Börnum til heilla í 25 ár Í dag, 24. október, fagna Barnaheill – Save the Children á Íslandi 25 ára starfi í þágu barna á Íslandi. Skoðun 24. október 2014 09:00
Komdu út að leika Við fögnum Degi barnsins í fimmta sinn á morgun en samkvæmt ákvörðun ríkisstjórnar frá því í október árið 2007 er dagur barnsins haldinn hátíðlegur síðasta sunnudag í maí. Yfirskrift dagsins í ár er "Gleði og samvera“. Skoðun 26. maí 2012 06:00
Óupplýst börn í mestri áhættu Í tengslum við frétt af manni sem var að reyna að lokka börn upp í bíl hefur spunnist mikil umræða um hvernig foreldrar geti best uppfrætt börn sín um hættur af þessum toga. Þessari umræðu ber að fagna eins og allri umræðu um hvernig við getum frætt og verndað Skoðun 31. mars 2011 06:00
Aukin tengsl milli þjóðar, þings og framkvæmdavalds Að auka tengsl milli þjóðar og þings verður vonandi eitt af því sem endurbætt stjórnarskrá mun færa þjóðinni. Skoðun 22. nóvember 2010 11:04
Af hverju minnkar ekki reiðin? Af hverju minnkar ekki reiðin? Því er ekki að leyna að það er pirringur og reiði í samfélaginu sem tengist með einum eða öðrum hætti hruninu og afleiðingum þess. Einhverjir kunna að furða sig á því hve reiðin er enn djúpstæð og virðist ætla að endast lengi. Í ljósi þess hversu mikið áfall dundi yfir þjóðina á haustdögum 2008 er hins vegar ekki að undra að fólk skuli enn vera tilfinningalega sundurtætt. Þannig mun það án efa verða um sinn eða í það minnsta þar til sérstökum saksóknara hefur tekist að grynnka á málafjöldanum á hans borði. Fólk verður ekki sátt fyrr en fundnar hafa verið ásættanlegar lausnir á allra erfiðustu skuldamálum sem til var stofnað á góðæristímanum. Skoðun 15. júlí 2010 06:00
Uppköst og dramatík Uppköst og dramatík eru gjarnan þema unglingasamkvæma þar sem áfengi er haft um hönd. Ósjaldan gerist það að unglingur sem hefur drukkið meira en hann ræður við, verður veikur og þarf að kasta upp. Eins er ekki óalgengt að undir áhrifum áfengis eigi dramatík í Skoðun 1. júní 2010 09:01
Tímabært að Fréttablaðið birti minningargreinar Það er mat margra sem komnir eru fram á og yfir miðjan aldur að sá hluti Morgunblaðsins sem hvað erfiðast sé að láta framhjá sér fara sé minningargreinarnar. Takist ekki að fylgjast með andlátstilkynningum eða skanna minningargreinar reglulega sé ávallt sú hætta fyrir hendi að andlát gamalla vina, kunningja eða fólks sem tengist vinum og vandamönnum fari einfaldlega framhjá manni. Skoðun 1. október 2009 06:00
Staða eldri borgara í dag Það er ekki langt síðan að margir höfðu þá trú að uppsveifla ríkti í íslensku þjóðfélagi. Annað kom á daginn á haustmánuðum 2008 þegar efnahagskerfi þjóðarinnar hrundi. Óhætt er að fullyrða að enginn fari varhluta af áhrifum og afleiðingum hrunsins. Sú uppsveifla sem átti sér stað fram að því hafði leitt til þess að sumar atvinnugreinar stækkuðu á meðan aðrar drógust saman. Á tímabili var töluverður fólksflótti úr þeim störfum þar sem ekki var krafist framhalds- eða háskólamenntunar. Skoðun 27. febrúar 2009 17:14
Einelti fullorðinna ekki bundið við vinnustaði Einelti meðal fullorðinna er síður en svo einskorðað við vinnustaði. Segja má að einelti geti skotið upp kollinum í alls kyns aðstæðum þar sem sami hópur hittist reglulega hvort sem hann er skuldbundinn til þess eða kemur saman til að njóta góðra stunda. Einelti meðal fullorðinna er misgróft og lýtur í raun svipuðum lögmálum og einelti meðal barna og unglinga. Skoðun 20. desember 2007 06:00
Verslunarmannahelgin og útihátíðir Nú er öldin önnur. Lengi vel var það bara áfengi sem fólki stóð ógn af á þessum útihátíðum. Nú eru það eiturlyf af ýmsu tagi sem ógna ekki síður. Með neyslu þeirra aukast líkur á ofbeldi. Því skal ekki undra að margur sé hugsi yfir útihátíðum á borð við þær sem nú fara víða um helgina. Skoðun 3. ágúst 2007 05:15
Er uppbygging ökunáms röng? Hvort röng uppbygging ökunáms sé orsök glannaaksturs unglinga er sjónarmið sem fleygt var fram í grein sem nýlega birtist í Fréttablaðinu. Sú hugsun var jafnframt sett fram að kostur fylgir að lækka ökuleyfisaldurinn því þá séu börnin ekki eins mótuð og taki því betur leiðbeiningum. Skoðun 12. júlí 2007 06:00
Sálrænt ástand þeirra sem meiða og deyða dýr Eðlilega fyllist fólk óhug þegar það heyrir fréttir um að ungmenni geri sér að leik að meiða og deyða dýr. Maður veltir fyrir sér hvernig andleg líðan þeirra er sem þetta gera? Hefur gerandinn e.t.v. verið meiddur sjálfur, er hann jafnvel haldinn miklum sársauka, reiði og biturleika? Hver svo sem orsökin er, virðist ljóst að eitthvað hefur farið úrskeiðis. Hvað nákvæmlega, vitum við ekki fyrr en málefni hans og fjölskylduaðstæður hafa verið skoðaðar. Skoðun 22. júní 2007 05:00
Fordómar frá sálfræðilegu sjónarmiði Fordómar er hugtak sem er neikvætt í eðli sínu. Enginn fæðist með fordóma í garð eins eða neins. Um er að ræða áunnið fyrirbæri. Áhrifabreytur eru ýmsir umhverfis- og uppeldisþættir og persónueinkenni. Skoðun 4. maí 2007 06:00
Barnleysi getur verið sársaukafullt vandamál Skilgreining á ófrjósemi er þegar par hefur reynt að eignast barn í eitt ár án árangurs. Talið er að 15-20% para á barneignaraldri glími við ófrjósemi einhvern tímann á lífsleiðinni. Ófrjósemi er fyrst og fremst líffræðilegt vandamál enda þótt sálrænir þættir hafi svo sannarlega áhrif. Skoðun 11. október 2006 05:15