Stjörnusigur í háspennuleik Stjarnan varð fyrsta liðið, fyrir utan KR, að vinna Grindavík í Iceland Express deild karla. Stjarnan vann tveggja stiga sigur, 90-88. Körfubolti 8. janúar 2009 19:52
Steinþór í Stjörnuna Steinþór Freyr Þorsteinsson hefur samið við Stjörnuna og mun leika með liðinu næstu tvö árin. Íslenski boltinn 8. janúar 2009 19:30
Mikill munur á gengi toppliðanna í fyrsta leik ársins síðustu tímabil Fyrsta umferð Iceland Express deildar karla á árinu 2009 hefst með þremur leikjum í kvöld. Það hefur gengið misjafnlega vel hjá liðum deildarinnar að koma sér af stað eftir hátíðarnar síðustu ár. Körfubolti 8. janúar 2009 18:31
Þrír leikir í IE deild karla í kvöld Síðari umferðin í Iceland Express deild karla í körfubolta fer af stað í kvöld með þremur leikjum og þá er einn leikur í kvennaflokki. Körfubolti 8. janúar 2009 15:52
Allt um fyrri umferðina í Iceland Express deildinni Þegar keppni í Iceland Express deild karla er hálfnuð er ekki úr vegi að líta yfir farinn veg. Vísir fékk nokkra ónefnda sérfræðinga í lið með sér til að gera upp það besta og versta í fyrri umferð mótsins. Körfubolti 8. janúar 2009 13:34
Öll tölfræði úrvalsliðanna í Express deildinni Körfuknattleikssambandið birtir á vef sínum ítarlega tölfræðisamantekt Óskars Ófeigs Jónssonar blaðamanns yfir leikmennina sem valdir voru í úrvalslið karla og kvenna í iceland Express deildunum í gær. Körfubolti 7. janúar 2009 11:28
Áttum að vinna öll lið með 30 stigum "Mig grunaði alveg að þetta gæti orðið ég eða Jón Arnór, en þetta kom samt skemmtilega á óvart," sagði KR-ingurinn Jakob Örn Sigurðarson í samtali við Vísi eftir að hann var kjörinn besti leikmaður fyrstu 11 umferða Iceland Express deildarinnar. Körfubolti 6. janúar 2009 15:31
Við erum betri en menn héldu "Ég hefði líklega tekið þessum fimm sigrum fagnandi í byrjun tímabils, en ég er líka svekktur að vera ekki kominn með sjö," sagði Einar Árni Jóhannsson þjálfari Breiðabliks sem í dag var kjörinn besti þjálfarinn í fyrstu ellefu umferðum Iceland Express deildarinnar. Körfubolti 6. janúar 2009 13:38
Jakob og Kristrún best í fyrri umferðinni Jakob Sigurðarson úr KR og Kristrún Sigurjónsdóttir úr Haukum voru nú í hádeginu kjörin bestu leikmennirnir í fyrri umferð Iceland Express deildum karla og kvenna. Körfubolti 6. janúar 2009 12:15
Þorsteinn í raðir Blika á ný Spútnikliði Breiðabliks í Iceland Express deildinni hefur borist góður liðsstyrkur en Þorsteinn Gunnlaugsson hefur ákveðið að ganga til liðs við Blika á ný. Körfubolti 5. janúar 2009 13:30
Þór fékk erlendan framherja Lið Þórs í Iceland Express deildinni hefur fengið til sín erlendan framherja að nafni Konrad Tota sem lék síðast sem atvinnumaður í Slóveníu. Körfubolti 5. janúar 2009 10:34
Skoraði 30 stig handarbrotinn Cedric Isom, leikmaður Þórs í körfubolta, verður frá næstu 4-6 vikurnar að minnsta kosti þar sem hann er með brotið bein í handarbaki. Körfubolti 21. desember 2008 16:36
Grindavík lagði ÍR Nú er komið jólafrí í Iceland Express deildinni og mótið hálfnað eftir að 11. umferðinni lauk með þremur leikjum í kvöld. Körfubolti 19. desember 2008 21:16
KR fer taplaust í jólafrí Þrír fyrstu leikirnir í 11. umferð Iceland Express deild karla í körfubolta fóru fram í kvöld. Körfubolti 18. desember 2008 20:54
Teitur: Liðið á að geta betur „Það stóð alls ekki til að fara strax aftur í þjálfun. Þetta kom fljótt upp og ég skellti mér á þetta," sagði Teitur Örlygsson í viðtali við útvarpsþáttinn Skjálfanda á X-inu. Teitur hefur verið ráðinn þjálfari Stjörnunnar. Körfubolti 18. desember 2008 13:25
