Gular viðvaranir um nær allt Suður- og Vesturland Gular viðvaranir eru í gildi á nær öllu vesturhorni landsins fram eftir degi vegna veðurs. Búast má við miklu hvassviðri og mögulega snjókomu. Veður 5. desember 2021 07:48
Útlit fyrir vonskuveður og Strætó fellir niður ferðir Veðurstofan hefur gefið út gular veðurviðvaranir fyrir stóran hluta landsins sem taka gildi á morgun. Væntanlegt illviðri mun hafa mikil áhrif á strætóferðir á landsbyggðinni. Innlent 4. desember 2021 20:04
Heiðskírt um land allt Bjart og fallegt er í veðri á meirihluta landsins. Heiðskírt alls staðar nema á Blönduósi og í Bolungarvík. Veður 4. desember 2021 15:53
Frost og kyrrð yfir landinu í dag Kuldateppi liggur nú yfir landinu og mældist 21,4 stiga frost við Mývatn í nótt. Það er mesta frost sem mælst hefur á landinu í vetur. Veður 4. desember 2021 07:34
Sextán stiga frost á Hellu í nótt og áfram kalt Reikna má með norðlægri átt í dag en norðan- og norðvestan kalda austast fram á kvöld. Dálítil él norðaustantil á landinu þar til síðdegis. Veður 1. desember 2021 07:12
Víða dálítil snjókoma og frost að tólf stigum Landsmenn mega reikna með fremur hægri austlægri átt og víða dálítilli snjókomu í dag. Vindur mun snúa sér til norðurs með deginum og það styttir upp sunnan- og vestanlands. Veður 30. nóvember 2021 07:06
Úrkomubakki kemur inn á land síðdegis Veðurstofan gerir ráð fyrir svalara veðri í dag en í gær. Úrkomubakki kemur inn á land síðdegis og mun úrkoman við suður- og vesturströndina vera snjókoma eða slydda, en það gæti rignt á stöku stað með hita um frostmark. Veður 29. nóvember 2021 07:06
Víða rigning en slydda til fjalla Í dag verður úrkomumeira en í gær og heldur meiri vindur en að mörgu leiti ekki svo frábrugðið. Hiti á Suður- og Vesturlandi verður að sex stigum og víða rigning en slydda til fjalla. Innlent 28. nóvember 2021 07:22
Vara við frostrigningu og mögulegri flughálku Aðstæður við suður- og vesturströndina gætu gert það að verkum að von sé á frostrigningu með flughálku. Veðurstofan segir að vegfarendur á þessum slóðum ættu að hafa varan á fram eftir degi. Innlent 27. nóvember 2021 07:15
Glitský gleðja höfuðborgarbúa Nokkur litskrúðug glitský sáust á austurhimni frá höfuðborginni í morgun. Ský af þessu tagi sjást helst um miðjan vetur við sólarupprás eða sólsetur. Veður 26. nóvember 2021 10:06
Tvö veðrakerfi mynda öflugan vindstreng á austurhluta landsins Víðáttumikil hæð langt suður í hafi og kröpp lægð skammt austur af landi mynda öflugan vindstrengur á austurhluta landsins. Því gengur á með norðvestanstormi eða -roki á sunnanverðum Austfjörðum og undir Vatnajökli. Veður 26. nóvember 2021 07:09
Björgunarsveitir við öllu búnar: „Að vera ekki á ferðinni, það borgar sig aldrei“ Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir Suðausturland sem tekur gildi á miðnætti. Finnur Smári Torfason hjá Björgunarfélagi Hornafjarðar segir að meðlimir sveitarinnar séu við öllu búnir. Innlent 25. nóvember 2021 21:30
Ofsaveður í kortunum og viðvörunin orðin appelsínugul Veðurstofan hefur gefið út appelsínugula viðvörun fyrir Suðausturland sem tekur gildi á miðnætti. Búast má við mjög snörpum vindhviðum, staðbundið yfir 45 metra á sekúndu og engu ferðaveðri. Innlent 25. nóvember 2021 11:28
Reikna með hviðum allt að 45 metrum á sekúndu Það gengur í norðvestanhvassviðri eða -storm austan Öræfa og á sunnanverðum Austfjörðum í kvöld, og hafa verið gefnar út gular viðvaranir vegna þessa fyrir bæði Austfirði og Suðausturland. Má búast má við mjög snörpum vindhviðum, yfir 45 metrum á sekúndu, á stöku stað á Suðausturlandi. Veður 25. nóvember 2021 07:15
Gular viðvaranir í kortunum Veðurstofa Íslands varar við leiðindaveðri á Austfjörðum og Suðausturlandi annað kvöld. Líkur eru á samgöngutruflunum og fólk er hvatt til að sýna aðgát. Innlent 24. nóvember 2021 20:21
