Halla sinnir störfum formanns VR Halla Gunnarsdóttir, varaformaður VR, mun sinna störfum formanns VR, á meðan Ragnar Þór Ingólfsson formaður verður í leyfi frá störfum næstu vikurnar. Innlent 30. október 2024 06:20
Hvers virði erum við? Eftir að hafa greint hvernig við, sem samfélag, erum föst í ofbeldissambandi við kerfið sem átti að þjóna okkur, verðum við að staldra við og spyrja:Hvers virði erum við í raun? Hvert sem við lítum, sjáum við birtingarmyndir þessa kerfis – ótímabær dauðsföll, morð, ofbeldi innan fjölskyldna. Skoðun 29. október 2024 23:31
„Við erum ekki slaufunarflokkur“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins segir flokkinn standa fyrir skynsemishyggju og innihaldi umfram umbúðum. Hann segir Klausturmálið ekki koma flokknum illa. Það sé þvert á móti traustvekjandi ef það sé eina málið sem fólk geti dregið upp til að draga úr trúverðugleika þeirra. Innlent 29. október 2024 22:01
Niðurskurður?!... Jahá sá skal fyrst hefjast inn á Alþingi Íslendinga, með verulegri fækkun á fjöldi Alþingismanna þar á ferð Kæri lesandi!? Í rauninni skiptir mér engu máli hvert þitt X endar inn í kjörklefa, en vinsamlegast hafðu í huga að velja ekki fáfræðinga sem þykjast vita hitt og þetta um alheiminn, en svo þegar þeir lenda upp við vegg, að þá er aðeins mjálmað út í loftið og kennt hinum og þessum um slysin með gamla góða vísifingrinum. Skoðun 29. október 2024 21:32
Þau skipa lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmunum Snorri Másson leiðir lista Miðflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður og Sigríður Andersen í Reykjavíkurkjördæmi norður. Jakob Frímann Magnússon er í öðru sæti í Reykjavík norður og Þorsteinn Sæmundsson í öðru sæti í Reykjavík suður. Innlent 29. október 2024 21:27
Takk fyrir peninginn Inga Sæland Mig langar að þakka þér Inga Sæland fyrir þitt framlag, þinn mikla kraft og sterku réttlætiskennd að ná fram Jólabónus fyrir öryrkja og aldraða enn eitt árið. Og mér skilst að við fáum hann ekki seinna en 1. desember ef heimildir mínar eru réttar og verður hann í kringum 70 þúsund. Skoðun 29. október 2024 20:01
Sósíalismi, alþjóðasamvinna og blómleg viðskipti Ég var í barnaafmæli um helgina og umræðan barst að kosningum. ,,Er búið að ákveða hvað á að kjósa?” heyrðist fleygt. Ég sagðist vera búin að ákveða það enda væri ég á lista. ,,Nú, nú hvar ertu á lista?” var auðvitað spurt. ,,Ég er alveg vinstra megin” sagði ég. ,,Ég verð sem sagt á lista Sósíalista í Reykjavík”. Skoðun 29. október 2024 19:02
Þessi eru í forystusætunum Framboðslistar stjórnmálaflokkanna eru óðum að skýrast og oddvitar þeirra víðast hvar komnir fram. Í fjölmennustu kjördæmunum má víða sjá mikla þingreynslu hjá þeim sem leiða fyrir sinn flokk en út á landi er meira um glænýtt fólk í því hlutverki. Innlent 29. október 2024 18:58
Jakob Frímann til liðs við Miðflokkinn Miðflokknum hefur borist góður liðsauki því nú rétt í þessu var gengið frá því að Jakob Frímann Magnússon, sem áður var í Flokki fólksins, hefur gengið til liðs hann. Innlent 29. október 2024 18:15
Sjálfbærni er þjóðaröryggismál Við hjá Framsókn stöndum fyrir því að nýta okkar náttúruauðlindir á ábyrgan hátt og byggja undir sjáldbæra framtíð fyrir land og þjóð. Sjálfbærni snýst um að vera sjálfum okkur nóg, hvort sem það er í matvælaframleiðslu, orkumálum eða annarri verðmætasköpun. Skoðun 29. október 2024 16:02
Illmælgi sem kosningamál Erindi eftirfarandi greinar er fyrst og fremst menningarlegt umhugsunarefni nú þegar gengið verður til þingkosninga eftir sléttan mánuð. Skoðun 29. október 2024 15:33
