Erlend sakamál
11 12 13 14 15 16 17 18 19 … 21 ›
Maðurinn sem rændi þrettán ára stúlku ákærður fyrir morð á annarri stúlku Maðurinn sem grunaður er um að hafa rænt þrettán ára stúlku nálægt bænum Kirkerup í Danmörku í síðasta mánuði er grunaður um að hafa myrt aðra stúlku árið 2016. Hann hefur verið ákærður af lögreglu fyrir það morð. Erlent 26.4.2023 10:13
Þrír dæmdir í lífstíðarfangelsi fyrir morð á tólf ára stúlku Klíkuleiðtogi að nafni Maykil Yokhanna og tveir aðrir félagar hans hafa verið dæmdir í lífstíðarfangelsi í Svíþjóð fyrir morð á tólf ára stúlku. Stúlkan var skotin í Norsborg, suður af Stokkhólmi, árið 2020. Erlent 26.4.2023 10:08
Ákærð fyrir að myrða mann sem kúgaði móður hennar með kynlífsmyndbandi TikTok-áhrifavaldur ætlaði að leggja gildru fyrir mann sem var að fjárkúga móður hennar með kynlífsmyndbandi. Menn á hennar vegum þvinguðu bíl mannsins af veginum með þeim afleiðingum að hann og vinur hans létust. Konan og móðir hennar hafa verið ákærðar fyrir morð ásamt sex öðrum. Erlent 25.4.2023 00:23
Sveltu sig til dauða til þess að hitta Jesúm Að minnsta kosti tuttugu og eitt lík hefur verið grafið upp í tengslum við rannsókn á prédikara sem er talinn hafa sagt fylgjendum sínum að svelta sig til dauða til þess að hitta Jesúm í Kenía. Börn eru á meðal þeirra látnu en lögregla býst við að finna enn fleiri lík. Erlent 23.4.2023 11:53
Strákurinn úr Breiðholti sem gerðist fíkniefnabarón „Hinn ákærði sýnir merki um andfélagslegan persónuleika, sem endurspeglast í því að hann á erfitt með að laga sig að reglum samfélagsins. Hinn ákærði er drifinn áfram af voninni um skjótfenginn gróða.“ Þetta kemur fram í niðurstöðu dómstóls í Ríó de Janeiro árið 2012, þegar Sverrir Þór Gunnarsson var dæmdur í 22 ára fangelsi fyrir umfangsmikið fíkniefnasmygl. Vinur Sverris úr æsku segir hann alltaf hafa verið glæpamann. Innlent 21.4.2023 07:01
Baldwin laus allra mála Leikarinn Alec Baldwin verður ekki ákærður fyrir manndráp af gáleysi. Baldwin skaut kvikmyndatökustjórann Halyna Hutchins til bana við tökur á myndinni Rust árið 2021. Erlent 20.4.2023 20:30
21 ár í fangelsi fyrir að gefa tvífara sínum eitraða ostaköku Viktoria Nasyrova, 47 ára gömul rússnesk kona, hefur verið dæmd í 21 árs fangelsi fyrir að eitra fyrir tvífara sínum í ágúst árið 2016. Gaf hún henni eitraða ostaköku en tvífarinn, sem einnig er rússnesk kona, lifði atvikið af. Erlent 20.4.2023 10:08
„Aðeins skrímsli gæti gert barni þetta“ Danskur karlmaður var í dag ákærður fyrir að nema 13 ára gamla stúlku á brott. Hann er grunaður um að hafa nauðgað stelpunni ítrekað meðan hann frelsissvipti hana í rúman sólarhring. Saksóknari útilokar ekki að hann hafi haft vitorðsmenn. Móðir Filippu segir ómögulegt að setja sig í spor hennar og að fjölskyldan geri allt sem í hennar valdi stendur til þess að styðja hana. Erlent 17.4.2023 20:30
Filippa fannst á lífi Filippa, þrettán ára stúlka sem saknað hafði verið síðan í eftirmiðdaginn í gær, fannst á lífi í heimahúsi í Kirkerup í Danmörku í dag. 32 ára gamall karlmaður hefur verið handtekinn. Erlent 16.4.2023 13:20
