800 ný störf í Þorlákshöfn í kringum fiskeldi Fiskeldi á landi verður langstærsta atvinnugreinin í Þorlákshöfn en þar er gert ráð fyrir sex til átta hundruð nýjum störfum í kringum fiskeldi á næstu árum. Á sama tíma er gert ráð fyrir að verja 180 milljörðum króna til þessara framkvæmda Innlent 11. mars 2023 13:04
Segir tímalengd samningsins hafa setið í sjómönnum Formaður sjómannafélags Íslands segir það alls ekki hafa komið á óvart að kjarasamningur sjómanna við Samband félaga í sjávarútvegi hafi verið felldir með afgerandi hætti. Tveir af hverjum þremur sjómönnum greiddu atkvæði gegn samningnum Innlent 11. mars 2023 11:53
Sjómenn hafna tímamótasamningi: „Mikil vonbrigði“ Öll aðildarfélög innan Sjómannasambands Íslands hafa fellt nýgerðan kjarasamning í atkvæðagreiðslu. Samningurinn var talinn vera tímamótasamningur enda gilti hann til tíu ára. Innlent 10. mars 2023 16:41
Líklegt að flakið sem fannst sé úr banaslysi fyrir fimmtán árum Margt bendir til þess að flak og líkamsleifar sem komu upp í togara úti fyrir strendur Reykjaneshryggs séu úr lítilli flugvél sem fórst á leiðinni frá Grænlandi til Íslands í febrúar 2008. Rannsóknarnefnd samgönguslysa og kennslanefnd munu taka málið til skoðunar þegar togarinn kemur í land eftir tæpar tvær vikur. Innlent 10. mars 2023 12:54
Fengu flugvélabrak og líkamsleifar í trollið Áhöfnin á Hrafni Sveinbjarnarsyni GK-255 fékk líkamsleifar og flugvélabrak í troll skipsins á miðvikudag, þegar skipið var að veiðum á Reykjaneshrygg. Innlent 10. mars 2023 06:35
Flotinn mokveiddi hrognafulla loðnu undan Reykjanesi í dag Loðnuvertíðin stendur nú sem hæst. Loðnan er komin að hrygningu og þar með í sitt verðmætasta form og er hver dagur að skila eins til tveggja milljarða króna gjaldeyristekjum. Viðskipti innlent 9. mars 2023 22:44
Fjórum sinnum fleiri neikvæðir en jákvæðir gagnvart sjókvíeldi Um 61 prósent landsmanna eru neikvæð gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum. Þetta kemur fram í nýrri skoðanakönnun Gallup fyrir hagsmunasamtök um verndun laxastofnsins. Aðeins fjórtán prósent svarenda eða fjórum sinnum færri segjast vera jákvæðir gagnvart laxeldi í opnum sjókvíum. Innlent 8. mars 2023 14:08
Kjartan Páll nýr formaður Strandveiðifélags Íslands Kjartan Páll Sveinsson, strandveiðimaður og félagsfræðingur, var kjörinn nýr formaður Strandveiðifélags Íslands á aðalfundi félagsins sem haldinn var síðastliðinn sunnudag. Innlent 8. mars 2023 11:16
Ísfélagið kaupir í Ice Fish Farm og verður einn stærsti hluthafinn Ísfélag Vestmannaeyja hefur náð samkomulagi við aðaleiganda Ice Fish Farm um kaup á 16 prósenta hlut í laxeldisfyrirtækinu á Austfjörðum. Viðskiptin verðmeta Ice Fish Farm, sem er skráð á Euronext-markaðinum í Osló, á 55 milljarða íslenskra króna sem er 70 prósentum yfir markaðsvirði fyrirtækisins í gær. Innherji 8. mars 2023 09:00
Vöruviðskiptin óhagstæð um 25,9 milljarða Fluttar voru út vörur fyrir 73,8 milljarða króna í febrúar 2023 og inn fyrir 99,7 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum. Vöruviðskiptin í febrúar voru því óhagstæð um 25,9 milljarða króna. Til samanburðar voru vöruviðskiptin óhagstæð um 15,1 milljarð króna í febrúar 2022 á gengi hvors árs fyrir sig. Viðskipti innlent 7. mars 2023 10:32
