Leikmenn Indiana enn til vandræða Lið Indiana Pacers er enn og aftur komið í fréttirnar á röngum forsendum en í dag greindi Indianapolis Star frá því að kráareigandi í borginni sakaði þrjá af leikmönnum liðsins um að hafa lamið sig illa aðfararnótt þriðjudags. Tveir af þessum leikmönnum voru einnig í eldlínunni í skotárásinni fyrir utan súlustað í borginni fyrr í vetur. Körfubolti 7. febrúar 2007 19:31
15 töp í röð hjá Boston Boston tapaði í nótt 15. leiknum í röð í NBA deildinni og ekkert lát virðist vera á hrakförum liðsins, þar sem aðalstjarnan Paul Pierce er enn langt frá því að snúa aftur úr erfiðum meiðslum. Boston steinlá fyrir Detroit í nótt og nú hefur liðið tapað 23 af 25 leikjum meðan Pierce er meiddur. Körfubolti 7. febrúar 2007 13:33
Memphis - Houston í beinni í nótt Leikur Memphis Grizzlies og Houston Rockets verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni klukkan eitt eftir miðnætti í nótt. Hér er á ferðinni leikur tveggja liða með mjög ólíkan leikstíl og gaman verður að sjá hvort það verður sókn eða vörn sem hefur betur að þessu sinni. Körfubolti 6. febrúar 2007 20:41
Barkley vann tæpar 50 milljónir í Las Vegas um helgina Fyrrum körfuknattleiksmaðurinn Charles Barkley sem nú er sjónvarpsmaður á ESPN sjónvarpsstöðinni, segist hafa unnið tæpar 50 milljónir króna í Las Vegas um síðustu helgi þar sem hann veðjaði m.a. á úrslitin í Superbowl. Barkley viðurkennir að hann eigi við vandamál að stríða þegar kemur að veðmálum og segist hafa tapað 170 milljónum á 6 klukkutímum í spilavíti í fyrra. Körfubolti 6. febrúar 2007 13:51
Jordan og Dominique dæma í troðkeppninni Dómnefndin í troðslukeppninni í stjörnuleiknum í NBA þann 17. febrúar næstkomandi verða engir smákallar og ef til vill betri troðarar en sjálfir keppendurnir. Í gærkvöldi var tilkynnt að fyrrum meistararnir Dominique Wilkins, Michael Jordan, Dr. Julius Erving, Kobe Bryant og Vince Carter verði í dómnefndinni að þessu sinni. Körfubolti 6. febrúar 2007 05:49
Shaquille O´Neal allur að koma til Shaquille O´Neal virðist vera að ná heilsu á ný eftir löng og erfið meiðsli, en í nótt skoraði hann 22 stig á aðeins 21 mínútu í sigri Miami Heat á Charlotte. Dwyane Wade skoraði 27 stig og gaf 12 stoðsendingar fyrir Miami sem vann fjórða leikinn í röð, en Raymond Felton skoraði 20 stig fyrir Charlotte. Körfubolti 6. febrúar 2007 04:58
Detroit herðir takið á Cleveland Liðsmenn Detroit Pistons minntu LeBron James og félaga í Cleveland Cavaliers rækilega á það í nótt að liðið á enn nokkuð í að geta kallað sig stórveldi í Austurdeildinni. Detroit vann auðveldan útisigur á Cleveland 90-78 og var það fimmti sigur Detroit á Cleveland í röð í deildarkeppninni. Körfubolti 5. febrúar 2007 02:22
Þriðji sigur Utah á Phoenix í vetur Utah Jazz lagði Phoenix Suns nokkuð óvænt á útivelli í NBA deildinni í körfubolta í nótt og var þetta þriðji sigur Utah á Phoenix í vetur. Jazz ber því ábyrgð á vænum hluta aðeins 10 tapleikja Phoenix, en þar af eru tvö þeirra á heimavelli Suns. Þá áttust þeir Kobe Bryant og Gilbert Arenas við í miklu einvígi Washington og LA Lakers. Körfubolti 4. febrúar 2007 14:02
Vafasamt met hjá Boston Tíu leikir fóru fram í NBA í nótt. Indiana lagði LA Lakers í beinni útsendingu á Sýn. Sögufrægt lið Boston Celtics tapaði í nótt 14. leik sínum í röð og er þetta lengsta taphrina þessa stórveldis sem á að baki 16. meistaratitla. Denver vann langþráðan sigur þegar liðið skellti Portland í framlengingu. Körfubolti 3. febrúar 2007 13:20
