Yfirtaka á Marel gæti „heft“ uppfærslu á markaðnum hjá vísitölufyrirtækjum Verði af yfirtöku bandaríska fyrirtækisins JBT á Marel er hætt við því að það myndi „hefta“ frekari hækkun á gæðaflokkun íslenska markaðarins hjá alþjóðlegum vísitölufyrirtækjum, að sögn forstjóra Kauphallarinnar, enda sé ólíklegt að þau myndu telja íslensku kauphöllina vera heimamarkað sameinaðs félags. Stjórnendur Kauphallarinnar hafa haft væntingar um að markaðurinn gæti fengið uppfærslu í flokk nýmarkaðsríkja hjá MSCI á árinu 2024. 27.12.2023 12:29
Guðmundur að hætta sem ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneytinu Guðmundur Árnason, sem hefur verið ráðuneytisstjóri í fjármála- og efnahagsráðuneytinu í fjórtán ár, lætur senn af störfum í ráðuneytinu. Hann mun að eigin sögn taka við skipun sem sendiherra í utanríkisþjónustunni á næsta ári. 19.12.2023 13:13
Meiri áhættusækni kallar á stífari kröfur um starfsemi lífeyrissjóða Breyttar og áhættusamari áherslur í fjárfestingum lífeyrissjóðakerfisins, sem er að stækka ört, eru ekki „óeðlilegar“ en þær þýða að sama skapi að sjóðirnir þurfa að lúta stífari kröfum um meðal annars áhættustýringu, að sögn seðlabankastjóra. Hann telur gagnrýni á að rekstrarkostnaður sjóðanna sé of mikill um margt vera ósanngjörn. 19.12.2023 12:16
Setur áherslu á auknar fjárfestingar erlendis en minnkar vægi ríkisbréfa Einn stærsti lífeyrissjóður landsins boðar litlar breytingar á hlutfalli sínu í fjárfestingum í innlendum hlutabréfum á komandi ári á meðan stefnan er sett á að auka áfram nokkuð vægi erlendra eigna í eignasafninu. Útlit er fyrir töluverða endurfjárfestingarþörf hjá Gildi í náinni framtíð og á árinu 2024 er áætlað að hún verði vel yfir fimmtíu milljarðar króna. 18.12.2023 11:19
Sannfærður um „verulega“ samlegð af mögulegri sameiningu Marel og JBT Uppfærð viljayfirlýsing um mögulegt tilboð John Bean Technologies (JBT) í allt hlutafé Marel, sem er hækkað um átta prósent frá fyrra boði, gerir ráð fyrir sambærilegu gengi og erlendir greinendur eru að verðmeta íslenska félagið á um þessar mundir. Forstjóri JBT segist sannfærður um að mögulegur samruni muni hafa í för með sér „verulega“ samlegð fyrir bæði félög sem hluthafar ættu að njóta góðs af en hlutabréfaverð Marels hefur rokið upp í fyrstu viðskiptum á markaði í morgun. 14.12.2023 10:57
Ísland eigi enn inni „töluvert mikið“ af hækkunum á lánshæfismati Nýleg hækkun á lánshæfiseinkunn íslenska ríkisins hjá S&P ætti að hafa mikil jákvæð áhrif í för með sér fyrir þjóðarbúið, einkum fjármálakerfið, að sögn seðlabankastjóra sem telur Ísland eiga skilið enn meiri hækkun á lánshæfismatinu. Matsfyrirtækið hefur fram til þessa greint aukna hagræna áhættu hjá bönkunum sem hefur haft áhrif á áætlanir um mögulegt umfram eigið fé þeirra. 14.12.2023 07:01
Kaup á ríkisbréfum sýnir að háir vextir „eru á radarnum“ hjá erlendum sjóðum Eftir nánast ekkert innflæði í íslensk ríkisskuldabréf um nokkurt skeið hafa erlendir fjárfestar aukið talsvert við eign sína í slíkum bréfum á síðustu tveimur mánuðum. Kaupin koma á sama tíma og gengi krónunnar hafði veikst skarpt sem gefur til kynna að fjárfesting erlendra sjóða í ríkisbréfum getið virkað sem sveiflujafnari fyrir krónuna, að sögn hagfræðings. 13.12.2023 11:41
Fyrsti áfangi Blikastaðalands gerir ráð fyrir byggingu um 1.500 íbúða Skipulagslýsing að deiluskipulagi fyrir fyrsta áfanga Blikastaðalands, stærsta óbyggða landsvæði höfuðborgarsvæðisins og er í eigu Arion, hefur verið afgreidd en samkvæmt því er fyrirhugað að reisa þar allt að um 1.500 íbúðir. Framkvæmdir við verkefnið færast því núna nær í tíma en greinendur og fjárfestar hafa sagt að verðmæti landsins sé að líkindum verulega undirverðlagt í bókum bankans. 12.12.2023 11:45
Mikill árangur að uppgangur síðustu ára hafi ekki valdið ofþenslu í bankakerfinu Það er eftirtektarverður árangur, sem má meðal annars þakka ströngu regluverki og góðri áhættustýringu bankanna, að þrátt fyrir mikinn uppgang í hagkerfinu þá hefur það ekki framkallað lánabólu eða ofþenslu í fjármálakerfinu. Til lengri tíma litið er hins vegar hætta á að háir vextir grafi undan eignagæðum í lánabókum bankanna, að sögn seðlabankastjóra, en erlendar fjármálastofnanir eru nú farnar að bjóða í suma af þeirra stærstu viðskiptavinum. 11.12.2023 11:45
Lífeyrissjóður verslunarmanna umsvifamesti fjárfestirinn í útboði Ísfélagsins Lífeyrissjóður verslunarmanna keypti tæplega fimmtung allra þeirra bréfa sem voru seld í nýafstöðnu hlutafjárútboði Ísfélagsins fyrir samtals um 3,5 milljarða. Þrír af stærstu lífeyrissjóðum landsins fengu hins vegar ekki úthlutað neinum bréfum en hlutabréfaverð Ísfélagsins, sem var skráð í Kauphöllina í morgun, hefur rokið upp um meira en tuttugu prósent miðað við útboðsgengið til almennra fjárfesta. 8.12.2023 12:07