Hill íhugar að hætta eftir næsta tímabil Framherjinn Grant Hill hjá Orlando Magic hefur viðurkennt að hann íhugi að leggja skóna á hilluna eftir næsta keppnistímabil í NBA deildinni, en Hill hefur sem kunnugt er átt við þrálát meiðsli að stríða allar götur síðan hann gekk til liðs við Orlando árið 2000. Sport 3. janúar 2006 18:30
New York lagði Phoenix í maraþonleik Fimm leikir fóru fram í NBA deildinni í körfuknattleik í nótt og þar bar hæst viðureign New York Knicks og Phoenix Suns, þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en í þriðju framlengingu. New York hafði betur 140-133. Sport 3. janúar 2006 11:15
Miami burstaði Minnesota Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Miami burstaði Minnesota 97-70 eftir að jafnræði hafði verið með liðunum í fyrri hálfleik. Pat Riley las hressilega yfir sínum mönnum í hálfleiknum og það dugði, því Miami fékk aðeins á sig 26 stig í síðari hálfleiknum. Dwayne Wade var stigahæstur í jöfnu liði Miami með 19 stig, en Wally Szczerbiak skoraði mest hjá Minnesota, 19 stig. Sport 2. janúar 2006 13:36
Cleveland stöðvaði Detroit LeBron James og félagar í Cleveland Cavaliers stöðvuðu níu leikja sigurgöngu Detroit Pistons í nótt með öruggum 97-84 sigri á heimavelli sínum. James skoraði 30 stig, hirti 7 fráköst og gaf 7 stoðsendingar fyrir Cleveland, en Rasheed Wallace og Rip Hamilton skoruðu 21 stig hvor fyrir Detroit sem er þó enn með bestan árangur allra liða í deildinni. Sport 1. janúar 2006 08:00
Áttundi sigur New Jersey í röð New Jersey Nets vann sinn áttunda leik í röð í nótt þegar liðið sigraði Atlanta Hawks 99-91. Vince Carter skoraði 37 stig fyrir New Jersey, en Al Harrington var atkvæðamestur hjá Atlanta með 26 stig. Alls voru spilaðir níu leikir í deildinni í nótt. Sport 31. desember 2005 15:39
Bryant fær tveggja leikja bann Kobe Bryant, leikmaður Los Angeles Lakers, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann fyrir að gefa Mike Miller hjá Memphis ljótt olnbogaskot í leik liðanna á miðvikudagskvöldið. Höggið var einsskonar hefndarhögg hjá Bryant, sem fékk skurð á augað eftir Miller og svaraði hressilega fyrir sig þegar hann sneri aftur á völlinn með fimm spor saumuð í andlitið á sér. Sport 31. desember 2005 11:30
Sigurganga Detroit heldur áfram Detroit Pistons vann í nótt níunda leikinn í röð í NBA deildinni þegar það skellti Miami Heat 106-101 á heimavelli sínum, en uppgjör liðanna sem mættust í úrslitum Austurdeildarinnar í fyrra var æsispennandi fram á lokamínúturnar þar sem Pistons sýndi af hverju liðið hefur verið í úrslitum NBA tvö ár í röð. Sport 30. desember 2005 10:15
Marcus Camby fingurbrotinn Frákastahæsti leikmaðurinn í NBA-deildinni, miðherjinn Marcus Camby hjá Denver Nuggets, er fingurbrotinn og þarf að fara í aðgerð. Það er því ljóst að enn bætast menn á langan meiðslalista liðsins, sem þegar hefur misst einn mann út tímabilið og nokkra aðra í 6-10 leiki. Camby hirti um 12,9 fráköst að meðaltali í leik, auk þess að skora 16 stig og verja yfir 3 skot, svo meiðsli hans eru liðinu mikil blóðtaka. Sport 29. desember 2005 17:30
45 stig frá Bryant dugðu skammt Kobe Bryant skoraði 45 stig fyrir LA Lakers í nótt þegar liðið tapaði naumlega 100-99 fyrir Memphis í framlengingu á heimavelli sínum. Damon Stoudamire skoraði 25 stig og gaf 9 stoðsendingar fyrir Memphis. Sport 29. desember 2005 13:26
Nash íþróttamaður ársins í Kanada Leikstjórnandinn Steve Nash hjá Phoenix Suns var í gær kjörinn íþróttamaður ársins í Kanada með fádæma yfirburðum. Nash var kjörinn verðmætasti leikmaður NBA deildarinnar á liðnu vori og var fyrsti Kanadamaðurinn til að hljóta þann heiður. Íshokkí er að sjálfssögðu langvinsælasta íþróttagreinin í Kanada, en þetta er engu að síður í annað sinn sem Nash hlýtur þessi verðlaun. Sport 28. desember 2005 17:15
