Sagan á bandi Dallas Mavericks Lið Dallas Mavericks var á gríðarlegu skriði þegar flautað var til hlés um stjörnuhelgina í NBA. Liðið hefur unnið 30 af síðustu 32 leikjum sínum og ef þessi árangur liðsins er skoðaður í sögulegu samhengi mætti ætla að liðið ætti góða möguleika á að vinna titilinn í vor. Körfubolti 19. febrúar 2007 22:15
Vesturdeildin í sérflokki Deildarkeppnin í NBA deildinni hefst aftur annað kvöld eftir árlegt hlé sem gert er á keppni vegna stjörnuleiksins. Þegar rýnt er í tölfræðina er ljóst að Vesturdeildin er með sögulega yfirburði á Austurdeildina hvað varðar vinningshlutfall fyrir stjörnuleik. Körfubolti 19. febrúar 2007 20:30
Stjörnuleikurinn endursýndur klukkan 18:15 Rétt er að minna körfuboltaáhugamenn á að stjörnuleikurinn í NBA sem fram fór í Las Vegas í nótt verður endursýndur klukkan 18:15 á sjónvarpsstöðinni Sýn. Leikurinn var hin besta skemmtun og bauð upp á eitt hæsta stigaskor í sögunni. Þá sá poppdívan Christina Aguilera um skemmtiatriðin í hálfleik. Körfubolti 19. febrúar 2007 16:30
Auðveldur sigur vesturliðsins Lið vesturstrandarinnar vann auðveldan sigur á austurliðinu í stjörnuleiknum í NBA deildinni sem haldinn var í Las Vegas í nótt. Vesturliðið var skrefinu á undan allan tímann, náði meira en 30 stiga forystu á kafla og vann að lokum 153-132 sigur. Körfubolti 19. febrúar 2007 06:30
Stjörnuleikurinn í beinni á Sýn í nótt Hinn árlegi stjörnuleikur í NBA deildinni fer fram í spilaborginni Las Vegas í Nevada í nótt og verður hann sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn. Þar gefst áhorfendum tækifæri til að sjá menn á borð við Kobe Bryant, Dwyane Wade og LeBron James sýna listir sínar í leik þar sem leiftrandi sóknarleikur verður í forgrunni. Útsending Sýnar hefst rétt eftir klukkan eitt í nótt. Körfubolti 18. febrúar 2007 20:17
Góð sæti á stjörnuleiknum kosta tæpar tvær milljónir Það er ekki fyrir meðalmanninn að fá gott sæti á stjörnuleiknum í NBA sem fram fer í Las Vegas í nótt því miðaverð fyrir hvert sæti í fyrstu 5-10 röðunum í kring um völlinn er hátt í tvær milljónir íslenskra króna. Stjörnuleikurinn verður sýndur beint á Sýn eftir miðnætti í kvöld, en hér er um að ræða stærsta íþróttaviðburð í sögu borgarinnar. Körfubolti 18. febrúar 2007 17:08
Gerald Green sigraði í troðkeppninni Gerald Green frá Boston Celtics sigraði með glæsibrag í troðkeppninni í NBA sem haldin var um stjörnuhelgina í Las Vegas í nótt. Green þótti sýna bestu tilþrifin fyrir troðslur sínar fyrir framan dómnefnd sem samanstóð af mönnum eins og Michael Jordan og fleiri fyrrum troðkóngum. Körfubolti 18. febrúar 2007 14:14
Pippen vill snúa aftur í NBA Hinn 41 árs gamli Scottie Pippen hefur nú lýst því yfir að hann vilji snúa aftur í NBA deildina. Pippen spilaði síðast með liði Chicago Bulls fyrir rúmum tveimur árum en er fyrir nokkru búinn að leggja skóna á hilluna. Pippen er ekki í vafa um að hann geti hjálpað liði sem er í baráttu um meistaratitilinn. Körfubolti 17. febrúar 2007 12:53
David Lee hitti úr öllum 14 skotum sínum Framherjinn David Lee hjá New York Knicks stal senunni í nýliðaleiknum árlega um stjörnuhelgina í NBA. Leikurinn er viðureign úrvalsliðs leikmanna á öðru ári í deildinni gegn úrvalsliði nýliða. Þeir eldri höfðu sigur enn eitt árið og að þessu sinni var sigurinn stór 155-114. Körfubolti 17. febrúar 2007 12:39
Hardaway úti í kuldanum Ummælin sem Tim Hardaway lét falla í gær um John Amaechi og annað samkynheigt fólk hafa vakið gríðarlega athygli í Bandaríkjunum. Hardaway hefur verið útilokaður frá allri kynningarstarfsemi í kringum stjörnuleik NBA sem fram fer á sunnudaginn. Amaechi sjálfur segir orð Hardaway vera lituð hatri í garð samfélags samkynheigðra. Körfubolti 16. febrúar 2007 16:30
