Yfirmanni dekkjaframleiðandans líst vel á bleyta brautir með gerviregni Paul Hembrey, yfirmanni Pirelli dekkjaframleiðandans finnst sú hugmynd Bernie Ecclestone áhugaverð, að bleyta hugsanlega einhver Formúlu 1 mót með með sérútbúnu vatnsúðakerfi, eða gerviregni ef svo má segja. Formúla 1 3. mars 2011 14:29
Vettel býst við 3-4 þjónustuhléum í Formúlu 1 mótum Formúlu 1 heimsmeistarinn Sebastian Vettel spáir því að fleiri þjónustuhlé verði í Formúlu 1 mótum ársins miðað við fyrri tíð, vegna þess hvernig keppnisdekkin frá Pirelli virka. Keppnislið og ökumenn þeirra hafa æft mikið á nýju dekkjunum fyrir Formúlu 1 á nokkrum æfingum á Spáni. Formúla 1 2. mars 2011 16:11
Japanskur bílaframleiðandi í samstarf við meistaralið Red Bull Japanski bílaframleiðandinn Infinity, sem er í eigu Nissan og Formúlu 1 lið Red Bull hafa gert með sér samstarfssamning og mun Infinity auglýsa á bílum Red Bull á þessu ári og hugmyndin er að aðilarnir tveir muni starfa sama á tæknilega sviðinu í framtíðinni. Vefsíðan autosport.com greinir frá þessu í dag. Formúla 1 1. mars 2011 16:41
Alonso spáir baráttu fimm liða um titilinn Fernando Alonso hjá Ferrari spáir því að fimm lið verði framarlega í flokki á þessu Formúlu 1 keppnistímabili, en telur að ný dekk sem verða notuð á þessu ári geti valdið toppliðunum erfiðleikum. Fyrsta mót ársins verður í Ástralíu 27. mars og að venju eru keppt bæði um titil ökumanna og bílasmiða. Formúla 1 1. mars 2011 12:45
Ross Brawn seldi eignarhlut sinn til Mercedes Framkvæmdarstjóri Mercedes Formúlu 1 liðsins, Ross Brawn hefur selt hlut sinn í Mercedes liðinu til Mercedes og fjórir aðrir hluthafar hafa gert slíkt hið sama. Brawn verður áfram framkvæmdarstjóri liðsins, en ökumenn Mercedes eru Michael Schumacher og Nico Rosberg. Formúla 1 28. febrúar 2011 15:24
Perez: Einn besti dagur lífs míns Sergio Perez frá Mexíkó spretti úr spori á Sauber Formúlu 1 bíl á laugardaginn í heimabæ sínum Guadalajara. Perez er nýliði í Formúlu 1 og er talið að milli 150.000-200.000 manns hafi fylgst með kappanum í heimabænum. Formúla 1 28. febrúar 2011 14:39
Kubica: Tel mig mjög heppinn og löng og erfið endurhæfing framundan Formúlu 1 ökumaðurinn Robert Kubica telur sig heppinn að hafa sloppið jafnvel frá óhappi í rallkeppni á Ítalíu á dögunum og raun ber vitni. Um tíma var óttast um líf hans, eftir að vegrið gekk í gegnum miðjan rallbíl hans og Jakup Gerber. Formúla 1 25. febrúar 2011 16:38
Tæknistjóri Williams segir nýliðann Maldonado hæfileikaríkan Williams Formúlu 1 liðið frumsýndi í dag bíl sinn formlega í Englandi eins og hann verður í keppni hvað litaval varðar. Við það tækifæri sagði Sam Michael, tæknistjóri liðsins að nýi ökumaður liðsins, Pastor Maldonado væri með náttúrulega hæfileika við stjórnun Formúlu 1 bíls. Formúla 1 24. febrúar 2011 13:22
Ástand Robert Kubica jákvætt Formúlu 1 ökumaðurinn Robert Kubica frá Póllandi sem slasaðist alvarlega í rallkeppni á Ítalíu á dögunum, er kominn af gjörgæslu á spítalanum sem hann dvelur á og í endurhæfingu á samkvæmt frétt á autosport.com. Formúla 1 23. febrúar 2011 15:48
Eitt ökumannssæti laust í Formúlu 1 Enn á eftir að ráða ökumann í eitt ökumannssæti í Formúlu 1 og það er hjá Hispania liðinu spænska. Indverjinn Narain Karthikeyan ekur einum bíl liðsins, en enginn hefur verið staðsfestur um borð í hinn bílinn. Á ráslínunni í Formúlu 1 í ár verða 24 ökumenn, sem keppa í 19 mótum í það minnsta, jafnvel 20 ef mótið í Barein verður sett á dagskrá síðar á árinu. Formúla 1 23. febrúar 2011 15:07
