Bjarni: Ég vil biðja Rothöggið opinberlega afsökunar Bjarni Aron Þórðarson var markahæstur hjá Aftureldingu í tapinu á móti FH í kvöld en hann var allt annað en ánægður í leikslok og bað stuðningsmannasveit liðsins afsökunar á frammistöðu liðsins. FH vann nýliðana örugglega með átta mörkum að Varmá, 27-19. Handbolti 25. nóvember 2010 22:18
Logi fer í pásu eftir Haukaleikinn Logi Geirsson ætlar að taka sér hvíld frá handbolta eftir leik FH og Hauka á þriðjudaginn. Logi hefur verið að drepast í öxlinni upp á síðkastið, hefur ekkert getað æft og ekkert getað skotið í leikjunum. Handbolti 25. nóvember 2010 22:13
Gunnar: Höfum ekki verið rassskelltir fyrr en núna Gunnar Andrésson, þjálfari Aftureldingar var allt annað en sáttur með leik sinna manna í átta marka tap fyrir FH á heimavelli í kvöld. Afturelding komst lítið áleiðis gegn sterkri vörn Hafnarfjarðarliðsins í leiknum. Handbolti 25. nóvember 2010 22:10
Sebastían: Vandamálið er andlegt Við vorum aldrei inn í þessum leik, ekkert frekar en í öllum heimaleikjunum okkar í vetur,“ sagði Sebastian Alexandersson, þjálfari Selfoss, eftir tapið gegn Fram í kvöld. Selfyssingar töpuðu 30-38 gegn Fram í áttundu umferð N1 deild-karla í kvöld en leikurinn fór fram á Selfossi. Handbolti 25. nóvember 2010 22:06
Halldór Jóhann: Mikið sjálfstraust komið í liðið „Þetta var fínn sigur hjá okkur en við spiluðum ekki vel í seinni hálfleiknum,“ sagði Halldór Jóhann Sigfússon, leikmaður Fram, eftir sigurinn á Selfossi í kvöld. Framarar unnu öruggan sigur á Selfyssingum ,30-38, í áttundu umferð N1 deild-karla í kvöld. Handbolti 25. nóvember 2010 21:59
Atli: Sigureðlið er til staðar "Við áttum þetta inni frá Sveinbirni," sagði þjálfarinn Atli Hilmarsson kampakátur eftir 32-31 sigur Akureyrar á HK í kvöld. Handbolti 25. nóvember 2010 21:47
"Heyrðum ekki í hvor öðrum inni á vellinum" - 1300 manns í Höllinni á Akureyri “Þetta hefði getað dottið hvoru megin sem var en þeim tókst að klára þetta. Þeir voru bara sterkari undir lokin,” sagði sársvekktur Daníel Berg Grétarsson eftir leikinn gegn Akureyri í kvöld. Handbolti 25. nóvember 2010 21:34
Umfjöllun: Vörnin og markvarsla Pálmars lykill að öruggum FH-sigri FH-ingar unnu öruggan átta marka sigur á Aftureldingu í Mosfellsbænum í kvöld, 27-19, í N1-deild karla í handbolta. FH-ingar rifu sig upp eftir vandræðalegt tap á heimavelli á móti Akureyri um helgina og hleyptu nýliðunum ekkert áleiðis með sterkri vörn. Handbolti 25. nóvember 2010 21:09
Umfjöllun: Fram vann auðveldan sigur á Selfossi Framarar unnu öruggan sigur á Selfyssingum ,30-38, í áttundu umferð N1-deild karla í kvöld en leikurinn fór fram á Selfossi. Gestirnir höfðu undirtökin allan leikinn og virtust geta spilað sig í gegn um vörn Selfyssinga þegar þeim sýndist. Handbolti 25. nóvember 2010 20:55
