Rússíbaninn á húsnæðismarkaði Í mars síðastliðnum varaði ég við samdrætti í íbúðabyggingu, sjá m.a. hér. Nú eru fleiri að benda á sama vandamál bæði á Íslandi sem og annars staðar í Evrópu. Sjá t.d. hér, hér og hér. Víða er vandamálið að ekki má byggja vegna reglna um nýtingu lands ("zoning laws") sem hindra að t.d. illa nýttum skrifstofubyggingum eða bílastæðum sé breytt í íbúðarhúsnæði að hluta eða heild. Skoðun 18. maí 2023 11:01
Vilja kaupa 1.700 íbúðir og leigja út á kostnaðarverði Samtök leigjenda hafa óskað eftir viðræðum við stjórn Heimstaden um kaup á 1.700 íbúðum félagsins. Hugmynd samtakanna er að nýtt samvinnufélag kaupi íbúðirnar og að þær verði leigðar út á kostnaðarverði. Samvinnufélagið myndi tryggja leigjendum öryggi og langtímasamninga. Viðskipti innlent 17. maí 2023 13:35
Rýnt í leiguverð Umræða um leiguverð á íbúðarmarkaði hefur verið nokkuð hávær að undanförnu. Í þeirri umræðu hefur verið fullyrt að verðhækkanir á þessum markaði hafi verið úr öllu hófi og ekki í samræmi við almenna verðlagsþróun í landinu. Skoðun 17. maí 2023 13:31
Segir yfirlýsingu um boðaða hækkun á leiguverði minna á vísindaskáldskap Formaður samtaka leigjenda er hræddur um að mörgum hafi brugðið þegar stjórnarformaður leigufélagsins Ölmu boðaði hækkun á leiguverði í dag. Yfirlýsing stjórnarformannsins um að leiguverð sé of lágt minni á vísindaskáldskap. Innlent 14. maí 2023 19:30
Telur leiguverð of lágt og boðar hækkun Stjórnarformaður Ölmu leigufélags segir umræðu um félagið hafa verið mjög harða og ekki í samræmi við staðreyndir um leigumarkaðinn. Húsnæði sé einfaldlega dýrt, sama hvort fólk eigi húsnæðið sjálft eða leigi það. Hann segir leiguverð of lágt og boðar hækkun. Viðskipti innlent 14. maí 2023 13:22
Helsjúkur leigumarkaður í Reykjavík Við í Flokki fólksins viljum ræða leigumarkaðinn í Reykjavík á næsta borgarstjórnarfundi sem er 16. maí næstkomandi. Leiga er að sliga fjölmarga leigjendur sem eiga ekki krónu afgangs þegar búið er að greiða leigu og aðrar nauðsynjar. Grunnvandinn er húsnæðisskortur sem er mikill í Reykjavík. Það sárvantar húsnæði af öllu stærðum og gerðum. Skoðun 14. maí 2023 07:00
Eignasöluferli Heimstaden gæti tekið fimm ár Leigufélagið Heimstaden er ekki á leiðinni af íslenskum fasteignamarkaði strax heldur er félagið einungis að skoða hvernig það eigi að minnka við sig. Að sögn tilvonandi framkvæmdastjóra félagsins á Íslandi er það eina sem hægt er að staðfesta að félagið muni ekki stækka við sig hér á landi. Viðskipti innlent 11. maí 2023 17:27
Leigufélög enn spennandi fjárfesting þrátt fyrir brotthvarf Heimstaden Leigufélagið Heimstaden mun á næstu mánuðum minnka íbúðasafn sitt á Íslandi. Ástæðan mun vera sú að lífeyrissjóðir vildu ekki fjárfesta í félaginu. Að sögn framkvæmdastjóra lífeyrissjóðs þýðir þetta ekki að leigufélög þyki minna spennandi vara fyrir fjárfesta. Viðskipti innlent 11. maí 2023 11:52
Hartnær áttatíu prósent leigjenda ná ekki endum saman Sjötíu prósent íslenskumælandi leigjenda og áttatíu prósent enskumælandi eiga erfitt með að ná endum saman. Þetta er meðal þess sem fram kemur í svörum við spurningum glænýrrar könnunar sem Samtök leigjenda standa að. Niðurstöðurnar sýna kolsvarta stöðu leigjenda á Íslandi. Innlent 11. maí 2023 11:20
