Ríkissaksóknara Úkraínu og yfirmanni SBU sagt upp Ríkissaksóknara Úkraínu, Iryna Venediktova, og yfirmanni leyniþjónustu Úkraínu, Ivan Bakanov, hefur verið sagt upp af Volódímír Selenskí Úkraínuforseta. Erlent 17. júlí 2022 19:39
Bjóða upp á bjór í skiptum fyrir sólblómaolíu Bar í Munchen í Þýskalandi hefur upp á síðkastið boðið gestum að koma með sólblómaolíu og fá í staðinn bjór. Búið er að setja takmarkanir á kaup landsmanna á olíunni vegna innrás Rússa í Úkraínu. Erlent 17. júlí 2022 18:26
Fjármagna áfram hernað Pútíns Tekin var loks ákvörðun fyrir rúmum mánuði síðan af hálfu Evrópusambandsins um það að draga úr olíukaupum ríkja þess frá Rússlandi, meira en þremur mánuðum eftir að rússneski herinn réðist inn í Úkraínu. Olíukaupunum verður þó ekki hætt heldur er stefnt að því að draga úr þeim um 90% fyrir næstu áramót. Skoðun 17. júlí 2022 13:01
Áfrýjun Rússlands hafnað CAS, Alþjóðlegi íþróttadómstóllinn í Sviss, hefur hafnað áfrýjunarkröfu frá fjórum rússneskum félagsliðum vegna þátttökubanns UEFA sem meinar liðunum frá því að taka þátt í Evrópukeppnum á næsta leiktímabili. Rússnesku landsliðin mega heldur ekki leika í alþjóðlegum keppnum. Fótbolti 16. júlí 2022 13:31
Rússar halda áfram sprengjuárásum á almenna borgara Rússneskt stórskotalið gerði í morgun árás á borgina Nikopol í suðurhluta Úkraínu. Tveir létust í árásinni en minnst 37 almennir borgarar hafa látist af völdum árása Rússa í Úkraínu síðustu þrjá daga. Erlent 16. júlí 2022 10:45
Úkraínska þjóðin syrgir hina fjögurra ára Lísu sem Rússar myrtu í gær Hin fjögurra ára gamla Lísa hefur verið nafngreind sem ein af þeim sem féll í eldflaugaárás frá rússneskum kafbáti á borgina Vinnytsia í Úkraínu í gær. Forseti Úkraínu krefst þess að Rússland verði formlega skilgreint sem hryðjuverkaríki. Við vörum við myndefni í þessari frétt. Erlent 15. júlí 2022 19:24
Breskur hjálparstarfsmaður lést í haldi Rússa Paul Urey, breskur hjálparstarfsmaður sem handsamaður var af sveitum rússneskra aðskilnaðarsinna í Úkraínu, er dáinn. Hann er sagður hafa látið lífið í haldi Alþýðulýðveldisins Donetsk og er hann sagður hafa dáið vegna veikinda og álags. Erlent 15. júlí 2022 16:38
Bann FIFA og UEFA á rússnesk félags- og landslið stendur Rússneska knattspyrnusambandinu tókst ekki að sannfæra Alþjóða íþróttadómstólinn um að hnekkja ákvörðun Alþjóða- og knattspyrnusambands Evrópu um að banna rússnesk félags- og landslið frá keppnum sínum vegna innrásar Rússlands í Úkraínu. Fótbolti 15. júlí 2022 12:45
Stjórnmálamenn og almennir borgarar handsamaðir og pyntaðir Hundruð Úkraínumanna er haldið föngum á hernumdum svæðum landsins, að sögn Sameinuðu þjóðanna. Bæði er um að ræða stjórnmálamenn og almenna borgara. Einn pólitíkus sagði í samtali við BBC að hann hefði verið handsamaður af rússneska hernum og beittur vatnspyntingum. Erlent 15. júlí 2022 08:39
Ólga á Ítalíu Fimm stjörnu hreyfingin á Ítalíu hefur beitt forsætisráðherra landsins Mario Draghi, miklum þrýstingi nú á síðustu misserum en hún er hluti af ríkisstjórn Draghi. Í gær sniðgekk hreyfingin kosningu frumvarps um framfærslukostnað og leiddi þannig í ljós vantraust sitt á Draghi. Forsætisráðherrann hefur boðist til þess að segja af sér en forseti Ítalíu, Sergio Mattarella hafnaði því. Erlent 15. júlí 2022 08:38
