Hernaður
24 25 26 27 28 29 30 31 32 … 54 ›
Tugir látnir og fleiri saknað eftir eldflaugaárás á íbúðablokk Minnst 29 hafa fundist látnir og 44 er leitað eftir að Rússar gerðu eldflaugaárás á íbúðablokk í Dnipro í Úkraínu í gær. Ólíklegt er að nokkur finnist á lífi í rústunum. Erlent 15.1.2023 23:23
Segir enn barist í Soledar en sveitum Rússa hafi fjölgað úr 250 í 280 Úkraínumenn halda enn borginni Soledar en hersveitum Rússa í Úkraínu hefur fjölgað úr 250 í 280 frá því í síðustu viku. Þetta sagði Hanna Maliar, aðstoðarutanríkisráðherra Úkraínu, á blaðamannafundi í morgun. Erlent 12.1.2023 12:36
Pútín skiptir um herforingja í Úkraínu Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra Rússlands, tilkynnti í dag að Valery Gerasimov, formaður herforingjaráðs Rússlands, muni taka yfir stjórn innrásar Rússa í Úkraínu. Gerasimov tekur við af herforingjanum Sergei Surovikin, sem hefur verið yfir innrásinni undanfarna þrjá mánuði. Erlent 11.1.2023 18:10
Rússar sækja fram í Soledar Hersveitir Rússa hafa náð árangri gegn Úkraínumönnum í bænum Soledar í austurhluta Úkraínu. Bærinn er norður af Bakhmut en gífurlega harðir bardagar hafa geisað á svæðinu um langt skeið. Rússar hafa reynt að ná Bakhmut í marga mánuði en virðast nú ætla að reyna að umkringja borgina. Erlent 10.1.2023 22:30
Kallar eftir stigmögnun af hálfu bandamanna Sir Richard Shirreff, fyrrverandi hershöfðingi hjá Atlantshafsbandalaginu, segir að Bretar hefðu átt að senda Úkraínumönnum skriðdreka fyrir mörgum mánuðum. Bretar íhuga nú að senda Challenger-2 skriðdreka til Úkraínu. Erlent 10.1.2023 11:07
Íhuga að senda breska skriðdreka Ríkisstjórn Bretlands íhugar að senda Challenger 2 skriðdreka til Úkraínu. Málið hefur verið til skoðunar í nokkrar vikur en ef af verður verða Bretar fyrstir til að senda Úkraínumönnum skriðdreka sem framleiddir eru á Vesturlöndum. Erlent 9.1.2023 18:15
Gífurlegur fórnarkostnaður ráðist Kína inn í Taívan Geri Kína innrás í Taívan er líklegt að það muni skila sér í bandarískum sigri, en þó með miklum fórnarkostnaði fyrir alla sem koma að stríðsátökunum með beinum hætti. Bandaríski herinn mun laskast töluvert og kínverski flotinn verða að engu. Erlent 9.1.2023 11:56
Ekkert hæft í fullyrðingum Rússa um mikið mannfall Stjórnvöld í Úkraínu vísa alfarið á bug fullyrðingum Rússa frá því í gær sem sögðust hafa fellt 600 úkraínska hermenn á einu bretti í eldflaugaárás. Erlent 9.1.2023 07:36
Yfirlýsingar um vopnahlé ekkert nema blekkingar og áróður Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir yfirlýsingar Rússlandsforseta um vopnahlé yfir rússnesku jólahátíðina ekkert annað en blekkingarleik til að freista þess að tefja gagnsókn Úkraínuhers í austurhluta Donbas. Erlent 6.1.2023 08:56
Varaskeifan segir frá: Manndráp í Afganistan, kókaín og fjölskylduerjur Eintök af nýrri sjálfsævisögu Harry Bretaprins sem nefnist „Spare“ eða „Varaskeifan“ hafa valdið miklum usla hjá þeim meðlimum bresku pressunnar sem hafa fengið að lesa bókina á undan almenningi. Í bókinni talar Harry um það þegar hann tapaði sveindómnum, notaði kókaín og drap 25 í Afganistan. Erlent 5.1.2023 23:08
