Innflytjendamál
10 11 12 13 14 15 16 17 18 … 18 ›
Kyönu Sue gert að yfirgefa landið: „Við bíðum enn eftir svari frá vinnumarkaðsráðuneytinu“ Kæru bandaríska áhrifavaldsins Kyöna Sue Powers, vegna synjunar Útlendingastofnunar um að veita henni dvalarleyfi hér á landi, hefur verið hafnað af kærunefnd útlendingamála. Kyana þarf að yfirgefa landið innan þrjátíu daga nema Vinnumálastofnun grípi inn í. Innlent 3.5.2022 21:39
Íslenskunám á vinnutíma fyrir starfsfólk Viðreisn í Kópavogi telur að það séu sameiginlegir hagsmunir sveitarfélagsins og starfsmanna sem vinna í leik- og grunnskólum bæjarins að styðja við íslenskunám þeirra með því að bjóða upp á íslenskukennslu á vinnustað á starfstíma fyrir þau sem slíkt vilja þiggja. Skoðun 3.5.2022 09:00
Óvenju margir létust á fyrstu þremur mánuðum ársins Óvenju margir létust á fyrstu þremur mánuðum ársins 2022 þegar 760 einstaklingar létust á Íslandi samkvæmt tölum Hagstofunnar. Ekki hafa verið fleiri dauðsföll á einum ársfjórðungi frá því að byrjað var að birta slíkar tölur á fjórða ársfjórðungi 2009. Innlent 25.4.2022 11:08
Framsóknarflokkurinn sniðgengur börn af erlendum uppruna í borginni Öll sveitarfélög landsins fá framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga vegna barna af erlendum uppruna - nema Reykjavík. Borgin hefur stefnt ríkinu vegna þessa og stefnir allt í að þessi framlög verði útkljáð fyrir dómstólum. Öll börn í Garðabæ af erlendum uppruna fá fjármagn frá Jöfnunarsjóði, öll börn í Kópavogi, öll börn í Hafnarfirði - öll börn nema í Reykjavík. Skoðun 22.4.2022 10:31
Fimmtíu og sex þúsund erlendir ríkisborgarar búa á Íslandi Í byrjun apríl voru 55.982 erlendir ríkisborgarar skráðir með fasta búsetu á Íslandi eða um fimmtán prósent þeirra sem búa á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Þjóðskrá. Innlent 19.4.2022 18:27
Nítján öðlast ríkisborgararétt Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis leggur til að veita nítján einstaklingum ríkisborgararétt en alls bárust 136 umsóknir. Stjórnarandstaðan hafði áður gagnrýnt Útlendingastofnun og dómsmálaráðherra fyrir seinagang í málinu. Innlent 8.4.2022 10:11
„Ég vil vera á Íslandi því þetta er heimilið mitt“ Davíð Goði Þorvarðarson gerði myndband um mögulega brottvísun Kyönu Sue Powers frá Íslandi sem hefur farið eins og eldur í sinu um samfélagsmiðla. Á innan við sólarhring voru vel yfir fimmtán þúsund manns búnir að sjá það á Instagram. Lífið 6.4.2022 13:12
Aldrei fleiri aðfluttir Íslendingar umfram brottflutta Fleiri fluttust til Íslands en frá landinu á árinu 2021 eða 4.920. Flutningsjöfnuður eykst nokkuð frá árinu 2020 þegar aðfluttir umfram brottflutta voru 2.435. Flutningsjöfnuður íslenskra ríkisborgara aldrei verið hærri en alls fluttu 828 fleiri íslenskir ríkisborgarar til landsins en frá því á seinasta ári. Talan var 557 árið 2020. Innlent 5.4.2022 10:21
Erlent starfsfólk er ferðaþjónustunni gríðarlega mikilvægt Ferðaþjónustan stendur frammi fyrir þeirri áskorun að stór hluti þess erlenda starfsfólks sem starfaði í greininni fyrir heimsfaraldur er horfinn og hefur færst til annarra atvinnugreina. Fyrir tíma heimsfaraldurs var fólk af erlendum uppruna þriðjungur af heildarfjölda starfsfólks í ferðaþjónustu. Skoðun 4.4.2022 11:31
