Morgan Marie verður áfram á Hlíðarenda Morgan Marie Þorkelsdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Íslandsmeistara Vals í handbotla kvenna og verður þar með hið minnsta í herbúðum félagsins til ársins 2025. Sport 11. júlí 2023 07:00
Segir lið Janusar og Sigvalda í fjárhagsvandræðum Hið nýríka norska handboltafélag Kolstad á í fjárhagsvandræðum að sögn TV 2 Sport en í frétt miðilsins segir að óskað hafi verið eftir því að leikmenn liðsins taki á sig launalækkun. Handbolti 10. júlí 2023 20:20
„Algjört eitur fyrir trúverðugleikann í íþróttaheiminum“ Formaður danska handknattleikssambandsins segir að umhverfi bestu dómara í handboltaheiminum verði að vera öruggt. Handbolti 10. júlí 2023 14:31
ÍBV í viðræðum við Roland Eradze og Carlos kemur ekki: „Búið og var aldrei neitt“ Margt bendir til þess að Roland Valur Eradze verði næsti aðstoðarþjálfari Íslandsmeistara ÍBV í handknattleik. Viðræður Eyjamanna við Eradze standa yfir og ríkir bjartsýni að gengið verði frá samningum. Handbolti 10. júlí 2023 11:31
Sáu aldrei til sólar gegn Portúgal Íslenska kvennalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 19 ára og yngri steinlá gegn Portúgal í B-riðli Evrópumótsins sem fram fer í Rúmeníu. Lokatölur 44-27 Portúgal í vil. Handbolti 9. júlí 2023 16:46
Fram fær markvörð frá Val Andrea Gunnlaugsdóttir hefur samið við Fram og mun leika með liðinu í Olís-deild kvenna í handbolta á næstu leiktíð. Frá þessu greindi Fram á föstudag. Handbolti 7. júlí 2023 19:00
Grátlegt tap gegn Þýskalandi Íslenska U-19 ára landslið kvenna í handbolta mátti þola grátlegt eins marks tap í öðrum leik sínum í B-riðli Evrópumótsins sem nú fer fram í Rúmeníu. Lokatölur 31-30 Þýskalandi í vil eftir að Ísland hafði leidd með fjórum mörkum um tíma í síðari hálfleik. Handbolti 7. júlí 2023 17:31
Segir af sér sem fyrirliði Dortmund Marco Reus hefur sagt af sér sem fyrirliði Borussia Dortmund eftir að hafa gengt þeirri stöðu í fimm ár. Fótbolti 7. júlí 2023 15:45
„Þessi skandall verður hundrað sinnum verri ef allar upplýsingar koma fram“ Einn besti línumaður allra tíma er ekki hissa á uppljóstrunum TV 2 í heimildamynd um hagræðingu úrslita í handbolta. Hann segist hafa grunað að brögð væru í tafli um langa hríð. Handbolti 7. júlí 2023 08:01
Stemning hjá stelpunum á Snapchat meðan dregið var Í dag kom í ljós hverjir mótherjar Íslands verða í riðlakeppni HM kvenna í handbolta í desember. Landsliðskonan Thea Imani Sturludóttir kveðst ekki geta beðið eftir sumarfríslokum svo hún geti hafið undirbúning fyrir mótið. Handbolti 6. júlí 2023 21:01
Rut á von á barni og verður ekki með á HM Rut Arnfjörð Jónsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, verður ekki með liðinu á HM í Danmörku, Noregi og Svíþjóð sem fram fer í nóvember og desember. Handbolti 6. júlí 2023 19:46
Stórt tap í fyrsta leik á EM Íslenska kvennalandsliðið í handbolta skipað leikmönnum 19 ára og yngri mátti þola átta marka tap er liðið mætti heimakonum í Rúmeníu í fyrsta leik í kvöld, 41-33. Handbolti 6. júlí 2023 18:16
„Þar hefðum við getað verið heppnari“ „Við vissum fyrir fram að þetta yrði alvöru verkefni og það hefur ekkert breyst,“ segir Arnar Pétursson, þjálfari kvennalandsliðs Íslands í handbolta, eftir að dregið var í riðla fyrir HM í dag. Handbolti 6. júlí 2023 15:19
Aðgerð Gísla heppnaðist vel en EM stendur tæpt Gísli Þorgeir Kristjánsson er búinn að fara í aðgerð á öxl en hann þurfti að gangast undir hans eftir að hann fór úr axlarlið á úrslitahelgi Meistaradeildarinnar. Handbolti 6. júlí 2023 14:56
Ísland í riðli með Frökkum og spilað í Stavanger Íslenska kvennalandsliðið í handbolta dróst í riðil með Frakklandi, Slóveníu og Angóla, þegar dregið var í riðla fyrir heimsmeistaramótið í dag. HM fer fram í Danmörku, Noregi og Svíþjóð dagana 29. nóvember til 17. desember. Handbolti 6. júlí 2023 13:30