Pútín vill jólavopnahlé Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur skipað Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra sínum, að koma á einhliða vopnahléi í hádegi á morgun til miðnættis á laugardagskvöld (7. janúar), eða í 36 klukkustundir. Það er eftir að æðsti klerkur rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar lagði slíkt vopnahlé til. Erlent 5.1.2023 15:47
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar sagðir stefna á aðra herkvaðningu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er að undirbúa þjóð sína fyrir langvarandi átök í Úkraínu og Rússar eru sagðir vera að undirbúa aðra herkvaðningu. Bakhjarlar Úkraínumanna vinna að því að senda ný vopnakerfi til landsins en forðast enn að senda skriðdreka. Erlent 5.1.2023 14:00
Kokkur Pútíns segir hvert hús í Bakhmut vera virki Rússneski herinn á í basli með að brjóta varnir Úkraínumanna við Bakhmut á bak aftur þar sem „hvert hús er virki“, samkvæmt Yevgeny Prigozhin, eiganda Wagner Group málaliðahópsins. Hann og Wagner hafa leitt viðleitni Rússa við að ná tökum á bænum um mánaða skeið en víglínunum þar hefur verið lýst sem „hakkavél“. Erlent 3.1.2023 15:13
Farsímanotkun sögð hafa leitt til einnar mannskæðustu árásar stríðsins Rússneskir ráðamenn í Donetsk-héraði í Úkraínu segja að þeir hermenn sem féllu í einni af mannskæðustu árásum stríðsins í Úkraínu á nýársnótt geti kennt sjálfum sér um. Úkraínumenn hafi fundið þá vegna þess hve margir af hermönnunum voru að nota farsíma sína. Erlent 3.1.2023 11:16
Reka sendiherra Frakklands úr landi og líta til Rússlands Herstjórn Búrkína Fasó hefur skipað sendiherra Frakklands að yfirgefa landið. Tvær vikur eru síðan að mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna í Búrkína Fasó var gert að yfirgefa landið. Herstjórnin hefur verið að styrkja samband Búrkína Fasó og Rússlands að undanförnu. Erlent 3.1.2023 10:08
Rússar héldu árásum sínum áfram í nótt Loftvarnaflautur hljómuðu í Kænugarði í gærkvöldi og nótt en samkvæmt heimildarmönnum innan úkraínska hersins skutu loftvarnakerfi niður um það bil tuttugu skotmörk, meðal annars dróna. Erlent 2.1.2023 07:14
Fyrstu árásirnar þegar hálftími var liðinn af nýja árinu Rússar héldu árásum sínum áfram á Úkraínu í dag og var fyrstu flugskeytunum skotið á höfuðborgina Kænugarð þegar einungis um hálftími var liðinn af nýja árinu. Skotið var á byggingar í tveimur hverfum höfuðborgarinnar og er að minnsta kosti einn látinn. Erlent 1.1.2023 22:40
Fjöldamargar loftárásir á Kænugarð Fjöldamargar loftárásir hafa verið gerðar á Kænugarð og fleiri borgir Úkraínu í dag. Volodómír Selenskí forseti Úkraínu segir Rússa hafa ætlað sér að eyðileggja nýársfögnuð Úkraínumanna með árásunum. Loftvarnarflautur hafa ómað í höfuðborginni í allan dag. Erlent 31.12.2022 13:25
Yfirrabbíninn í Moskvu hvetur gyðinga til að flýja Rússland Rabbíninn Pinchas Goldschmidt hefur hvatt gyðinga búsetta í Rússlandi til að yfirgefa landið á meðan þeir geta. Hann segist óttast að þeir verði gerðir að blórabögglum fyrir þeim erfiðleikum sem Rússland stendur frammi fyrir vegna innrásarinnar í Úkraínu. Erlent 30.12.2022 08:36
