Bandaríkin enn í forystu og Tiger fékk loksins stig Tiger Woods náði loksins stigi fyrir bandaríska liðið í Forsetabikarnum í golfi en að loknum þriðja keppnisdeginum hefur Bandaríkin fjögurra stiga forystum, 13-9. Golf 19. nóvember 2011 12:49
Birgir Leifur með neðstu mönnum Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson náði sér engan veginn á strik á þriðja hring úrtökumótsins fyrir PGA-mótaröðina í Bandaríkjunum. Birgir Leifur lék á 76 höggum sem hans langslakasti hringur á mótinu. Birgir Leifur er í 58.-63. sæti og því með neðstu mönnum. Aðeins um 20 fara áfram og möguleikar Birgis á því að komast áfram eru því væntanlega úr sögunni. Golf 18. nóvember 2011 19:06
Tiger tapaði en Bandaríkin í forystu Tiger Woods er enn án sigurs í Forsetabikarnum í golfi en lið Bandaríkjanna hefur engu að síður forystu gegn heimsúrvalinu eftir fyrstu tvo keppnisdagana. Golf 18. nóvember 2011 09:00
Birgir bætti stöðu sína | lék á 67 höggum á öðrum keppnisdegi Birgir Leifur Hafþórsson bætti stöðu sína verulega á öðrum keppnisdegi á úrtökumótinu fyrir PGA mótaröðina í golfi. Birgir lék á 4 höggum undir pari í dag eða 67 höggum og samtals er hann á -5 eftir að hafa leikið á 70 höggum á fyrsta keppnisdeginum. Golf 17. nóvember 2011 19:49
Ískalt andrúmsloft þegar Tiger hitti Williams - myndasyrpa Tiger Woods byrjaði skelfilega í Forsetabikarnum í golfi sem hófst í nótt í Ástralíu.Hann tapaði 7/6 í fjórmenning þar sem hann lék með Steve Stricker. Steve Williams, fyrrum aðstoðarmaður Tigers, var í sama ráshóp en hann er kylfuberi hjá Ástralanum Adam Scott. Það er alveg ljóst að nærvera Williams hafði ekki góð áhrif á Woods en ljósmyndarar Getty Images fylgdust vel með þeim félögum - enda hefur andað köldu á milli Tiger og Williams að undanförnu. Í myndasyrpunni má sjá hvernig þeir brugðust við. Golf 17. nóvember 2011 15:55
Tiger tapaði stórt í fyrsta leiknum í Forsetabikarnum Tiger Woods náði sér ekki á strik á fyrsta keppnisdegi í Forsetabikarnum sem hófst í nótt í Ástralíu. Þar eigast við Bandaríkin og alþjóðalegt úrvalslið kylfinga utan Evrópu. Woods og Steve Stricker töpuðu 7/6 í fjórmenning gegn Ástralanum Adam Scott og KJ Choi frá Suður-Kóreu. Bandaríska úrvalsliðið er með 4 vinninga gegn 2 að loknum fyrsta keppnisdegi. Golf 17. nóvember 2011 09:58
Erfið staða hjá Birgi Birgir Leifur Hafþórsson er í 44.-60. sæti að loknum fyrsta keppnisdegi á 2. stigi úrtökumótsins fyrir PGA mótaröðina í golfi í Bandaríkjunum. Birgir lék á 70 höggum í dag eða -1 en hann þarf að leika mun betur til þess að komast í hóp 15-20 efstu sem komast áfram að loknum fjórða keppnisdegi. Golf 16. nóvember 2011 22:56
Birgir Leifur þarf að gera betur Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson er jafn sex öðrum í 22. sæti á öðru stigi fyrir PGA-mótaröðina. Fyrsti hringurinn var leikinn í dag. Golf 16. nóvember 2011 19:12
Tiger og gamli kylfusveinninn saman í ráshóp Tiger Woods og Adam Scott hafa verið dregnir saman í holl í Forsetabikarnum í golfi en augu flestra munu sjálfsagt beinast að Tiger og Steve Williams, kylfusveini Scott. Golf 16. nóvember 2011 13:30
Tiger aftur í hópi 50 bestu í heiminum - en með naumindum Góður árangur Tiger Woods á opna ástralska meistaramótinu í golfi um helgina dugði til að fleyta Tiger Woods aftur upp í hóp 50 bestu kylfinga heims. En það mátti varla tæpara standa. Golf 14. nóvember 2011 19:45
