Faraldur kórónuveiru (COVID-19)
201 202 203 204 205 206 207 208 209 … 334 ›
Neyslan merki þess að aðgerðir stjórnvalda virki Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra sér fram á bjartari tíma í efnahagsmálum hér á landi á komandi ári. Komur ferðamanna séu lykill að góðum árangri í þeim efnum. Innlent 4.12.2020 15:57
Íþróttastarf í kórónuveirufaraldri: Sóttvarnir og íþróttastarf eiga samleið Frá því kórónuveirufaraldurinn skall á hefur íþróttahreyfingin á Íslandi staðið með sóttvörnum og tekið afstöðu með yfirvöldum um að stöðva íþróttastarf þegar á hefur reynt. Þessar stöðvanir á íþróttastarfi eru þó farnar að draga dilk á eftir sér og hefur gert mörgu íþróttafólki erfitt fyrir að halda samfellu í æfingum sínum. Skoðun 4.12.2020 15:31
Faraldurinn víða verri en í vor Þrátt fyrir að hafa tekist að draga verulega úr umfangi faraldurs nýju kórónuveirunnar í vor og í sumar, er staðan nú víðast hvar í Evrópu svipuð eða verri en þá. Bæði smituðum og dauðsföllum hefur farið hratt fjölgandi. Erlent 4.12.2020 15:18
Litakóðakerfi vegna Covid-19 samþykkt Ríkisstjórnin hefur samþykkt að taka upp Covid-19 viðvörunarkerfi sem byggir á litum. Tillaga þessi kom frá Almannavarnardeild ríkislögreglustjóra og Embættis landlæknis og svipar veðurviðvörunarkerfi Veðurstofu Íslands. Innlent 4.12.2020 14:39
Veikindi Víðis fara versnandi Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn fór í skoðun á Covid-göngudeild Landspítalans í dag vegna íferðar í lungum. Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá almannvarnadeild ríkislögreglustjóra og staðgengill Víðis, segir Víði kominn heim eftir skoðun. Hann sé brattur miðað við aðstæður. Innlent 4.12.2020 14:23
Spánverjar varir um sig gagnvart nýju bóluefni Meira en helmingur Spánverja er ekki tilbúinn að láta bólusetja sig með nýju bóluefni gegn Covid-19 um leið og það verður aðgengilegt ef marka má niðurstöður nýrrar könnunar. Spænsk stjórnvöld ætla sér að bólusetja 15-20 milljónir manna fyrir mitt næsta ár. Erlent 4.12.2020 13:23
„Sautján ára ég hefði líklega hætt í handbolta í þessu ástandi“ Fyrrum handboltamaður segir að hann hefði líklega hætt í handbolta hefði hann lent í slíku æfinga- og keppnisbanni eins og nú stendur yfir. Handbolti 4.12.2020 12:30
„Þetta er alls ekki tíminn til að slaka á“ Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir það ánægjulegt að allir þeir tólf sem greindust með veiruna innanlands í gær hafi verið í sóttkví. Innlent 4.12.2020 11:47
Tólf greindust innanlands og allir í sóttkví Tólf greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Allir sem greindust voru í sóttkví. Innlent 4.12.2020 10:52
Vormisserisumsóknir 60 prósent fleiri en í fyrra Háskóla Íslands bárust hátt í 1.800 umsóknir um grunn- eða framhaldsnám fyrir komandi vormisseri og eru þær um 60 prósent fleiri en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá skólanum og segir að reikna megi með að um 16 þúsund nemendur verði í skólanum á næsta ári. Innlent 4.12.2020 09:04
