Casey rekinn frá Minnesota Dwane Casey, þjálfari Minnesota Timberwolves í NBA deildinni, var látinn taka pokann sinn hjá liðinu í kvöld. Liðið hafði tapað fjórum leikjum í röð, en hefur engu að síður unnið helming leikja sinna í vetur. Casey tók við Minnesota sumarið 2005, en það verður aðstoðarþjálfarinn Randy Wittman tekur við starfi hans. Körfubolti 23. janúar 2007 22:26
Sigur í fyrsta leik Anthony og Iverson með Denver Carmelo Anthony spilaði í nótt sinn fyrsta leik með Denver Nuggets eftir 15 leikja bann og þetta var jafnframt fyrsti leikur hans með Allen Iverson. Lengi hafði verið beðið eftir því að þeir Anthony og Iverson spiluðu sinn fyrsta leik saman og þeir ollu ekki vonbrigðum og tryggðu Denver sigur á Memphis. Körfubolti 23. janúar 2007 11:37
Verður sagan á bandi Phoenix? Phoenix Suns varð í nótt aðeins áttunda liðið í sögu NBA deildarinnar til að ná tveimur 13 leikja sigurhrinum á sama keppnistímabilinu, en áður hafði liðið unnið 15 leiki í röð frá 20. nóvember til 19. desember. Körfubolti 22. janúar 2007 13:24
Þrettán í röð hjá Phoenix Suns Phoenix Suns burstaði Minnesota Timberwolves 131-102 í NBA í nótt og vann þar með sinn 13. leik í röð. Amare Stoudemire skoraði 25 stig fyrir Phoenix, Leandro Barbosa 20 og Shawn Marion skoraði 17 stig og hirti 20 fráköst. Randy Foye skoraði 25 stig fyrir Minnesota. Körfubolti 22. janúar 2007 11:36
Jefferson úr leik Framherjinn Richard Jefferson verður úr leik um óákveðinn tíma í liði New Jersey Nets í NBA eftir að ljóst varð að hann þyrfti að fara í uppskurð vegna ökklameiðsla sem hafa hrjáð hann allar götur síðan í haust. Ljóst er að hann verður frá í að minnsta kosti nokkrar vikur og ekki er ástandið gott fyrir hjá liði Nets, sem hefur valdið stuðningsmönnum sínum gríðarlegum vonbrigðum í vetur. Körfubolti 21. janúar 2007 23:15
Flugeldasýning í boði Phoenix í kvöld? Fastlega má búast við því að hið frábæra lið Phoenix Suns bjóði áskrifendum NBA TV á Fjölvarpinu upp á skrautsýningu klukkan eitt í nótt þegar liðið tekur á móti Minnesota Timberwolves. Tveir bestu menn gestanna, þeir Kevin Garnett og Ricky Davis, verða í leikbanni og því verður forvitnilegt að sjá hvort liðinu tekst að hanga í Phoenix sem hefur unnið 12 leiki í röð. Körfubolti 21. janúar 2007 21:46
Góð sárabót fyrir Dallas Einum leik er lokið í NBA í dag en hér var á ferðinni einvígi liðanna sem börðust um meistaratitilinn í fyrra. Þetta var fyrsti leikur liðanna síðan Miami tryggði sér titilinn í sumar, en Dallas kom fram hefndum með góðum sigri á útivelli 99-93 þar sem Jerry Stackhouse var hetja gestanna og skoraði 16 stig í fjórða leikhlutanum. Körfubolti 21. janúar 2007 21:10
Óeftirminnileg endurkoma Artest til Detroit Ron Artest hagaði sér vel í nótt þegar hann sneri loks aftur til Detroit með liði sínu Sacramento, en þangað hafði hann ekki komið síðan hann varð valdur að uppþoti þar fyrir tveimur árum sem kostaði hann yfir 70 leikja bann. Detroit vann auðveldan sigur 91-74 í nótt. Körfubolti 21. janúar 2007 14:09
Artest mætir til Detroit með hanakamb Villingurinn Ron Artest hjá Sacramento Kings ætlar ekki beinlínis að láta lítið fyrir sér fara í nótt þegar hann mætir í The Palace, heimavöll Detroit Pistons, í fyrsta skipti síðan hann lenti þar í einum frægustu slagsmálum í sögu hópíþrótta í Bandaríkjunum fyrir um tveimur árum. Artest lét félaga sinn raka á sig hanakamb í gærkvöldi. Körfubolti 20. janúar 2007 22:17
New Jersey - Orlando í beinni í nótt Leikur New Jersey Nets og Orlando Magic verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu klukkan eitt eftir miðnætti í nótt. Hér eru á ferðinni tvö af bestu liðum Austurdeildar og er áhorfendum gefst þarna færi á að sjá einn efnilegasta miðherja deildarinnar Dwight Howard hjá Orlando. Körfubolti 20. janúar 2007 19:58
