Snjóflóðin tvö með þeim allra stærstu sem fallið hafa á leiðigarða í heiminum Flóðin úr Skollahvilft og Innra-Bæjargili eru með allra stærstu snjóflóðum sem fallið hafa á leiðigarða í heiminum Innlent 16. janúar 2020 17:51
Missti meðvitund í snjónum og man eftir sér á sjúkrabörunum Alma Sóley Ericsdóttir Wolf, fjórtán ára stúlka sem bjargað var úr snjóflóði sem féll á Flateyri á þriðjudagskvöld, segist hafa verið að kveðja vinkonu sína í netspjalli og fara að halla sér þegar hún heyrði drunur. Þremur sekúndum síðar var hún föst í snjó. Innlent 16. janúar 2020 16:06
Svona er staðan á Flateyri í dag Vestfirðingar eru farnir að geta ferðast meira á milli staða en opnað hefur verið fyrir umferð um fjölmarga vegi í dag. Innlent 16. janúar 2020 14:41
Mokstur á Flateyrarvegi gengur vel Gert er ráð fyrir að mokstri inn á Flateyri ljúki einhvern tímann á fimmta tímanum í dag. Innlent 16. janúar 2020 14:34
Varnargarðarnir á Flateyri ekki hannaðir fyrir flóð sem fer á allt að 200 kílómetra hraða Tómas Jóhannesson, fagstjóri ofanflóðavarna á Veðurstofu Íslands, segir að hraði snjóflóðsins úr Skollahvilft á Flateyri á þriðjudagskvöld sé væntanlega meginskýringin á því að það flæddi yfir varnargarðana fyrir ofan bæinn. Innlent 16. janúar 2020 14:30
Unglingsstúlkan útskrifuð og ráðherrar fljúga vestur Búist er við því að opnað verði fyrir umferð um Flateyrarveg um þrjúleytið í dag en samgöngur eru óðum að komast í samt lag á Vestfjörðum. Innlent 16. janúar 2020 12:37
Segir það hafa verið nánast ómögulegt að verja smábátahöfnina fyrir hamfaraflóði Flosi Sigurðsson, byggingarverkfræðingur hjá verkfræðistofunni VERKÍS og einn af aðalhönnuðum snjóflóðavarnargarðanna á Flateyri, segir að það hafi komið á óvart að snjóflóð hafi farið yfir varnargarðinn og á hús. Innlent 16. janúar 2020 11:45
Smálægð fyrir vestan land stjórnar veðrinu í dag Veðurstofan spáir suðaustan fimm til þrettán metrum á sekúndum í dag með skúrum og éljum sunnan- og vestanlands. Innlent 16. janúar 2020 07:51
Flateyringar enn innlyksa Flateyrarvegur er enn lokaður eftir snjóflóðin sem þar féllu á þriðjudag og íbúar Flateyrar því enn innlyksa. Innlent 16. janúar 2020 06:36
Mega snúa aftur heim og hættustigi aflýst Allir sem þurftu að yfirgefa hús sín á norðanverðum Vestfjörðum vegna snjóflóða mega nú snúa heim til sín. Innlent 15. janúar 2020 21:15
„Eins og manni sé hent út í atburðarásina sem var 1995“ Atburðir gærkvöldsins hafa eins og gefur að skilja haft mikil áhrif á þá sem búa á Flateyri og Suðureyri en ekki minni á þá sem upplifðu hamfarirnar fyrir 25 árum. Innlent 15. janúar 2020 21:00
„Það var hlegið að mér þegar ég viðraði áhyggjur af varnargörðunum“ Eigandi útgerðarfyrirtækis sem er meðal þeirra sem missti bátinn sinn í snjóflóðinu á Flateyri í gær er afar ósátt við að varnagarðar við bæinn hafi ekki haldið betur aftur að flóðunum. Innlent 15. janúar 2020 19:30
Bæði snjóflóðin á Flateyri fóru yfir varnargarðinn Áður hafði komið fram að annað flóðið fór að hluta yfir garðinn og lenti á hús í útjaðri bæjarins. Innlent 15. janúar 2020 18:49
Mikil áfallahjálp framundan Sjálfboðaliðar Rauða krossins og aðrir viðbragðsaðilar taka þar á móti fólki sem hefur þurft að yfirgefa heimili sín og veita auk þess öllum sem vilja sálrænan stuðning. Innlent 15. janúar 2020 18:09
Heitustu tíu ár sögunnar Síðustu tíu ár eru þau heitustu frá því að mælingar hófust. Af þeim árum eru átta af tíu heitustu árum sögunnar. Erlent 15. janúar 2020 16:45
Fljúga til vonar og vara með björgunarsveitarfólk vestur Ákveðið hefur verið að flytja fulla þyrlu af björgunarsveitarfólki frá höfuðborgarsvæðinu til Vestfjarða í kvöld. Þetta staðfestir Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi hjá Landsbjörg. Innlent 15. janúar 2020 16:42
Íbúar Suðureyrar beðnir um að halda sig frá tilteknum götum og svæðum Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra beinir því til íbúa á Suðureyri að vera ekki úti eða á ferli á eftirtöldum svæðum: Aðalgötu, Eyrargötu, Skipagötu, Skólagötu, Freyjugöta, hafnarsvæði og neðan Sætúns. Innlent 15. janúar 2020 16:31
