button og Rubens Barrichello hjá Brawn, en einnig Sebastian Vettel og Mark Webber hjá Red Bull. Formúla 1 26. september 2009 07:12