Körfuboltaæði í Oakland Þrátt fyrir að lið Golden State Warriors frá Oakland í Kaliforníu hafi ekki riðið feitum hesti í NBA deildinni á síðustu árum, eru stuðningsmenn liðsins jafnan taldir þeir hollustu og bestu í allri deildinni. Í gær var 13 ára bið á enda þegar lið Warriors spilaði loks leik á heimavelli í úrslitakeppninni og fengu þeir nóg fyrir peninginn. Körfubolti 28. apríl 2007 18:37
Meistarar Miami á leið úr keppni Óvænt úrslit litu dagsins ljós í úrslitakeppninni í NBA í nótt. Meistarar Miami töpuðu á heimavelli fyrir Chicago og eru undir 3-0 í einvíginu og Golden State er komið yfir 2-1 gegn Dallas eftir stórsigur í þriðja leik liðanna. New Jersey náði forystu gegn Toronto á bak við stórleik Jason Kidd og Vince Carter. Körfubolti 28. apríl 2007 14:10
LeBron James tekur Bee Gees slagara (Myndband) Körfuboltamaðurinn LeBron James hefur farið á kostum með liði Cleveland Cavaliers í úrslitakeppni NBA undanfarna daga, en hann kann meira en bara að spila körfubolta. Í myndbandi hér í fréttinni má sjá og heyra kappann syngja og dansa við lag Bee Gees. Svo verður hver og einn að dæma fyrir sig hvort James ætti að leggja skóna á hilluna og snúa sér að tónlistinni. Körfubolti 27. apríl 2007 20:09
Beinar útsendingar frá NBA um helgina Áhugamenn um NBA körfuboltann fá nóg fyrir sinn snúð um helgina þegar úrslitakeppnin heldur áfram af fullum krafti. Stórleikur helgarinnar verður slagur Miami og Chicago á Sýn Extra klukkan 17 á sunnudaginn, en auk þess er NBA TV sjónvarpsstöðin með beina útsendingu á hverju kvöldi. New Jersey tekur á móti Toronto klukkan 23 í kvöld og á miðnætti verður Sýn með útsendingu frá leik Utah og Houston frá í gærkvöldi. Körfubolti 27. apríl 2007 18:45
Marcus Camby varnarmaður ársins Dagblaðið Denver Post greindi frá því í morgun að miðherjinn Marcus Camby hjá Denver Nuggets verði kjörinn varnarmaður ársins í NBA deildinni. Camby á að baki 11 ár í deildinni og skoraði 11 stig, hirti tæp 12 fráköst og varði 3,3 skot að meðaltali í leik í vetur - sem er besti árangurinn í deildinni. Camby er sagður hafa fengið 431 atkvæði í kjöri fjölmiðlamanna en Bruce Bowen hjá San Antonio varð annar með 206 stig og félagi hans Tim Duncan í þriðja sæti með 158 stig. Körfubolti 27. apríl 2007 17:45
Dýrmætir sigrar hjá Jazz og Lakers Þrír leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í nótt. LA Lakers minnkaði muninn í einvígi sínu við Phoenix í 2-1 með góðum heimasigri og sömu sögu var að segja af Utah gegn Houston. Lið Detroit Pistons er hinsvegar komið í afar vænlega stöðu gegn Orlando Magic og hefur yfir 3-0 eftir góðan útisigur í nótt. Körfubolti 27. apríl 2007 13:41
Monta Ellis tók mestum framförum Bakvörðurinn Monta Ellis hjá Golden State Warriors í NBA deildinni var í kvöld valinn sá leikmaður sem tók mestum framförum í deildinni ár af nefnd fjölmiðlamanna. Ellis bætti stigaskor sitt um tæp 10 stig frá nýliðaári sínu í fyrra. Kevin Martin hjá Sacramento Kings varð annar í kjörinu en aðeins munaði þremur stigum á þeim í fyrsta og öðru sæti, sem er minnsti munur í sögu kjörsins. Körfubolti 26. apríl 2007 19:25
Þrír leikir í úrslitakeppni NBA í kvöld Utah Jazz, LA Lakers og Orlando Magic standa öll frammi fyrir erfiðu verkefni í kvöld þegar þau mæta andstæðingum sínum í þriðja sinn í úrslitakeppninni í NBA. Leikur Utah og Houston verður sýndur beint á NBA TV klukkan eitt í nótt, en öll þrjú liðin eru undir 2-0 í einvígjum sínum eftir tap á útivöllum í fyrstu tveimur leikjunum. Körfubolti 26. apríl 2007 18:34
Heitt í kolunum í Dallas Dallas jafnaði í nótt metin í 1-1 í einvígi sínu við Golden State í úrslitakeppninni í NBA með 112-99 sigri í öðrum leik liðanna. Gestirnir spiluðu vel í fyrri hálfleik, en misstu tökin á leiknum í síðari hálfleik þegar bæði Baron Davis og Stephen Jackson var hent í bað fyrir kjaftbrúk. Körfubolti 26. apríl 2007 05:01
