Ríkisstjórn

Fréttamynd

Kennaradeilan í gerðardóm

Ríkisstjórnin leggur í dag fram frumvarp á Alþingi um að kjaradeilu kennara og sveitarfélaganna verði vísað í gerðardóm. Þetta hefur Fréttablaðið eftir áreiðanlegum heimildum.

Innlent
Fréttamynd

Virðing Íslands að veði

Hætta er á að ríkisstjórnin fái ávítur frá Alþjóðavinnumálastofnuninni setji hún lög sem kveða ekki á um betri rétt en felld miðlunartillaga, segir Lára V. Júlíusdóttir hæstaréttalögmaður. Stjórnvöld voru síðast ávítt af stofnuninni í júní vegna lagasetningar á verkfall sjómanna árið 2001.

Innlent
Fréttamynd

Fastar tekið á varnarmálum

Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að sigri George Bush í forsetakosningunum í Bandaríkjunum, eins og allt útlit sé fyrir, þýði það að hann muni taka fastar á málum, þar á meðal varnarmálum Íslands. 

Innlent
Fréttamynd

Stærsti þjóðgarður í Evrópu

Stærsti þjóðgarður í Evrópu er orðinn til eftir að umhverfisráðherra, Sigríður Anna Þórðardóttir, staðfesti nýja reglugerð um stækkun Skaftafellsþjóðgarðs sem stofnaður var árið 1967.

Innlent
Fréttamynd

Samningar haldi

Ein mikilvægasta forsenda þess að þjóðfélag fái staðist er að fólk virði og haldi gerða samninga, segir í ályktun aðalfundar Öryrkjabandalags Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Átelja ríkisstjórnina harðlega

Aðalfundur Öryrkjabandalags Íslands átelur harðlega að tíu mánuðir skuli vera liðnir án þess að þorri öryrkja hafi fengið þá kjarabót sem samið var um fyrir síðustu þingkosningar. Nú sé ár liðið frá því að ríkisstjórnin upplýsti að hún treysti sér ekki til að efna nema hluta samkomulagsins sem gert var.

Innlent
Fréttamynd

Halldór skýrir skatta

Halldór Ásgrímsson, forsætisráðherra ætlar að boða forystu verkalýðshreyfingarinnar á sinn fund til að skýra skattastefnu stjórnvalda.

Innlent
Fréttamynd

Símasölu frestað

Halldór Ásgrímsson segir engar stefnubreytingar fylgja forsætisráðherraskiptunum í stefnuræðu sinni sem flutt verður í kvöld. Samkvæmt heimildum DV verður sölu Símans frestað enn einu sinni og 90 prósent húsnæðislán sett á dagskrá.

Innlent
Fréttamynd

Forsætisráðherra harmar ræðufrétt

Forsætisráðuneytið segist harma að annað árið í röð skuli brotinn trúnaður um stefnuræðu forsætisráðherra. Tilefnið er frétt DV í dag um innihald ræðunnar sem Halldór Ásgrímsson flytur á Alþingi í kvöld. Ráðuneytið segir ljóst að brotin hafi verið trúnaðarskylda sem kveðið sé á um í lögum. Ráðherrann óski eftir ræða málið við forseta Alþingis.

Innlent
Fréttamynd

Næstminnsta fylgi forystuflokks

Aðeins eitt dæmi er um að forystuflokkur í ríkisstjórn hafi haft jafn lítið fylgi og Framsóknarflokkurinn hefur nú þegar hann tekur við forystu í ríkisstjórn. B-listi Framsóknarflokksins fékk 17,7% í síðustu kosningunum vorið 2003. Sami flokkur var í stjórnarforystu 1978 með 16.9% á bakvið sig.

Innlent
Fréttamynd

Ný ríkisstjórn tekur við

Ný ríkisstjórn undir forsæti Halldórs Ásgrímssonar tekur formlega við á ríkisráðsfundi sem hefst á Bessastöðum eftir klukkustund. Halldór, sem verður fimmtándi forsætisráðherra lýðveldisins, hefur stólaskipti við Davíð Oddsson en hann hefur gegnt embættinu lengst allra Íslendinga.