Ecclestone vill koma Formúlu 1 mótinu í Barein aftur á dagskrá Bernie Ecclestone segist ætla gera sitt til þess að Barein mótið komist aftur á dagskrá á þessu ári, en mótið átti að vera 13. mars, en var fellt niður vegna ástandsins í landinu. Tuttugu mót voru á dagskrá FIA, alþjóðabílasambandins í ár og höfðu aldrei verið fleiri Formúla 1 23. febrúar 2011 12:23
Massa telur ekki hægt bera keppinautanna saman Felipe Massa hjá Ferrari náði besta aksturstímanum á Barcelona brautinni í gær og besta tímanum sem náðist á fjögurra daga æfingum Formúlu 1 liða á brautinni, sem lauk í gær. En fyrsti æfingadagurinn var á föstudag og einnig var ekið um helgina. Formúla 1 22. febrúar 2011 15:19
FIA styður ákvörðun um að keppa ekki í Barein FIA, alþjóða bílasambandið styður ákvörðun þeirra sem hafa með Formúlu 1 mótshaldið í í Barein að gera, þess efnis að hætta við Formúlu 1 mótið sem átti að vera í Barein þann 13. mars. FIA sendi frá sér yfirlýsingu þess efnis síðdegis í dag. Ekki er ljóst hvort mótið verður á dagskrá síðar á árinu. Formúla 1 21. febrúar 2011 18:19
Massa snar í snúningum í Barcelona Felipe Massa hjá Ferrari var fljótastur þeirra Formúlu 1 ökumanna, sem æfðu á Barcelona brautinni á Spáni í dag. Massa varð 0.817 úr sekúndu á undan Mark Webber á Red Bull. Formúla 1 21. febrúar 2011 17:38
Hætt við mótshald í Barein 13. mars Yfirvöld og Formúlu 1 mótshaldarar í Barein hafa ákveðið að fyrsta Formúlu 1 mót ársins fari ekki fram 13. mars, vegna aðstæðna í landinu. Krónprinsinn í Barein, Salman bin Hamad bin Isa Al Kahlifa lét Bernie Ecclestone vita af þessu í símtali í dag, samkvæmt frétt á autosport.com. Fyrsta Formúlu 1 mót ársins verður því í Ástralíu 27. mars. Formúla 1 21. febrúar 2011 16:18
Rosberg á Mercedes sneggstur á sunnudagsæfingunni Nico Rosberg á Mercedes var með besta tíma allra Formúlu 1 ökumanna sem óku á Barcelona brautinni í dag á æfingu Formúlu 1 keppnisliða. Brautin var blaut um tíma, en þornaði smám saman, samkvæmt frétt um æfinguna á autosport.com. Formúla 1 20. febrúar 2011 16:47
Meistarinn enn fljótastur í Barcelona Sebastian Vettel hjá Red Bull náði í dag besta tíma á æfingu Formúlu 1 liða í Barcelona annan daginn í röð samkvæmt frétt á autosport.com. Jamie Alguersuari á Torro Rosso varð 0.204 sekúndum á eftir Vettel í dag. Formúla 1 19. febrúar 2011 17:16
Vettel rúmlega sekúndu fljótari en Alonso Sebastian Vettel á Red Bull var með besta tíma á æfingu Formúlu 1 liða á Barcelona brautinni á Spáni í dag. Þrettán ökumenn tóku þátt í akstri um Barcleona brautina, en keppnisliðin æfa næstu þrjá daga til viðbótar á brautinni. Formúla 1 18. febrúar 2011 16:42
Ecclestone metur í næstu viku hvort mótshaldi í Barein verði aflýst Bernie Ecclestone fylgist grannt með ástandinu í Barein, þar sem mótmælendur og lögregla tókust harkalega á í Manama, höfuðborg Barein í morgun. Fyrsta Formúlu 1 mót ársins á að fara fram í landinu þann 13. mars. Formúla 1 17. febrúar 2011 19:12
Nick Heidfeld staðfestur hjá Lotus Renault í stað Kubica Þjóðverjinn Nick Heidfeld var staðfestur sem ökumaður Lotus Renault í dag, en hann stóð sig vel á æfingum með liðinu á Jerez brautinni á laugardaginn. Náði besta tíma í brautinni. Heidfeld verður staðgengill Robert Kubica, sem er frá vegna meiðsla sem hann hlaut í rallkeppni. Fyrsta Formúlu 1 mót ársins er samkvæmt dagskrá í Barein 13. mars. Formúla 1 16. febrúar 2011 19:30