Au pair látin gista í lítilli geymslu með bráðabirgðatjaldi Kærunefnd útlendingamála hefur fellt úr gildi ákvörðun Útlendingastofnunar um að afturkalla dvalarleyfi filippseyskrar konu sem starfaði sem „au pair“ hjá íslenskri fjölskyldu. Leyfið var afturkallað eftir að konan hætti störfum hjá fjölskyldunni vegna aðstæðna sem hún lýsti sem óviðunandi. Innlent 30.3.2022 10:31
„Þarna erum við með risastóran hóp sem hefur bara gleymst að tala við“ Fyrirtæki og stofnanir eru að gleyma að tala við fjölmennan hóp Íslendinga. Atvinnulíf 18.3.2022 07:00
Skóli fyrir alla? Nú þegar íslenskt samfélag tekur á móti fjōlda barna á flótta þurfum við að huga betur að menntun og aðlōgun þessara barna inn í grunnskóla landsins. Skoðun 11.3.2022 19:00
Úkraínumenn þjakaðir af samviskubiti gagnvart heimalandinu Úkraínskar mæðgur sem hafa búið hér á landi um árabil hafa hafið söfnun fyrir fólk í vanda í heimalandinu. Innlent 10.3.2022 20:30
Sakar ráðherra og Útlendingastofnun um valdarán Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, sakaði Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra og Útlendingastofnun um valdarán á Alþingi í dag undir liðnum fundarstjórn forseta. Innlent 10.3.2022 14:21
Úkraínumenn á Íslandi Þar sem Úkraína er ekki innan Evrópska efnahagssvæðisins er líklega meirihluti Úkraínumanna hérlendis á tímabundnu dvalarleyfi. Fólkið er þá bundið því fyrirtæki sem fær útgefið dvalarleyfið, getur ekki sagt upp og ráðið sig annars staðar. Er í raun eins og innflutt hráefni í eigu fyrirtækisins og býr vanalega í húsnæði sem launagreiðandinn skaffar. Skoðun 2.3.2022 13:31
Kæra ríkisstjórn, við hverju mega þessir 800 erlendu sérfræðingar búast? Í dag las ég grein í Frettablaðinu þar sem háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, sagði að eitt af forgangsverkefnum í ráðuneyti hennar væri að auðvelda komu erlendra sérfræðinga utan EES. Ég var undrandi að lesa þetta metnaðarfulla markmið frá nýja ráðuneytinu, í ljósi eigin persónulegrar reynslu sem fyrrverandi handhafi dvalarleyfis á grundvelli sérfræðiþekkingar, þar sem ég fór í gegnum ótrúlega niðurlægjandi, dýrt og fjandsamlegt umsóknarferli og öll áföllin sem því fylgdi. Skoðun 23.2.2022 20:01
Ég mun hafa heilsu sjúklinga minna að leiðarljósi framar öllu öðru Drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um útlendinga nr. 80/2016 (alþjóðleg vernd) eru nú í vinnslu í dómsmálaráðuneytinu. Fjölmargar umsagnir bárust um frumvarpsdrögin í samráðsgátt stjórnvalda. Læknafélag Íslands (LÍ) og Félag læknanema (FL) hafa í umsögn til dómsmálaráðuneytis gert alvarlegar athugasemdir við 19. gr. frumvarpsins, sem bætir nýrri 114. gr. a við lögin. Lagt er til að hin nýju 114. gr. a, sem ber yfirheitið heilbrigðisskoðun og læknisrannsókn, verði svohljóðandi: Skoðun 18.2.2022 12:31
Öllum lögfræðingum Rauða krossins sagt upp störfum Samningur dómsmálaráðuneytisins við Rauða krossinn um réttaraðstoð og talsmannaþjónustu fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd hefur ekki verið framlengdur og rennur út að tveimur mánuðum liðnum. Öllum lögfræðingum Rauða krossins hefur verið sagt upp störfum vegna þess. Innlent 15.2.2022 18:41
Skorað á dómsmálaráðherra að segja af sér Lagt var til á Alþingi í morgun að dómsmálaráðherra segði af sér eða yrði látinn segja af sér vegna vinnubragða hans og Útlendingastofnunar í tengslum við umsóknir fólks til Alþingis um ríkisborgararétt. Þingmenn margítrekuðu óskir um að forseti Alþingis skærist í leikinn. Innlent 10.2.2022 13:50