Umfjöllun: Sveinbjörn kláraði HK í frábærum leik Akureyri vann magnaðan sigur á HK í N1-deild karla í kvöld, 32-21. Vörn Akureyrar varði frá Daníel Berg Grétarssyni á síðustu sekúndum leiksins. Akureyri er því enn taplaust á toppnum. með fullt hús stiga. Handbolti 25. nóvember 2010 19:41
Haukar unnu nauman sigur á Val - myndir Einar Örn Jónsson var hetja Vals í kvöld er hann skoraði sigurmark Íslandsmeistara Hauka gegn Val á lokasekúndum leiksins. Handbolti 24. nóvember 2010 23:30
Umfjöllun: Einar Örn snéri á Valsmenn á lokasekúndunum Einar Örn Jónsson skoraði sigurmark Hauka rétt fyrir lokaflautið þegar liðið vann 23-22 sigur á Val á Ásvöllum í N1 deild karla í kvöld. Valsmenn höfðu gert vel í að jafna leikinn en Einar Örn átti síðasta orðið. Handbolti 24. nóvember 2010 22:47
Fannar: Erfitt að eiga við Birki þegar hann kemst í gang Fannar Þorbjörnsson og félagar í Valsliðinu náðu ekki að fylgja eftir sigri á Aftureldingu á dögunum þegar þeir sóttu Hauka heim á Ásvelli í kvöld. Haukar unnu leikinn 23-22 með sigurmarki Einars Arnar Jónssonar á síðustu sekúndu leiksins. Handbolti 24. nóvember 2010 22:15
Júlíus: Jafntefli hefði verið sanngjarnast Júlíus Jónasson, þjálfari Valsmanna, þurfti að horfa upp á sína menn tapa í sjöunda sinn í átta leikjum þegar liðið tapaði 23-22 fyrir Haukum á Ásvöllum í kvöld. Valsmenn náðu að jafna leikinn átta sekúndum fyrir leikslok en Haukum tókst að skora sigurmarkið áður en lokaflautið gall. Handbolti 24. nóvember 2010 22:10
Einar Örn: Heppni fylgir gömlum mönnum Einar Örn Jónsson var hetja Haukanna í 23-22 sigri á Val í kvöld því hann skoraði sigurmarkið á lokasekúndu leiksins. Þetta er ekki í fyrsta skiptið sem Einar Örn skorar úrslitamark fyrir Haukanna á dramatískum lokasekúndum. Handbolti 24. nóvember 2010 22:00
Geir æfir með Kiel Geir Guðmundsson, leikmaður Akureyrar handboltafélags, mun halda til Þýskalands í næsta mánuði og æfa með meistaraliði Kiel í eina viku. Handbolti 23. nóvember 2010 10:15
Atli: Markvarslan skapaði sigurinn „Þetta var alveg frábær leikur. Seinni hálfleikurinn var frábær með þessari markvörslu og vörn sem og að við vorum að klára hraðaupphlaupin vel. Við vorum ekki að fá boltann og stoppa heldur fórum við fljótir upp og kláruðum sóknirnar," sagði Atli Hilmarsson þjálfari Akureyrar eftir 33-25 sigur á FH í Kaplakrika í dag. Handbolti 20. nóvember 2010 18:48
Umfjöllun: Sveinbjörn átti stórleik í Kaplakrika Leik FH og Akureyri lauk með 33–25 sigri gestanna í Kaplakrika í dag. Með þessu halda Akureyringar sér á toppnum og en þeir eru búnir að vinna alla sína leiki á meðan FH-ingar eru áfram í 4. sæti. Handbolti 20. nóvember 2010 18:41
Logi: Við vorum í bakkgírnum í seinni hálfleik „Þetta var frekar dapurt í dag og ég bjóst ekki við svona leik ef ég á að segja alveg eins og er," sagði Logi Geirsson leikmaður FH eftir 25-33 tap gegn Akureyri í Kaplakrika í dag. Handbolti 20. nóvember 2010 18:36