Indiana - LA Lakers í beinni á Sýn í kvöld Leikur Indiana Pacers og Los Angeles Lakers verður sýndur beint á Sýn á miðnætti í kvöld. Lið Indiana er enn að slípa sig saman eftir mikil leikmannaskipti á dögunum og hefur liðið unnið 24 leiki og tapað 21. Lakers hefur ekki gengið jafn vel undanfarið en liðið vann þó stórsigur á Boston í síðasta leik þar sem Kobe Bryant fór á kostum með 43 stigum. Lakers hefur unnið 28 leiki og tapað aðeins 18. Körfubolti 2. febrúar 2007 17:02
Langþráður sigur hjá Phoenix - Wade fór hamförum Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Dwyane Wade tryggði Miami góðan sigur á Cleveland og Phoenix vann fyrsta leik sinn í vetur gegn toppliðunum í Vesturdeildinni þegar liðið skellti San Antonio í frábærum leik í beinni á NBA TV. Körfubolti 2. febrúar 2007 06:01
Nash og Bosh leikmenn mánaðarins í NBA Steve Nash hjá Phoenix Suns og Chris Bosh hjá Toronto Raptors voru í kvöld útnefndir leikmenn janúarmánaðar í NBA deildinni, en þeir verða báðir í byrjunarliðunum í Stjörnuleiknum sem fram fer í Las Vegas síðar í þessum mánuði. Körfubolti 2. febrúar 2007 01:15
Carmelo Anthony ekki valinn í stjörnuliðið Framherjinn Carmelo Anthony hjá Denver var ekki á meðal þeirra leikmanna sem í kvöld voru valdir sem varamenn í Stjörnuleiknum sem fram fer í Las Vegas síðar í þessum mánuði. Talið er víst að þáttaka Anthony í slagsmálunum í New York fyrir nokkrum vikum hafi spilað stóran þátt í því að þessi stigahæsti leikmaður í NBA var ekki valinn í liðið. Körfubolti 2. febrúar 2007 01:05
Fjórða tap Denver í röð Fjöldi leikja fór fram í NBA deildinni í nótt. Denver tapaði sínum fjórða leik í röð í nótt þegar liðið lá fyrir Portland á útivelli. Utah skellti San Antonio og Kobe Bryant sneri aftur með látum eftir leikbann og færði Boston 13. tapið í röð. Körfubolti 1. febrúar 2007 13:20
Boozer úr leik í 4-6 vikur Framherjinn Carlos Boozer hjá Utah Jazz verður frá keppni í 4-6 vikur eftir að í ljós kom að hann er með brákað bein í fæti eftir samstuð í leik gegn New Orleans á mánudagskvöldið. Þetta er mikið áfall fyrir lið Utah sem komið hefur verulega á óvart í NBA deildinni í vetur. Körfubolti 31. janúar 2007 19:25
Rodman í raunveruleikasjónvarp (myndbrot) Villingurinn og fyrrum NBA leikmaðurinn Dennis Rodman er nú kominn með sinn eigin raunveruleikasjónvarpsþátt sem framleiddur er af Mark Cuban, eiganda Dallas Mavericks. Þátturinn hefur fengið nafnið Geak to Freak og fjallar um það hvernig Rodman hjálpar venjulegu fólki að sleppa fram af sér beislinu. Smelltu á hlekkinn í fréttinni til að sjá brot úr þættinum. Körfubolti 31. janúar 2007 15:30
Eddie Jones á leið til Miami á ný Hinn fjölhæfi Eddie Jones hjá Memphis Grizzlies er nú að ganga frá því að verða keyptur út úr samningi sínum við félagið og fregnir herma að hann muni ganga í raðir meistara Miami Heat á morgun. Jones, sem bæði getur spilað sem bakvörður og framherji, spilaði í sex ár með Miami á sínum tíma. Körfubolti 31. janúar 2007 11:59
Þriðja tap Lakers í röð LA Lakers tapaði í nótt þriðja leik sínum í röð þegar liðið lá fyrir New York Knicks á útivelli 99-94, en liðið var án Kobe Bryant sem tók út leikbann. Miami þurfti hinsvegar ekki á Shaquille O´Neal að halda til að bursta Milwaukee og Dallas fékk góða hjálp úr óvæntri átt til að vinna Seattle. Körfubolti 31. janúar 2007 11:30
Kobe Bryant í bann fyrir olnbogaskot Kobe Bryant hjá LA Lakers verður ekki með liðinu í nótt þegar það mætir New York Knicks eftir að hann var dæmdur í eins leiks bann fyrir að gefa Manu Ginobili hjá San Antonio olnbogaskot í leik liðanna á sunnudagskvöld. Bryant er steinhissa á þessum tíðindum. Körfubolti 30. janúar 2007 18:47
