Lög og regla
89 90 91 92 93 94 95 96 97 … 120 ›
Þurfa að borga mun minna Baugi var gert að greiða lægri upphæð vegna endurálagningar skatta en félagið hafði gert ráð fyrir. Baugur sendi síðastliðinn föstudag bréf til helstu viðskiptafélaga sinna og banka þar sem fram kemur að félagið hafi greitt 140 milljónir króna vegna endurálagningar skatta, í stað 282 milljóna eins og fram hafði komið í tilkynningu frá félaginu. Innlent 13.10.2005 15:30
Impregilo vill rannsókn Impregilo hefur farið fram á opinbera rannsókn vegna fréttar í DV. Þar er greint frá fyrrum starfsmönnum Impregilo sem sögðust hafa verið neyddir til að borga yfirmanni fyrirtækisins brennivín í skiptum fyrir yfirvinnu. Innlent 13.10.2005 15:30
Sjómaður slasaðist á hendi Sjómaður á togaranum Guðmundi í Nesi slasaðist illa á hendi í gær. Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti manninn eftir að rætt hafði verið um ástand hans við lækni. Innlent 13.10.2005 15:30
Fimm ára barn féll af fjórðu hæð Fimm ára barn féll af svölum fjórðu hæðar fjölbýlishúss í Austurborginni rétt fyrir klukkan sex í gær. Innlent 13.10.2005 15:30
Sameining lögregluliða Lagt er til í skýrslu dómsmálaráðuneytisins um nýskipun lögreglumála sem birt var í gær að lögregluembættin þrjú á Höfðuborgarsvæðinu verði sameinuð. Innlent 13.10.2005 15:30
Reyndi að stinga lögreglu af Ökumaður fólksbíls reyndi að stinga lögregluna af þegar hún ætlaði að hafa tal af honum við venjulegt eftirlit í Breiðholti undir morgun. Eftir að hafa gefið vel í snarstöðvaði hann bílinn og hljóp út úr honum en lögreglumenn náðu honum skömmu síðar. Grunur leikur á að hann hafi stolið bílnum enda hefur hann áður orðið uppvís að slíku. Innlent 13.10.2005 15:29
Impregilo sýknað af launakröfum Ítalska verktakafyrirtækið Impregilo var í dag sýknað af launakröfum fyrrverandi innkaupastjóra upp á um þrjár og hálfa milljón króna í Héraðsdómi Reykjavíkur. Krafa innkaupastjórans, sem er viðskiptafræðingur að mennt, var í mörgum liðum en hann krafðist meðal annars greiðslu fyrir yfirvinnu á starfstíma og launa í uppsagnarfresti auk orlofs af yfirvinnu og uppsagnarfresti. Innlent 13.10.2005 15:29
Tekið undir hugmyndir Georgs "Ég fagna mjög sjónarmiðum Georgs um að íhuga leigu á skipi," segir Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins. Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, sagði í viðtali við Fréttablaðið á laugardag að hagkvæmara væri að leigja nýtt varðskip í stað þess að kaupa það. Innlent 13.10.2005 15:29
Flóðbylgja gæti náð til Grindavíku Gjósi Katla af öllum mætti gæti flóðbylgja skollið á suðurströnd landsins. Þessi möguleiki er fjarlægur en engu að síður raunhæfur og út frá honum verður unnið þegar aðgerðir vegna hugsanlegs Kötlugoss verða ákveðnar. Innlent 13.10.2005 15:29
Hagkvæmasti kosturinn valinn Birni Bjarnasyni dómsmálaráðherra finnst sjálfsagt að skoða til hlítar möguleikann á að taka nýtt varðskip á leigu í stað þess að festa á því kaup. Innlent 13.10.2005 15:29
Handtekinn með fíkniefni Lögreglan á Akranesi hafði afskipti af einum góðkunningja lögreglunnar í gærkvöld þar sem hann var á gangi í bænum. Maðurinn tók til fótanna þegar hann varð var við lögreglu en hún náði að hlaupa hann uppi og handsama. Þegar lögreglumenn handsömuðu manninn náði hann að kasta frá sér tveimur litlum bögglum sem reyndust innihalda fíkniefni. Innlent 13.10.2005 15:28
Fundu amfetamín Lögreglan í Borganesi hafði í nótt afskipti af ökumanni við hefðbundið umferðareftirlit. Innlent 13.10.2005 15:29
Flutningabíll fauk af veginum Gámaflutningabíll fauk út af veginum norðan við Akureyri í gærmorgun. Ökumaðurinn slasaðist á andliti og var fluttur á slysadeild með sjúkrabíl en meiðslin voru þó ekki mikilsháttar. Innlent 13.10.2005 15:29
Reyndi að stinga af Lögreglumenn á Akranesi höfðu afskipti af grunsamlegum manni á föstudagskvöld. Maðurinn tók til fótanna þegar hann varð var við lögreglumennina en þeir náðu þó að hlaupa hann uppi og handsama. Innlent 13.10.2005 15:29
Mikilvægum gögnum stolið Brotist var inn á heimili Sveins Rúnars Haukssonar, læknis og formanns Félagsins Ísland-Palestína, á föstudaginn. Sveinn Rúnar segir að fartölvu mikilvægum gögnum sem snerta Félagið Ísland-Palestína hafi verið stolið. Innlent 13.10.2005 15:29
Nýtt varðskip á rekstrarleigu Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, vill að nýtt varðskip verði leigt en ekki keypt. Hann telur óskynsamlegt að verja þremur milljörðum króna til kaupa á nýju skipi. Innlent 13.10.2005 15:28