Tiger í þriðja sæti á opna ástralska - Chalmers vann Greg Chalmers tryggði sér sigur á opna ástralska mótinu í goli í nótt þegar hann lék lokahringinn á 69 höggum eða þremur höggum undir pari. Chalmers var að vinna þetta mót í annað sinn því hann vann það líka árið 1998. Hann kláraði mótið á þrettán höggum undir pari. Golf 13. nóvember 2011 11:00
Tiger klúðraði forystunni - fékk þrjá skolla í röð Tiger Woods klúðraði forystu sinni á opna ástralska mótinu á þriðja hringnum í nótt og er nú sex höggum á eftir Ástralanum John Senden sem er efstur fyrir lokadaginn. Tiger er í áttunda sæti. Golf 12. nóvember 2011 11:00
Woods hefur tekið forystu í Ástralíu Tiger Woods er greinilega að finna aftur sitt langþráða gamla form en hann er nú í forystu á opna ástralska meistaramótinu í golfi eftir fyrstu tvo keppnisdagana. Golf 11. nóvember 2011 09:00
Woods spilaði á fjórum undir pari - Daly strunsaði af velli Tiger Woods er þremur höggum á eftir fremsta manni eftir fyrsta keppnisdag opna ástralska meistaramótsins í golfi. Hann lék á fjórum höggum undir pari, 68 höggum, í gær. Golf 10. nóvember 2011 10:15
Tiger segir gamla kylfusveininn sinn ekki vera kynþáttahatara Tiger Woods viðurkennir að ljót orð gamla kylfusveins hans, Steve Williams, hafi sært hann en að hann sé samt tilbúinn að bæði fyrirgefa og verja orðspor Williams. Golf 8. nóvember 2011 14:45
Eins árs keppnisbann hjá íslenskum kylfingi Aganefnd Golfsambands Íslands hefur úrskurðað íslenskan kylfing í eins árs keppnisbann en hann var staðinn að því að breyta skori sínu á skorkorti eftir að því hafði verið skilað inn eftir keppni. Fréttavefurinn Kylfingur.is greinir frá. Golf 8. nóvember 2011 12:00
Williams sleppur með skrekkinn Yfirmenn PGA og Evróputúrsins hafa ákveðið að sleppa því að refsa kylfusveininum Steve Williams fyrir ummæli sem margir hverjir túlkuðu sem kynþáttaníð í garð Tiger Woods. Golf 6. nóvember 2011 11:12
Williams biður Tiger afsökunar Kylfusveinninn Steve Williams hefur ekki verið að gera neitt sérstaka hluti síðan hann var rekinn af Tiger Woods. Hann virðist eiga erfitt með að sætta sig við brottreksturinn og hefur verið í því að láta Tiger heyra það. Golf 5. nóvember 2011 11:45
NBA deilan hefur áhrif á golfið hjá Michael Jordan Michael Jordan, eigandi NBA liðsins Charlotte Bobcats, er án efa ekki sáttur við verkbannið í deildinni og deilu eigenda við leikmannasamtökin. Jordan gaf gær frá sér hlutverk aðstoðarfyrirliða bandaríska úrvalsliðsins í golfi sem keppir í Forsetabikarnum gegn alþjóðlega úrvalsliðinu. John Cook mun taka við hlutverki Jordan en Fred Couples er fyrirliði bandaríska liðsins. Golf 2. nóvember 2011 09:15
Keppir á PGA mótaröðinni þrátt fyrir tvær hjartaígræðslur Erik Compton er ekki þekktasti kylfingur heims en hann gæti átt eftir að stela athyglinni á PGA mótaröðinni á næsta keppnistímabili. Hinn 31 árs gamli Compton hefur tvívegis fengið nýtt hjarta grætt í sig og þrátt fyrir þá erfiðleika hefur hann tryggt sér keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröð heims. Golf 30. október 2011 23:08
Birgir Leifur komst áfram Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson tryggði sér í dag þáttökurétt á öðru stigi úrtökumótaraðar PGA-mótaraðarinnar. Birgir Leifur lék á 74 höggum í dag og það dugði til. Golf 28. október 2011 20:31
