Ólafur frá vegna meiðsla Ólafur Stefánsson, leikmaður íslenska landsliðsins og AG Kaupmannahafnar, er nú frá keppni vegna hnémeiðsla. Hann er staddur hér á landi og fer í speglun í dag. Handbolti 26. ágúst 2011 11:30
HSÍ harmar brotthvarf kvennaliðs Stjörnunnar Einar Þorvarðarson, framkvæmdarstjóri HSÍ, segir það slæmt að Stjarnan hafi ákveðið að draga kvennalið sitt í handknattleik úr keppni í N1-deild kvenna í vetur. Þetta var tilkynnt formlega í gær. Handbolti 25. ágúst 2011 12:09
Guif lagði Hauka Tveir leikir fóru fram á Hafnarfjarðarmótinu í handbolta í dag. Sænska liðið Guif, sem Kristján Andrésson þjálfari, vann þriggja marka sigur á Haukum, 24-21. Þá vann FH góðan sigur á Val, 25-20, eftir að hafa verið marki undir í hálfleik. Handbolti 19. ágúst 2011 23:10
Ólafur Víðir kominn heim til HK - þriggja ára samningur Handknattleikskappinn Ólafur Víðir Ólafsson er snúinn aftur heim í Kópavoginn og leikur með HK á næstu leiktíð. Ólafur Víðir, sem lék með Haugesund í norska handboltanum á síðustu leiktíð, skrifaði undir þriggja ára samning við HK. Handbolti 11. ágúst 2011 12:00
Ingimundur: Þarf bara að smyrja ryðgaða sleggjuna Íslenski landsliðsmaðurinn Ingimundur Ingimundarson gekk í gær til liðs við Fram. Ingimundur skrifaði undir eins árs samning en hann mun einnig koma að þjálfun hjá yngri flokkum félagsins. Handbolti 5. ágúst 2011 06:00
Ingimundur Ingimundarson í Fram Landsliðsmaðurinn Ingimundur Ingimundarson er genginn til liðs við Fram. Ingimundur var kynntur á blaðamannafundi í Safamýrinni fyrir stundu. Handbolti 4. ágúst 2011 17:36
Sigurður Eggertsson til liðs við Fram Handknattleiksmaðurinn Sigurður Eggertsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fram. Sigurður kemur til liðsins frá Gróttu sem vann sér sæti í efstu deild á síðustu leiktíð. Handbolti 2. ágúst 2011 14:57
Andri Berg til FH - miklar breytingar hjá Íslandsmeisturunum Handboltakappinn Andri Berg Haraldsson er genginn í raðir Íslandsmeistara FH. Andri er fjórði leikmaðurinn sem gengur í raðir Fimleikafélagsins á undanförnum vikum en félagið hefur einnig misst lykilmenn í atvinnumennsku. Handbolti 25. júlí 2011 14:15
Valur semur við þrjá í handboltanum Handknattleiksdeild Vals hefur endurnýjað samninga sína við Orra Frey Gíslason og Sturlu Ásgeirsson. Þá gekk markvörðurinn Sigurður Ingiberg Ólafsson til liðs við félagið frá FH. Handbolti 29. júní 2011 21:45
Andri Stefan samdi við Val Valsmenn fengu góðan liðsstyrk í dag þegar miðjumaðurinn öflugi, Andri Stefán, skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. Handbolti 23. júní 2011 19:01
Arnar Jón kominn og líklega fleiri á leiðinni Forráðamenn handknattleiksdeildar Stjörnunnar ætla sér stóra hluti næsta vetur og næstu ár. Stefnan er tekin beint upp í N1-deildina næsta vetur og þar ætlar Stjarnan síðan að festa sig í sessi á nýjan leik. Handbolti 23. júní 2011 07:30
Fram fær liðstyrk í handboltanum Ægir Hrafn Jónsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við handknattleiksdeild Fram. Ægir Hrafn sem lék með Gróttu á síðasta tímabili var valinn besti varnarmaður 1. deildar síðasta vetur. Handbolti 16. júní 2011 16:45
Sebastian Alexanderson í Fram Markvörðurinn Sebastian Alexanderson hefur samið við handknattleiksdeild Fram um að leika með karlaliði félagsins á komandi leiktíð. Sebastian, sem verður 42 ára í haust, hefur undanfarin ár þjálfað og leikið með Selfossi. Handbolti 16. júní 2011 09:15
Björgvin Þór á leið til þýska liðsins Rheinland Björgvin Þór Hólmgeirsson sem leikið hefur með Haukum í N1 deild karla í handbolta undanfarin tvö ár hefur ákveðið að ganga til liðs við þýska liðið Rheinland sem féll úr þýsku úrvalsdeildinni í vor. Handbolti 13. júní 2011 13:52
Aron: Gekk gríðarlega vel þegar ég var síðast með liðið. Aron Kristjánsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við Hauka og mun taka aftur við þjálfun meistaraflokks félagsins. Haukar urðu þrisvar Íslandsmeistarar undir stjórn Arons frá 2008 til 2010. Handbolti 8. júní 2011 18:45