Abdur-Rahim kjálkabrotinn Framherjinn Shareef Abdur-Rahim hjá Sacramento Kings verður frá keppni í nokkrar vikur eftir að hafa kjálkabrotnað í leik gegn Portland Trailblazers á mánudagskvöldið. Rahim hélt áfram að spila eftir að hafa fengið högg í andlitið frá Bonzi Wells hjá Portland, en röntgenmyndataka í dag leiddi í ljós að hann er brotinn. Þetta eru ekki góð tíðindi fyrir Sacramento, sem hefur gegnið illa í vetur. Sport 28. desember 2005 16:52
Houston gat ekki án McGrady verið Houston Rockets tapaði enn einum leiknum á heimavelli sínum í nótt, þegar liðið lá gegn Utah Jazz 82-74. Ekki bætti úr skák að besti leikmaður liðsins, Tracy McGrady, þurfti að yfirgefa leikvöllinn í hálfleik til að keyra á fæðingardeildina, þar sem kona hans eignaðist barn. Lið Houston var yfir þegar hann fór, en leikur liðsins hrundi eftir það og leikurinn tapaðist. Sport 28. desember 2005 14:15
Ron Artest sveik mig Körfuboltagoðsögnin Larry Bird, sem gegnir embætti forseta Indiana Pacers, hefur nú fyrst tjáð sig opinberlega um uppátæki Ron Artest á dögunum, þegar hann fór fram á að verða skipt frá félaginu og lagði þar með grunninn að því að eyðileggja tímabilið fyrir liðinu líkt og í fyrra. Sport 27. desember 2005 17:00
Shaq í súmóglímu Pat Riley, forseti og þjálfari Miami Heat, íhugar nú alvarlega að ráða til sín súmóglímumenn til að kljást við tröllið Shaquille O´Neal á æfingum, því honum þykir rétt að búa O´Neal betur undir þau slagsmál sem hann lendir í daglega í NBA deildinni. Sport 27. desember 2005 15:30
Sjötti sigur Cleveland í röð Cleveland Cavaliers vann sinn sjötta leik í röð í NBA deildinni í nótt þegar liðið hafði betur gegn Chicago Bulls á heimavelli sínum 102-91. LeBron James skoraði 32 stig fyrir Cleveland, en Tyson Chandler, Andres Nocioni og Chris Duhon skoruðu allir 15 stig fyrir Chicago, sem er í miklum vandræðum þessa dagana. Sport 27. desember 2005 13:30
Bryant ætlar á Ólympíuleikana Hinn skotglaði Kobe Bryant hjá LA Lakers hefur tilkynnt að hann ætli að gefa kost á sér í landslið Bandaríkjanna í körfubolta fyrir Ólympíuleikana í Peking árið 2008. Þetta kemur fram í LA Times um helgina, en Bryant á að hafa fundað með Jerry Colangelo, framkvæmdastjóra landsliðsins, og tekið þessa ákvörðun í framhaldinu. Sport 26. desember 2005 11:15
Lítið jólaskap í Kobe og Shaq Annað árið í röð mættust fyrrum félagarnir Kobe Bryant og Shaquille O´Neal að kvöldi jóladags með liðum sínum LA Lakers og Miami Heat. Shaq og félagar höfðu betur í gærkvöldi eins og í fyrra 97-92. Þá mættust liðin sem léku til úrslita í fyrra, Detroit Pistons og San Antonio Spurs í Detroit, þar sem heimamenn höfðu betur 85-70. Sport 26. desember 2005 07:00
Kobe og Shaq kljást á jólunum Það er engu líkara en að forráðamenn NBA deildarinnar séu með afbrigðum kaldhæðnir, því annað árið í röð mætast fyrrum liðsfélagarnir og erkifjendurnir Shaquille O´Neal og Kobe Bryant í leik að kvöldi jóladags. Leikur Miami Heat og LA Lakers verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn klukkan 20:30 á jóladag. Sport 23. desember 2005 21:00
Nowitzki og James heitir Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Cleveland vann góðan útisigur á Chicago á útivelli 108-100, þar sem LeBron James skoraði 37 stig fyrir Cleveland, en Ben Gordon var með 22 stig fyrir Chicago. Dallas lagði Sacramento á útivelli 105-95. Dirk Nowitzki skoraði 37 stig fyrir Dallas, en Mike Bibby skoraði 22 stig fyrir Sacramento. Sport 23. desember 2005 10:59
Sacramento tekur á móti Dallas Leikur Sacramento Kings og Dallas Mavericks verður sýndur beint á NBA TV í nótt. Staða þessara liða er mjög ólík, því lið Sacramento á mjög erfitt uppdráttar í vetur, liðið fékk til sín marga nýja leikmenn í sumar og svo hafa meiðsli sett svip sinn á leik liðsins. Allt gengur hinsvegar í haginn hjá Dallas, sem hefur náð frábærum árangri þrátt fyrir að hafa enn ekki geta stillt upp sínu sterkasta liði í vetur. Sport 22. desember 2005 22:00
