Gríðarlegur áhugi á nýju borgarhverfi í Sunnusmára Opið hús verður á morgun, sunnudag í Sunnusmára 2 - 6 milli klukkan 12 og 17. Samstarf 25. september 2021 08:46
Spilaborgir félagsmálaráðherra Félagsmálaráðherra lagði fram frumvarp um s.k. hlutdeildarlán á síðasta þingi og fékk samþykkt. Lögin sem samþykkt voru ná grátlega stutt og eru meiri umbúðir en innihald. Skoðun 24. september 2021 14:00
Öruggt þak yfir höfuðið Við Vinstri-græn vitum að húsnæðismál eru eitt stærsta kjaramálið. Þess vegna lögðum við mikla áherslu á umbætur í húsnæðismálum í náinni samvinnu við verkalýðshreyfinguna á kjörtímabilinu. Skoðun 20. september 2021 12:00
Húsnæðisskorturinn og lausnir Miðflokksins Ein af grunnþörfum fólks er að hafa þak yfir höfuðið, skjól. Kostnaður við að eiga eða leigja húsnæði er stærsti hluti af ráðstöfunartekjum fólks. Það er því ljóst að með því að ná húsnæðiskostnaði niður fæst ein mesta kjarabót sem hægt er að hugsa sér. Skoðun 19. september 2021 21:00
Lærdómurinn af Fossvogsskólamálinu Á fundi borgarráðs í mars var samþykkt tillagameirihlutans í borgarstjórn Reykjavíkur um að ráðast í vinnu við nýjan verkferil til framtíðar um viðbrögð og verklag og hvernig beri að bregðast við þegar koma upp raka- og myglumál í húsnæði borgarinnar. Sá verkferill er tilbúinn og mjög umfangsmikill og mun skipta verulegu máli. Hann var samþykktur í borgarráði í síðustu viku. Skoðun 18. september 2021 07:01
Inga keypti íbúðina af leigufélagi öryrkja Hússjóður Öryrkjabandalagsins seldi Ingu Sæland, formanni og þingmanni Flokks fólksins, íbúð sem hún hefur leigt undanfarin ár í febrúar. Á þriðja hundrað manns bíða enn eftir að leigja íbúð af sjóðnum en ekki hefur verið tekið við nýjum umsóknum í um þrjú ár. Innlent 14. september 2021 11:37
Fullt nám, hálft lán Þrátt fyrir að 30 ár séu á milli þess að við tvö tókum námslán þá hefur lítið breyst. Það er enn ætlast til þess að stúdentar lepji dauðann úr skel og búi frítt í foreldrahúsum. Skoðun 10. september 2021 09:30
Hlutfall íbúða sem seljast á yfirverði lækkar í fyrsta sinn síðan í janúar Nokkuð hefur dregið úr umsvifum á fasteignamarkaði á undanförnum mánuðum, en á höfuðborgarsvæðinu dróst fjöldi kaupsamninga saman um 20 prósent á milli mánaðanna júní og júlí og um 25 prósent miðað við júlí í fyrra. Verð á sérbýli hækkar áfram meira en verð íbúða í fjölbýli og þá lækkar hlutfall íbúða sem seljast á yfirverði í fyrsta sinn síðan í janúar. Viðskipti innlent 10. september 2021 08:32
Er byggingareglugerð bara upp á punt? Á undanförnum árum hefur það nokkuð oft gerst, að fólk fái afhentar nýjar íbúðir sem eru ill- eða ónothæfar af ýmsum ástæðum. Lekavandamál hafa fengið mesta athygli í fjölmiðlum, eins og nýlegur Kveiks þáttur er gott dæmi um. Skoðun 6. september 2021 14:30
Á heimavist alla ævi? Mikill fjöldi fatlaðs fólks á Íslandi býr á herbergja sambýlum, nærri 300 manns. Þetta er fatlað fólk sem býr í herbergjum minni en 28 fermetrum og deilir annarri aðstöðu með öðru fólki. Stundum gengur sú sambúð vel en stundum er það fólk sem það þekkir lítið, á ekki í góðum samskiptum við eða fílar bara hreinlega ekki. Myndir þú sætta þig við slíkt? Skoðun 4. september 2021 10:01