Rússar skutu eldflaug á almenna borgara Tuttugu og einn almennur borgari féll, þeirra á meðal þrjú börn, þegar Rússar skutu eldflaug á borgina Vinnytsia og um hundrað manns særðust. Yfirmaður rússneska sjónvarpsins segir eldflauginni hafa verið miðað á húsakynni nasista í borginni. Erlent 14. júlí 2022 19:41
Minnst tuttugu og tveir borgarar féllu í eldflaugaárás Minnst 22 létu lífið og rúmlega hundrað særðust er rússneskar eldflaugar lentu í borginni Vinnitsía, sem liggur suðvestur af Kænugarði. Ráðamenn í Úkraínu segja eldflaugunum hafa verið skotið frá kafbáti í Svartahafi og segja Rússa vísvitandi hafa gert árás á óbreytta borgara. Ekkert hernaðarlegt skotmark hafi verið á svæðinu. Erlent 14. júlí 2022 16:55
Everton styrkir fórnarlömb stríðsins í Úkraínu með góðgerðarleik Everton mun spila vináttuleik við úkraínska liðið Dynamo Kyiv þann 29. júlí næstkomandi í undirbúningi sínum fyrir komandi leiktímabil. Enski boltinn 14. júlí 2022 08:30
Samkomulag í höfn um útflutning kornvöru Stjórnvöld í Tyrklandi segja samkomulag hafa náðst við Úkraínu, Rússland og Sameinuðu þjóðirnar um útflutning kornvöru frá Úkraínu. Að sögn varnarmálaráðherrans Hulusi Akar verður samkomulagið undirritað í næstu viku. Erlent 14. júlí 2022 07:23
Borgarfulltrúi handtekinn í Moskvu vegna andstöðu við stríðið Saksóknari í Rússlandi lagði í dag fram ákæru á hendur Ilya Yashin borgarfulltrúa í Moskvu skömmu áður en láta átti hann lausan úr 15 daga varðhaldi fyrir að fara ekki að fyrirmælum lögreglu. Erlent 13. júlí 2022 22:09
Kuleba segir Rússa spila út hungurspilinu til að knýja fram afléttingu refsiaðgerða Utanríkisráðherra Úkraínu segir engan grundvöll til friðarviðræðna við Rússa fyrr en þeir láti af hernaði sínum í landinu. Þá verði að tryggja öruggar siglingar fyrir útflutning á korni um Svartahaf en í dag spili Rússar út hungurspilinu til að þrýsta á Vesturlönd að aflétta refsiaðgerðum þeirra. Erlent 13. júlí 2022 12:00
BNA klofin þjóð og ótryggur bandamaður Árásarstríð Pútíns á Úkraínumenn hefur vakið upp spurninguna um varnir og öryggi annarra Evrópu-landa, líka þá auðvitað okkar Íslendinga. Skoðun 13. júlí 2022 08:00
Úkraínuforseti gagnrýnir að látið sé undan hryðjuverkaríki Úkraínuforseti gagnrýnir Kanadamenn harðlega fyrir að ætla að skila túrbínu úr Nord Stream eitt gasleiðslu Rússa, sem þar var í viðgerð, og segir það brot á refsiaðgerðum. Herinn í Úkraínu segist hafa eytt hergagnabirgðastöð Rússa með nýlega fengnum eldflaugum frá Bandaríkjamönnum. Erlent 12. júlí 2022 19:21
Íranir útvega Rússum hundruð eftirlits- og árásardróna Bandaríkjastjórn segir stjórnvöld í Íran með í undirbúningi að útvega Rússum hundruð eftirlits- og árásar dróna og að þjálfa Rússa í notkun þeirra. Að minnsta kosti tólf óbreyttir borgarar særðust í árás Rússa á heilsugæslu og íbúðarhúsnæði í borginni Mykolaiv í suðurhluta Úkraínu í nótt. Erlent 12. júlí 2022 12:01