Rithöfundar sjaldan verið í eins harðri samkeppni um athygli og nú Þrátt fyrir að það hafi komið í ljós í könnun Maskínu á dögunum að yfirgnæfandi meirihluti landsmanna sé ánægður með stjórnarslit þá eru rithöfundar uggandi vegna kosninganna og þeirri fyrirferð sem óhjákvæmilega fylgir þeim. Formaður Rithöfundasambands Íslands segir að það sé smá skellur að fá kosningar ofan í þann tíma sem skipti langmestu máli fyrir bóksölu á Íslandi. Innlent 29. október 2024 15:24
Hvernig líður þér? Ein helsta ástæðan þess að ég ákvað að bjóða mig fram fyrir Viðreisn er áhersla flokksins á andlega líðan fólks. Þetta er málefni sem hefur alltaf verið mér mjög hugleikið, því ég veit sem er að ef fólki líður þokkalega vel þá á það auðveldara með að blómstra á ólíkum sviðum mannlífsins og nær betri árangri. Skoðun 29. október 2024 13:47
„Mikilvægt að láta ekki hugfallast“ Formaður Vinstri grænna segir að mikilvægt að láta ekki hugfallast yfir gengi flokksins í skoðanakönnunum. Í nýrri könnun Maskínu er flokkurinn á útleið af þingi. Fylgi Pírata hrynur milli kannanna og mælist nú 4,5 prósent á landsvísu. Oddviti þeirra í Kraganum segir það alvarlegt en kosningabaráttan sé rétt að hefjast Innlent 29. október 2024 13:32
Baráttan sem ætti að sameina okkur Það liggur þráður í íslensku þjóðarsálinni sem tengir okkur við landið. Okkur þykir vænt um það, við erum stolt af náttúrunni. Þó getur hlaupið snurða á þráðinn þegar samfélögum er stillt upp við vegg og þeim lofað öllu fögru, séu þau tilbúin að fórna náttúrunni. Skoðun 29. október 2024 13:31
Hve mörgum lífum má fórna fyrir þægindi sumra? Nú þegar alþingiskosningar nálgast vilja sumir gera sölu áfengis að kosningamáli, og sérstaklega þá sölu áfengis á netinu og í matvöruverslunum. Það væri að mörgu leyti mjög jákvætt ef kosningabaráttan yrði til þess að vönduð, opinber umræða skapaðist um þetta mál. Skoðun 29. október 2024 11:32
6 nauðsynlegar afneitanir Þrátt fyrir augljósa kosti orkuskipta í samgöngum á Íslandi er ennþá nokkuð hávær hópur sem telur rafbíla vera óskynsamlega hugmynd. Það sem meira er þá er þessi hópur svo sannfærður um að orkuskiptin séu svo óskynsamleg að hann leggur sig fram við að sannfæra aðra um að rafbílar séu galin hugmynd. Skoðun 29. október 2024 11:17
Bergþór, Nanna og Eiríkur leiða í Suðvestur Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, er oddviti á lista flokksins í Suðvesturkjördæmi. Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir viðskiptafræðingur er í öðru sæti og Eiríkur S. Svavarsson lögmaður í því þriðja. Innlent 29. október 2024 11:00
Klaustursveinar allir mættir sex árum síðar Klausturmálið er enn og aftur að lauma sér í umræðuna og ekki að ófyrirsynju. Allir þeir karlar sem þá voru í deiglunni, þeir sem fyrir sex árum höfðu setið að sumbli og sagt eitt og annað sem betur hefði verið látið ósagt, eru komnir í framboð. Það virðist vera gaman á Alþingi. Og þeir líta svo á að það mál sé afgreitt og horfið í gleymskunnar dá. Innlent 29. október 2024 10:57
Útlendingar í eigin landi Undanfarna mánuði hafa málefni útlendinga verið mikið í deiglunni og heilu stjórnmálaflokkarnir blásið þennan heildar málaflokk sem vandamál. Það er nýnæmi í stjórnmálaumræðu á Íslandi að flokkar ætla að keyra kosningabaráttu út frá þessari umræðu. Skoðun 29. október 2024 10:15
Sporin hræða vissulega Viðbrögð Kristrúnar Frostadóttur, formanns Samfylkingarinnar, við áhyggjum kjósanda af því að Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs Reykjavíkurborgar og fyrrverandi borgarstjóri um árabil, taki líklega sæti á Alþingi fyrir hönd flokksins eftir þingkosningarnar eru auðvitað afar skiljanleg í ljósi þess hvernig haldið hefur til að mynda verið á fjármálum og skipulagsmálum borgarinnar undir forystu hans í samstarfi við einkum Pírata og Viðreisn sem meðal annars á stóran þátt í verðbólgunni hér á landi undanfarin misseri. Hvað sem þannig líður viðbrögðum Kristrúnar er í öllu falli ljóst að sporin hræða vissulega í þeim efnum. Skoðun 29. október 2024 08:17
