Birnir, GDRN og Sykur á ríkulegri dagskrá Innipúkans Tónlistarhátíðin Innipúkinn fer fram í tuttugasta og fyrsta skiptið í Reykjavík um Verslunarmannahelgina. Að vana er hátíðin haldin innandyra og í annað skiptið er hún haldin í Gamla Bíó og á Röntgen. Lífið 20. júlí 2023 11:43
Undirgefnir aðdáendur og linnulaus markaðsherferð knýi „Barbenheimer“ áfram Einn stærsti bíóviðburður ársins er nú runninn upp en stórmyndin Barbie verður frumsýnd á Íslandi í dag og frumsýning bíómyndarinnar Oppenheimer var í gær. Álitsgjafi segir bíóviðburðinn „Barbenheimer“ lykta af örvæntingu þar sem bíóbransinn eigi enn í erfiðleikum með að koma sér aftur á réttan kjöl eftir heimsfaraldur. Menning 20. júlí 2023 07:01
Creed snúa loksins aftur Hin rómaða rokkhljómsveit Creed hefur tilkynnt nýja tónleikaröð, hina fyrstu í áratug. En sveitin hefur legið í dvala, fjölmörgum aðdáendum sínum til ama, frá árinu 2012. Tónlist 20. júlí 2023 00:00
Sérfræðingur gáttaður á „Barbenheimer“ Paul Dergarabedian, sérfræðingur á sviði miðlagreiningar, sem sérhæft hefur sig í að greina miðasölutekjur kvikmyndahúsa vestanhafs, segist vera hvumsa yfir eftirvæntingunni sem ríkir fyrir „Barbenheimer,“ sameiginlegum frumsýningardegi stórmyndanna Barbie og Oppenheimer. Bíó og sjónvarp 19. júlí 2023 11:28
Húsleit vegna morðsins á Tupac Shakur Lögreglan í Las Vegas fór fram á og fékk leitarheimild vegna rannsóknar á morðinu á rapparanum Tupac Shakur. 26 ár eru síðan rapparinn var myrtur þann 7. september árið 1996 í Las Vegas og hefur morðinginn aldrei fundist. Erlent 18. júlí 2023 23:28
Ætla að trylla lýðinn á Krúttinu Það verður sannkölluð tónlistarveisla á Blönduósi næstkomandi laugardagskvöld þegar þeir Dagur Sigurðsson og Einar Örn Jónsson verða með tónleika á nýjum tónleikastað í gamla bænum, Krúttinu á Hóteli Blönduósi. Tónlist 18. júlí 2023 11:06
ISSI á toppi Langjökuls: „Þeir segja að það sé kalt á toppnum svo ég klæddi mig vel“ Tónlistarmaðurinn Issi tók upp tónlistarmyndband á toppi Langjökuls á dögunum við lagið Klukkan seint. Lagið er að finna á plötunni Rauð viðvörun sem hann sendi frá sér í apríl síðastliðnum. Lífið 17. júlí 2023 15:31
Var við það að missa vitið en fann sig svo í tónlistinni „Ég var í voða fínni inni vinnu og kominn á miðjan aldur en leiður á henni og ýmsu öðru. Ég var eiginlega bara að missa vitið af leiðindum og mig langaði að prófa eitthvað annað áður en af því yrði endanlega. Á svipuðum tíma áttaði ég mig líka á því að ekki bara einn heldur tveir jafnaldrar mínir og fyrrum hljómsveitafélagar höfðu dáið tiltölulega nýlega,“ segir tónlistarmaðurinn Klemens Ólafur Þrastarson, sem notast við listamannsnafnið Klói og var að senda frá sér tveggja laga smáskífu. Tónlist 17. júlí 2023 15:02
Aðdáendur misstu sig yfir leynigestinum Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran kom tónleikagestum sínum í Detroit heldur betur á óvart um helgina með óvæntum gesti. Sheeran tilkynnti áhorfendum að hann ætlaði að taka gítarútgáfu af sögulega smellinum Lose Yourself eftir Eminem en rapparinn gekk stuttu síðar inn á svið og tók við. Tónlist 17. júlí 2023 11:31