Rændi banka til að fjármagna kvikmynd Bandarískur karlmaður sem rændi banka síðastliðið sumar til að fjármagna tökur á kvikmynd var dæmdur í tíu ára fangelsi í Flórída-ríki fyrir ránið. Maðurinn náði að hafa á brott með sér rúmlega fjögur þúsund dollara í seðlum úr bankanum en var handtekinn síðar eftir ábendingar til lögreglu. Erlent 16.4.2023 09:56
Björn Leví sver af sér ásakanir um gerendameðvirkni Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, hefur í þrígang þurft að uppfæra færslu um mál Gylfa Þórs Sigurðssonar, sem hann birti á Facebook í gærkvöldi, eftir að fjöldi fólks sakaði hann um gerendameðvirka orðræðu. Innlent 15.4.2023 15:29
Stálu gríðarlegu magni af klinki Þjófar sem brutust inn í flutningabíl sem lagður var yfir nótt á bílastæði í borginni Fíladelfíu í Bandaríkjunum höfðu á brott með sér gríðarlegt magn af klinki sem var verið að geyma í bílnum. Alls var magnið af klinkinu í bílnum sjö hundruð og fimmtíu þúsund dollara virði en talið er að þjófarnir hafi náð að taka um hundrað þúsund dollara virði með sér. Erlent 14.4.2023 08:49
Ráðgjafi ákærður fyrir morð á milljarðamæringi Lögreglan í San Francisco í Bandaríkjunum segist hafa handtekið og ákært tölvuráðgjafa fyrir morðið á Bob Lee, stofnanda greiðsluforritsins Cash App. Lee var stunginn til bana í borginni í síðustu viku. Erlent 13.4.2023 23:48
Íslendingur dæmdur í lífstíðarfangelsi í Flórída: „Ég vildi ekki gera þetta“ 31 árs íslenskur karlmaður, Stefán Gíslason, hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi í Pensacola í Flórída, fyrir að hafa orðið karlmanni að bana árið 2020. Dómur var kveðinn upp í Escambia Circuit Court í Pensacola þann 6. mars síðastliðinn. Innlent 13.4.2023 12:39
Stofnandi Theranos kemst ekki hjá fangelsisvist Alríkisdómstóll í Kaliforníu hafnaði kröfu Elizabeth Holmes, stofnanda fallna heilbrigðistæknifyrirtækisins Theranos, um lausn gegn tryggingu á meðan hún áfrýjar fangelsisdómi sem hún hlaut fyrir fjársvik. Viðskipti erlent 11.4.2023 19:53
Síðasti Nürnberg-saksóknarinn látinn Benjamin Ferencz, sem var saksóknari í Nürnberg-réttarhöldunum, er látinn. Hann var 103 ára. Hann var síðasti eftirlifandi saksóknarinn sem rak mál í Nürnberg-réttarhöldunum. Erlent 9.4.2023 15:05
Játar að hafa selt The Wire-stjörnu banvænan skammt eiturlyfja Eiturlyfjasalinn Irvin Gartagena hefur játað að hafa selt leikaranum Michael K. Williams skammt eiturlyfja sem dró hann til dauða. Hann verður dæmdur í fimm til fjörutíu ára fangelsi fyrir glæpinn. Lífið 6.4.2023 12:02
Maðurinn sem rændi Cleo Smith dæmdur í þrettán ára fangelsi Terence Kelly, 37 ára, hefur verið dæmdur í þrettán ára og sex mánaða fangelsi fyrir að hafa rænt hinni fjögurra ára Cleo Smith þar sem hún svaf í tjaldi ásamt fjölskyldu sinni á tjaldsvæði í Vestur-Ástralíu. Erlent 5.4.2023 07:13
Búið að hrekja kenningu konu sem taldi sig McCann Búið er að hrekja kenningu pólskrar konu, sem taldi sig vera Madeleine McCann, með DNA-rannsókn. McCann hvarf sporlaust þegar hún var þriggja ára í fríi með fjölskyldu sinni í Portúgal árið 2007. Hvarfið vakti heimsathygli og hefur fengið gríðarmikla umfjöllun. Lífið 4.4.2023 22:24
Handtóku meinta íslamista sem vildu hefna fyrir Kóranbrennu Sænska leyniþjónustan handtók fimm menn sem hún grunar um að hafa lagt á ráðin um hryðjuverk. Mennirnir eru sagðir hafa tengsl við Ríki íslams. Málið er eitt nokkurra sem sænsk yfirvöld segjast rannsaka í kjölfar umdeildra Kóranbrenna dansks hægriöfgamanns. Erlent 4.4.2023 10:14