Minnesota stöðvaði 17 leikja sigurgöngu Phoenix Kevin Garnett átti stórleik fyrir Minnesota Timberwolves í nótt þegar liðið stöðvaði 17 leikja sigurgöngu Phoenix Suns í NBA deildinni með 121-112 sigri á heimavelli sínum. Denver á enn í vandræðum þrátt fyrir að vera búið að fá Carmelo Anthony aftur úr meiðslum og Vince Carter tryggði New Jersey sigur á Utah með flautukörfu. Körfubolti 30. janúar 2007 11:48
Finley skoraði flautukörfu gegn LA Lakers Michael Finley skoraði þriggja-stiga körfu og tryggði San Antonio 96-94 sigur á LA Lakers þegar 1,3 sekúndur voru eftir í leik liðanna í NBA-deildinni í nótt. Phoenix gefur ekkert eftir og vann sinn 17. sigur í röð. Körfubolti 29. janúar 2007 11:43
Sagan er með Phoenix Phoenix Suns er óumdeilanlega heitasta liðið í NBA-deildinni um þessar mundir og hefur nú unnið 16 leiki í röð. Sú sigurhrina fer í sögubækur NBA sem sú sjötta besta frá upphafi. Miðað við tölfræðina bendir margt til þess að Phoenix verði meistarar þegar uppi er staðið í haust. Körfubolti 28. janúar 2007 17:00
Chicago með gott tak á Miami Meistarar Miami töpuðu í þriðja sinn á tímabilinu fyrir Chicago í nótt, 100-97. þar sem Shaquille O'Neal lék ekki með. Kirk Hinrich spilaði frábæra vörn á Dwayne Wade og Miami tapaði í fimmta sinn í síðustu sex leikjum. Körfubolti 28. janúar 2007 12:27
Phoenix setti félagsmet Phoenix setti nýtt félagsmet í nótt með 16. sigri sínum í röð í NBA-deildinni. Það var Milwaukee sem lá í valnum í nótt, en allir byrjunarliðsleikmenn Pheonix í leiknum skoruðu yfir 10 stig. Shaquille O´Neal byrjaði sinn fyrsta leik fyrir Miami í langan tíma, en hafði ekki þau áhrif sem vonast var eftir á lið sitt. Körfubolti 27. janúar 2007 12:15
Jackson braut skilorð Bakvörðurinn skrautlegi Stephen Jackson sem nýverið gekk í raðir Golden State Warriors í NBA deildinni, braut skilorð í fyrra þegar hann lenti í áflogum og skaut af byssu fyrir utan strípibúllu í Indianapolis. Dómari í málinu komst það þessu í dag, en Jackson var enn á skilorði eftir áflogin á leik Detroit og Indiana fyrir tveimur árum. Körfubolti 26. janúar 2007 19:30
Philadelphia - Cleveland í beinni á Sýn í kvöld Sjónvarpsstöðin Sýn verður með beina útsendingu frá viðureign Philadelphia 76ers og Cleveland Cavaliers í NBA deildinni á miðnætti í kvöld. Cleveland hefur tapað fimm af síðustu sex leikjum sínum og kom síðasta tap einmitt á heimavelli gegn 76ers í fyrrakvöld. LeBron James og félagar eiga því harma að hefna í kvöld. Körfubolti 26. janúar 2007 15:15
LeBron James fékk flest atkvæði Nú er búið að birta lista yfir þá leikmenn sem verða í byrjunarliðum Austur- og Vesturdeildar í Stjörnuleiknum í NBA deildinni, sem haldinn verður í Las Vegas í næsta mánuði. LeBron James sló Kínverjanum Yao Ming við að þessu sinni og fékk flest atkvæði aðdáenda um allan heim - rúmar 2,5 milljónir atkvæða. Körfubolti 26. janúar 2007 12:55
Chicago stöðvaði sigurgöngu Dallas Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Chicago Bulls stöðvaði átta leikja sigurgöngu Dallas Mavericks og þá tapaði New Jersey þriðja leiknum í röð með aðeins einu stigi þegar liðið lá fyrir LA Clippers. Körfubolti 26. janúar 2007 12:09
Miami tapaði í endurkomu Shaquille O´Neal Shaquille O´Neal spilaði í nótt sinn fyrsta leik með Miami Heat síðan í nóvember þegar hann kom af bekknum í tapi Miami á útivelli fyrir Indiana Pacers. Cleveland er í bullandi vandræðum og tapaði á heimavelli fyrir lágt skrifuðu liði Philadelphia. Báðir leikir fóru í framlengingu. Körfubolti 25. janúar 2007 12:26
Phoenix burstaði Washington Sigurganga Phoenix Suns heldur áfram í NBA deildinni og í dag burstaði liðið Washington á útivelli 127-105 og vann sinn 14. leik í röð. Dallas virðist einnig ósigrandi þessa dagana og skellti Orlando nokkuð auðveldlega á útivelli 111-95. Körfubolti 24. janúar 2007 12:10