Íshellan í Grímsvötnum farin að síga Íshellan í Grímsvötnum er farin að síga. Þetta benda nýjar mælingar Veðurstofu Íslands í Grímsvötnum til. Gæti þetta verið vísbending um að Grímsvatnahlaup sé í vændum. Veður 24. nóvember 2021 13:45
Él fram eftir degi á Norður- og Austurlandi en annars bjart Norðan hvassviðri eða stormur var víða á landinu í nótt en í dag lægir, fyrst vestantil á landinu. Reikna má með éljum fram eftir degi á Norður- og Austurlandi en annars bjart. Veður 24. nóvember 2021 07:07
Gular viðvaranir vegna norðan hríðar Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á Vestfjörðum, Ströndum og Norðurlandi vestra, Norðurlandi eystra, Austurlandi að Glettingi, Austfjörðum, Suðausturlandi og Miðhálendi vegna norðan hríðar sem skellur á landið í kvöld. Veður 23. nóvember 2021 10:09
Vaxandi norðanátt í kvöld og stormur norðantil í nótt Spáð er fremur hægum vindi í dag, en norðaustan átta til fimmtán metrar á sekúndu norðvestantil. Víða verður él á landinu og hiti nálægt frostmarki. Veður 23. nóvember 2021 07:08
Talsverð rigning vestantil og hvasst á Norðurlandi og í Öræfum Veðurstofan spáir suðvestlægri átt, þrettán til átján metrum á sekúndu, og sums staðar mun hvassara á Norðurlandi um tíma og í Öræfum. Veður 22. nóvember 2021 07:09
Fjögurra til átta stiga hiti í dag Búast má við suðvestanátt í dag, yfirleit tíu til fimmtán metrum á sekúndu. Hvassast verður á norðanverðu landinu og á Öræfum, um fimmtán til tuttugu metrar, en snjókoma til fjalla. Ökumenn á Öxnadalsheiði gætu þá lent í vandræðum vegna hríðarveðurs. Á Austurlandi verður skýjað en úrkomulítið og hiti á landinu á bilinu fjögur til átta stig. Innlent 21. nóvember 2021 07:38
Frost um allt land í dag Búast má við norðan- og norðvestanátt í dag, um fimm til þrettán metrum á sekúndu víðast hvar um landið. Þó verður talsvert hvassara á Austfjörðum, eða allt að 20 metrar á sekúndu. Víða léttskýjað, en þó von á stöku éljum á norðurlandi. Þá má búast við frosti niður í allt að sex stig. Innlent 20. nóvember 2021 08:07
Skúrir, él og hiti allvíða í kringum frostmark Veðurstofan spáir suðvestan fimm til tíu metrum á sekúndu með skúrum eða éljum, en austanlands rofar hins vegar til og verður þurrt. Veður 19. nóvember 2021 07:11
Rigning eða slydda með köflum sunnantil Útlit er fyrir austlæga átt á landinu í dag og vindhraði víðast hvar innan við tíu metrar á sekúndu. Rigning eða slydda með köflum á sunnanverðu landinu og snjókoma í uppsveitum. Veður 18. nóvember 2021 07:10
Djúp lægð stjórnar veðrinu austantil en hægara vestantil Veður á landinu er nú tvískipt og mikill munur á milli landshelminga. Vestantil ræður hæðarhryggur ríkjum og þar er hæg breytileg átt og léttskýjað. Veður 17. nóvember 2021 07:09
Gular viðvaranir gefnar úr vegna storms og hríðar Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir á norðaustur-, austur- og suðurhluta landsins vegna þess óveðurs sem framundan er. Veður 16. nóvember 2021 14:18
Vindur blæs úr ýmsum áttum á næstu dögum Á næstu dögum verða lægðir nærri landinu eða yfir því og mun því vindur blása úr ýmsum áttum af mismunandi styrk og úrkoma með köflum fylgja með. Veðrið getur sömuleiðis verið mjög mismunandi milli landshluta. Veður 16. nóvember 2021 07:04
Suðvestanátt og skúrir eða él á landinu Veðurstofan spáir suðvestanátt í dag, víða átta til fimmtán metrum á sekúndu og skúrum eða éljum, en rigningu sunnantil á landinu fram eftir degi. Veður 15. nóvember 2021 07:06
Föst út í vél í yfir klukkutíma vegna veðurs Vonskuveður hefur haft áhrif á flug Icelandair í dag og þurftu farþegar á leið frá Evrópu að bíða í rúman klukkutíma út í vél að lokinni lendingu vegna hvassviðris. Viðskipti innlent 13. nóvember 2021 21:48
Kölluð út vegna foktjóns og hjólhýsis sem fór á hliðina Björgunarsveitir og lögregla hafa sinnt um tuttugu verkefnum á höfuðborgarsvæðinu í dag vegna vonskuveðurs sem gengur yfir landið. Innlent 13. nóvember 2021 17:56