Dallas marði sigur á Houston Dallas vann sinn níunda leik í röð í NBA-deildinni þegar liðið bar sigurorð af Houston í nótt. Bakvörðurinn Jason Terry var maðurinn á bakvið sigur Dallas, en hann skoraði mikilvægar körfur á lokamínútum leiksins. Cleveland lagði LA Lakers í hinum leik næturinnar en nú verður gert hlé á deildarkeppninni vegna stjörnuleiksins sem fram fer á sunnudag. Körfubolti 16. febrúar 2007 12:40
Ég hata homma Fyrrum NBA leikmaðurinn Tim Hardaway fór hamförum í útvarpsviðtali sem tekið var við hann í spjallþætti á útvarpsstöð í Miami í gærkvöldi þegar hann var spurður út í það þegar fyrrum leikmaðurinn John Amaechi kom út úr skápnum á dögunum. Körfubolti 15. febrúar 2007 15:49
Langþráður sigur hjá Boston Þrettán leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt og þar bar hæst að Boston Celtics náði loksins að vinna leik eftir 18 töp í röð. Liðið vann auðveldan sigur á Milwaukee 117-97 á heimavelli, en lið Milwaukee er ekki með mikið betri árangur og hefur tapað 17 af síðustu 20 leikjum sínum. Körfubolti 15. febrúar 2007 13:46
Joe Johnson í stjörnuleikinn Bakvörðurinn Joe Johnson hjá Atlanta Hawks var í kvöld tekinn inn í Austurstrandarliðið fyrir stjörnuleikinn í NBA sem fram fer í Las Vegas á sunnudagskvöldið. Johnson kemur inn í liðið í stað Jason Kidd hjá New Jersey sem tekur ekki þátt vegna meiðsla. Johnson skorar að meðaltali 25 stig í leik og spilar sinn fyrsta stjörnuleik á ferlinum um helgina. Körfubolti 14. febrúar 2007 20:40
Dirk Nowitzki fór hamförum í sigri Dallas Þjóðverjinn Dirk Nowitzki var sannarlega betri en enginn í nótt þegar Dallas lagði Milwaukee á útivelli 99-93. Dallas var um tíma 16 stigum undir í síðari hálfleik, en vann lokaleikhlutann 28-11. Nowitzki skoraði 38 stig, hirti 11 fráköst og gaf 8 stoðsendingar fyrir Dallas en Andrew Bogut skoraði 16 stig og hirti 17 fráköst fyrir Milwaukee. Dallas er langefst í deildinni með 43 sigra og aðeins 9 töp. Körfubolti 14. febrúar 2007 13:17
Okur og Allen í stjörnuleikinn Í nótt var tilkynnt að þeir Mehmet Okur frá Utah Jazz og Ray Allen frá Seattle yrðu varamenn fyrir þá Allen Iverson og Steve Nash í liði Vesturstrandarinnar í stjörnuleiknum í NBA um næstu helgi. Körfubolti 14. febrúar 2007 02:36
New Jersey - San Antonio í beinni í kvöld Leikur New Jersey Nets og San Antonio Spurs verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan hálf eitt í nótt. New Jersey verður án leikstjórnandans Jason Kidd sem á við bakmeiðsli að stríða og gæti misst af stjörnuleiknum um helgina fyrir vikið. San Antonio þarf nauðsynlega á sigri að halda eftir að hafa aðeins unnið tvo af fyrstu sex leikjum sínum á átta leikja keppnisferðalagi. Körfubolti 13. febrúar 2007 20:02
Iverson missir af stjörnuleiknum Allen Iverson hjá Denver Nuggets varð í kvöld nýjasta nafnið á sjúkralistanum fyrir stjörnuleikinn í NBA deildinni sem fram fer í Las Vegas á sunnudaginn. Vesturstrandarliðið er því án leikstjórnanda í augnablikinu og því þykir víst að annað hvort Deron Williams frá Utah eða Chris Paul frá New Orleans taki stöðu Iverson í hópnum. Körfubolti 13. febrúar 2007 19:57
Sjöundi sigur Detroit í röð Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt og unnust þeir allir á heimavelli. Detroit vann sjöunda sigurinn í röð með því að leggja LA Clippers, Denver skellti Golden State og þá vann Utah fimmta sigurinn í röð þegar það burstaði Atlanta. Körfubolti 13. febrúar 2007 04:27
Pat Riley ætlar að snúa aftur eftir stjörnuleikinn Harðjaxlinn Pat Riley mun snúa aftur í þjálfarastólinn hjá NBA meisturum Miami strax eftir stjörnuhelgi ef marka má fréttir sem láku út í gærkvöldi. Þetta mun verða formlega tilkynnt á blaðamannafundi á miðvikudaginn. Riley hefur verið frá keppni síðan í byrjun janúar þegar hann gekkst undir aðgerð á hné og mjöðm, en engum datt í hug að hann kæmi til baka fyrr en í fyrsta lagi undir vorið. Körfubolti 13. febrúar 2007 02:11