Heitt í kolunum í Minneapolis Það var heitt í kolunum í Minneapolis í nótt þegar Detroit Pistons kom í heimsókn og vann frækinn 104-98 sigur í tvíframlengdum leik. Kevin Garnett og Antonio McDyess var vísað úr húsi eftir að þeim lenti saman og gæti Garnett átt yfir höfði sér leikbann eftir að hann sló til mótherja síns. Körfubolti 20. janúar 2007 13:23
Dallas - LA Lakers á Sýn í kvöld Stórleikur Dallas Mavericks og LA Lakers sem fram fór í NBA deildinni í gærkvöldi verður sýndur á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld klukkan 23:30. Hér eru á ferðinni tvö af bestu liðum deildarinnar sem hafa verið á miklu flugi undanfarið. Körfubolti 19. janúar 2007 18:45
Sigurganga Dallas heldur áfram Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Ótrúleg sigurganga Dallas Mavericks hélt áfram þegar liðið lagði LA Lakers örugglega á heimavelli sínum 114-95. Josh Howard skoraði 29 stig og hirti 11 fráköst fyrir Dallas og Dirk Nowitzki skoraði 27 stig og hirti 10 fráköst. Kobe Bryant var atkvæðamestur hjá Lakers með 26 stig. Körfubolti 19. janúar 2007 09:52
Ný körfuboltahöll Nets fær nafnið Barclays Center Barclays-bankinn á Englandi, sem m.a. er stuðningsaðili ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, ætlar nú í aukna útrás í Bandaríkjunum. Bankinn hefur skrifað undir 20 ára styrktarsamning við NBA lið New Jersey Nets sem flytja mun til Brooklyn á næstu árum. Þar er áformað að byggja glæsilega höll á stórum reit í borginni og reiknað er með að kostnaður verði hátt í 300 milljarðar íslenskra króna. Körfubolti 18. janúar 2007 20:04
Brown verður ekki sóttur til saka fyrir tertukast Lögregluyfirvöld í Los Angeles hafa ákveðið að aðhafast ekki frekar í máli manns sem segir framherjann Kwame Brown hjá LA Lakers hafa leikið sig ansi grátt um síðustu helgi, en þetta er ekki í fyrsta skipti sem Brown er sakaður um vafasama iðju utan vallar. Körfubolti 18. janúar 2007 15:13
Indiana og Golden State stokka upp Lið Indiana Pacers og Golden State Warriors gerðu með sér mikil og stór leikmannaskipti í NBA deildinni í gærkvöldi, en þessi viðskipti liðanna komu sérfræðingum í deildinni mjög á óvart. Svo virðist sem hvorugt liðið komi áberandi betur út úr skiptunum, en átta leikmenn skiptu um heimilisfang í viðskiptunum. Körfubolti 18. janúar 2007 12:49
Tap í fyrsta leik hjá Webber Utah Jazz eyðilagði í nótt frumraun Chris Webber með Detroit Pistons, sem einnig endurheimti leikstjórnandann Chauncey Billups úr meiðslum. LA Lakers vann góðan útisigur á San Antonio og Cleveland steinlá fyrir Portland á útivelli. Körfubolti 18. janúar 2007 12:09
Stórleikur Tracy McGrady dugði skammt Texasliðin Dallas og Houston áttust við í NBA deildinni í nótt og var það sjóðheitt lið Dallas sem hafði betur 109-96 eftir að hafa staðið af sér stórskotahríð Tracy McGrady hjá Houston, en hann skoraði 21 af 45 stigum sínum í fyrsta leikhlutanum. Dirk Nowitzki skoraði 30 stig og hirti 10 fráköst fyrir Dallas. Körfubolti 17. janúar 2007 13:23
Ætlar sér að vinna titil Chris Webber mun spila með Detroit Pistons í NBA-deildinni í vetur. Nú er að sjá hvort hann geti hjálpað Pistons á svipaðan hátt og Rasheed Wallace gerði á meistaraárinu 2004. Körfubolti 17. janúar 2007 08:30
Anthony körfuboltamaður ársins í Bandaríkjunum Framherjinn Carmelo Anthony hjá Denver Nuggets var í dag kjörinn körfuboltamaður ársins í Bandaríkjunum fyrir frammistöðu sína með landsliðinu á HM í körfubolta sem fram fór í Japan í fyrra. Þetta þykja mörgum nokkuð kaldhæðnislegar fréttir í ljósi þess að hann situr nú af sér 15 leikja bann í NBA fyrir slagsmál. Körfubolti 16. janúar 2007 18:13