Artest verður hjá Indiana fram yfir jól Vandræðagemlingurinn Ron Artest hjá Indiana Pacers verður hjá liðinu fram yfir hátíðar, en forráðamenn félagsins segjast bjartsýnir á að geta skipt honum í burtu strax eftir jól. Artest er sagður hafa dregið kröfu sína um að verða skipt frá liðinu til baka, en þolinmæði Indiana er einfaldlega á þrotum og víst þykir að hann hafi spilað sinn síðasta leik með liðinu. Sport 22. desember 2005 17:00
Indiana sigraði LA Clippers Indiana sigraði LA Clippers í nótt 97-75 á heimavelli sínum og færði Clippers fjórða tap sitt í síðustu fimm leikjum sínum. Stephen Jackson var stigahæstur í liði Indiana Pacers með 24 stig, en Elton Brand skoraði 29 stig hjá Clippers. Sport 22. desember 2005 13:25
Kirilenko meiddur Rússneski framherjinn Andrei Kirilenko hjá Utah Jazz lék spilaði ekki með liði sínu í nótt vegna bakmeiðsla sem hann hlaut í leik gegn Milwaukee í byrjun vikunnar og verður væntanlega ekki með liðinu í næstu leikjum. Lið Utah hefur verið einstaklega óheppið með meiðsli í vetur sem og í fyrravetur, en meiðslalisti liðsins hefur verið langur síðan í fyrra haust. Sport 21. desember 2005 21:00
Kobe Bryant skoraði 62 stig í þremur leikhlutum Kobe Bryant fór hamförum með liði LA Lakers í auðveldum 112-90 sigri á Dallas, þar sem hann skoraði 62 stig í aðeins þremur leikhlutum og setti á svið einhverja mestu skotsýningu í sögu deildarinnar. Hann skoraði 30 stig í þriðja leikhlutanum einum, en það er það mesta í einum fjórðung í sögu LA Lakers og Bryant hafði skorað fleiri stig eftir þrjá fjórðunga en allt Dallas-liðið til samans. Sport 21. desember 2005 12:16
Yao Ming verður frá í nokkrar vikur Kínverski risinn Yao Ming hjá Houston Rockets verður frá keppni í nokkrar vikur eftir að hafa farið í aðgerð vegna sýkingar í stórutánni á vinstra fæti. Þetta er mikið áfall fyrir Houston, sem hafði þurft að vera án Tracy McGrady í nokkra leiki á dögunum og gekk vægast sagt illa án hans. Ming hafði aðeins misst úr tvo leiki á ferlinum áður en þessi meiðsli komu upp og skorar að meðaltali 20 stig og hirðir 9 fráköst í leik. Sport 20. desember 2005 21:00
Tvíframlengt hjá Memphis og Detroit Detroit Pistons vann enn einn leikinn í NBA deildinni í nótt þegar liðið vann mjög nauman sigur á Memphis Grizzlies í tvöfaldri framlengingu 106-104. Chauncey Billups skoraði 30 stig fyrir Detroit og gaf 9 stoðsendingar, en Pau Gazol skoraði 32 stig og hirti 13 fráköst fyrir Memphis. Sport 20. desember 2005 14:00
Iquodala jafnaði troðslumet Háloftafuglinn Andre Iguodala hjá Philadelphia skoraði 26 stig í nótt þegar lið hans burstaði Toronto, en hann tróð boltanum alls sex sinnum í leiknum og það er það mesta í fimm ár hjá bakverði í NBA deildinni. Það er hinsvegar Dwayne Wade hjá Miami sem er með flestar troðslur allra bakvarða í NBA í vetur með 51 troðslu, en Iguodala kemur næstur þar á eftir með 39 troðslur. Sport 19. desember 2005 14:45
New Orleans skellti meisturunum New Orleans Hornets gerði sér lítið fyrir og lagði meistara San Antonio í NBA deildinni í nótt 89-76. Hornets héldu Tim Duncan í aðeins 11 stigum, sem er það lægsta sem hann hefur skorað í vetur. Tæplega 20.000 áhorfendur í Oklahoma City trylltust af fögnuði þegar þeir sáu nýliðann Chris Paul eiga frábæran leik og stýra liðinu til sigurs gegn sterku liði San Antonio. Sport 19. desember 2005 11:15
Fyrsta tap Riley með Miami Miami Heat tapaði í nótt fyrsta leiknum sínum undir stjórn Pat Riley þegar liðið lá 115-107 á útivelli, þar sem LeBron James fór á kostum og skoraði 41 stig og gaf 10 stoðsendingar. Dwayne Wade var atkvæðamestur í liði Miami með 33 stig. Sport 18. desember 2005 12:45
Detroit valtaði yfir Chicago Fjöldi leikja var á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Efsta lið deildarinnar Detroit Pistons valtaði yfir Chicago Bulls á heimavelli sínum og hefur nú unnið 17 af fyrstu 20 leikjum sínum á tímabilinu. Sport 17. desember 2005 12:37