Mælingamenn Veðurstofunnar byrjaðir að mæla flóðin á Flateyri Mælingamenn Veðurstofunnar hafa hafið störf á Flateyri við að mæla flóðin sem féllu þar í gærkvöldi. Innlent 15. janúar 2020 16:01
Annað snjóflóð féll í Súgandafirði Annað snjóflóð hefur fallið í Súgandafirði að sögn Vals Sæþórs Valgeirssonar, formanns Björgunarsveitarinnar Bjargar á Suðureyri. Innlent 15. janúar 2020 14:07
Eignaðist ömmubarn á Ísafirði meðan hún hjálpaði nágrönnum sínum á Flateyri Vigdís Erlingsdóttir, íbúi í Ólafstúni 6 á Flateyri, segir íbúana finna hlýhug landsmanna vestur á firði. Þakklætið sé mikið til baka. Vigdís sat í bíl með nágranna konu sinni og tveimur börnum hennar á meðan unnið var að grafa unglingsdóttur út úr svefnherbergi sínu. Innlent 15. janúar 2020 12:48
Unglingsstúlkan sefur og segir læknir hana hafa sloppið ótrúlega vel Örn Erlendur Ingason, læknir á heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði, segir fimmtán ára stúlku sem lenti í snjóflóði á Flateyri seint í gærkvöld hafa sloppið ótrúlega vel. Hann þakkar snarræði heimamanna. Innlent 15. janúar 2020 11:46
„Einu húsi of mikið að snjóflóðið náði þangað inn“ Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, segir að það sé einu húsi of mikið að snjóflóð sem féll úr Innra-Bæjargili á Flateyri á tólfta tímanum í gærkvöldi hafi lent á íbúðarhúsinu við Ólafstún 14. Innlent 15. janúar 2020 11:44
Sérfræðingur segir varnargarðinn á Flateyri hafa sannað gildi sitt en langt í að markmið stjórnvalda náist Óhætt er að segja að mikið hafi mætt á snjóflóðavarnargarðinum fyrir ofan Flateyri síðan hann var byggður í kjölfar harmleiksins 26. október 1995. Snjóflóðafræðingur á Veðurstofu Íslands segir fjörutíu snjóflóð hafa fallið í fjallinu fyrir ofan Flateyri frá árinu 1997. Innlent 15. janúar 2020 10:36
Þór kemur við í Bolungarvík til að sækja fólk í áfallateymi Varðskipið Þór lagði af stað frá Ísafirði til Flateyrar laust eftir klukkan 9 í morgun með áfallateymi og matvöru. Innlent 15. janúar 2020 09:53
Rýma fjögur hús í Seljalandshverfi á Ísafirði Ákveðið hefur verið að rýma fjögur hús í Seljalandshverfi á Ísafirði vegna snjóflóðahættu. Innlent 15. janúar 2020 09:04
Talsvert eignatjón en engin alvarleg slys á fólki eftir þrjú „mjög stór“ snjóflóð á Vestfjörðum Alls féllu þrjú "mjög stór“ snjóflóð á Vestfjörðum undir miðnætti í gær líkt og það er orðað á vef Veðurstofu Íslands. Tvö við Flateyri, úr Skollahvilft og Innra-Bæjargili, og eitt gegnt Suðureyri í Norðureyrarhlíð sem skapaði flóðbylgju sem fór inn í bæinn. Tjón hefur orðið á eignum en engin alvarleg slys á fólki svo vitað sé. Innlent 15. janúar 2020 05:30
Stúlkan sem lenti í snjóflóðinu flutt til Ísafjarðar með Þór Unglingsstúlkan sem lenti í snjUnglingsstúlkan sem lenti í snjóflóðinu sem féll á Flateyri seint í gærkvöldi verður flutt með varðskipinu Þór á Ísafjörð. Líðan hennar er eftir atvikum góð. Innlent 15. janúar 2020 04:28
Hefðu byrjað rýmingar fyrir mörgum dögum ef varnargarðsins nyti ekki við á Flateyri Guðmundur Gunnarsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar segist afar þakklátur fyrir það að allir hafi komist óhultir frá snjóflóðunum sem féllu á Flateyri og Suðureyri seint í kvöld. Innlent 15. janúar 2020 04:08
Gríðarlegt tjón á Flateyri: „Smábátabryggjan er farin“ Magnús Einar Magnússon formaður björgunarsveitarinnar Sæbjargar á Flateyri var sofandi á heimili sínu á Flateyri þegar snjóflóð féll á bæinn undir miðnætti með miklum drunum. Innlent 15. janúar 2020 02:46
Flóðbylgjan skall á húsum og bílum á Suðureyri Snjóflóðið sem féll úr hlíðinni við Súgandafjörð til móts við Suðureyri féll i sjóinn og varð til þess að flóðbylgja skall á bænum. Nokkuð tjón varð á húsum og bílum. Vösk sveit björgunarsveitarmanna stendur vaktina. Innlent 15. janúar 2020 02:42