Andri Þór tekur við af Ara Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, hefur verið kjörinn formaður Viðskiptaráðs. Hann tekur við embætti formanns af Ara Fenger sem gegnt hefur stöðunni frá árinu 2020. Viðskipti innlent 7. febrúar 2024 12:50
Már ráðinn framkvæmdastjóri sameinaðs sviðs Már Kristjánsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri bráða- lyflækninga og endurhæfingaþjónustu á Landspítalanum. Innlent 5. febrúar 2024 13:42
Guðni leysir Guðjón af hólmi Guðni Aðalsteinsson verður forstjóri Reita fasteignafélags. Hann tekur við starfinu af Guðjóni Auðunssyni sem lætur af starfi eftir þrettán ár í forstjórastól. Stólaskiptin verða þann 1. apríl. Viðskipti innlent 5. febrúar 2024 09:21
Guðríður Eldey nýr framkvæmdastjóri Samáls Guðríður Eldey Arnardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Samáls, Samtaka álframleiðanda á Íslandi. Guðríður mun taka við starfinu af Pétri Blöndal, en hann hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra frá árinu 2013. Viðskipti innlent 4. febrúar 2024 11:34
Falið að stýra lánasviði Fossa Guðmundur Björnsson hefur verið ráðinn forstöðumaður lánasviðs Fossa fjárfestingarbanka. Viðskipti innlent 2. febrúar 2024 09:42
Jónína ráðin til Blikk Nýsköpunar- og fjártæknifyrirtækið Blikk hefur ráðið Jónínu Gunnarsdóttir, fyrrverandi forstjóra Teya, í starf rekstrarstjóra. Viðskipti innlent 1. febrúar 2024 14:55
Ráðinn öryggisstjóri Síldarvinnslunnar Páll Freysteinsson hefur verið ráðinn nýr öryggisstjóri Síldarvinnslunnar og hóf hann störf fyrr í dag. Viðskipti innlent 1. febrúar 2024 12:21
Tekur við sem forstjóri CRI Lotte Rosenberg hefur verið ráðin í stöðu forstjóra íslenska hátæknifyrirtækisins Carbon Recycling International (CRI) og Björk Kristjánsdóttir, sem sinnt hefur starfi tímabundins forstjóra frá 2022, hefur tekið við nýrri stöðu framkvæmdastjóra rekstrar- og fjármálasviðs hjá félaginu. Viðskipti innlent 1. febrúar 2024 08:35
Steinunn Hlíf samdi um starfslok Steinunn Hlíf Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri upplifunar viðskiptavina hjá Arion banka, hefur komist að samkomulagi við bankann um starfslok eftir að hafa gegnt starfinu og átt sæti í framkvæmdastjórn bankans frá árinu 2021. Viðskipti innlent 30. janúar 2024 15:35
Kristján hættir sem framkvæmdastjóri Hér&Nú Kristján Hjálmarsson hefur ákveðið að hætta sem framkvæmdastjóri auglýsingastofunnar Hér og Nú. Hann hyggst einbeita sér að almannatengslum og mun meðal annars áfram vinna náið með viðskiptavinum stofunnar. Viðskipti innlent 30. janúar 2024 13:13
Snýr aftur eftir stutt stopp hjá Laufinu Íslandsbanki hefur ráðið Brynjólf Bjarnason í stöðu forstöðumanns fyrirtækjaráðgjafar bankans. Brynjólfur, sem hefur áratugareynslu af störfum í fjármálageiranum, kemur nú aftur til liðs við Íslandsbanka eftir að hafa sinnt starfi framkvæmdastjóra hjá Laufinu frá því í fyrra. Viðskipti innlent 29. janúar 2024 17:42
Kristín Ýr ráðin kynningar- og markaðsstjóri Barnaheilla Kristín Ýr Gunnarsdóttir mun hefja störf sem kynningar- og markaðsstjóri hjá Barnaheillum 1. febrúar næstkomandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Barnaheillum. Viðskipti innlent 29. janúar 2024 12:29
Ráðin markaðsstjóri Fastus Ástrós Kristinsdóttir hefur verið ráðin markaðstjóri Fastus ehf. Hlutverk henner verður að móta og leiða markaðsmál félagsins og endurmörkun þriggja vörumerkja auk stefnumótunar í kynningarmálum sem og innri og ytri markaðssetningu. Viðskipti innlent 29. janúar 2024 09:46
Lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Samtakanna '78 Daníel E. Arnarsson lætur af störfum sem framkvæmdastjóri Samtakanna ‘78 í sumar. Hann tilkynnti þetta á Facebook-síðu sinni í dag. Hann mun þá hafa gegnt embættinu í sjö ár. Innlent 26. janúar 2024 18:31