Erlendum ríkisborgurum hefur fjölgað um 0,4 prósent Erlendir ríkisborgarar með skráða búsetu á Íslandi voru 55.181 í upphafi febrúarmánaðar og fjölgaði um 202 frá 1. desember 2021, eða um 0,4 prósent. Innlent 10.2.2022 10:12
Bein útsending: Svarar fyrir umdeildar breytingar á veitingu ríkisborgararéttar Allsherjar- og menntamálanefnd hefur boðað Jón Gunnarsson innanríkisráðherra á sinn fund í dag, klukkan 9.10. Fundurinn er í beinni útsendingu. Innlent 10.2.2022 08:50
Jón Gunnarsson og landsdómur Útlendingastofnun hefur mánuðum saman neitað Alþingi afhendingu umsókna til þingsins um veitingu ríkisborgararéttar með lögum. Jón Gunnarsson, innanríkisráðherra hefur staðfest í grein á Vísi að stofnunin snuði þingið með vilja ráðherra Skoðun 27.1.2022 21:00
Ríkisborgararéttur og Alþingi Afskaplega undarleg umræða um Útlendingastofnun og afgreiðslu ríkisborgararéttar fór af stað á Alþingi á þriðjudaginn og það undir liðnum fundarstjórn forseta. Engu var líkara en að þingmenn sem tóku til máls væru að keppast um að fara rangt með staðreyndir málsins. Skoðun 26.1.2022 20:00
Jöfnunarsjóður sniðgengur börnin í borginni þrátt fyrir 83 milljarða framlag borgarbúa á næsta kjörtímabili Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið í landinu þar sem skólabörn og börn af erlendum uppruna fá núll krónur í framlag frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Skoðun 10.1.2022 11:01
Alþingi veitir engum ríkisborgararétt vegna tafa Útlendingastofnunar Alþingi hyggst ekki veita neinum umsækjanda ríkisborgararétt fyrir áramót en 178 umsóknir hafa borist löggjafanum. Ástæðan er sú að Útlendingastofnun hefur ekki afhent forunnin gögn sem eiga að berast nefnd sem ber ábyrgð á ferlinu með umsóknunum. Samkvæmt venju eru umsóknir afgreiddar fyrir áramót ár hvert en í þetta skipti verður það líklega ekki fyrr en í febrúar á nýju ári. Innlent 29.12.2021 23:20
Vil ég taka þátt í því að móta þjóðfélag þar sem fólk fær að lifa í sátt og samlyndi samhliða mér? Enn og aftur er þörf á að kalla eftir málefnalegri umræðu um hið mjög mikilvæga mál sem snýr að jafnrétti og samþættingu í þjóðfélaginu. Viljum við búa í þjóðfélagi þar sem öllu fólki, óháð kynþætti eða þjóðerni og þess vegna alls konar ólíkum bakgrunni er mætt með reisn og virðingu? Skoðun 20.12.2021 07:31
Erlendir ríkisborgarar nú 14,5 prósent landsmanna Alls voru 54.891 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu hér á landi þann 1. desember síðastliðinn og fjölgaði þeim um 3.513 frá 1. desember á síðasta ári, eða um 6,8 prósent. Innlent 15.12.2021 08:06
Guðmundur kaupir þrjú þúsund bækur Forstjóri Brims segir fyrirtæki landsins ekki gera nóg til að efla íslenskukunnáttu starfsfólks síns. Hann er uggandi um stöðu tungumálsins og var að enda við að gefa eina stærstu bókagjöf á Íslandi um langt skeið. Innlent 9.12.2021 07:01
Til þín íslenska. Frá mér sem er að læra þig Ég er með játningu. Ein af mörgum ástæðum þess að ég flutti til Íslands var ást mín á íslenska tungumálinu Skoðun 16.11.2021 19:30
Tæplega 54 þúsund erlendir ríkisborgarar með skráða búsetu á Íslandi Alls eru 53.973 erlendir ríkisborgarar skráðir með búsetu á Íslandi þann 1. október 2021. Fjölgað hefur um rúmlega 2.500 síðan í desember í fyrra. Innlent 14.10.2021 17:44