Aron búinn að skrifa undir þriggja ára samning við Hauka Aron Kristjánsson er orðinn þjálfari Hauka á nýjan leik en hann skrifaði í dag undir þriggja ára samning við félagið. Aron gerði Hauka að Íslandsmeisturum þrjú ár í röð þegar hann þjálfaði liðið frá 2007-2010. Handbolti 8. júní 2011 14:53
Oddur fer ekki til Wetzlar Ekkert verður af því að landsliðsmaðurinn Oddur Gretarsson gangi í raðir þýska úrvalsdeildarfélagsins Wetzlar sem Kári Kristján Kristjánsson leikur með. Handbolti 31. maí 2011 17:30
Ragnar samdi við FH - Ásbjörn og Ólafur framlengdu Íslandsmeistarar FH í handbolta karla gengu frá samningum við fimm leikmenn í gær, fjórir leikmenn framlengdu samning sinn við félagið og þá gerði Selfyssingurinn Ragnar Jóhannsson, markahæsti leikmaður N1 deildar karla á síðustu leiktíð, eins árs samning við FH. Handbolti 26. maí 2011 11:15
Oddur fær engin svör fyrr en á föstudag Oddur Gretarsson, leikmaður Akureyrar og landsliðsmaður í handbolta, mun ekki vita fyrr en á föstudag hvort hann fái tilboð frá þýskum úrvalsdeildarfélögum. Handbolti 25. maí 2011 13:00
Tveir efnilegir til HK í handboltanum HK fékk til sín tvo efnilega handboltamenn um helgina þegar Stjörnumaðurinn Tandri Már Konráðsson og ÍR-ingurinn Arnór Freyr Stefánsson ákváðu að semja við HK. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Handbolti 24. maí 2011 10:45
Ingimundur líklega á leið til Akureyrar Samkvæmt heimildum Vísis eru talsverðar líkur á því að landsliðsmaðurinn Ingimundur Ingimundarson gangi í raðir Akureyrar fyrir næsta tímabil. Hann hefur síðustu ár leikið með danska liðinu AaB. Handbolti 22. maí 2011 14:23
Haraldur á förum frá Fram - Magnús áfram í markinu Línumaðurinn Haraldur Þorvarðarson er á förum frá Fram eftir að hafa spilað með liðinu um árabil. Samningur Haralds við félagið er runninn út. Fram bauð honum nýjan og lakari samning sem hann ku ekki vera sáttur við. Handbolti 21. maí 2011 13:02
Einar: Ekki verkefni sem maður þarf að vera hræddur við Einar Jónsson, tók í dag að sér þjálfun beggja meistaraflokksliða Fram í handboltanum. Hann hefur þjálfað kvennaliðið í fjögur ár og var aðstoðarþjálfari karlaliðsins í vetur en núna verður hann með bæði liðin á sinni könnu. Handbolti 16. maí 2011 17:19
Einar tekur við karlaliði Fram Handknattleiksdeild Fram hefur boðað til blaðamannafundar síðar í dag þar sem tilkynnt verður um nýjan þjálfara karlaliðs félagsins. Handbolti 16. maí 2011 14:48
Magnús Stefánsson til ÍBV Magnús Stefánsson, sem leikið hefur með Fram undanfarin ár, hefur ákveðið að söðla um og ganga til liðs við 1. deildarlið ÍBV. Handbolti 14. maí 2011 12:45
Aron segist ekki tekinn við Haukaliðinu Handboltaþjálfarinn Aron Kristjánsson segist ekki vera tekinn aftur við Haukum eins og fullyrt er á fréttamiðlinum sport.is í dag. Haukar eru að leita sér að nýjum þjálfara eftir að hafa misst af úrslitakeppni N1 deildar karla í vetur. Handbolti 12. maí 2011 12:30
Ernir Hrafn til reynslu hjá Düsseldorf Valsarinn, Ernir Hrafn Arnarson, er þessa daganna á reynslu hjá handknattleiksliðinu HSG Düsseldorf en liðið leikur í 2. deild. Handbolti 11. maí 2011 16:45
Hreinn Þór hættur í handbolta Hreinn Þór Hauksson, leikmaður Akureyrar, er mjög líklega hættur í handbolta en hann mun fljótlega halda í nám í Svíþjóð. Handbolti 9. maí 2011 16:25
Framarar harma ummæli Reynis Stjórn handknattleiksdeildar Fram hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem ummæli fráfarandi þjálfara, Reynis Þórs Reynissonar, eru hörmuð. Þeim var þó ekki svarað með beinum hætti. Handbolti 9. maí 2011 11:24
Ætla ekki að munnhöggvast við Reyni Reynir Þór Reynisson, sem hætti sem þjálfari Fram í gær, segir að taka þurfi til í leikmannamálum félagsins og bar leikmennina þungum sökunum í viðtali við Fréttablaðið. Handbolti 7. maí 2011 09:30