Upphitun fyrir úrslitakeppni NBA - Vesturdeild Úrslitakeppnin í NBA deildinni hefst með látum í kvöld og því er ekki úr vegi að skoða einvígin sem eru á dagskrá í hvorri deild fyrir sig. Reiknað er með gríðarlegri spennu í fyrstu umferðinni í Vesturdeildinni, en þar hallast menn að því að það verði Dallas, Phoenix og San Antonio sem berjast um sæti í úrslitaeinvíginu í júní. Körfubolti 21. apríl 2007 03:33
Upphitun fyrir úrslitakeppni NBA - Austurdeild Úrslitakeppnin í NBA deildinni hefst með látum í kvöld og því er ekki úr vegi að skoða einvígin sem eru á dagskrá í hvorri deild fyrir sig. Í Austurdeildinni er efsta liðið Detroit Pistons álitið nokkuð sigurstranglegt, en ekki má gleyma meisturum Miami Heat. Lið eins og Cleveland og Chicago ætla sér líka stóra hluti. Körfubolti 21. apríl 2007 03:13
Deildarkeppnin búin í NBA - Allt klárt fyrir úrslitakeppnina Síðasta umferðin í deildarkeppni NBA fór fram í nótt og þar réðist hvaða lið mætast í úrslitakeppninni sem hefst á laugardaginn. Segja má að ótrúlegar breytingar hafi átt sér stað í síðustu umferðinni, því nokkur lið höfðu sætaskipti á lokasprettinum. Körfubolti 19. apríl 2007 13:15
NBA: Mikil spenna í Vesturdeildinni Nú er aðeins ein umferð eftir af deildarkeppninni í NBA og fer hún fram í kvöld. Gríðarleg spenna er í keppninni um síðustu sætin inn í úrslitakeppnina í Vesturdeildinni, þar sem Golden State stendur vel að vígi eftir sigur á Dallas í nótt. Körfubolti 18. apríl 2007 13:12
Jerry West hættir hjá Memphis Körfuboltagoðsögnin Jerry West tilkynnti í dag að hann ætlaði að hætta störfum sem framkvæmdastjóri Memphis Grizzlies í NBA deildinni í sumar. West er einn besti leikmaður í sögu NBA og gerði það gott hjá LA Lakers bæði sem leikmaður og síðar framkvæmdastjóri þar sem hann vann samtals 8 meistaratitla. Hann er 69 ára gamall og sagðist í yfirlýsingu vera orðinn of gamall til að snúast í hringiðu deildarinnar. Körfubolti 17. apríl 2007 22:30
NBA: Joey Crawford dómara vikið úr starfi Joey Crawford, einni reyndasti dómarinn í NBA deildinni í körfubolta, var í dag leystur frá störfum um óákveðinn tíma vegna umdeilds atviks sem átti sér stað í leik Dallas og San Antonio á sunnudagskvöldið. David Stern, forseti deildarinnar, gaf út yfirlýsingu vegna málsins nú síðdegis. Körfubolti 17. apríl 2007 18:26
Houston tryggði sér heimavöllinn Houston Rockets tryggði sér heimavallarrétt í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í NBA í nótt þegar liðið vann góðan sigur á Pheonix Suns 120-117 á heimavelli. Miami tapaði fyrir Boston og missti James Posey í meiðsli. Alls voru átta leikir á dagskrá deildarinnar í nótt. Körfubolti 17. apríl 2007 13:38
Níundi besti árangur sögunnar hjá Dallas Dallas Mavericks tryggði sér í nótt 9. besta árangur sem náðst hefur í sögu deildarkeppninnar í NBA deildinni þegar liðið vann góðan sigur á grönnum sínum í San Antonio 91-85. Dallas hefur þegar unnið 66 leiki á tímabilinu þegar tveir leikir eru eftir og jafnaði í nótt árangur gullaldarliðs Milwaukee Bucks frá árinu 1971. Körfubolti 15. apríl 2007 23:55
NBA: Beðið eftir Oden Gríðarleg eftirvænting ríkir nú í NBA deildinni um hvort miðherjinn öflugi Greg Oden hjá Ohio State háskólanum gefur kost á sér í nýliðavalinu í sumar. Oden er talinn einhver efnilegasti miðherji sem spilað hefur í háskólaboltanum á síðustu árum. Körfubolti 15. apríl 2007 15:49
Memphis stöðvaði Denver Neðsta lið NBA deildarinnar Memphis Grizzlies gerði sér lítið fyrir og stöðvaði átta leikja sigurhrinu Denver Nuggets í nóptt með 133-118 sigri í fjörugum leik. Chucky Atkins og Tarence Kinsey skoruðu 28 stig hvor fyrir Memphis en Carmelo Anthony var atkvæðamestur hjá Denver með 28 stig. Alls voru sjö leikir á dagskrá í nótt. Körfubolti 15. apríl 2007 14:31