Eldflaugum rigndi yfir Úkraínu: „Tilgangslaus villimennska“ Úkraínuher skaut niður meirihluta 69 eldflauga sem Rússlandsher skaut yfir landið í dag. Fjöldi heimila og mikilvægir innviðir skemmdust í árásunum. Erlent 29.12.2022 22:50
Segja yfir hundrað flugskeyti á lofti yfir Úkraínu Loftvarnaflautur eru sagðar hljóma víða um Úkraínu eins og stendur og þá hafa heyrst sprengingar í Kænugarði. Oleksiy Arestovyck, ráðgjafi Vólódímírs Selenskís, sagði í morgun að fleiri en 100 flugskeytum hefði verið skotið á loft af Rússum, í nokkrum bylgjum. Erlent 29.12.2022 07:47
Rússar hæfðu fæðingardeild í Kherson í stórskotaliðsárás Almennir borgarar í Kherson í Úkraínu flýja nú heimili sín unnvörpum en árásir Rússa á borgina hafa færst í vöxt síðustu tvo sólarhringana. Erlent 28.12.2022 14:48
Stjórnvöld í Rússlandi greiða fyrir varðveislu sæðis hermanna Rússneska ríkisfréttastofan Tass greindi frá því í dag að heilbrigðirsráðuneytið hefði samþykkt að fjármagna áætlun sem mun gera rússneskum hermönnum kleift að láta frysta úr sér sæði, áður en þeir halda á vígsstöðvarnar í Úkraínu. Erlent 28.12.2022 07:38
Úkraínumenn fikri sig nær endurheimt lykilborga í Luhansk Margt bendir til þess að Úkraínumenn séu nú að fikra sig nær því að endurheimta Kreminna, lykilborg í Luhansk héraði, sem gæti opnað möguleika á frekari sókn. Harðir bardagar halda áfram bæði í austur- og suðurhluta Úkraínu. Erlent 27.12.2022 18:11
Selenskí segir átökin í Donbas „erfið og sársaukafull“ Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir átökin sem nú standa yfir í Donbas „erfið og sársaukafull“. Ástandið á framlínunni; í Bakhmut, Kreminna og víðar, krefðist styrks og einbeitingar, þar sem Rússar beittu öllum kröftum í að sækja fram. Erlent 27.12.2022 07:36
Hersveitir Serbíu á hæsta viðbúnaðarstigi vegna Kósovó Hersveitir Serbíu eru á hæsta viðbúnaðarstigi að sögn varnarmálaráðherrans Milos Vucevic en ástæðan er stigmögnun átaka við nágrannaríkið Kósovó. Erlent 27.12.2022 06:42
Norður-Kórea sendi dróna inn í lofthelgi nágrannana Suður-Kóreumenn brugðust hratt við þegar norður-kóreskum drónum var flogið inn í lofthelgi landsins í dag. Skotið var í átt að drónunum og orrustuþotur sendar til móts við þá. Erlent 26.12.2022 11:48
Úkraínskur dróni komst langt inn í Rússland Rússneski herinn skaut niður úkraínskan dróna við Engels herflugvöllinn. Engels er um sex hundruð kílómetra austur af landamærum Rússlands og Úkraínu. Erlent 26.12.2022 10:38
Segir Rússa reiðubúna til að semja Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir Rússa reiðubúna til að semja um endalok innrásar þeirra í Úkraínu. Hann segir Úkraínumenn og vesturlönd ekki vilja ganga að samningaborðinu. Erlent 25.12.2022 13:44
Óvenjumikill fjöldi í friðargöngu Friðargangan var gengin í Reykjavík, Ísafirði og á Akureyri í kvöld eftir tveggja ára hlé. Skipuleggjandi fagnar því að gengið hafi verið að nýju. Innlent 23.12.2022 23:10