Handteknir með fíkniefni og þýfi Þrír menn voru handteknir í nótt eftir að fíkniefni og þýfi fundust í fórum þeirra. Þeir voru á bíl sem lögreglan stöðvaði við eftirlit og þar sem mennirnir þóttu grunsamlegir var leitað í bílnum. Þar fannst meðal annars fartölva og geislaspilari úr bíl. Mennirnir voru færðir í fangageymslur og verða yfirheyrðir í dag. Innlent 13.10.2005 15:28
Skeytti ekki um líf ungrar stúlku Maður hefur verið dæmdur í eins og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa ekki komið ungri stúlku í bráðri lífshættu til hjálpar. Alvarlegt brot sem ber vott um skeytingarleysi gagnvart lífi stúlkunnar, segir í dómnum. Innlent 13.10.2005 15:28
Fimm teknir fyrir ölvunarakstur Lögreglan í Reykjavík tók fimm menn úr umferð í nótt vegna ölvunaraksturs sem er óvenju mikið í miðri viku. Þar af voru tveir nokkuð drukknir. Allir sinntu þó stöðvunarmerkjum lögreglu strax og enginn þeirra efndi til frekari vandræða eftir að hafa verið stöðvaður. Innlent 13.10.2005 15:28
Íhuga dómsmál til leiðréttingar Hjúkrunarfræðingar hyggjast höfða dómsmál á hendur atvinnurekanda sínum í von um að ná fram leiðréttingu á kjörum. Hæstiréttur staðfesti nýverið að starf deildarstjóra á félagsmálastofnun væri jafnverðmætt og deildarverkfræðings. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 15:28
Dæmdur í 18 mánaða fangelsi Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag mann á fertugsaldri í átján mánaða fangelsi fyrir að hafa ekki komið ungri konu undir læknishendur þegar hún veiktist lífshættulega eftir að hafa tekið inn banvænan skammt af kókaíni og E-töflum í húsi við Lindargötu í ágúst í hitteðfyrra. Innlent 13.10.2005 15:28
Sýknað af kröfu um laun Hæstiréttur sýknaði í dag VSÓ ráðgjöf af rúmlega milljónar króna kröfu náttúrufræðings, vegna vinnu við matsskýrslu um umhverfisáhrif Norðlingaölduveitu. Áður hafði héraðsdómur komist að þveröfugri niðurstöðu. Innlent 13.10.2005 15:28
Lýst eftir 14 ára stúlku Lýst er eftir fjórtán ára stúlku, Ragnheiði Clausen, sem fór af heimili sínu síðastliðinn föstudag. Síðast er vitað um ferðir hennar á sunnudag en hún var klædd í svarta úlpu og gallabuxur. Þeir sem geta gefið einhverjar upplýsingar um ferðir hennar eru vinsamlegast beðnir að hafa samband við lögregluna í Hafnarfirði. Innlent 13.10.2005 15:28
Sýknaðir af árás Tveir menn voru dæmdir í 45 og 30 daga fangelsi fyrir húsbrot á heimili Steingríms Njálssonar í maí árið 2003. Mennirnir voru sýknaðir af líkamsárás gegn Steingrími sem þeir voru einnig ákærðir fyrir. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur á miðvikudag. Innlent 13.10.2005 15:28
Dæmdur fyrir nokkur ofbeldisbrot Tæplega tvítugur maður var dæmdur til 15 mánaða fangelsisvistar í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir nokkur ofbeldisbrot. Maðurinn var dæmdur fyrir vopnað rán í Hringbrautarapóteki í september í fyrra, fyrir að hafa hótað öðrum manni með haglabyssu og fyrir að hafa ógnað afgreiðslumanni bensínstöðvar með hnífi. Innlent 13.10.2005 15:28
Fékk skilorð með skilyrðum Nítján ára piltur var, í Héraðsdómi Reykjavíkur, dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi fyrir vopnað rán í Hringbrautarapóteki með gasskammbyssu. Þá var hann sakfelldur fyrir að leggja haglabyssu að andliti manns í heimahúsi. Tólf mánuðir refsingarinnar eru skilorðsbundnir í þrjú ár með þeim skilyrðum að pilturinn sæti umsjón á skilorðstímanum. Innlent 13.10.2005 15:28
Fékk bætur fyrir líkamstjón Hæstiréttur dæmdi Reykjavíkurborg í dag til að greiða ungri konu tvær og hálfa milljón króna í skaðabætur vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir á Hinsegin dögum árið 2002. Konan varð undir skyggni sem féll á hóp hátíðargesta á Ingólfstorgi. Tugir manna urðu undir skyggninu, þar á meðal konan sem fékk höfuðhögg og skurð á höfuðið, auk þess að togna í hálsi og baki. Innlent 13.10.2005 15:28
Fólk ætti að fá að brugga Leyfa verður fólki að framleiða léttvín og líkjöra, sagði Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, á þingfundi Alþingis í gær. Innlent 13.10.2005 15:27
Gripnir með amfetamín og hass Lögreglan á Akranesi gerði nokkuð magn fíkniefna upptækt þegar hún stöðvaði bifreið í nótt við umferðareftirlit. Í bifreiðinni voru þrír ungir menn og þótti hegðun þeirra einkennileg. Ákveðið var að skoða nánar hvað þarna var á ferð og var gerð lausleg leit á vettvangi. Fundust þá fjögur grömm af ætluðu amfetamíni sem einn þeirra hafði látið falla á jörðina. Innlent 13.10.2005 15:27
Sigldi trillu drukkinn Maður á fimmtugsaldri var handtekinn fyrir að sigla trillu undir áhrifum áfengis við Árskógsströnd á þriðjudag. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Dalvík barst henni tilkynning um klukkan 17.30 um einkennilega siglingu trillu úti fyrir ströndinni. Innlent 13.10.2005 15:27