Orlando skrefi nær úrslitakeppninni Einum leik er þegar lokið í NBA deildinni í körfubolta í kvöld. Orlando Magic vann auðveldan sigur á Philadelphia á útivelli 104-87 og þarf nú aðeins einn sigur í viðbót til að tryggja sér áttunda og síðasta sætið inn í úrslitakeppnina. Dwight Howard setti persónulegt met með 35 stigum og hirti auk þess 11 fráköst fyrir Orlando. Leikur Houston og New Orleans verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan hálf eitt í nótt. Körfubolti 14. apríl 2007 23:27
60. sigurinn hjá Phoenix Phoenix Suns tryggði stöðu sína í öðru sæti Vesturdeildarinnar í NBA í nótt með því að leggja LA Lakers að velli 93-85. Lakers hefur verið í vandræðum undanfarna daga og er nú aðeins hársbreidd á undan grönnum sínum í Clippers og Golden State í baráttunni um sæti í úrslitakeppninni. Körfubolti 14. apríl 2007 14:16
50 stig Bryants dugðu ekki gegn Clippers Kobe Bryant skoraði 50 stig fyrir LA Lakers gegn nágrannaliðinu LA Clippers í NBA-deildinni í nótt en það dugði ekki til sigurs því Clippers vann 118-110. Corey Magette átti stórleik hjá Clippers og skoraði 39 stig sem er persónlegt met hjá honum í deildinni. Körfubolti 13. apríl 2007 09:22
Detroit hirti efsta sæti Austurdeildar Detroit Pistons tryggði sér í nótt efsta sæti Austurdeildarinnar í NBA og verður liðið því með heimavallarrétt alla leið í úrslitin. Miami tryggði sér sigur í Suðaustur deildinni með sigri á Washington. Körfubolti 12. apríl 2007 13:38
Minnesota - Dallas í beinni í kvöld Leikur Minnesota Timberwolves og Dallas Mavericks verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á miðnætti í kvöld. Um klukkan 21 í kvöld er svo á dagskrá stöðvarinnar klassískur leikur Lakers og Rockets frá því fyrir um 20 árum síðan þar sem Pétur Guðmundsson kemur við sögu í liði Lakers. Óhætt er að mæla með þessum leik, sem bauð upp á dramatík, góða spilamennsku og áflog. Körfubolti 11. apríl 2007 21:08
Washington í úrslitakeppnina þrátt fyrir fimmta tapið í röð Lið Washington Wizards tryggði sér í nótt sæti í úrslitakeppni NBA þrátt fyrir að liðið tapaði fimmta leiknum í röð, nú fyrir New Jersey. New Orleans heldur enn í vonina um að komast í úrslitakeppninna í Vesturdeildinni eftir sigur á LA Clippers. Miami lá fyrir Charlotte. Körfubolti 11. apríl 2007 07:45
Dallas tryggði sér toppsætið í NBA Dallas Mavericks tryggði sér í nótt heimavallarréttinn alla úrslitakeppnina þegar liðið lagði LA Clippers á heimavelli 96-86. Með sigrinum varð ljóst að ekkert lið getur náð Dallas í deildarkeppninni. Detroit tryggði sér sjötta tímabilið í röð með 50 sigrum og þá læddist Golden State í áttunda sæti Vesturdeildarinnar með auðveldum sigri á Utah. Körfubolti 10. apríl 2007 13:35
Detroit í góðri stöðu í Austurdeildinni Detroit vantar aðeins einn sigurleik til þess að tryggja sér heimavallarréttinn í úrslitakeppni Austurdeildar NBA-deildarinnar og þarf liðið nú aðeins einn sigur til viðbótar til að ná þeim áfanga. Liðið vann mikilvægan sigur á Cleveland í nótt, 87-82, þar sem góður varnarleikur á LeBron James lagði grunninn að úrslitunum. Körfubolti 9. apríl 2007 11:05
Dallas færist nær deildarmeistaratitlinum Dallas þarf nú aðeins einn sigur til viðbótar til að tryggja sér sigur í deildarkeppni NBA en eftir að hafa sigrað Portland í nótt, 86-74. Dallas hefur nú unnið 63 leiki en tapað 13 það sem af er leiktíð. Vince Carter hjá New Jersey og Eddy Curry hjá New York voru menn næturinnar í NBA-deildinni. Körfubolti 8. apríl 2007 12:47