Furða sig á að geðdeild verði ekki á nýjum Landspítala Mikil óánægja ríkir meðal sérnámslækna í geðlækningum vegna uppbyggingar nýs Landspítala. Ekki stendur til að geðsvið fái þar inni þrátt fyrir að sum húsa geðdeildanna séu aldargömul og húsnæðisvandi sé mikill. Innlent 3. september 2021 20:01
Öruggt húsnæði fyrir alla Öruggt húsnæði er hornsteinn jöfnuðar í samfélaginu enda er það mannréttindamál að eiga þak yfir höfuðið. Við Vinstri græn leggjum mikla áherslu á að á landinu öllu sé gott framboð af húsnæði bæði til leigu og til eignar á viðráðanlegu verði fyrir ungt fólk og tekjulægri. Skoðun 1. september 2021 12:00
Þak yfir höfuðið Öryrkjabandalag Íslands stendur nú fyrir herferðinni 24 góðar leiðir að betra samfélagi. Eitt af þessum 24 atriðum er að krefjast þess að fjölbreyttari húsnæðisúrræði séu í boði fyrir alla. Skoðun 30. ágúst 2021 15:30
Heilbrigði og húsnæði um allt land Á síðustu vikum hef ég, ásamt fleirum í forystu ASÍ, haldið ótal fundi með stjórnum aðildarfélaga ASÍ um allt land. Atvinnumál á hverjum stað og lífsgæði fólks almennt hafa verið stóru málin og mjög víða ríkir bjartsýni og uppgangur. Þó er áberandi hversu misjafnlega niðursveiflan kom niður á svæðum og enn eru sum svæði sem glíma við alvarlegar afleiðingar. Skoðun 27. ágúst 2021 16:00
Kaupsamningum fækkar um tólf prósent milli mánaða Þjóðskrá hefur tekið saman upplýsingar um veltu á fasteignamarkaði eftir landshlutum í júlí 2021 samkvæmt þinglýstum gögnum. Þegar júlí 2021 er borinn saman við júní 2021 fækkar kaupsamningum um 12,2 prósent og velta lækkar um 9,2 prósent. Á höfuðborgarsvæðinu fækkaði samningum um 16 prósent á milli mánaða og velta lækkaði um 11,8 prósent. Viðskipti innlent 23. ágúst 2021 18:31
Rán í Reykjanesbæ Árið 2014 var leigufyrirtækið Heimavellir stofnað með samruna þriggja leigufyrirtækja á húsnæðismarkaðinum. Markmiðið var að vera með fyrirtæki sem gæti keypt gífurlegan fjölda af íbúðum sem komist höfðu í eign ríkisins í kjölfar hrunsins og með því að ríkið fékk íbúðir sem herinn á Keflavíkurflugvelli hafði notað áður en hann hunskaðist á brott. Skoðun 18. ágúst 2021 16:00
Ekki gaman að horfa á iðnaðarsvæði í niðurníðslu út um gluggann Byggingaverktakinn SS Byggir hyggst ekki koma að uppbyggingu á Oddeyri á Akureyri eftir að tillögum um breytingar á aðalskipulagi var hafnað í íbúakosningu. Innlent 14. ágúst 2021 08:00
Um þriðjungur íbúða selst á yfirverði Um þriðjungur allra íbúða á höfuðborgarsvæðinu selst á yfirverði og verð á sérbýlum hefur hækkað gríðarlega. Þá hefur framboð á húsnæði í borginni dregist saman um sextíu prósent á einu ári. Viðskipti innlent 12. ágúst 2021 19:40
Fleiri fara á yfirverði og hækkanir komnar fram úr launaþróun Framboð auglýstra íbúða heldur áfram að dragast saman á höfuðborgarsvæðinu og nemur samdrátturinn nú um 60 prósentum á einu ári. Meðalsölutími íbúða styttist enn og hefur aldrei verið styttri. Viðskipti innlent 12. ágúst 2021 10:42
Uppbygging á íbúðarhúsnæði í Hafnarfirði – skipsbrot Sjálfstæðisflokksins Það er engin djörfung né skýr framtíðarsýn þegar kemur að uppbyggingu húsnæðis í Hafnarfirði undir stjórn núverandi meirihluta. Síðustu 7 ár hefur ládeyða og skortur á sóknarhug í skipulags- og byggingarmálum verið einkennandi á tíma meirihluta Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði. Skoðun 9. ágúst 2021 20:01