Fyrstu Íslendingarnir í virtu söngleikjanámi slógu í gegn Þeir Ari Ólafsson og Pétur Ernir Svavarsson, sem báðir hafa gert það gott sem söngvarar hér á landi, útskrifuðust á dögunum úr virtu söngleikjanámi Royal Academy of Music í London. Báðir voru þeir í aðalhlutverki í sinni lokasýningu. Ari, sem eignaðist sitt fyrsta barn í apríl, segir námið hafa verið gríðarlega þroskandi og lítur björtum augum til framtíðar. Lífið 16. júlí 2023 19:41
Jane Birkin fannst látin á heimili sínu Söng- og leikkonan Jane Birkin er látin, 76 ára að aldri. Hún var best þekkt fyrir að hafa sungið dúetta með tónlistarmanninum Serge Gainsbourg og leikið í kvikmyndum á borð við Evil Under The Sun og Blow-up. Erlent 16. júlí 2023 14:02
Mælir með laginu fyrir alla sem eru yfir meðallagi „horny“ Tónlistarmaðurinn og fyrrum Idol keppandinn Guðjón Smári var að senda frá sér sitt fyrsta lag, Dansandi í myrkri, og var lagið kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM fyrr í dag. Tónlist 15. júlí 2023 17:00
Kúkaði á sig á miðjum tónleikum Tónlistarmaðurinn Joe Jonas, þriðjungur þríeykisins Jonas Brothers, segist hafa kúkað á sig á miðjum tónleikum. Hann segist verið klæddur í hvít föt þegar það gerðist og þess vegna þurft að drífa sig baksviðs og skipta um föt. Lífið 14. júlí 2023 15:03
Pussy Riot á LungA sem nær hápunkti um helgina Listahátíðin LungA stendur nú yfir á Seyðisfirði. Hátíðin sem er haldin í 24. sinn hófst á mánudag og nær hámarki um helgina með uppskeruhátíð þar sem meðal annars rússneska gjörningahljómsveitin Pussy Riot treður upp. Lífið 14. júlí 2023 14:29
Gísli Þór Guðmundsson er látinn Gísli Þór Guðmundsson, umboðsmaður fjölda þekktra hljómsveita og tónlistarmanna, er látinn aðeins 62 ára að aldri. Innlent 14. júlí 2023 13:32
Frumsýning á Vísi: Cell7 og Moses Hightower í eina sæng Rapparinn og söngkonan Cell7, sem heitir réttu nafni Ragna Kjartansdóttir, og hljómsveitin Moses Hightower gáfu í dag út lagið Thinking Hard. Meðfram laginu gefa þau út tónlistarmyndband sem frumsýnt er hér á Vísi. Tónlist 14. júlí 2023 13:20
„Í dag veit ég hver ég er og hvernig ég vil að fólk komi fram við mig“ „Þetta er lag sem ég samdi þegar ég var að fara í gegnum mjög erfiða tíma og ég sleppti alveg tökunum í textasmíðinni. Þetta er í fyrsta skipti síðan ég byrjaði að semja tónlist þar sem ég er algjörlega að opna mig,“ segir hin nítján ára gamla tónlistarkona Guðlaug Sóley, Gugusar, um lagið Vonin sem hún var að senda frá sér. Blaðamaður hitti hana í kaffi og fékk að heyra nánar frá. Tónlist 14. júlí 2023 09:01
Ástin blómstrar hjá Nönnu og Ragnari í OMAM Nanna Bryndís Hilmarsdóttir og Ragnar Þórhallsson, söngvarar hljómsveitarinnar Of Monsters and Men, hafa verið par í nokkurn tíma en lítið látið á því bera opinberlega. Lífið 14. júlí 2023 08:10