Toronto efstir í Atlantshafsriðlinum Toronto Raptors tryggði sér í nótt sigur í Atlantshafsriðli NBA-deildarinnar í körfuknattleik með því að sigra Philadelphia, 94-85. Denver kom í veg fyrir að Dallas gæti unnið 70 leiki á tímabilinu með því að leggja lærisveina Avery Johnson af velli í nótt og Kobe Bryant var í miklu stuði gegn Seattle. Körfubolti 7. apríl 2007 10:39
Miami unnu Cleveland og San Antonio unnu Phoenix Tveir risaslagir voru í NBA-deildinni í nótt. Meistarar Miami Heat mættu LeBron James og félögum í Cleveland og höfðu sigur, 94-90 í framlengdum leik. Miami léku án Dwayne Wade og munar heldur betur um minna. Körfubolti 6. apríl 2007 11:05
Arenas missir af úrslitakeppninni Nú hefur verið staðfest að Gilbert Arenas, leikmaður Washingto Wizards, muni missa af úrslitakeppninni vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir í nótt. Arenas verður frá keppni í 2-3 mánuði, en aðeins nokkrir dagar eru síðan annar stjörnuleikmaður, Caron Butler, meiddist hjá liðinu og verður tæplega með í úrslitakeppninni. Körfubolti 5. apríl 2007 17:23
Gilbert Arenas meiddur Ellefu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Washington tapaði annan daginn í röð fyrir Charlotte og varð fyrir enn einu áfallinu þegar Gilbert Arenas tognaði á hné og verður hann líklega frá keppni í nokkrar vikur vegna þessa. Þá vann Chicago þýðingarmikinn sigur á Detroit á útivelli. Körfubolti 5. apríl 2007 13:21
Dallas lagði Sacramento án Dirk Nowitzki Níu leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt, en nú er farið að styttast í að úrslitakeppnin hefjist og línur farnar að skýrast með uppröðun liða í Austur- og Vesturdeildinni. Körfubolti 4. apríl 2007 11:34
Memphis - Phoenix í beinni á miðnætti Leikur Memphis Grizzlies og Phoenix Suns verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á miðnætti í kvöld. Hér er á ferðinni leikur tveggja sókndjarfra liða sem þó eru á mjög ólíkum stað í deildinni. Phoenix hefur unnið 55 leiki og tapað 18 en Memphis er í neðsta sæti Vesturdeildarinnar með aðeins 19 sigra og 56 töp. Körfubolti 3. apríl 2007 20:16
Jackson flaug inn í heiðurshöllina Þjálfarinn Phil Jackson hjá LA Lakers var í dag tekinn inn í heiðurshöllina í NBA deildinni. Hann vann sex meistaratitla með Chicago Bulls á tíunda áratug síðustu aldar og aðra þrjá með liði LA Lakers í byrjun aldarinnar. Aldrei var spurning hvort Jackson færi inn í heiðurshöllina heldur aðeins hvenær og hann hefur nú fengið þar sæti á fyrsta árinu sem hann kom til greina. Körfubolti 2. apríl 2007 22:20
Sagði Steve Nash hafa verið handtekinn fyrir ölvunarakstur Mike D´Antoni, þjálfari Phoenix, var mjög sáttur með sigurinn á Dallas í NBA deildinni í gær. Dagurinn endaði því á mun betri nótum en hann byrjaði, því eigandi liðsins lét hann hlaupa apríl. Körfubolti 2. apríl 2007 12:43
Phoenix skellti Dallas Tólf leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt og þar af voru þrír stórleikir á dagskrá. Phoenix jafnaði einvígið við Dallas í deildarkeppninni með 126-104 sigri á heimavelli. Utah vann afar mikilvægan útisigur á Houston og Detroit lagði Miami í uppgjöri risanna í Austurdeildinni. Körfubolti 2. apríl 2007 11:59
Risaslagur í NBA í beinni á Sýn í kvöld Í kvöld klukkan 18:50 verður einn af leikjum ársins í deildarkeppninni í NBA í beinni á Sýn. Hér er um að ræða fjórðu og síðustu viðureign Phoenix Suns og Dallas Mavericks í deildarkeppninni, en þetta eru tvö af allra bestu liðum deildarinnar. Síðasti leikur liðanna fyrir hálfum mánuði var að flestra mati besti leikurinn í NBA í vetur og því má eiga von á frábærum slag á besta tíma í kvöld. Körfubolti 1. apríl 2007 14:10
Enn skorar Kobe yfir 50 stig Enn og aftur skoraði Kobe Bryant yfir 50 stig fyrir Los Angeles Lakers í NBA körfuboltanum í nótt. Það dugði þó ekki til sigurs í framlengdum leik gegn Houston. Körfubolti 31. mars 2007 11:11