Átta hundruð nýjar íbúðir byggðar í Vogunum Mikil uppbygging á sér nú stað í Sveitarfélaginu Vogum á Suðurnesjunum því þar eru að hefjast framkvæmdir við byggingu á átta hundruð nýjum íbúðum. Íbúar sveitarfélagsins í dag eru um þrettán hundruð. Innlent 2. ágúst 2021 13:08
Afturkalla kyrrsetningarbeiðnir vegna uppbyggingar á Kirkjusandi Íslenskir aðalverktakar hf. (ÍAV) og 105 Miðborg slhf. hafa náð samkomulagi um að afturkalla kyrrsetningarbeiðnir gagnvart hvort öðru og að uppgjöri vegna ágreiningsmála þeirra verði lokið með hefðbundnum hætti fyrir dómstólum. Viðskipti innlent 25. júlí 2021 23:16
Allir félagslegir leigusalar geti fengið sömu fjármögnun og Bjarg Aðstoðarframkvæmdastjóri Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar segir að allir félagslegir leigusalar geti fengið sömu fjármögnun og Bjarg leigufélag, sem í gær ákvað að lækka leigu hjá öllum leigutökum sínum. Eina skilyrði fjármögnunar er að leigutakar njóti góðra kjara. Innlent 21. júlí 2021 13:00
Leigjendur fá stórfellda lækkun hjá Bjargi: Setur þrýsting á önnur leigufélög Íbúðafélagið Bjarg hyggst lækka leigu hjá öllum leigutökum sínum um tíu til fimmtán prósent. Framkvæmdastjóri félagsins segir það hægt vegna nýrra hagkvæmari lána. Félagsmálaráðherra telur þetta setja þrýsting á önnur félög að lækka leigu. Innlent 20. júlí 2021 19:00
Ástandsskoðun fasteigna ekki síður hagsmunir seljenda en kaupenda Formaður Matsmannafélags Íslands segir félagið hafa barist fyrir að ástandsskýrslur gerðar af fagfólki fylgi söluyfirlitum allra íbúðarfasteigna. Slíkt sé til hagsbóta fyrir alla. Þingsályktunartillaga þess efnis var lögð í fimmta sinn fyrir Alþingi í vor og ráðherra falið að undirbúa lagagfrumvarp. Innlent 13. júlí 2021 12:01
Gallamálum snarfjölgar: Glænýtt hús með ónýtt þak og skólplagnir Ráðast þarf í tugmilljóna króna viðgerðir á nýju fjölbýlishúsi vegna galla í hönnun og byggingu. Mannvirkjahönnuður segir slík mál of algeng. Gallamálum hafi fjölgað gríðarlega undanfarið því fólk setji ekki fyrirvara um ástandsskoðun fasteignar fyrir kaup. Þá taki seljendur síður slíkum tilboðum. Innlent 12. júlí 2021 19:00
Að segja mikið, en svara engu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra var spurð að því í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi 6. júlí s.l., hvernig stæði á því að enn hefði ekki verið breytt í samræmi við álit umboðsmanns Alþingis, um ólöglegar búsetuskerðingar. Skoðun 9. júlí 2021 17:30
Ritstjóri Vb vísar meintri kvenfyrirlitningu á bug Trausti Hafliðason ritstjóri Viðskiptablaðsins segir fullyrðingar um að konur séu gagnrýndar frekar en karlar í skoðanapistlum blaðsins eiga ekki við rök að styðjast. Innlent 9. júlí 2021 12:02
Aldrei hafa jafn margar íbúðir selst yfir ásettu verði frá 2013 Enn er mikil eftirspurn á fasteignamarkaði. Sölutími íbúða heldur áfram að styttast, fasteignaverð hefur hækkað um allt land, auglýstar eignir hafa ekki verið færri í fjögur ár og hefur leiguverð hækkað á höfuðborgarsvæðinu hækkað í fyrsta skipti í níu mánuði. Viðskipti innlent 9. júlí 2021 09:16
Landsbankinn hækkar vexti íbúðalána Landsbankinn hefur ákveðið að hækka vexti nýrra óverðtryggðra íbúðalána með föstum vöxtum um 0,10 til 0,15 prósentustig. Viðskipti innlent 7. júlí 2021 17:28