Ólafur: Þeir rúlluðu bara yfir dautt lið „Fyrri hálfleikurinn var góður en svo kom kafli í seinni hálfleik sem við vorum að gera allt annað en við ætluðum okkur" sagði Ólafur A. Guðmundsson leikmaður FH eftir 25-33 tap gegn Akureyri í dag. Handbolti 20. nóvember 2010 18:30
Akureyringar fóru illa með FH-inga í seinni hálfleik Akureyri hélt sigurgöngu sinni áfram í N1 deild karla með því að vinna átta marka stórsigur á FH, 33-25 í Kaplakrikanum í dag. Eftir að hafa verið jafnt í fyrri hálfleik settu Akureyringar í fimmta gír í seinni hálfleik og náðu góðu forskoti sem þeir slepptu aldrei. Handbolti 20. nóvember 2010 17:11
HK tapaði með fimm mörkum í Rússlandi HK tapaði 34-39 í fyrri leik sínum á móti rússneska liðinu Kaustik í Evrópukeppni bikarhafa í handbolta en leikirnir fara báðir fram í Rússlandi um helgina. Rússarnir unnu síðustu þrjár mínúturnar 4-1 og tryggðu sér ágætt forskot fyrir seinni leikinn á morgun. Handbolti 20. nóvember 2010 12:45
Frábært ef liðin myndu halda áfram að vanmeta okkur Það verður stórleikur í Kaplakrikanum í dag þegar topplið N1-deildar karla, Akureyri, heimsækir FH-inga sem fyrir mótið var spáð Íslandsmeistaratitlinum. Akureyri hefur unnið alla átta leiki sína í deild og bikar á tímabilinu og hefur fjögurra stiga forskot á FH-liðið sem er í 4. sætinu. Handbolti 20. nóvember 2010 08:00
Sturla: Vonandi fyrsti sigurinn af mörgum Sturla Ásgeirsson, fyrirliði Vals, haltraði af velli í leikslok gegn Aftureldingu í kvöld. Hann fékk slæmt högg á fótinn og var ekki á bætandi þar sem hann hefur verið meiddur upp á síðkastið. Handbolti 18. nóvember 2010 21:48
Bjarni Aron: Sportið er grimmt Mosfellingurinn Bjarni Aron Þórðarson var að vonum svekktur eftir eins marks tap á heimavelli gegn Val í kvöld. Þetta var fyrsti sigur Valsmanna í N1-deildinni í vetur. Handbolti 18. nóvember 2010 21:42
Umfjöllun: Þungu fargi létt af Valsmönnum "Konni er kóngurinn," sungu leikmenn Vals inn í búningsklefa í kvöld eftir 22-23 sigur á Aftureldingu. Fyrsti sigur Valsmanna í vetur staðreynd og augljóslega þungu fargi létt af mönnum þar sem þeir fögnuðu líkt og þeir væru orðnir Íslandsmeistarar. Handbolti 18. nóvember 2010 21:02
Magnús: Bleikt er málið Magnús Gunnar Erlendsson, markvörður Fram, fór mikinn í marki Fram í kvöld og varði 21 skot í 27-31 sigri Fram á Íslandsmeisturum Hauka. Handbolti 17. nóvember 2010 21:45
Ólafur Bjarki með fjórtán í sigri HK Ólafur Bjarki Ragnarsson fór mikinn í liði HK og skoraði fjórtán mörk í fimm marka sigri liðsins á Selfossi í N1-deild karla í kvöld. HK vann með fimm marka mun, 39-34. Handbolti 17. nóvember 2010 21:44
Björgvin: Basl á sókninni hjá okkur Björgvin Þór Hólmgeirsson, leikmaður Hauka, var ekki sáttur eftir fjögurra marka tap Íslandsmeistaranna á heimavelli, 27-31, gegn Fram í N1-deild karla í kvöld. Handbolti 17. nóvember 2010 21:38
Fylkir heldur í við toppliðin Fylkir vann í kvöld öruggan sigur á HK í N1-deild kvenna, 38-29, og heldur því í við topplið deildarinnar. Handbolti 17. nóvember 2010 21:32