Innlent
Fréttamynd

Tek við góðu búi

Sigríður Anna Þórðardóttir tekur við embætti umhverfisráðherra í dag. Hún hlakkar til að takast á við starfið enda umhverfismálin vaxandi málaflokkur. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Hátindur stjórnmálaferils Halldórs

Halldór Ásgrímsson segir það hljóta að vera hátind á ferli hvers stjórnmálamanns að taka við mikilvægasta embætti þjóðarinnar, forsætisráðherrastól. Davíð Oddsson, sem í dag tók einnig við nýju embætti, segist hlakka til nýrra starfa og nýrra átaka. Engin byltingaráform séu þó fyrirhuguð ennþá.

Innlent
Fréttamynd

Starfsfólk fylgir foringjunum

Nánustu samstarfsmenn Davíðs Oddssonar munu fylgja honum úr stjórnarráðinu við Lækjargötu í utanríkisráðuneytið við Rauðarárstíg þegar forystumenn stjórnarflokkanna hafa stólaskipti í dag. Sömu sögu er að segja um nánustu samverkamenn Hallldórs Ásgrímssonar.

Innlent
Fréttamynd

Nýr umhverfisráðherra

Siv Friðleifsdóttir afhenti Sigríði Önnu Þórðardóttur lykla að umhverfisráðuneytinu síðdegis í gær og voru þeir festir í kippu á rjúpufæti.</font />

Innlent
Fréttamynd

Stjórn Halldórs tekin til starfa

Ríkisstjórn Halldórs Ásgrímssonar tók formlega til starfa á ríkisráðsfundi á Bessastöðum nú síðdegis. Við það tilefni settist nýr ráðherra í ríkisstjórn en annar kvaddi.

Innlent
Fréttamynd

Nýja stjórnin tekin við

Ný ríkisstjórn, undir forsæti Halldórs Ásgrímssonar, tók formlega við á ríkisráðsfundi sem nú stendur yfir á Bessastöðum. Halldór er fimmtándi forsætisráðherra lýðveldisins. Davíð Oddsson, sem gegnt hefur embætti forsætisráðherra lengst allra Íslendinga eða í þrettán ár, er nú utanríkisráðherra í ríkisstjórn Halldórs. Þá tók Sigríður Anna Þórðardóttir við embætti umhverfisráðherra af Siv Friðleifsdóttur.</font />

Innlent
Fréttamynd

Frá Viðey til Rauðarár

Þrettán ára viðburðaríkur forsætisráðherraferill Davíðs Oddssonar er á enda. Eftirmæli AP um Davíð: "Markaðssinni sem misreiknaði sig". </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Tjáir sig ekki um rjúpnaveiðibann

Sigríður Anna Þórðardóttir er fyrsti sjálfstæðismaðurinn í stóli umhverfisráðherra. Hún ætlar að nota næstu daga til að heimsækja stofnanir ráðuneytisins en er ekki tilbúin til að lýsa afstöðu sinni til áframhaldandi veiðibanns á rjúpu. Siv Friðleifsdóttir stefnir að því að setjast í ríkisstjórn á næsta ári.

Innlent
Fréttamynd

Davíð til Slóveníu

Davíð Oddsson, sem tekur við embætti utanríkisráðherra í dag, fer til Slóveníu í boði forseta landsins 20. september.

Innlent
Fréttamynd

Stólaskipti á ríkisráðsfundi

Ríkisráð Íslands hefur verið boðað til fundar klukkan eitt í dag og lætur Davíð Oddsson þá af embætti forsætisráðherra eftir 13 ára starf. Samkvæmt venju er síðan strax haldinn nýr ríkisráðsfundur þar sem ráðuneyti Halldórs Ásgrímssonar tekur formlega við.

Innlent
Fréttamynd

Ekki draumastarf stjórnmálamanns

Halldór Ásgrímsson hefur setið lengst utanríkisráðherra og verið ráðherra alls í rúm sautján ár. Hann tekur við embætti forsætisráðherra í dag og segir að embættinu fylgi mikil ábyrgð og það reyni mikið á. Hann segir það ekki endilega draumastarf hvers stjórnmálamanns. </font /></b />

Innlent
Fréttamynd

Halldór forsætisráðherra

Halldór Ásgrímsson tekur við embætti forsætisráðherra í dag. Hann segir að undirbúningur að aðildarviðræðum um inngöngu Íslands í Evrópusambandið sé þegar hafinn þótt ekki sé víst hvenær af þeim verði. </font /></b />

Innlent