Dallas - Golden State í beinni í nótt Annar leikur Dallas Mavericks og Golden State Warriors verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan 1:30 í nótt. Golden State vann mjög óvæntan útisigur í fyrsta leiknum en annar leikurinn fer einnig fram í Dallas. Körfubolti 25. apríl 2007 23:02
Larry Brown að taka við Grizzlies? Forráðamenn Philadelphia 76ers í NBA deildinni hafa gefið Larry Brown leyfi til að ræða við eigendur Memphis Grizzlies um að hann taki hugsanlega við þjálfun liðsins í sumar. Brown hefur verið í stjórnunarstöðu hjá Philadelphia síðan hann var rekinn frá New York Knicks fyrir síðasta keppnistímabil. Körfubolti 25. apríl 2007 22:38
Carlisle hættur hjá Indiana Pacers Rick Carlisle sem þjálfað hefur lið Indiana Pacers í NBA frá árinu 2003 er hættur hjá liðinu. Þetta tilkynnti Larry Bird forseti félagsins í dag. Carlisle náði frábærum árangri með Indiana á fyrsta ári sínu með liðið, en þar á bæ hefur allt verið á lóðréttri niðurleið eftir áflogin í Detroit 2004. Indiana komst ekki í úrslitakeppnina í ár og náði lakasta árangri sínum í nær tvo áratugi. Körfubolti 25. apríl 2007 20:50
Framkvæmdastjórar tippa á Dirk Nowitzki Nú styttist óðum í að fjölmiðlamenn í Bandaríkjunum velji verðmætasta leikmann ársins í deildarkeppninni í NBA körfuboltanum. Dirk Nowitzki hjá Dallas Mavericks þykir afar líklegur til að hreppa hnossið að þessu sinni en hann hlaut nokkuð afgerandi kosningu í könnun sem gerð var í gær þar sem framkvæmdastjórar allra liða í deildinni voru spurðir um sitt álit. Körfubolti 25. apríl 2007 17:09
Bjartsýni í herbúðum Miami NBA meistarar Miami örvænta ekki þó liðið sé komið 2-0 undir í einvíginu við Chicago Bulls í fyrstu umferð úrslitakeppninnar eftir stórt tap í gærkvöldi. Leikmenn liðsins eru flestir með gríðarlega reynslu og vilja meina að mikið sé eftir af einvíginu. Körfubolti 25. apríl 2007 13:48
Phoenix burstaði LA Lakers Phoenix náði í nótt 2-0 forystu í einvígi sínu við Los Angeles Lakers í úrslitakeppninni í NBA með auðveldum 126-98 sigri á heimavelli sínum. Sigur Phoenix var aldrei í hættu og líkt og í fyrsta leiknum var það varamaður ársins Leandro Barbosa sem stal senunni. Körfubolti 25. apríl 2007 05:04
Meistarar Miami í vandræðum Meistarar Miami Heat eru komnir í bullandi vandræði gegn frísku liði Chicago Bulls í úrslitakeppni NBA deildarinnar eftir að Chicago vann sannfærandi 107-89 sigur í öðrum leik liðanna í nótt. Chicago leiðir nú 2-0 í einvíginu og næstu tveir leikir fara fram í Miami. Körfubolti 25. apríl 2007 03:47
Fyrsti sigur Toronto í úrslitakeppni síðan 2002 Toronto Raptors vann í nótt fyrsta sigur sinn í úrslitakeppni NBA síðan árið 2002 þegar liðið skellti New Jersey á heimavelli 89-83 og jafnaði metin í einvíginu í 1-1. Anthony Parker skoraði 26 stig fyrir heimamenn og Chris Bosh skoraði 25 stig og hirti 13 fráköst. Þjálfarinn Sam Mitchell var í gær útnefndur þjálfari ársins í deildinni og fékk verðlaunagripinn afhentan fyrir leikinn. Körfubolti 25. apríl 2007 03:35
Tiltekt hjá Seattle Supersonics Eigendur Seattle Supersonics voru ekki sáttir við slakan árangur liðsins í deildarkeppninni í NBA í vetur og í gærkvöldi ráku þeir framkvæmdastjóra og þjálfara liðsins. Seattle lauk keppni með 31 sigur og 51 tap í deildarkeppninni og er það versti árangur liðsins 20 ár og þriðji lélegasti árangurinn í 40 ára sögu félagsins. Körfubolti 25. apríl 2007 03:17
Maðurinn flaugst á við Shaquille O´Neal og lifði það af Chicago Bulls og Miami Heat mætast öðru sinni í fyrstu umferð úrslitakeppni NBA í kvöld. Scott Skiles þjálfari Chicago spilaði með Shaquille O´Neal hjá Miami þegar hann var nýliði með liði Orlando Magic árið 1992 og vann sér það þá til frægðar að slást við tröllið og lifa það af. Körfubolti 24. apríl 2007 18:41
Sam Mitchell þjálfari ársins í NBA Sam Mitchell hjá Toronto Raptors var í dag kjörinn þjálfari ársins í NBA deildinni. Mitchell þótti framan af vetri einn líklegasti þjálfarinn til að verða rekinn úr starfi eftir erfiða byrjun liðsins, en síðari hluti leiktíðar var frábær hjá liðinu sem tryggði sér heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Körfubolti 24. apríl 2007 16:01
