Jón Arnór bikarmeistari með Napoli Landsliðsmaðurinn Jón Arnór Stefánsson varð í gærkvöld ítalskur bikari með liði sínu Napoli þegar það bar sigurorð af Roma í úrslitaleik 85-83. Jón skoraði 9 stig í leiknum. Sport 20. febrúar 2006 15:01
James fór fyrir Austurliðinu LeBron James varð í nótt yngsti leikmaðurinn í sögu NBA til að vera kjörinn besti leikmaður Stjörnuleiksins þegar hann skoraði 29 stig og leiddi lið Austurstrandarinnar til sigurs gegn Vesturliðinu 122-120, eftir að Austurliðið hafði lent 21 stigi undir á tímabili í leiknum. Sport 20. febrúar 2006 06:01
Robinson sýndi bestu tilþrifin Nate Robinson, nýliði New York Knicks, sigraði í troðslukeppni NBA sem haldin er árlega í kringum Stjörnuleikinn sem fer fram í Houston í nótt. Leikurinn hefst klukkan 1.30 og verður í beinni útsendingu á Sýn. Sport 19. febrúar 2006 16:24
Andre Iguodala sló í gegn Andre Iguodala leikmaður Philadelpia 76ers fór á kostum í Nýliðaeinvíginu sem fram fór í nótt en leikurinn fór fram í Houston. Stjörnuleikurinn fer fram á morgun og verður í beinni útsendingu á Sýn. Sport 18. febrúar 2006 13:27
Cappello eftirmaður Eriksson? Ítalska blaðið Corriere dello sport greinir frá því í dag að Fabio Capello stjóra Juventus hafi verið boðið að taka við enska landsliðinu í sumar og segir að hann fái fyrir um 19 milljónir punda. Enska knattspyrnusambandið hefur þó séð ástæðu til að vísa þessum fréttum á bug og neitar því alfarið að búið sé að finna eftirmann Sven-Göran Eriksson. Sport 17. febrúar 2006 18:30
Phoenix valtaði yfir Houston Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt, en þetta voru síðustu leikirnir í deildinni fyrir hlé sem gert er vegna Stjörnuleiksins um helgina. Phoenix Suns valtaði yfir Houston á heimavelli sínum 109-75, þar sem Steve Nash skoraði 21 stig og Shawn Marion 16 fyrir Phoenix, en Stromile Swift skoraði 13 stig fyrir Houston. Sport 17. febrúar 2006 12:58
Chicago - Philadelphia í beinni Í kvöld verður síðasta beina útsendingin úr deildarkeppninni í NBA áður en kemur að fjögurra daga hlé vegna Stjörnuhelgarinnar í Houston. Leikur kvöldsins er viðureign Chicago Bulls og Philadelphia 76ers, en útsending hefst skömmu eftir miðnættið í nótt. Sport 16. febrúar 2006 21:15
Stórleikur LeBron James LeBron James átti sannkallaðan stórleik þegar lið hans Cleveland bar sigurorð af Boston 113-109 í tvíframlengdum leik í nótt. James skoraði 43 stig, hirti 12 fráköst og gaf 11 stoðsendingar fyrir Cleveland, en Paul Pierce hjá Boston varð fyrsti maðurinn í sögu félagsins síðan Larry Bird árið 1989 til að skora 50 stig í leik. Sport 16. febrúar 2006 14:22
Darko Milicic farinn til Orlando Magic Darko Milicic-tilrauninni er lokið í Detroit, því í nótt skipti liðið honum til Orlando Magic á samt leikstjórnandanum Carlos Arroyo og fékk í skiptum hinn meidda miðherja Calvin Cato og valrétt í nýliðavalinu á næsta ári. Sport 16. febrúar 2006 00:36
Radmanovic til LA Clippers Lið Los Angeles Clippers fékk í gær góðan liðsstyrk þegar það skipti framherja sínum Chris Wilcox til Seattle Supersonics fyrir serbnesku skyttuna Vladimir Radmanovic. Radmanovic er fjölhæfur leikmaður sem er fyrst og fremst þekktur fyrir langskot og er honum ætlað að skerpa á sóknarleik liðsins. Sport 15. febrúar 2006 15:35
