Hærri sjór og dýr í hættu Norðurskautið hlýnar sem aldrei fyrr, nær tvisvar sinnum hraðar en aðrir hlutar jarðarinnar. Aukinn útblástur gróðurhúsalofttegunda á svo eftir að valda enn meiri hlýnun, að því er fram kemur í nýrri alþjóðlegri rannsókn um 300 vísindamanna sem staðið hefur síðustu fjögur ár. Innlent 8. nóvember 2004 00:01
Skepnur eru hafðar lengur úti Vegna hlýnandi loftslags er fé látið ganga lengur úti en áður tíðkaðist og ekki algengt að búið sé að loka fé inni í byrjun nóvember. Innlent 8. nóvember 2004 00:01
19 stiga hiti fyrir austan Einstaklega hlýtt veður hefur verið um allt land um helgina. Á laugardaginn náði hitinn hæst 19 stigum á Seyðisfirði, en á höfuðborgarsvæðinu var hiti um 10 stig. Innlent 7. nóvember 2004 00:01
Sólríkur október Sólskinsstundir í Reykjavík í nýliðnum októbermánuði mældust 110 sem er 27 stundum umfram meðallag, að því er fram kemur í samantekt Veðurstofunnar. Innlent 2. nóvember 2004 00:01
Hlýnun jarðar eykst mikið Loftslagsbreytingar eru að mestu af völdum manna samkvæmt nýrri rannsókn sem 300 vísindamenn frá átta ríkjum tóku þátt í. Frá þessu greindi bandaríska dagblaðið The New York Times sem komst yfir skýrsluna sem átti ekki að birta fyrr en í næstu viku, að sögn vegna þess að bandarísk stjórnvöld vildu ekki að hún birtist fyrr en eftir kosningar. Erlent 31. október 2004 00:01
Versta áfall Japana í nær áratug Mannskæðasta óveður sem gengið hefur yfir Japan í nær tvo áratugi kostaði í það minnsta 55 manns lífið þegar fellibylurinn Tokage gekk yfir landið í fyrradag og fyrrinótt. Rúmlega tuttugu manns til viðbótar er saknað og því getur tala látinna enn hækkað. Erlent 21. október 2004 00:01
Bærinn þakinn brúnni slikju Mikið moldrok var á hálendinu í hvassviðrinu sem gekk yfir landið í gær og fyrradag. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum fóru Eyjamenn ekki varhluta af moldrokinu. Var það svo mikið að varla sást út úr augum um tíma. Innlent 19. október 2004 00:01
Vind lægir í dag Óveðrið sem geisað hefur víða um land síðan á mánudag með miklu hvassviðri á Suður- og Vesturlandi mun ganga niður í dag, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Innlent 19. október 2004 00:01
Mikill uppblástur á Suðurlandi Uppblástur á Suðurlandi í hvassviðrinu undanfarna tvo daga er sá mesti sem orðið hefur í mörg ár. Þetta segir Jón Ragnar Björnsson, fræðslufulltrúi Landgræðslu Íslands. Hann segir uppblásturinn hafi verið mestan í uppsveitum Rangárvallasýslu, sérstaklega í kringum Heklu. Hann segir mold, sand og vikur hafa myndað skafla á svæðinu. Innlent 19. október 2004 00:01
Loka þurfti Oddsskarði Vonskuveður var á austanverðu landinu í gær og voru björgunarsveitir á Egilsstöðum og Reyðarfirði kallaðar út til að aðstoða ökumenn bíla sem lent höfðu í vandræðum í Fagradal vegna ófærðar. Innlent 18. október 2004 00:01
Þaki haldið í skefjum Þaki á einbýlishúsi á Höfn í Hornarfirði var haldið í skefjum með skurðgröfu í gær. Hávaðarok var í bænum, líkt og víða um land, og fylgdust björgunarsveitarmenn árvökulum augum með því sem hugsanlega gat tekist á loft. Innlent 18. október 2004 00:01
Veturinn kom í gær Vindur blés hressilega víða um land í gær og sums staðar var dágóð snjókoma. Nokkurt tjón hlaust af þegar hluti þaks feyktist af mjölgeymslu í Vestmannaeyjum, rafmagn fór af á Höfn í Hornafirði og snjóþyngsli öftruðu færð á Austfjörðum. Innlent 18. október 2004 00:01
Hermönnum bjargað úr pytti Fimm varnarliðsmönnum í skemmtiferð var bjargað skammt frá Kerlingafjöllum skömmu fyrir klukkan hálf sjö í gær þar sem þeir höfðu fest Ford 450 pikkupjeppabifreið sína í krapapytti. Innlent 18. október 2004 00:01
Dimmt og kalsalegt Rafmagn fór af Höfn í Hornafirði um miðjan dag í gær og voru bæjarbúar án rafmagns fram undir kvöld. Bilun varð í báðum línunum sem bera rafmagnið inn í bæinn en orsakir þeirra eru ókunnar. </font /></b /> Innlent 18. október 2004 00:01
Þak fauk og bátur sökk Vitlaust veður var í Vestmannaeyjum í gær og hlaust af talsvert tjón. Rýma þurfti nokkra vinnustaði í bænum eftir að hluti þaks á einu af húsum Ísfélags Vestmannaeyja hófst á loft og skall af miklum þunga á jörðina. Engan sakaði. </font /></b /> Innlent 18. október 2004 00:01