Teitur Örlygsson þjálfar Stjörnuna Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur samið við Teit Örlygsson um að taka við þjálfun félagsins. Frá þessu er greint á heimasíðu Garðabæjarliðsins. Körfubolti 18. desember 2008 10:20
Bestu tilþrifin úr Stjörnuleiknum Mikið var um frábær tilþrif í Stjörnuleik KKÍ sem fór fram á Ásvöllum í gær. Á vef Körfuknattleikssambandsins má sjá myndbönd úr skotkeppninni og troðkeppninni svo eitthvað sé nefnt. Körfubolti 14. desember 2008 15:17
Dourisseau fór á kostum í sigri úrvalsliðsins Troðkóngurinn Jason Dourisseau var kjörinn maður Stjörnuleiksins í dag þegar úrvalslið Iceland Express deildarinnar vann nauman sigur á íslenska landsliðinu 113-111. Körfubolti 13. desember 2008 17:42
Guðjón Skúlason hefur engu gleymt Gamla kempan Guðjón Skúlason sýndi og sannaði í dag að hann hefur engu gleymt þegar kemur að langskotunum. Guðjón sigraði með yfirburðum í þriggja stiga skotkeppninni í Stjörnuleiknum. Körfubolti 13. desember 2008 17:33
Dourisseau sigraði í troðkeppninni KR-ingurinn Jason Dourisseau hjá KR varð í dag troðkóngur á Stjörnuleik KKÍ. Körfubolti 13. desember 2008 17:26
Stjörnuliðin opinberuð Úrvalslið Iceland Express sem munu mæta landsliðum karla og kvenna í Stjörnuleikjum KKÍ 2008 á Ásvöllum á laugardag hafa verið valin. Körfubolti 11. desember 2008 09:50
Friðrik skoraði 18 stig gegn lærisveinunum Friðrik Ragnarsson, þjálfari körfuboltaliðs Grindavíkur, tók upp á því að spila gegn liði sínu í Subway-bikarnum í gær. Friðrik lék með Grindavík B og skoraði 18 stig á lærisveina sína. Körfubolti 11. desember 2008 09:41
Þjálfarinn leikur gegn liði sínu Það verður athyglisverð bikarviðureign í kvöld þegar Grindavík leikur á móti Grindavík B í innanbæjarslag. Friðrik Ragnarsson, þjálfari Grindavíkur, mun leika gegn lærisveinum sínum í leiknum. Körfubolti 10. desember 2008 14:14
Vona að drengirnir finni neistann "Að sjálfssögðu er þetta leiðinlegt, því auðvitað vill maður reyna að snúa þessu við, en þeir vildu ekki gefa tækifæri til þess," sagði Bragi Magnússon sem var í gærkvöld leystur undan samningi við Stjörnuna. Körfubolti 9. desember 2008 11:56
Bragi rekinn frá Stjörnunni Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar hefur ákveðið að segja upp samningi við þjálfarann Braga Magnússon þar sem gengi liðsins í vetur hafi ekki verið í samræmi við væntingar. Körfubolti 9. desember 2008 11:36
Ég verð ekki í stuttbuxum á laugardaginn Margar af bestu þriggja stiga skyttum Íslandssögunnar verða samankomnar á Ásvöllum á laugardaginn til að taka þátt í skotkeppninni í kring um Stjörnuleiki KKÍ. Körfubolti 8. desember 2008 16:06
Goðsagnirnar taka þátt í skotkeppninni Það verður mikið um dýrðir á Stjörnuleikjum KKÍ sem fram fara á Ásvöllum í Hafnarfirði á laugardaginn. Körfubolti 8. desember 2008 12:36
Skallagrímur fær bandarískan leikstjórnanda Skallagrímsmenn hafa ákveðið að skipta um leikstjórnanda, en Miroslav Andonov hefur alls ekki staðið undir væntingum síðan hann kom til liðisins. Körfubolti 8. desember 2008 10:56
ÍR vann fimmta leikinn í röð Þrír leikir voru á dagskrá í Iceland Express deild karla í kvöld. ÍR vann fimmta leikinn í röð þegar það skellti Þór á heimavelli sínum 92-77. Körfubolti 5. desember 2008 21:35
Taplausir KR-ingar völtuðu yfir Skallagrím Staðan á toppi Iceland Express deildar karla í körfubolta breyttist ekki í kvöld þegar þrír fyrstu leikirnir í tíundu umferð voru spilaðir. Körfubolti 4. desember 2008 20:44