Frumsýning á Vísi: „Reiðin er kannski ekki alveg jafnmikil“ Haraldur Þorleifsson gefur í dag út sína aðra smáskífu og tónlistarmyndband undir listamannsnafninu Önnu Jónu Son við lagið Big Boy Boots. Myndbandið er frumsýnt hér að neðan á Vísi. Lífið 14. júlí 2023 08:01
Súkkulaðierfinginn uppfærði í stærri glæsibifreið Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, eða Prettyboitjokkó, hefur fest kaup á hvítum Porsche Cayenne E-hybrid sportjeppa. Patrik birti myndskeið af glæsibifreiðinni í sólinni á Instagram í gær. Lífið 13. júlí 2023 15:27
„Ég vona að ég muni deyja í miðju lagi“ Tónlistarkonan Dolly Parton hefur engan áhuga á því að setjast í helgan stein þrátt fyrir að vera orðin sjötíu og sjö ára gömul. Hún gaf nýlega út nýtt lag og von er á nýrri plötu frá henni á næstunni. Lífið 13. júlí 2023 14:09
Frumsýning á Vísi: Þjóðhátíðarmyndband FM95BLÖ „Þetta er okkar uppáhalds hátíð og til að keyra upp stemminguna ákváðum við að skella í myndband,“ segir Auðunn Blöndal einn forsprakka FM95BLÖ en Vísir frumsýnir í dag rándýrt myndband við nýjasta lag hópsins. Lífið 13. júlí 2023 11:01
Succession og The Last of Us með flestar Emmy-tilnefningar Tilnefningar til Emmy verðlaunanna voru tilkynntar í dag en verðlaunahátíðin fer fram þann 18. september næstkomandi. Sjónvarpsþættirnir Succession og The Last of Us hlutu flestar tilnefningar. Lífið 12. júlí 2023 16:54
Vill ekki týna sjálfum sér í bransanum Enski leikarinn Tom Holland, sem er hvað þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Köngulóarmaðurinn, segist ekki vera mikið fyrir kvikmyndagerðarbransann. Hann vill frekar einbeita sér að því sem veitir honum hamingju. Lífið 12. júlí 2023 15:40
Íslandsvinur og „einn merkasti skáldsagnahöfundur okkar tíma“ látinn Tékkneski rithöfundurinn Milan Kundera er látinn, 94 ára að aldri. Að sögn Friðriks Rafnssonar, þýðanda verka hans, var hann að mati margra einn merkasti skáldsagnahöfundur okkar tíma. Menning 12. júlí 2023 12:02
Madonna á batavegi Tónlistarkonan Madonna var flutt á gjörgæslu í lok síðasta mánaðar vegna alvarlegrar bakteríusýkingar. Hún er núna á batavegi og er strax byrjuð að endurskipuleggja tónleikaferðalagið sitt. Lífið 12. júlí 2023 10:37
Sigurbogi þegar heimsmeistarar í dansi komu til landsins Um helgina lauk formlega keppni um sjö þúsund dansara frá öllum heimshornum í Braga í Portúgal. Alls kepptu 250 ungir dansarar frá Íslandi frá ellefu dansskólum og þeim til stuðnings voru foreldrar, systkini, ömmur, afa, vinir og vandamenn. Lífið 11. júlí 2023 10:55
Fátækt fólk aldrei notið meiri vinsælda Æviminningar Tryggva Emilssonar, Fátækt fólk, sem lýsir misrétti sveitarómaga á 20. öld, nýtur enn mikilla vinsælda í bókabúðum. Bókmenntafræðingur segir bókina með þeim sérstæðustu sem skrifaðar hafa verið á íslenskri tungu. Menning 11. júlí 2023 07:00
Aðsóknin sprakk við komu besta verks aldarinnar Á Listasafninu á Akureyri er um þessar mundir sýnt eitt besta verk 21. aldar. Verkið er eftir Ragnar Kjartansson og segist safnstjórinn aðsóknina hafa sprungið í kjölfar þess að sýningar á verkinu hófust. Menning 10. júlí 2023 23:19