Meira en helmingur Covid-sjúklinga fann fyrir truflun á bragðskyni Niðurstöður íslenskrar rannsóknar um tíðni og þróun einkenna meðal fólks sem greindist með Covid-19 í fyrstu bylgju faraldursins sýna að meira en helmingur sjúklinga fann fyrir bragðskyns- og lyktarskynstruflunum. Niðurstöðurnar sýna einnig að nærri helmingur sjúklinganna fann fyrir einkennum í meltingarfærum. Innlent 4.12.2020 07:44
Fyrstu skammtarnir komnir til Bretlands Fyrstu skammtar af bóluefni lyfjafyrirtækjanna Pfizer og BioNTech komu til Bretlands í kvöld. Birgðirnar voru fluttar í „sérstaka miðstöð á ótilgreindum stað“ og verður nú dreift um landið til bólusetningar. Erlent 3.12.2020 23:45
Lýsir áhrifunum sem Moderna-sprautan hafði á hann Bandarískur karlmaður sem tók þátt í bóluefnisrannsókn lyfjafyrirtækisins Moderna kveðst hafa fengið vægar aukaverkanir eftir seinni skammt. Hann segir reynsluna ekki beint „dans á rósum“ en kveðst hiklaust myndu láta sprauturnar aftur yfir sig ganga. Erlent 3.12.2020 23:01
Vandræði við bóluefnaframleiðslu Pfizer Lyfjaframleiðandinn Pfizer gerir ráð fyrir því að geta aðeins dreift helmingi þeirra Covid-19 bóluefnaskammta sem dreifa átti fyrir lok þessa árs. Að sögn framleiðandans er það vegna vandamála sem upp hafa komið við framleiðslu hráefna, sem nauðsynleg eru bóluefninu. Erlent 3.12.2020 22:07
Kvikmyndir Warner Bros. frumsýndar í kvikmyndahúsum og á streymisveitum samtímis Allar 17 kvikmyndirnar sem kvikmyndaframleiðandinn Warner Bros. ætlar að frumsýna á næsta ári verða frumsýndar samtímis í kvikmyndahúsum og á streymisveitunni HBO Max. Bíó og sjónvarp 3.12.2020 19:51
Bólusetningar hefjist á fyrstu vikum næsta árs Heilbrigðisráðherra segir að bólusetningar við kórónuveirunni hefjist á fyrstu vikum næsta árs. Hjarðónæmi við veirunni geti orðið að veruleika strax á fyrsta ársfjórðungi. Innlent 3.12.2020 17:56
Gaupi hitti Þórólf: „Finnst íþróttamenn ekki geta kvartað umfram aðra“ Guðjón Guðmundsson ræddi við Þórólf Guðnason sóttvarnalækni í dag. Hann segir að íþróttafólk búi ekki við meiri hömlur vegna kórónuveirufaraldursins en aðrir og segir rangt að Ísland sé eitt fárra landa sem banni íþróttaiðkun. Sport 3.12.2020 15:35
Faraldurinn nær nýjum hæðum í Bandaríkjunum Faraldur nýju kórónuveirunnar náði methæðum í Bandaríkjunum í gær. 3.150 manns dóu og samtals voru fleiri en hundrað þúsund manns á sjúkrahúsi vegna Covid-19. Rétt rúmlega 200 þúsund greindust smitaðir af Covid-19. Erlent 3.12.2020 14:09
Sóttvarnaaðgerðir séu ekki meira íþyngjandi fyrir íþróttamenn en aðra Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, minnti á það á upplýsingafundi almannavarna og landlæknis í dag að þær sóttvarnaaðgerðir sem gripið hefur verið til hérlendis vegna kórónuveirufaraldursins séu ekki meira íþyngjandi fyrir íþróttamenn heldur en aðra. Innlent 3.12.2020 12:23
Ríkið kaupir bóluefni af Pfizer fyrir 85 þúsund manns Skrifað verður undir samning Íslands við framleiðanda bóluefnis Pfizer í næstu viku um kaup á bóluefni sem dugar fyrir 85.000 einstaklinga. Vonir standa til að Pfizer fái skilyrt markaðsleyfi frá Lyfjastofnun Evrópu 29. desember þegar fjallað verður um hvort stofnunin geti mælt með því að lyfið verði tekið í notkun. Innlent 3.12.2020 11:59