Galin stjórnsýsla Þá er óbreytt strandsvæðaskipulag runnið í gegn hjá Sigurði Inga innviðaráðherra. Það er búið að eyða mikilli vinnu og stórum upphæðum í það. Seyðisfjörður var settur í burðarþolsmat á röngum forsendum skv. svörtu skýrslu Ríkisendurskoðunar, af þáverandi sjávarútvegsráðherra Sigurði Inga Jóhannessyni. Skipulagið er nánast eins og lagt var upp með fyrir fjórum árum. Sjókvíaeldið stjórnaði bæði upphafi og enda. Skoðun 6. mars 2023 09:30
Meint olía reyndist loðna Í reglubundnu eftirlitsflugi í vikunni varð þyrlusveit Landhelgisgæslunnar vör við flekki sem í fyrstu sýn virtust vera olíuflekkir. Við nánari skoðun kom í ljós að um loðnutorfur var að öllum líkindum að ræða. Innlent 3. mars 2023 23:01
Hvernig komast þau upp með þetta? Svona spurði rannsakandi sem hefur skoðað aðferðafræði við gerð fyrsta haf- og strandsvæðaskipulags á Íslandi. Í dag er mikill sorgardagur því Innviðaráðherra Sigurður Ingi staðfesti tillögu svæðiráðs Austfjarða að Strandsvæðaskipulagi fyrir Austfirði! Já það ríkir sorg í hjörtum margra því tillaga svæðisráðs gerir ráð fyrir sjókvíaeldi í Seyðisfirði – akkúrat samkvæmt pöntun laxeldisfyrirækisins. Skoðun 3. mars 2023 20:30
Opinber störf vegna fiskeldis fari á sunnanverða Vestfirði Forystumenn á Vestfjörðum þrýsta á að rannsóknar- og eftirlitsstörf vegna fiskeldis verði staðsett í fjórðungnum enda séu vestfirsk samfélög og firðir undir. Formaður bæjarráðs Vesturbyggðar segir að til þessa hafi ekkert einasta opinbert starf vegna greinarinnar komið á sunnanverða Vestfirði. Innlent 2. mars 2023 21:42
Miklir vaxtamöguleikar sjókvíeldis Matvælaráðherra hefur hrundið á stað vinnu við að uppfylla markmið stjórnarsáttmálans um að mótuð verður heildstæð stefna um uppbyggingu, umgjörð og gjaldtöku fiskeldis. Við þá vinnu verður lögð áhersla á tækifæri til atvinnusköpunar og mikilvægi þess að greinin byggist upp á grundvelli sjálfbærni, vísindalegrar þekkingar og verndar villtra laxastofna. Ei Skoðun 1. mars 2023 21:01
Von á nýjum heildarlögum um fiskeldi á vorþingi 2024 Ný skýrsla Boston Consulting um framtíð lagareldis á Íslandi sýnir að atvinnugreinin geti innan tíðar orðið stór hluti af íslensku hagkerfi og samkvæmt grunnsviðsmynd gæti heildarsöluverðmæti numið allt að 6% af vergri landsframleiðslu eftir tíu ár en til þess að svo megi verða þurfi að bæta úr ýmsum brotalömum. Innlent 1. mars 2023 16:48
Bein útsending: Skýrsla um stöðu og framtíð lagareldis Skýrslu alþjóðlega ráðgjafafyrirtækisins Boston Consulting Group um stöðu og framtíð lagareldis á Íslandi verður kynnt á sérstökum fundi á Grand Hótel í Reykjavík sem hefst klukkan 13:30. Lagareldi er yfirheiti yfir sjókvía-, land-, þörunga- og úthafseldi, en skýrslan var unnin fyrir matvælaráðuneytið. Innlent 28. febrúar 2023 13:31
Ice Fish Farm landar 24 milljarða króna lánalínu og sækir nýtt hlutafé Laxeldisfyrirtækið Ice Fish Farm á Austfjörðum hefur náð samkomulagi við fjóra banka um lánsfjármögnun að fjárhæð 156 milljónir evra, jafnvirði tæplega 24 milljarða króna, og samhliða því hefur verið ákveðið að hefja undirbúning að umfangsmikilli hlutafjáraukningu og skuldbreytingu hluthafalána. Innherji 28. febrúar 2023 13:06
Hjón í nýsköpun: Meira að segja búin að búa til harðfisk án lyktarinnar Atvinnulíf 28. febrúar 2023 07:00
Raunhagkerfið, landsbyggðin og höfuðborgarsvæðið Við þingmenn Framsóknar nýttum nýliðna kjördæmaviku vel og fórum í góða fundarferð um landið þar sem við héldum fjölda opinna funda ásamt því að heimsækja fólk og fyrirtæki um allt land. Skoðun 28. febrúar 2023 06:02