„Leikmenn munu fara í loftvarnarbyrgi meðan loftárásir standa yfir“ Úkraínska úrvalsdeildin í fótbolta karla mun fara af stað á nýjan leik í ágúst samkvæmt tilkynningu Vadym Gutzeit, ráðherra æsku og íþrótta í landinu. Það virðist sem Úkraínumenn ætli ekki að láta innrás Rússa stöðva sig í að sparka bolta sín á milli. Fótbolti 12. júlí 2022 09:01
Íranir hyggjast sjá Rússum fyrir hundruðum sprengjudróna Íranir ætla að láta Rússum í té mörghundruð drónasprengjuvélar sem nota á í stríðinu í Úkraínu. Erlent 12. júlí 2022 08:02
Vildi vera krúttlegur teppalistamaður en endaði sem stríðsljósmyndari Óskar Hallgrímsson segist lifa tvöföldu lífi, annars vegar búi hann til krúttleg teppalistaverk ásamt eiginkonu sinni og hins vegar sé hann ljósmyndari á stríðshrjáðu svæði. Innlent 11. júlí 2022 14:31
Segir milljón manna her munu hrekja Rússa frá suðurströndinni Úkraínumenn hyggjast láta milljón manna her, vopnaðan hergögnum frá Vesturlöndum, hrekja Rússa aftur frá hernumdum svæðum landsins. Þetta segir varnarmálaráðherrann Oleksii Reznikov. Erlent 11. júlí 2022 10:23
Stjórnvöld í Úkraínu hvetja íbúa að flýja fyrir gagnárás í Kherson og Zaporizhzhia Stjórnvöld í Úkraínu hafa varað íbúa í Kherson og Zaporizhzhia við yfirvofandi gagnsókn á svæðinu og hvatt þá til að flýja. Svæðin eru nú á valdi Rússa en Úkraínumenn hyggjast freista þess að ná þeim aftur á næstu dögum og vikum. Erlent 11. júlí 2022 08:45
Hefur áhyggjur af samfylkingu Rússa og Kínverja Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segist hafa áhyggjur af nánu sambandi Rússa og Kínverja. Hann átti fimm tíma fund með Wang Yi, utanríkisráðherra Kína, í Indónesíu í gær. Erlent 10. júlí 2022 21:07
Fimmtán látnir eftir sprengingu á fjölbýlishús Að minnsta kosti fimmtán létust og fleiri særðust í sprengjuárás Rússa á fjölbýlishús í borginni Khasiv Yak í austurhluta Úkraínu. Erlent 10. júlí 2022 12:39
Kanada skili rússneskri túrbínu til Þýskalands Volodymyr Zelenskiy, forseti Úkraínu hefur sagt upp sendiherrum landsins í Þýskalandi, Indlandi, Tékklandi, Noregi og Ungverjalandi í skugga deila við Þýskaland. Erlent 9. júlí 2022 23:04
Senda fleiri HIMARS og nákvæmari skot til Úkraínu Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur ákveðið að senda fleiri vopnakerfi og nákvæm skotfæri til Úkraínu. Bæði er um að ræða eldflaugakerfi af gerðinni HIMARS, sem gera Úkraínumönnum kleift að gera nákvæmar árásir á skotmörk í allt að hundrað kílómetra fjarlægð, og 155 mm skot í fallbyssur sem hægt er að skjóta af mun meiri nákvæmni en hefðbundnum stórskotaliðsskotum. Erlent 8. júlí 2022 23:15
Rússar halda áfram að kenna öðrum um innrásina Á sama tíma og Rússar leggja undir sig gífurlegar olíu- og gasauðlindir Úkraínu á Donbas svæðinu sem gætu farið langt með að svara orkuþörf Evrópu, halda þeir áfram að kenna Bandaríkjunum og NATO um þeirra eigin innrás í landið. Erlent 8. júlí 2022 19:17
„Pútín mun ekki gráta það að hann sé farinn“ Rishi Sunak fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands lýsti því yfir í dag að hann sæktist eftir að verða næsti leiðtogi Íhaldsflokksins og þar með forsætisráðherra. Guðlaugur Þór Þórðarson, sem þekkir vel til innan Íhaldsflokksins, telur líklegt að annað hvort Sunak eða Liz Truss utanríkisráðherra hafi sigur í leiðtogakjöri. Innlent 8. júlí 2022 18:01