Birgir má ekki gera mörg mistök á lokahringum - er í 17.-18. sæti Birgir Leifur Hafþórsson teflir á tæpasta vað fyrir lokakeppnisdaginn á 1. stigi úrtökumóts PGA mótaraðarinnar í golfi. Birgir lék á 73 höggum á þriðja keppnisdegi eða 1 höggi yfir pari og er hann samtals á pari. Þetta er í fyrsta sinn sem Birgir tekur þátt á úrtökumóti fyrir sterkustu mótaröð heims en hann er í 17.-18. sæti en það má gera ráð fyrir að 22 efstu komist áfram af þessum keppnisvelli. Golf 27. október 2011 21:12
Birgir lagaði stöðu sína með fínum hring Birgir Leifur Hafþórsson náði að laga stöðu sína verulega á öðrum keppnisdegi úrtökumótsins fyrir PGA mótaröðina í golfi í dag. Birgir lék á 2 höggum undir pari eða 70 höggum. Golf 26. október 2011 19:47
Birgir Leifur í 26.-38. sæti að loknum fyrsta keppnisdegi Birgir Leifur Hafþórsson er í 26.-38. að loknum fyrsta keppnisdegi úrtökumótsins fyrir bandarísku PGA mótaröðina í golfi. Birgir lék á 1 höggi yfir pari vallar í dag eða 73 höggum. Alls komast 22 kylfingar áfram á 2. stig úrtökumótsins af þessum velli. Golf 25. október 2011 20:54
Birgir Leifur reynir sig á úrtökumóti fyrir PGA í fyrsta sinn Birgir Leifur Hafþórsson hefur leik á morgun, þriðjudag, á úrtökumóti fyrir sterkustu atvinnumótaröð heims, PGA mótaröðina í Bandaríkjunum. Birgir Leifur hefur dvalið í Bandaríkjunum undanfarna daga en þetta er í fyrsta sinn sem atvinnumaðurinn tekur þátt á úrtökumóti fyrir PGA. Birgir telur sig eiga möguleika á að komast inn á mótaröðina en úrtökumótið er þrískipt líkt og á evrópsku mótaröðinni. Golf 24. október 2011 13:00
Luke Donald skrifaði nýjan kafla í golfsöguna Luke Donald skrifaði nýjan kafla í sögu PGA mótaraðarinnar í Bandaríkjunum í gær þegar hann tryggði sér efsta sætið á peningalista PGA. Englendingurinn er sá fyrsti frá Evrópu sem nær þeim áfanga að vera efstur á peningalistanum á bandarísku atvinnumótaröðinni. Donald tryggði sér sigur á lokamóti keppnistímabilsins með ótrúlegum lokahring þar sem hann lék á 64 höggum. Golf 24. október 2011 10:45
Rory losar sig við Chubby Einn fremsti kylfingur heims, Rory McIlroy, ætlar að mjólka kúna fyrst hann er kominn á toppinn og til þess að fá sem mest út úr næstu árum hefur hann ákveðið að skipta um umboðsmann. Golf 21. október 2011 19:00
Pylsukastarinn fékk innblástur eftir að hafa horft á myndina Drive Eins og við mátti búast var maðurinn sem kastaði pylsu í átt að Tiger Woods um síðustu helgi aðeins að leita sér að athygli. Hann segist hafa viljað gera eitthvað mjög sérstakt. Golf 13. október 2011 10:45
Ungviðið stólar of mikið á tæknina og aðstoðarmenn Golfþing GSÍ er fram undan. Á þinginu verður lagt til að banna tæki sem mæla fjarlægðir í öllum aldursflokkum á Íslandsmótum. Einnig er lagt til að kylfusveinar og aðstoðarmenn verði lagðir af í aldursflokknum 15-18 ára. Golf 13. október 2011 07:45
Lengsti bráðbani í sögu PGA - Molder fékk 100 milljónir kr. Bryce Molder sigraði í fyrsta sinn á ferlinum á PGA móti í golfi í gær eftir maraþonbráðabana gegn Briny Baird. Þeir luku leik á 17 höggum undir pari og úrslitin réðust ekki fyrr en á sjöttu holu í bráðabana sem er sá lengsti í sögunni á bandarísku PGA mótaröðinni en hann stóð yfir um tvo tíma. Golf 10. október 2011 14:30