Ráðgjafi ríkisstjóra féll í átökum við lögreglu Fyrrverandi skrifstofustjóri ríkisstjóra Maryland í Bandaríkjunum lést af völdum skotsárs sem hann hlaut í átökum við fulltrúa alríkislögreglunnar FBI í gær. Maðurinn hafði verið á flótta undan yfirvöldum í þrjár vikur enn hann var sakaður um fjársvik. Erlent 4.4.2023 09:11
Tate-bræður úrskurðaðir í stofufangelsi Samfélagsmiðlastjarnan umdeilda Andrew Tate, bróðir hans Tristan og tveir vitorðsmenn þeirra eru lausir úr gæsluvarðhaldi í Rúmeníu. Þeir hafa hins vegar verið úrskurðaðir í stofufangelsi. Erlent 31.3.2023 19:32
Pistoriusi neitað um reynslulausn Fangelsisyfirvöld í Suður-Afríku synjuðu umsókn Oscars Pistorius, fyrrverandi Ólympíugullverðlaunahafa, um reynslulausn í dag. Pistorius var ekki talinn hafa afplánað nóg af fangelsisdómi sem hann hlaut fyrir að drepa kærustu sína. Erlent 31.3.2023 14:42
Ákærður fyrir morðið á Miu 37 ára gamall karlmaður hefur verið ákærður fyrir morðið á hinni 22 ára gömlu Miu Skadhauge Stevn í Álaborg í Danmörku fyrir rúmu ári síðan. Maðurinn kveðst vera saklaus. Erlent 22.3.2023 14:25
Játar að hafa sett konuna í frystinn og er með nauðgunardóma á bakinu Norskur karlmaður, sem var handtekinn á fimmtudag eftir að lík sambýliskonu hans fannst í frystikistu á sveitabæ hans í Vermalandi í Svíþjóð, hefur játað að hafa vanvirt lík konunnar en neitar að hafa myrt hana. Hann á langan sakaferil að baki og hefur meðal annars hlotið dóma fyrir tvær nauðganir. Erlent 20.3.2023 23:46
Líkamsleifar pilts grafnar upp vegna Murdaugh-málsins Til stendur að grafa upp líkamsleifar Stephen Smith, sem var 19 ára þegar hann fannst látinn á sveitavegi nærri Moselle, heimili lögmannsins Alex Murdaugh. Fyrir tveimur vikum var Murdaugh fundinn sekur um að hafa myrt son sinn og eiginkonu. Erlent 20.3.2023 07:47
Fundu líkamsleifar konu í frysti Lögreglan í Vermalandi í Svíþjóð fann hluta af líki konu í frystikistu á sveitabæ í fyrradag. Talið er að líkið hafi verið í frystinum í fjölda ára og karlmaður er sagður hafa játað að hafa myrt konuna. Erlent 18.3.2023 13:32
Stal þyrlu en brotlenti henni strax Misheppnaður þyrluþjófur reyndi að ræsa fjórar þyrlur á flugvelli í Sacramento í Bandaríkjunum á miðvikudagsmorgun. Honum tókst að ræsa eina þeirra en brotlenti henni um leið og hann tók á loft. Erlent 17.3.2023 10:19
Saksóknarinn í málinu gegn Baldwin segir af sér Saksóknari sem haldið hefur utan um rannsókn yfirvalda í Nýju Mexíkó á dauða Haylynu Hutchins, sem leikarinn Alec Baldwin skaut til bana við tökur myndarinnar Rust, hefur sagt af sér. Það er eftir að lögmenn Baldwins héldu því fram að skipun hennar í embætti sérstaks saksóknara færi gegn stjórnarskrá ríkisins, þar sem Andrea Reeb, umræddur saksóknari, sæti einnig á þingi Nýju Mexíkó. Erlent 15.3.2023 14:20
Rændi þrettán ára stelpu og læsti í skúr í tvær vikur Karlmaður í Norður-Karólínu fylki í Bandaríkjunum var á föstudaginn handtekinn grunaður um að hafa rænt þrettán ára stelpu, brotið gegn henni kynferðislega og læst hana inni í skúr í tvær vikur. Maðurinn á yfir höfði sér fjölda ákæra fyrir brot sín. Erlent 14.3.2023 23:33