Cleveland stöðvaði San Antonio LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers stöðvuðu sigurgöngu San Antonio í nótt með 101-87 sigri á heimavelli sínum. James fór á kostum og skoraði 44 stig í leiknum, en Tim Duncan skoraði 19 stig og hirti 10 fráköst hjá liði San Antonio sem greinilega var þreytt eftir erfiðan leik kvöldið áður. Sport 14. febrúar 2006 15:41
Hughes frá út tímabilið Skotbakvörðurinn Larry Hughes hjá Cleveland Cavaliers verður frá keppni það sem eftir lifir tímabilsins eftir að hafa gengist undir aðra aðgerð sína á stuttum tíma vegna fingurbrots. Fyrir skömmu kom í ljós að fyrri aðgerðin hafði ekki tekist sem skildi og því er ljóst að hann missir úr aðrar 8-10 vikur. Sport 14. febrúar 2006 07:15
Cleveland - San Antonio í beinni á miðnætti Hann verður ekki af verri endanum sjónvarpsleikur kvöldsins á NBA TV á Digital Ísland, því þar mætast Cleveland Cavaliers og meistarar San Antonio Spurs og hefst leikurinn á slaginu tólf á miðnætti. Sport 13. febrúar 2006 19:30
Miami - Detroit endursýndur í dag Rétt er að minna aðdáendur NBA körfuboltans á að leikur Miami Heat og Detroit Pistons frá í gærkvöldi er endursýndur á Sýn nú klukkan 18:30, en leikurinn var gríðarlega skemmtilegur á að horfa. Dwayne Wade leikmaður Miami fór á kostum í leiknum og skoraði 37 stig, flest þeirra á lokakaflanum sem var frábær skemmtun. Sport 13. febrúar 2006 18:04
Níundi sigur San Antonio í röð Meistarar San Antonio Spurs unnu sinn níunda leik í NBA í nótt þegar liðið skellti Indiana á útivelli 92-88. Manu Ginobili skoraði 29 stig fyrir San Antonio, en Stephen Jackson skoraði 17 stig fyrir Indiana. Sport 13. febrúar 2006 13:30
Dwayne Wade skaut Detroit í kaf Dwayne Wade, leikmaður Miami Heat, setti á svið sannkallaða skotsýningu í gærkvöldi þegar hann bar lið sitt á herðum sér og skaut það einn síns liðs til sigurs gegn efsta liði deildarinnar Detroit Pistons, 100-98, en leikurinn var sýndur á Sýn. Sport 13. febrúar 2006 05:30
Miami - Detroit í beinni á Sýn Stórleikur Miami Heat og Detroit Pistons er nú nýhafinn og er í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn þar sem þeir Benedikt Guðmundsson og Svali Björgvinsson fara á kostum í lýsingum sínum. Miami hefur ekki gengið vel gegn bestu liðum deildarinnar í vetur og vill því eflaust ná að leggja efsta lið deildarinnar í leik kvöldsins. Sport 12. febrúar 2006 22:11
Memphis lagði LA Lakers Memphis Grizzlies lagði LA Lakers á útivelli í nótt 100-99, en leikurinn var í beinni útsendingu á NBA TV. Pau Gasol var góður í liði Memphis og skoraði 31 stig, hirti 12 fráköst og gaf 7 stoðsendingar, en Kobe Bryant var með 26 stig hjá Lakers. Sport 12. febrúar 2006 13:52
Denver stöðvaði sigurgöngu Dallas Fjölmargir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt og þar bar hæst að 13 leikja sigurgöngu Dallas lauk í Denver þar sem heimamenn höfðu sigur 113-104. Kenyon Martin sneri aftur úr meiðslum og skoraði 34 stig fyrir Denver, en Keith Van Horn skoraði 21 stig fyrir Dallas. Sport 11. febrúar 2006 16:00
Dallas valtaði yfir Miami Sjóðheitt lið Dallas Mavericks var aldrei í vandræðum með Miami Heat í leik liðanna í NBA í nótt og vann 112-76. Þetta var 13. sigur Dallas í röð í deildinni og var sigurinn svo öruggur að lykilmenn Dallas gátu sest á bekkinn í síðasta leikhlutanum. Dirk Nowitzki skoraði 27 stig fyrir Dallas, en Shaquille O´Neal skoraði 23 stig fyrir Miami. Sport 10. febrúar 2006 14:14
Fjórir leikmenn frá Detroit í Stjörnuleiknum Nú í kvöld var tilkynnt hvaða leikmenn skipa lið austurs og vesturs í Stjörnuleiknum í NBA sem fram fer í Houston þann 19. febrúar næstkomandi. Þjálfarar í deildinni völdu fjóra leikmenn frá Detroit í austurliðið og þá eru fimm leikmenn í stjörnuliði í fyrsta sinn. Sport 10. febrúar 2006 00:26