Steve Nash verður ekki með í stjörnuleiknum Kanadamaðurinn Steve Nash hjá Phoenix Suns verður ekki með í stjörnuleiknum í NBA sem fram fer í Las Vegas á sunnudaginn. Nash er meiddur á öxl og verður honum því gefið algjört frí frá því að spila þangað til 20. febrúar. Körfubolti 12. febrúar 2007 21:35
Detroit - LA Clippers í beinni í kvöld Leikur Detroit Pistons og LA Clippers verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan hálf eitt í nótt. Þar gefst NBA áhugamönnum fyrst tækifæri til að sjá Chris Webber spila með Detroit, en liðið hefur unnið sex leiki í röð og tíu af tólf síðan Webber gekk í raðir liðsins. Clippers hefur ekki unnið Detroit síðan árið 2002. Körfubolti 12. febrúar 2007 17:37
Samkynhneigð Amaechi veldur fjaðrafoki í NBA Fyrrum NBA leikmaðurinn John Amaechi olli talsverðu fjaðrafoki í heimspressunni fyrir helgina þegar hann tilkynnti um samkynhneigð sína í ævisögu sinni sem kom í hillur á dögunum. Hann varð um leið fyrsti NBA leikmaðurinn til að opinbera samkynhneigð sína, en ekki eru allir jafn hrifnir af yfirlýsingunni. Körfubolti 12. febrúar 2007 13:57
Dwyane Wade kláraði San Antonio Dwyane Wade átti enn einn stjörnuleikinn í gærkvöldi þegar Miami Heat vann góðan sigur á San Antonio Spurs á heimavelli. Cleveland vann góðan sigur á LA Lakers og Boston tapaði enn eina ferðina. Körfubolti 12. febrúar 2007 01:42
Cuban ósáttur við ummæli Wade Mark Cuban, eigandi Dallas Mavericks í NBA-deildinni, og Avery Johnson, þjálfari liðsins, verja Dirk Nowitzki af öllum mætti eftir að Dwayne Wade, leikmaður Miami, gagnrýndi þýska leikmanninn fyrir skort á leiðtogahæfileikum. Cuban og Johnson skjóta föstum skotum að Wade og segja honum að líta í eigin barm. Körfubolti 11. febrúar 2007 18:30
Carmelo Anthony valinn í stjörnuleikinn Vandræðagemlingurinn Carmelo Anthony hefur verið valinn í lið Vesturdeildarinnar sem tekur þátt í stjörnuleik NBA-deildarinnar þann 18. febrúar næstkomandi. Það var framkvæmdastjóri deildarinnar, sjálfur David Stern, sem valdi Anthony í leikinn vegna meiðsla Carlos Boozer. Körfubolti 11. febrúar 2007 16:45
Sjötti sigur Detroit í röð Rasheed Wallace spilaði líklega sinn besta leik á tímabilinu og leiddi Detroit til sigurs gegn Toronto í NBA-deildinni í nótt, 98-92. Þetta var sjötti sigurleikur Detroit í röð en Toronto hefur hins vegar tapað síðustu átta leikjum sínum gegn Detroit. Körfubolti 11. febrúar 2007 12:41
Boston Celtics sett nýtt félagsmet Boston Celtics setti nýtt félagsmet í NBA-deildinni í nótt með því að tapa 17. leik sínum í röð. Í þetta sinn steinlá liðið á heimavelli fyrir New Jersey, 92-78, þrátt fyrir að Paul Pierce, helsta stjarna liðsins, hafi spilað með liðinu á ný eftir langa fjarveru vegna meiðsla. Fjölmargir leikir fóru fram í NBA í nótt. Körfubolti 10. febrúar 2007 12:10
Bosh hafði betur gegn Howard í frábæru einvígi Toronto Raptors er heldur betur á góðu skriði í NBA deildinni þessa dagana og í nótt vann liðið fjórða leikinn í röð og þann níunda af síðustu ellefu þegar liðið skellti Orlando Magic 113-103. Stjörnuleikmennirnir Dwight Howard og Chris Bosh háðu mikið einvígi í leiknum og fóru báðir á kostum. Körfubolti 8. febrúar 2007 03:50
Washington - San Antonio í beinni á miðnætti Leikur Washington Wizards og San Antonio Spurs verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu á miðnætti í kvöld. Þar gefst NBA áhugamönnum tækifæri til að sjá einn litríkasta og besta leikmann deildarinnar Gilbert Arenas leika listir sínar. Körfubolti 7. febrúar 2007 20:20