Hvað verður loftlagssektin há vegna 35.000 íbúða? 800 milljónum af fjárlögum íslenska ríkisins ársins 2023 er ráðstafað til sektar vegna þess að við Íslendingar höfum sofið á verðinum og ekki staðið við skuldbindingar okkar vegna Kyoto loftlagsbókunarinnar. Parísarsamningurinn sem við höfum líkt og aðrar ábyrgðafullar þjóðir undirgengist, er mun viðameiri og skilyrði hans koma til kasta fjárlaga innan skamms eða 2030. Skoðun 11. maí 2023 09:30
„Það er Alma sem slær tóninn og hinir elta“ Formaður Samtaka leigjenda segir ekki rétt að Alma leigufélag sé ekki verðleiðandi á leigumarkaði hér á landi. Alma slái tóninn með hækkunum og almennir leigusalar elti. Hann hvetur leigjendur hjá Ölmu til að hafna hækkunum félagsins. Innlent 10. maí 2023 23:30
„Ómögulegt með nokkurri sanngirni að kalla slíka hækkun leiguokur“ Stjórnarformaður Ölmu íbúðafélags hf. segir félagið ekki vera hluta af húsnæðisvandanum, það sé frekar hluti af lausninni. Hann segir ósanngjarnt að ætla að einstök dæmi um miklar hækkanir á leiguverði eigi við um allan markaðinn. Viðskipti innlent 10. maí 2023 11:11
Málsvörn leigusala Málefni Ölmu íbúðafélags hf. hafa nokkuð verið til umræðu síðustu mánuði og þá sérstaklega vangaveltur um verðlagningu á leigusamningum félagsins. Skoðun 10. maí 2023 11:01
Ekki í boði að gefast upp Þann 12. júlí 2022 blés ríkisstjórn Íslands til blaðamannafundar og undirritaði rammasamning við Samband íslenskra sveitarfélaga um að stefnt verði að byggingu 35 þúsund íbúða á næstu 10 árum. Skoðun 9. maí 2023 09:02
Væri slæmt að enda með 35 þúsund íbúðir sem uppfylli ekki skilyrði um dagsbirtu Arkitektar fagna því að yfirvöld stefni á uppbyggingu 35 þúsund íbúða á næstu tíu árum. Ekki megi þó gefa afslátt af gæðum húsnæðis. Nauðsynlegt sé að því verði stýrt hvernig uppbygging fari fram og verktakar eigi ekki að sjá um það einir. Innlent 7. maí 2023 15:46
Þrjú ný íbúðahverfi í byggingu á Selfossi Íbúum í Árborg hefur fjölgað um tæplega þrjátíu prósent á síðustu sjö árum og ekkert útlit er fyrir að það muni hægja á þessari fjölgun á næstu árum. Í dag eru þrjú íbúðahverfi í byggingu á Selfossi og eitt til viðbótar í samþykktarferli í sveitarfélaginu. Innlent 7. maí 2023 15:05
Rekin úr íbúðinni vegna smáhunds fósturdóttur sinnar Monika Macowska leigjandi er afar ósátt við hvernig staðið var að riftun leigusamnings hennar og á hvaða forsendum. Smáhundur sem hún fékk fyrir fósturdóttur sína sem er að eiga við áfallastreituröskun eftir alvarlegt áfall er uppgefin ástæða uppsagnarinnar. Innlent 7. maí 2023 09:04
Framkvæmdastjóri Ölmu segir útburð allra síðasta úrræði leigusala Framkvæmdastjóri Ölmu leigufélags segir útburðarferli allra síðasta úrræðið sem leigusalar leiti til. Félagið geri allt sem í sínu valdi stendur til að koma til móts við leigutaka í greiðsluvanda. Af og frá sé að tveggja mánaða skuld verði til þess að fólk sé borið út. Umboðsmaður skuldara segir rétt kröfuhafa mikinn. Innlent 6. maí 2023 12:27
„Ætli ég sofi ekki bara í bílnum“ Áttræður maður var á þriðjudaginn borinn út úr íbúð sinni sem hann hafði á leigu hjá Ölmu leigufélagi. Þar bjó hann ásamt hreyfihömluðum syni sínum en þeir eru nú á götunni að eigin sögn og vita ekki hvað tekur við. Innlent 4. maí 2023 19:41
„Sá hópur sem stendur langverst eru einstæðir foreldrar“ Niðurstöður könnunar Vörðu, rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, sýna að nærri helmingur fólks á erfitt með að ná endum saman og fjölgar nokkuð í hópnum milli ára. Einstæðir foreldrar og innflytjendur eru þeir hópar sem koma verst út úr könnuninni. Innlent 4. maí 2023 10:11