Segir ótímabært að gera ráð fyrir því að bólusetning hefjist fljótlega eftir áramót Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hvetur til raunhæfrar bjartsýni varðandi það hvenær bólusetning gegn Covid-19 hér á landi. Hann segir ótímabært að nánast gera ráð fyrir því að bólusetning geti hafist fljótlega eftir áramót og ekki sé hægt að ganga út frá því sem vísu. Innlent 3.12.2020 11:40
Sigldu til hafnar eftir að skipverji fékk einkenni Frystitogarinn Baldvin Njálsson GK 400 sigldi í nótt úr Ísafjarðardjúpi og til hafnar í Hafnarfirði. Ástæðan eru einkenni skipverja sem fór í sýnatöku í morgun. Aðrir skipverjar bíða niðurstöðu og líður vel að sögn skipstjórans. Innlent 3.12.2020 11:31
Bóluefni gegn COVID: Fólk á átakasvæðum má ekki gleymast Alþjóðaráð Rauða krossins (ICRC) leggur áherslu á að fólki á átakasvæðum verði einnig tryggður aðgangur að bólusetningum við COVID-19. Heimsmarkmiðin 3.12.2020 11:24
Fjórtán greindust innanlands og voru þrettán þeirra í sóttkví Fjórtán greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Þrettán af þeim fjórtán sem greindust voru í sóttkví við greiningu, eða 93 prósent. Innlent 3.12.2020 10:50
Tugir einstaklinga smitaðir af Covid-19 eftir „swing“-ráðstefnu í New Orleans 41 einstaklingur hefur greinst með Covid-19 eftir að hafa sótt svokallaða „swing“-ráðstefnu í New Orleans í Louisiana í Bandaríkjunum. Yfirvöld segja ráðstefnuna hafa verið viðburð sem stuðlaði að „ofurdreifingu“ kórónuveirunnar sem veldur Covid-19. Erlent 3.12.2020 10:33
Svona var 143. upplýsingafundurinn vegna kórónuveirunnar Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og embætti landlæknis boða til upplýsingafundar klukkan 11 í dag. Innlent 3.12.2020 10:09
Frumvarp um greiðslur til íþróttafélaga komið inn á Alþingi Stjórnvöld á Íslandi ætla með nýju frumvarpi inn á Alþingi að koma til móts við hið mikla rekstraráfall sem íþróttahreyfingin hefur orðið fyrir á árinu vegna kórónuveirufaraldursins. Sport 3.12.2020 09:13
„Það opnast alltaf einhverjar nýjar dyr“ „Það er bara allt að verða klárt“ segir söngkonan Sigga Beinteins, sem undirbýr nú jólatónleikana sína. Viðburðurinn verður með óhefðbundnu sniði í ár, en vegna heimsfaraldursins verða engir áhorfendur í Hörpu og geta Íslendingar horft á tónleikana í sjónvarpi sínu eða í gegnum streymi á föstudagskvöldið. Lífið 3.12.2020 08:00
Gjaldþrot í ferðaþjónustu færri en óttast var Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, telur að gjaldþrot fyrirtækja í ferðaþjónustu á árinu 2020 verði færri en óttast var í sumar. Þá var vonast til að gjaldþrot fyrirtækja í greininni yrðu ekki fleiri en 30 til 40 prósent af heildarfjölda fyrirtækja en nú sé vonast til að hlutfallið gæti mögulega orðið lægra en svo. Viðskipti innlent 3.12.2020 07:36
Forstjóri CDC spáir erfiðasta vetrinum í lýðheilsusögu Bandaríkjanna Robert Redfield, forstjóri bandarísku sóttvarnastofnunarinnar (CDC), varar við því að veturinn gæti orðið sá erfiðasti í lýðheilsusögu Bandaríkjanna. Spáir hann því að dauðsföll vestanhafs af völdum Covid-19 gætu náð 450 þúsundum í febrúar. Erlent 3.12.2020 06:16