LA Lakers lagði Miami Fjöldi leikja fór fram í NBA deildinni á degi Martin Luther King í Bandaríkjunum. Kobe Bryant og félagar í LA Lakers stöðvuðu sigurgöngu Miami með 124-118 sigri í framlengdum leik í Staples Center í Los Angeles. Körfubolti 16. janúar 2007 13:19
Dallas með sigurkörfu á síðustu sekúndu Josh Howard tryggði Dallas sigur á Toronto í NBA-deildinni í nótt með því að skora sigurkörfuna þegar innan við sekúnda var til leiksloka. Dallas náði að vinna upp 16 stiga forystu Toronto á tiltölulega skömmum tíma og tryggja sér þannig sinn 17. sigur í síðustu 18 leikjum. Körfubolti 15. janúar 2007 12:13
10 þúsund fráköst hjá Garnett Kevin Garnett, leikmaður Minnesota, skorað 32 stig og reif niður 14 fráköst í 109-98 sigri liðs síns á New Jersey í NBA-deildinni í nótt. Garnett hefur nú tekið 10.007 fráköst á ferlinum og er hann 32. leikmaðurinn í sögu deildarinnar sem rýfur 10 þúsund frákasta múrinn. Pheonix vann sinn áttunda leik í röð í nótt. Körfubolti 14. janúar 2007 12:45
Allen og Nowitzki stálu senunni Dirk Nowitzki hjá Dallas og Ray Allen hjá Seattle voru menn næturinnar í NBA-boltanum. Nowitzki skoraði 43 stig, það mesta sem hann hefur skorað á leiktíðinni, þegar Dallas lagði Indiana af velli en Allen gerði enn betur og setti niður 54 stig í sigri Seattle á Utah. Allen hefur aldrei skorað meira á sínum ferli. Körfubolti 13. janúar 2007 12:39
Phoenix - Cleveland á Sýn í kvöld Stórleikur Phoenix Suns og Clevleland Cavaliers frá því í gærkvöld verður sýndur á sjónvarpsstöðinni Sýn á miðnætti í kvöld. Óhætt er að lofa áhorfendum Sýnar góðum tilþrifum að þessu sinni, en þarna áttust við tveir af bestu leikmönnum deildarinnar Steve Nash og LeBron James. Körfubolti 12. janúar 2007 19:18
Kidd lætur skrautlegan skilnað ekki hafa áhrif á sig Leikstjórnandinn magnaði Jason Kidd hjá New Jersey Nets lætur erfiðan hjónaskilnað ekki hafa áhrif á leik sinn með liðinu og í nótt fór hann á kostum þegar Nets lagði Chicago Bulls á útivelli í NBA deildinni. Þá var stórleikur í Phoenix þar sem heimamenn tóku á móti Cleveland, en sá leikur verður sýndur á Sýn í kvöld. Körfubolti 12. janúar 2007 12:10
Segir eiginkonuna hafa lamið sig í mörg ár Ein skærasta stjarna NBA-deildarinnar, Jason Kidd, leikmaður New Jersey Nets, hefur sótt um skilnað frá eiginkonu sinni til síðustu tíu ára. Málið hefur vakið mikla athygli vestra enda sakar Kidd eiginkonu sína um áralanga misnotkun, líkamlega sem andlega. Kidd sótti um skilnað degi eftir að hann fór fram á tímabundið nálgunarbann á eiginkonuna. Körfubolti 12. janúar 2007 00:01
O´Neal, Walker og Posey farnir að æfa með Miami Meisturum Miami Heat hefur borist góður liðstyrkur það sem það er nú á miðju keppnisferðalagi um vesturströnd Bandaríkjanna, því þeir Shaquille O´Neal, Antoine Walker og James Posey mættu allir á æfingu liðsins þar sem það var statt í San Francisco í dag. Körfubolti 11. janúar 2007 20:16
Boykins á leið til Milwaukee Minnsti leikmaðurinn í NBA deildinni, leikstjórnandinn Earl Boykins hjá Denver Nuggets, er á leið til Milwaukee Bucks ásamt framherjanum Julius Hodge í skiptum fyrir bakvörðinn Steve Blake. Þetta er fyrst og fremst ráðstöfun til að spara peninga af hálfu Denver, en Milwaukee liðið er í gríðarlegum meiðslavandræðum þessa dagana. Körfubolti 11. janúar 2007 17:58
Wade kemur Miami til bjargar Hinn magnaði Dwyane Wade hjá meisturum Miami er kominn aftur á fulla ferð eftir að missa úr fjóra leiki vegna meiðsla og segist ekki hafa verið eins ferskur lengi. Það sýndi sig í nótt þegar hann tryggði Miami 107-103 sigur á Seattle með því að skora 14 af 29 stigum sínum á síðustu 8 mínútunum. Körfubolti 11. janúar 2007 14:08