Dallas - Miami í beinni útsendingu Það verður sannkallaður stórleikur í beinni útsendingu á NBA TV í nótt þegar heitasta liðið í NBA, Dallas Mavericks, tekur á móti Shaquille O´Neal og félögum í Miami Heat. Leikurinn hefst klukkan eitt eftir miðnætti og þar verður forvitnilegt að sjá hvort Dallas-liðið nær að vinna sinn 13. leik í röð í deildinni, sem yrði met í vetur. Sport 9. febrúar 2006 22:44
Sjöundi sigur San Antonio í röð Meistarar San Antonio Spurs unnu í nótt sjöunda sigur sinn í röð í NBA deildinni þegar liðið vann nauman sigur á Toronto Raptors eftir framlengingu 125-118. Tim Duncan gat ekki leikið með San Antonio vegna veikinda, en Tony Parker tók upp hanskann fyrir hann og skoraði 32 stig og gaf 13 stoðsendingar. Sport 9. febrúar 2006 14:06
Richardson ver titil sinn Quentin Richardson, leikmaður New York Knicks, mun verja titil sinn í þriggja stiga skotkeppninni um stjörnuhelgina í Houston þann 18. febrúar næstkomandi. Richardson vann keppnina sem leikmaður Phoenix í fyrra. Sport 8. febrúar 2006 20:21
Annað tap Detroit í nótt Detroit Pistons tapaði afar óvænt öðrum leik sínum í röð í NBA deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið lá fyrir lágt skrifuðu liði Atlanta Hawks 99-98. Tayshaun Prince skoraði 29 stig fyrir Detroit, en Joe Johnson skoraði sömuleiðis 29 stig fyrir Atlanta. Þetta var í fyrsta sinn sem Detroit tapar tveimur leikjum í röð í vetur. Sport 8. febrúar 2006 14:15
Fjórði sigur Houston í röð Lið Houston Rockets er óðum að rétta úr kútnum eftir að þeir Yao Ming og Tracy McGrady sneru báðir til baka úr meiðslum og í nótt vann liðið fjórða leik sinn í röð þegar það skellti Philadelphia á útivelli 87-81. Yao Ming skoraði 27 stig og hirti 12 fráköst fyrir Houston, en Allen Iverson skoraði 32 stig fyrir Philadelphia. Sport 7. febrúar 2006 13:37
Enn tapar New York New York Knicks tapaði enn einum leiknum í nótt þegar liðið lá á heimavelli fyrir Houston Rockets 93-89. Jamal Crawford skoraði 24 stig fyrir New York, en Tracy McGrady skoraði 23 fyrir Houston. Sport 6. febrúar 2006 11:45
Áttundi heimasigurinn í röð gegn Chicago Shawn Marion og Steve Nash áttu enn einn stórleikinn fyrir Phoenix Suns sem unnu 118-101 sigur á Chicago Bulls í NBA körfuboltanum í nótt. Hjá Chicago náði Ben Gordon að bæta persónulegt met sitt með því að skora 39 stig. Þetta var áttundi heimasigur Suns í röð gegn Chicago sem hefur ekki unnið leik í Phoenix síðan 20. nóvember 1996 eða þegar Michael Jordan lék með liðinu. Sport 5. febrúar 2006 11:48
Charlotte lagði Lakers Að venju var leikið í NBA deildinni í körfbolta í Bandaríkjunum í nótt og ber þar hæst tap LA Lakers fyrir Charlotte Bobcats, 112,-102. Kobe Bryant skoraði 35 stig fyrir Lakers en hann skoraði ekkert í síðasta leikhlutanum. Jumaine Jones setti prsónulegt stigamet þegar hann gerði 31 stig fyrir Charlotte en fyrir leikinn höfðu Bobcats tapað 13 leikjum í röð. Sport 4. febrúar 2006 14:28
Enginn Detroit-leikmaður í byrjunarliði Nú hefur verið tilkynnt hvaða leikmenn skipa byrjunarlið Austur- og Vesturstrandar í árlegum Stjörnuleik í NBA deildinni, en hann fer fram í 55. skipti þann 19. febrúar. Leikurinn verður háður í Houston-borg að þessu sinni og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn. Sport 3. febrúar 2006 14:30