Hinrich sektaður um 25 þúsund dollara Leikstjórnandinn Kirk Hinrich hjá Chicago Bulls var í gærkvöld sektaður um 25,000 dollara eða 1,6 milljónir króna, fyrir að kasta munnstykki sínu upp í áhorfendastæði í fyrsta leik Chicago og Miami í úrslitakeppni NBA í fyrrakvöld. Hinrich átti afleitan leik og var í villuvandræðum frá fyrstu mínútu. Liðin mætast öðru sinni í kvöld, en Chicago vann fyrsta leikinn á heimavelli sínum. Körfubolti 24. apríl 2007 14:15
Barbosa besti varamaðurinn í NBA Brasilíumaðurinn sprettharði Leandro Barbosa hjá Phoenix var í gær kjörinn varamaður ársins í NBA deildinni. Barbosa tók stórstígum framförum á tímabilinu og var lykilmaður í sigursælu liði Phoenix. Hann undirstrikaði mikilvægi sitt í fyrsta leik Phoenix og LA Lakers í fyrrakvöld þegar hann var stigahæsti maður liðsins í góðum sigri. Körfubolti 24. apríl 2007 14:10
Detroit og Houston í góðum málum Tveir leikir fóru fram í úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta í nótt. Detroit kom sér í 2-0 gegn Orlando með nokkuð auðveldum 98-90 sigri á heimavelli og Houston komst sömuleiðis í 2-0 gegn Utah með 98-90 sigri í leik tvö. Körfubolti 24. apríl 2007 13:09
Dallas og San Antonio töpuðu óvænt Deildarmeistarar Dallas og firnasterkt lið San Antonio töpuðu óvænt fyrstu leikjum sínum í úrslitakeppni NBA-deildarinnar á heimavelli í nótt. San Antonio þurfti að lúta í lægra haldi fyrir Denver, 95-89, þar sem Allen Iverson og Carmelo Anthony fóru á kostum, og Dallas steinlá fyrir Golden State, 97-85. Körfubolti 23. apríl 2007 08:47
Cleveland og Phoenix komin með forystu Tveimur leikjum er þegar lokið í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í kvöld. Cleveland lagði Washington auðveldlega á heimavelli, 97-82, en Phoenix þurfti að hafa mikið fyrir 95-87 sigri á LA Lakers, þar sem gestirnir höfðu forystu allt fram í fjórða og síðasta leikhluta. Cleveland og Phoenix hafa því náð 1-0 forystu í einvígunum. Körfubolti 22. apríl 2007 21:38
Phoenix og LA Lakers í beinni á Sýn Extra Sjónvarpsstöðin Sýn mun sýna mikið frá úrslitakeppni NBA-deildarinnar næstu vikur og má segja að fjörið hefjist formlega í kvöld þegar Phoenix og LA Lakers eigast við í sínum fyrsta leik. Leikurinn hefst kl. 19 og verður verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn Extra, en auk þess verður útsending frá leiknum sýnd á Sýn strax að loknum leik Barcelona og Villareal í spænsku úrvalsdeildinni. Körfubolti 22. apríl 2007 18:30
Titilvörn Miami hófst með tapi New Jersey vann góðan útisigur á Toronto og meistarar Miami hófu titilvörn sína á að tapa fyrir Chicago þegar úrslitakeppni NBA-deildarinnar hófst í nótt. Tveir aðrir leikir voru á dagskrá úrslitakeppninnar í nótt. Körfubolti 22. apríl 2007 11:07
21,8 milljónir manns sáu leikina Nýtt aðsóknarmet var sett í NBA-deildinni á nýafstöðnu keppnistímabili í NBA-deildinni en alls komu 21,8 milljónir manna á leiki vetrarins, eða 17,757 manns að meðaltali. Þetta er þriðja árið í röð sem nýtt aðsóknarmet er sett í deildinni, en í fyrra mættu 17,558 manns að meðaltali á hvern leik í deildinni. Körfubolti 21. apríl 2007 19:15
Riley verður áfram hjá Miami Pat Riley, þjálfari Miami Heat í NBA-deildinni, segir allar líkur á því að hann stjórni Miami-liðinu allt þar til samningur hans við félagið rennur út árið 2010. Riley hefur átt við heilsuvandamál að stríða síðustu misseri og vildu margir meina að núverandi tímabil kynni að vera hans síðasta með Miami. Riley segist hins vegar vera í fullu fjöri. Körfubolti 21. apríl 2007 18:00
Sacramento sparkar þjálfaranum Þjálfarinn Eric Musselman hefur verið rekinn frá Sacramento Kings í NBA-deildinni eftir að hafa stjórnað liðinu í aðeins eina leiktíð. Forráðamenn félagsins tilkynntu um uppsögn Musselman eftir að deildarkeppninni í NBA lauk í gær, en Sacramento vann aðeins 33 af 82 leikjum tímabilsins. Körfubolti 21. apríl 2007 11:34