Sigga Lund og Vala Eiríks kveðja Bylgjuna fullar þakklætis Útvarpskonurnar Valdís Eiríksdóttir og Sigga Lund voru á meðal þeirra ellefu sem fengu uppsögn hjá Sýn í gær. Þær greina frá þessu í færslum á samfélagsmiðlum og taka uppsögninni af miklu æðruleysi. Lífið 26. janúar 2024 13:23
Bjarni felur Brynjari að leiða aðgerðir gegn gullhúðun Utanríkisráðherra hefur skipað starfshóp um aðgerðir gegn svokallaðri gullhúðun EES-reglna. Með gullhúðun er átt við þegar stjórnvöld herða á reglum EES-gerða eða bæta við heimasmíðuðum ákvæðum í innleiðingarfrumvörp sem ekki leiða af skuldbindingum samkvæmt EES-samningnum. Innlent 25. janúar 2024 13:08
Lena Dögg nýr verkefnastjóri Vertonet Lena Dögg Dagbjartsdóttir hefur verið ráðin verkefnastjóri yfir átaksverkefninu Vertonet. Markmið þess er að auka hlut kvenna í upplýsingatækni á Íslandi. Átakið er samstillt átak atvinnulífs og menntastofnana sem 21 tekur þátt í. Viðskipti innlent 25. janúar 2024 11:24
Kristín og Kristján Helgi til Kjör- og Krambúðanna Kristín Gunnarsdóttir og Kristján Helgi Olsen Ævarsson hafa tekið við nýjum stöðum hjá Krambúð og Kjörbúðinni á verslunar- og mannauðssviði. Kristján Helgi hefur tekið við stöðu sölustjóra Krambúða og Kjörbúða og Kristín sem rekstrarstjóri Krambúða og Kjörbúða. Viðskipti innlent 24. janúar 2024 10:06
Gústaf tekur við af Yngva hjá SFF Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) hafa ráðið Gústaf Steingrímsson sem hagfræðing samtakanna en hann hóf störf í byrjun árs. Viðskipti innlent 23. janúar 2024 14:53
Björn ekki á leið í forsetaframboð Björn Zoëga, forstjóri Karolinska-sjúkrahússins í Svíþjóð, segist ekki á leið aftur til Íslands eða í forsetaframboð. Greint var frá því í gær að hann hefði ákveðið að láta af störfum sem forstjóri spítalans en hann hefur gegnt þeirri stöðu frá árinu 2019. Innlent 23. janúar 2024 07:16
Elías í gamla starf dómsmálaráðherra Elías Þorvarðarson hefur tekið við starfi sölu- og markaðsstjóra Kjörís og verður hluti af framkvæmdastjórn Kjörís. Guðrún Hafsteinsdóttir, dómsmálaráðherra, gegndi starfinu árið 2021 hjá fjölskyldufyrirtækinu. Atvinnulíf 22. janúar 2024 17:31
Björn lætur af störfum hjá Karolinska Björn Zoëga hefur ákveðið að láta af stöðu forstjóra Karolinska-sjúkrahússins í Stokkhólmi í Svíþjóð. Innlent 22. janúar 2024 12:52
Falið að gera Reykjavík aðgengilegri Bragi Bergsson hefur verið ráðinn í starf aðgengisfulltrúa Reykjavíkurborgar. Viðskipti innlent 19. janúar 2024 11:24
Stýrir markaðs- og samskiptamálum Samskipa Samskip hafa ráðið Ágústu Hrund Steinarsdóttur í starf forstöðumanns markaðs- og samskiptadeildar. Viðskipti innlent 19. janúar 2024 11:09
Ráðin nýr framkvæmdastjóri hjá Eimskip Jónína Guðný Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Innanlandssviðs hjá Eimskip. Viðskipti innlent 18. janúar 2024 15:02
Hödd hætt hjá Sigríði Hrund forsetaframbjóðanda Hödd Vilhjálmsdóttir hefur látið af störfum sem fjölmiðla- og samskiptastjóri forsetaframboðs Sigríðar Hrundar Pétursdóttur. Innlent 18. janúar 2024 10:59
Lilja Björk tekur við nýju hlutverki Lilja Björk Guðmundsdóttir hefur verið ráðin yfirlögfræðingur Samtaka iðnaðarins. Viðskipti innlent 18. janúar 2024 10:33
Ráðinn aðalhagfræðingur Kviku banka Hafsteinn Hauksson hefur tekið við starfi aðalhagfræðings Kviku. Viðskipti innlent 18. janúar 2024 10:19
Falið að bæta verðlagseftirlit og stafræna þjónustu Albert Þór Kristjánsson hefur tekið við stöðu forstöðumanns í upplýsingatækni og stafrænni þróun á fjármála- og rekstrarsviði og Rakel Másdóttir hefur tekið við stöðu verðstýringar- og verkefnastjóra á verslunar- og mannauðssviði hjá Samkaupum. Þau hafa bæði þegar hafið störf hjá fyrirtækinu. Viðskipti innlent 18. janúar 2024 10:01
Davíð nældi í Karen úr ráðuneyti Katrínar Karen Björk Eyþórsdóttir hefur verið ráðin sem verkefnastjóri til Transition Labs, loftlagsfyrirtækis í eigu Davíðs Helgasonar og Kjartans Ólafssonar. Viðskipti innlent 18. janúar 2024 09:46