Þjóðstjórn lokið – verður nú sundrung? Enn á ný lifum við stjórnmálasögulega tíma. Vinstrihreyfingin - grænt framboð hefur starfað í aldarfjórðung, í logni og stormi. Á 25 árum hefur VG sett mark sitt á samtímann með félagslegum áherslum, baráttu fyrir friði, náttúruvernd og fyrir réttindum og kjörum alþýðufólks. Engum nema Vinstrigrænum, með Katrínu Jakobsdóttur fremst í flokki, hefur tekist að halda hér saman ríkisstjórn þriggja gjörólíkra flokka í nærri 7 ár. Nú er þeim kafla lokið og hreyfingin býr sig undir að hitta kjósendur, í bjartsýni, gleði og baráttuhug. Skoðun 29. október 2024 07:33
Lögfestum leikskólastigið Það er löngu tímabært að tryggja öllum börnum leikskóladvöl með því að lögfesta leikskólastigið. Sú breyting er lykilatriði í því að brúa bilið sem enn er á milli fæðingarorlofs og leikskóla og veldur fjölmörgum fjölskyldum miklum vandræðum. Í velferðarsamfélagi sem byggir á jöfnuði og jafnrétti er ótækt að fjölskyldur búi við kvíða og afkomuótta í kjölfar barneigna. Það er því réttlát krafa að brúa bilið – með hagsmuni barna og kvenfrelsi að leiðarljósi. Skoðun 29. október 2024 06:32
„Við biðjum öll fyrir framtíð þessa unga efnismanns“ „Fólk er að biðja mig að svara grein eftir Snorri Másson en jólavertíðin er hafin, fastur í viðtölum í dag og upplestur á Skaganum í kvöld, kemst bara ekki til þess. En mundi þá að ég var auðvitað þegar búinn að svara honum, hjá Gísla Marteini. Við biðjum öll fyrir framtíð þessa unga efnismanns.“ Innlent 28. október 2024 23:15
Vitað mál að allir flokkar berjist ekki fyrir almannahag „Það segjast allir flokkar vera berjast fyrir almannahag þó að allir vita að það sé ekki satt. Við erum almannahagsmuna flokkur og eigum við ekki bara lofa okkur að telja upp úr kössunum og sjá hverju við getum náð fram þegar við förum að ná okkar málum fram. Þetta snýst allt um málamiðlanir.“ Innlent 28. október 2024 22:31
Karl Gauti og Ólafur Ísleifsson snúa aftur Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjóri í Vestmannaeyjum og fyrrverandi þingmaður Miðflokksins, mun leiða lista flokksins í Suðurkjördæmi. Í kvöld samþykkti félagsfundur Miðflokksins tillögu uppstillingarnefndar um framboðslitann í kjördæminu Innlent 28. október 2024 21:53
„Mér brá svolítið þegar ég sá þetta“ „Ég skal viðurkenna að mér brá svolítið þegar ég sá þetta,“ sagði Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri og frambjóðandi Samfylkingarinnar til Alþingis, um skilaboð sem formaður flokks hans sendi, þar sem hún virtist hvetja kjósanda til að strika nafn Dags út af lista í komandi kosningum. Innlent 28. október 2024 21:34
„Aldrei gott að toppa of snemma“ Halla Hrund Logadóttir fyrrverandi forsetaframbjóðandi og oddviti Framsóknarflokks í Suðurkjördæmi segir að af eigin reynslu sé ekki gott að toppa of snemma í kosningabaráttu. Víðir Reynisson, oddviti Samfylkingar í sama kjördæmi segist ekki sjá merki um gremju í flokknum vegna ummæla formannsins um Dag B. Eggertsson. Þetta er meðal þess sem kom fram í Pallborðinu á Vísi í dag. Innlent 28. október 2024 19:02
Fer í leyfi sem formaður VR Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, mun taka sér tímabundið leyfi frá störfum sem formaður fram að alþingiskosningum þann 30. nóvember en hann mun funda með stjórn VR á morgun til að tilkynna ákvörðun sína. Innlent 28. október 2024 18:20
Þau eru í framboði til Alþingis 2024 Alþingiskosningar fara fram þann 30. nóvember næstkomandi og rennur framboðsfrestur úr á hádegi 31. október. Innlent 28. október 2024 16:24