Byggja nýja blokk á bestu lóð Bíldudals Tíu íbúða fjölbýlishús er í smíðum á Bíldudal, það stærsta sem þar hefur risið í nærri hálfa öld. Sveitarfélagið Vesturbyggð og fyrirtækið Arnarlax beittu sér fyrir húsbyggingunni og vonast menn til að fljótlega verði byggt annað álíka stórt, svo mikil er húsnæðisþörfin. Innlent 27. febrúar 2023 20:40
Kafa í allar kvíar vegna gats á netapoka í Ísafjarðardjúpi Matvælastofnun barst tilkynning frá fiskeldisfyrirtækinu Háafelli í dag um gat á netapoka einnar sjókvíar Háafells við Skarðshlíð í Ísafjarðardjúpi. Gatið uppgötvaðist við reglubundið eftirlit á kví C5 og er bráðabirgðaviðgerð lokið. Innlent 27. febrúar 2023 12:48
170 ný störf verða til hjá Landeldi í Þorlákshöfn Framkvæmdir við að koma upp stærsta landeldi landsins á koppinn standa nú yfir í Þorlákshöfn en þar á að ala 40 þúsund tonn af laxi árlega þar sem allur fiskeldisúrgangur stöðvarinnar verður nýttur í öflugan áburð. Um 170 ný störf munu skapast á svæðinu. Innlent 25. febrúar 2023 13:04
Fyrsti áfangi landeldis í Eyjum mun kosta 25 milljarða Félagið Icelandic Land Farmed Salmon (ILFS) vinnur að því að koma á fót landeldi á laxi í Vestmannaeyjum. Horft er til þess að framleiða í fyrsta áfanga um 15 þúsund tonn af laxi á seinni hluta árs 2027 með mögulega stækkun í 30 þús tonn. Um er að ræða um 25 milljarða króna fjárfestingu í fyrsta áfanga. Starfsmenn verða um 100. Innherji 25. febrúar 2023 11:00
„Þetta var svakalegt að sjá eldtungurnar“ Viðbragðsaðilar náðu að bjarga verðmætum Arctic Fish í Tálknafirði þegar húsnæði þess brann í gær og getur regluleg starfsemi fyrirtækisins því haldið áfram, að sögn sveitarstjóra, sem var með þeim fyrstu á vettvang brunans í gær. Innlent 24. febrúar 2023 22:40
Íslensk stjórnvöld stundum „eins og eyðiland í Evrópu,“ segir forstjóri Brims Forstjóri og aðaleigandi Brims gagnrýnir íslensk stjórnvöld, sem hann segir að séu eins og „eyðiland“ í Evrópu, fyrir að neita að ræða við Rússland um nýtingu á veiðirétti Íslands í Barentshafi. Fyrirtækið skilaði metafkomu í fyrra samhliða hagstæðum markaðsaðstæðum fyrir sjávarafurðir og horfur fyrir þetta ár líta „þokkalega út.“ Innherji 24. febrúar 2023 11:21
Eldsupptökin enn óljós Vettvangur stórbruna á Tálknafirði í gær hefur verið afhentur lögreglu til rannsóknar. Engar vísbendingar eru um hver eldsupptök voru en nóg var af eldsmat inni í húsinu. Innlent 24. febrúar 2023 11:21
Beygð en ekki brotin eftir stórbrunann á Tálknafirði Framkvæmdastjóri hjá Arctic Fish segir að bruninn í húsnæði fyrirtækisins á Tálknafirði sé mikið áfall. Tjónið kunni að hlaupa á milljörðum króna. Innlent 23. febrúar 2023 19:32
Tveir iðnaðarmenn með brunasár en ekki í lífshættu Nokkrir iðnaðarmenn voru að stöfum í húsnæði Arctic Fish sem brann á Tálknafirði í morgun. Tveir þeirra hlutu brunasár og voru fluttir á sjúkrahús á Patreksfirði. Innlent 23. febrúar 2023 16:29
Byggingin átti að kosta um fjóra milljarða Gert var ráð fyrir því í kostnaðaráætlun Arctic Fish að byggingin sem brann á Tálknafirði í morgun ætti að kosta um fjóra milljarða króna. Framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar fiskeldisfyrirtækisins segir að nákvæmar tölur um tjón liggi ekki fyrir. Innlent 23. febrúar 2023 11:47