Teikn á lofti um að markmið rammasamnings fyrir árið náist ekki Innviðaráðherra segir það ekki rétt að forsendur rammasamnings um uppbyggingu íbúða séu brostnar, líkt og Samband íslenskra sveitarfélaga heldur fram. Ef þörf verður á auknu fjármagni verði brugðist við en teikn eru á lofti um að markmið samningsins náist ekki strax. Innlent 30. apríl 2023 21:26
Ásgeiri brugðið þegar hann heyrði að Íslendingum hafi fjölgað um 3.000 á árinu Ásgeiri Jónssyni seðlabankastjóra var brugðið þegar hann fékk að vita það á fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í morgun að Íslendingum hafi fjölgað um þrjú þúsund frá áramótum. Viðskipti innlent 28. apríl 2023 11:59
„Hér er um að ræða fullkominn forsendubrest“ Samband íslenskra sveitarfélaga telur að rammasamningur ríkis og sveitarfélaga um aukið framboð íbúða sé vanfjármagnaður í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar. Um sé að ræða „fullkominn forsendubrest“ og íbúðaþörf næstu ára verði ekki fullnægt. Innlent 27. apríl 2023 20:39
Safnaði illa þefjandi sorpi og dæmd til að selja íbúðina Héraðsdómur hefur dæmt eiganda íbúðar í Reykjavík til að flytja úr íbúðinni og selja hana vegna yfirgengilegrar sorpsöfnunar, sem olli nágrönnum gríðarlegum óþægindum. Lögmaður Húseigendafélagsins segir málið algjört undantekningartilvik - og sérstakt fyrir ýmsar sakir. Innlent 27. apríl 2023 19:18
Bein útsending: Grænt stökk í mannvirkjagerð Fundur Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um grænt stökk í mannvirkjagerð fer fram á Grand Hótel í dag klukkan 13. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi neðar í fréttinni. Innlent 27. apríl 2023 12:31
Gul viðvörun verður rauð ef ekkert er að gert Seðlabankastjóri hefur nú ítrekað komið upp, kynnt stýrivaxtahækkanir og hvatt almenning til að draga úr neyslu. Í tólfta skiptið var stigið það stóra skref að hækka stýrivexti um heila prósentu. Við erum öll orðin meðvituð um afleiðingarnar og hvað áhrif þessar hækkanir hafa á rekstur heimila í landinu. Skoðun 27. apríl 2023 08:02
Hrein ný íbúðalán ekki verið minni síðan 2016 Hrein ný íbúðalán námu 6,8 milljörðum króna í febrúarmánuði og hafa þau ekki verið minni síðan í mars 2016. Þetta endurspeglar minnkandi veltu á fasteignamarkaði. Viðskipti innlent 27. apríl 2023 07:28
Telja íbúðauppbyggingu dragast saman um 65 prósent Félagsmenn Samtaka Iðnaðarins hjá fyrirtækjum sem starfa í íbúðauppbyggingu telja sig munu horfa fram á 65 prósent samdrátt í uppbyggingu íbúða næstu tólf mánuði. Þetta er niðurstaða skoðanakönnunar á vegum SI sem náði til fyrirtækja sem byggja 26 prósent af heildarfjölda íbúða í byggingu hér á landi. Innlent 23. apríl 2023 14:21
Snarhækkun íbúðaverðs kom hagfræðingum á óvart Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu snarhækkaði óvænt í mars, samkvæmt nýbirtum tölum Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Vísitala íbúðaverðs hafði farið lækkandi mánuðina á undan, fyrir utan örlitla hækkun í febrúar. Hagfræðingur hjá Íslandsbanka segir sérbýli eiga stóran þátt í hækkuninni. Innlent 19. apríl 2023 20:12
Staða heimila á húsnæðismarkaði Undanfarið hefur borið á gagnrýni á Framsókn vegna aðgerðaleysis eins og það er orðað í húsnæðismálum. Það er eðlilegt að Framsókn sé gagnrýnd því flokkurinn hefur farið með húsnæðismálin síðustu 10 ár en staðreyndin er sú að Framsókn hefur virkilega látið sig húsnæðismál varða því þau eru grundvöllurinn sem heimili landsins byggja sig í kringum. Skoðun 19. apríl 2023 07:00