Sjávarhiti mildar norðanáttina Þjóðtrú segir að vetur verði mildur ef rignir þrisvar fyrir jól. Hlýrri sjór fyrir norðan land hitar vindinn þannig að fremur rignir en snjóar. Miklar sveiflur í hita sjávar valda loftslagsbreytingum á norðurhveli sem jafnast á við gróðurhúsaáhrif. Innlent 13. október 2004 00:01
Hugsanlega tímamót í hlýnun jarðar Koltvísýringsmengun í andrúmsloftinu hefur aukist mikið síðustu ár. Aukningin kemur mjög á óvart þar sem ekki er samhengi milli hennar og útblásturs koltvísýrings á sama tímabili. Þetta veldur vísindamönnum áhyggjum yfir því að hlýnun jarðar kunni að aukast hraðar en búist hefur verið við. Erlent 11. október 2004 00:01
Bylur í Japan raskar Formúlukeppni Tímataka í Formúlu eitt á Suzuka brautinni í Japan núna um helgina var færð frá laugardegi yfir á sunnudagsmorgun vegna fellibyls sem yfir landið gengur. Gert var ráð fyrir að fellibylurinn skylli á Japan á aðfararnótt laugardags, með úrhellisrigningu og ofsaroki. Innlent 8. október 2004 00:01
Tafir á Eyjaflugi í gær Tafir urðu á flugi til Vestmannaeyja í gærmorgun vegna hvassviðris í Eyjum. Flugi klukkan hálfátta var frestað, en þær upplýsingar fengust hjá flugmálastjórn í Eyjum að þar hefði verið misvindasamt og vindhraði farið upp í 40 hnúta í hviðum, en það eru 20,5 metrar á sekúndu. Innlent 6. október 2004 00:01
Kuldaskoti að ljúka Fyrsti snjór haustsins á Akureyri féll í gær. Veðurstofan gerir ráð fyrir því að kuldaskotinu sem gengið hefur yfir landið ljúki í kvöld og nótt. Innlent 5. október 2004 00:01
Björgunarsveitir kallaðar út Átta hópar björgunarsveitarmanna frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörgu voru kallaðir út á höfuðborgarsvæðinu í gær vegna óveðursins sem gekk yfir. Óskað var eftir aðstoð eftir að þakplötur og lausir munir byrjuðu að fjúka og gátu valdið hættu og skemmdum. Innlent 5. október 2004 00:01
Nípukollsveður í Neskaupstað Tré rifnuðu upp með rótum, þakplötur og klæðningar flettust af og rúður brotnuðu í Nípukollsveðri sem gekk yfir Neskaupstað í fyrrinótt. Tjónið er umtalsvert. Innlent 5. október 2004 00:01
Yfir meðalhita 30 mánuði í röð Hitastig í Reykjavík hefur nú verið yfir meðallagi þrjátíu mánuði í röð. Meðalhiti í september var 9 gráður og er það 1,6 gráðu yfir meðallagi áranna 1961-1990. Mánuðurinn var samt fremur sólarlítill og úrkomusamur. Innlent 4. október 2004 00:01
Kári kveður dyra Talsvert hvassviðri var á sunnan- og vestanverðu landinu í gær og fór vindur sums staðar yfir 40 m/s í verstu hviðunum. Lögreglan fékk nokkrar tilkynningar um fjúkandi muni. Innlent 4. október 2004 00:01
Hlýr, votur og dimmur Nýliðinn september var nokkuð hlýr, en úrkomusamt var og fremur sólarlítið. Úrkoma í Reykjavík mældist 40 prósentum meiri en í meðal septembermánuði. Innlent 4. október 2004 00:01
Strompur í Norðurmýri fauk Kalla þurfti út björgunarsveitir þegar mikið hvassviðri brast á á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær. Innlent 4. október 2004 00:01
Kemur ef hann kemur Íbúar Miami á suðurodda Florída kipptu sér vart upp við fellibylinn Jeanne í fyrrinótt og gærmorgun. Hann gekk enda yfir nokkuð norðan við borgina og lét finna fyrir sér í grennd við Fort Pierce og Okeechobee. </font /></b /> Erlent 26. september 2004 00:01
Skreiðarhjallar lögðust á hliðina Nokkurt tjón varð í Vestmannaeyjum í óveðri í fyrrinótt og var erilsamt hjá lögreglunni frá miðnætti til klukkan níu í gærmorgun. Björgunarfélag Vestmannaeyja hjálpuðu lögreglu að festa þakplötur og lausa muni. Innlent 16. september 2004 00:01
Tólf hafa látist í Bandaríkjunum Tólf manns hafa látið lífið í áhlaupi Ívans grimma á Bandaríkin. Mikið hefur dregið úr styrk fellibylsins sem nú gengur norður eftir Alabama-ríki. Erlent 16. september 2004 00:01
Tré fuku upp með rótum Mikið hvassviðri var á Hvolsvelli og í nágrenni í fyrrinótt og gærmorgun að sögn lögreglu. Nokkur stór tré fuku upp með rótum, gervihnattadiskar skemmdust og þakplötur fuku. Innlent 16. september 2004 00:01