Stelpurnar okkar gætu lent í riðli með Grænlandi á HM í handbolta Íslenska kvennalandsliðið í handbolta kemst að því í dag hvaða liðum stelpurnar okkar munu mæta á heimsmeistaramótinu í desember. Handbolti 6. júlí 2023 11:00
Notuðu tálbeitu til að góma formann dómaranefndar EHF TV 2 notaði tálbeitu til að ræða við Dragan Nachevski sem var settur af sem formaður dómaranefndar EHF í maí vegna gruns um hagræðingu úrslita í handbolta. Samtal Nachevskis og tálbeitunnar var sýnt í fyrri hluta heimildamyndarinnar Grunsamlegur leikur sem var frumsýnd í gær. Handbolti 6. júlí 2023 10:31
Skellti sér út að hlaupa þegar hún frétti að Ísland væri komið á HM Ein reyndasta handboltakona landsins var að vonum ánægð þegar í ljós kom að Ísland yrði meðal þátttökuþjóða á HM 2023. Handbolti 6. júlí 2023 08:31
Ísland hafi óskað eftir því að halda HM í handbolta með Danmörku og Noregi Handknattleikssamband Íslands, HSÍ, hefur ásamt handknattleikssamböndum Danmerkur og Noregs sent inn óformlegt boð um að fá í sameiningu að halda heimsmeistaramótið í handbolta árið 2029 eða 2031. Handbolti 5. júlí 2023 19:30
ÓL-smuga opnast fyrir stelpurnar okkar Íslenska kvennalandsliðið í handbolta fékk ekki aðeins sæti á HM upp í hendurnar frá IHF á mánudaginn, heldur einnig möguleika á að komast á Ólympíuleikana í París á næsta ári. Handbolti 5. júlí 2023 14:03
Hörður kvartar undan ÍBV og vill milljónir fyrir Carlos: „Segjum svo nei og þá erum við vondi maðurinn“ Forráðamenn handknattleiksliðs Harðar á Ísafirði telja ÍBV og þjálfarann Carlos Martin Santos hafa brotið reglur með samskiptum sínum varðandi mögulegt brotthvarf Carlosar frá Herði til ÍBV til að gerast aðstoðarþjálfari Íslandsmeistaranna. Samskipti sem Hörður gaf þó upphaflega leyfi fyrir. Handbolti 5. júlí 2023 12:56
Viktor Gísli átti vörslu ársins í Meistaradeildinni Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Viktor Gísli Hallgrímsson átti bestu markvörslu Meistaradeildar Evrópu á síðasta tímabili. Handbolti 5. júlí 2023 12:00
Frumsýna heimildamynd um víðtækt dómarasvindl í handbolta Í kvöld verður fyrri hluti heimildamyndar um hagræðingu úrslita í handbolta frumsýndur á TV 2 í Danmörku. Handbolti 5. júlí 2023 11:00
„Við ætluðum alltaf að komast í undanúrslit“ Ísland fagnaði þriðja sætinu á heimsmeistaramóti U21-árs liða í handbolta um helgina. Leikmaður liðsins segir árangurinn góðan stökkpall fyrir leikmenn liðsins sem allir leika í Olís-deildinni. Handbolti 4. júlí 2023 23:31
Engin hætta á að stelpurnar okkar spili í Rússlandi Handknattleikssamband Evrópu, EHF, hefur tekið af allan vafa um það að lokakeppni Evrópumótsins í handbolta 2026 muni ekki fara fram í Rússlandi. Handbolti 4. júlí 2023 16:00
„Með hjartað á 200 og þurfti að taka hlé frá vinnunni“ „Þetta var svo ótrúlega mikið sjokk áðan vegna þess að ég var ekki búin að gera mér neinar vonir,“ segir Sandra Erlingsdóttir, himinlifandi eftir þau tíðindi dagsins að hún sé leiðinni á HM í handbolta í lok nóvember. Handbolti 3. júlí 2023 14:06
Ísland fer á HM í annað sinn Íslenska kvennalandsliðið í handbolta var rétt í þessu að fá staðfest sæti á heimsmeistaramótinu sem fram fer á Norðurlöndum 29. nóvember til 17. desember. Handbolti 3. júlí 2023 11:04
Ólafur Stefáns er fimmtugur í dag Íslenska handboltagoðsögnin Ólafur Stefánsson fæddist 3. júlí 1973 og heldur því upp á fimmtugsafmælið sitt í dag. Handbolti 3. júlí 2023 09:30
„Ekkert skemmtilegra í heiminum en að vinna medalíu með bestu vinum þínum“ Andri Már Rúnarsson skoraði fimm mörk þegar Ísland vann Serbíu, 27-23, í leiknum um bronsið á HM U-21 árs liða í Berlín í dag. Handbolti 2. júlí 2023 23:30
„Ég fór nú bara að horfa á markið og skjóta“ Þorsteinn Leó Gunnarsson var valinn maður leiksins þegar Ísland tryggði sér bronsverðlaun með sigri á Serbíu á HM U21-árs landsliða í handbolta. Hann sagði liðsframmistöðu hafa skilað sigrinum. Handbolti 2. júlí 2023 21:01