Vettel til í að keppa með Ferrari Heimsmeistarinn Sebastian Vettel hjá Red Bull gat þess í frétt á Gazetta dello Sport á Ítalíu að það að nafn hans yrði ritað meðal Ferrari ökumanna yrði sérstakt., ef af yrði í framtíðnni. Vettel ekur með Red Bull og greint var frá þessum ummælum Vettels á autosport.com. Formúla 1 16. febrúar 2011 14:37
Mótshaldarar í Barein ætla að tryggja öryggi á mótsstað þrátt fyrir hótun Skipuleggjendur fyrsta Formúlu 1 móts ársins í Barein segja forgangsmál að tryggja öryggi þeirra sem sækja mótið heim aðra helgina í mars. Mótmælhópur gaf það í skyn í gær að Formúlu 1 mótið yrði notað til að vekja athygli á málstað þess. Greint var þessu á autosport.com í dag. Formúla 1 16. febrúar 2011 13:46
Jean Todt, forseti FIA, átti fund með forseta Íslands Forseti aljþjóðabílasambandsins, FIA, Frakkinn Jean Todt kom til Íslands í dag, en hann er yfir bílasambandi sem stýrir umferðarmálum á heimsvísu og ýmsum akstursíþróttargreinum, eins og t.d. Formúlu 1. Todt var á árum áður heimsþekktur fyrir að stýra liði Ferrari í Formúlu 1 og vann marga titla með Michael Schumacher og Ferrari liðinu. Todt tók síðan við embærtti forseta FIA haustið 2009. Formúla 1 15. febrúar 2011 18:33
Ný keppnisdekk sögð auka skemmtanagildið í Formúlu 1 Pirelli dekkjaframleiðandinn sér öllum Formúlu 1 liðum fyrir dekkjum á þessu ári, en Bridgestone ákvað að draga sig í hlé frá íþróttinni, eftir margra ára samstarf við keppnisliðin og umsjónaraðila Formúlu 1 mótaraðarinnar. Formúla 1 14. febrúar 2011 15:42
Barrichello náði besta tíma á lokadegi æfinga á Jerez brautinni Brasilíumaðurinn Rubens Barrichello á Williams náði besta tíma á lokadegi æfinga Formúlu 1 liða á Jerez brautinni á Spáni í dag. Keppnislið hafa æft þar frá því á fimmtudag. Japaninn Kamui Kobayashi á Sauber var með næsta besta tíma í dag, 0.769 sekúndum á eftir Barrichello, samkvæmt frétt á autosport.com. Formúla 1 13. febrúar 2011 16:54
Heideld náði besta tíma í prófun Lotus Renault á hæfileikum hans Þjóðverjinn Nick Heidfeld náði besta tíma allra ökumanna á Jerez brautinni á Spáni í dag. Lotus Renault liðið prófaði hann sem mögulegan staðgengil Robert Kubica í Formúlu 1. Kubica verður frá keppni um ótiltekinn tíma vegna meiðsla sem hann hlaut í rallkeppni á Ítalíu um síðustu helgi. Formúla 1 12. febrúar 2011 16:43
Heidfeld eldsnöggur á Lotus Renault Þjóðverjinn Nick Heidfeld var efstur á blaði með besta aksturstímann á æfingu á Jerez brautinni í dag þegar um 25 mínútur voru eftir af æfingunni, en Lotus Renault er að skoða hann sem mögulegan staðgengil Robert Kubica, sem meiddist í óhappi í rallkeppni um síðustu helgi. Formúla 1 12. febrúar 2011 15:37
Schumacher með besta tíma á Mercedes Michael Schumacher á Mercedes var sneggstur um Jerez brautina á æfingu Formúlu 1 keppnisliða í dag. Formúla 1 11. febrúar 2011 17:05
Kubica: Vill komast á brautina aftur, sterkari en áður Pólverjnn Robert Kubica kveðst vilja komast sem fyrst í Formúlu 1, en hann meiddist alvarlega á sunnudaginn þegar hann tók þátt í rallkeppni á Ítalíu. Hann verður frá keppni í ótiltekinn tíma og Lotus Renault lið hans leitar að staðgengli fyrir hann. Formúla 1 11. febrúar 2011 13:09
Massa sneggstur á Jerez í dag Brailíumaðurinn Felipe Massa á Ferrari var fljótastur allra fyrstu æfingu keppnisliða í dag á Jerez brautinni á Spáni. Hann varð á undan nýliðanum Sergio Perez á Sauber, en sá kappi er frá Mexíkó. Formúla 1 10. febrúar 2011 16:53