Stj.mál
68 69 70 71 72 73 74 75 76 … 187 ›
Samfylking missir mann "Þannig var að þegar Gunnar Örlygsson flutti sig til Sjálfstæðisflokksins þá stóðu fjórði maður Samfylkingar og fimmti maður Sjálfstæðisflokks jafnir á hlutföllum innan fjárlaganefndar. Það kom til hlutkestis sem ég tapaði," segir Margrét Frímannsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Innlent 23.10.2005 15:00
Lakari afkoma en stefnt var að Afkoma ríkissjóðs á síðasta ári var nær fimm milljörðum króna lakari en stefnt var að. Ríkissjóður var rekinn með tveggja milljarða króna afgangi en í fjárlögum var gert ráð fyrir tæplega sjö milljarða króna afgangi. Niðurstaðan er þó hagstæðari en árið 2003 þegar rúmra sex milljarða króna halli var á rekstri ríkissjóðs. Innlent 23.10.2005 14:59
Davíð kveður þakklátur Davíð Oddsson utanríkisráðherra sat sinn síðasta ríkisstjórnarfund í gær, en hann tekur við stöðu seðlabankastjóra 20. október næstkomandi. Ráðherraskiptin urðu á ríkisráðsfundi síðdegis í gær. Innlent 23.10.2005 15:00
Baugur borgaði Jóni Gerald Stjórnarformaður Baugs, segir að fullyrðingar ritstjóra Morgunblaðsins um 120 milljóna króna greiðslur Baugs til Jóns Geralds og einkaspæjaranna, séu óhróður. Aðalatriði málsins sé að áhrifamenn innan Sjálfstæðisflokksins hafi verið að leggja á ráðin um hvernig hrinda mætti lögreglurannsókn af stað. </font /></b /> Innlent 23.10.2005 15:00
Guðmundur Páll verður bæjarstjóri Guðmundur Páll Jónsson, oddviti framsóknarmanna í bæjarstjórn Akraness og forseti bæjarstjórnar, tekur við starfi bæjarstjóra af Gísla Gíslasyni og gegnir því út kjörtímabilið sem rennur út í vor. Skessuhorn segir á heimasíðu sinni að bæjarmálaflokkar Framsóknarflokks og Samfylkingarinnar, sem mynda meirihluta í bæjarstjórn Akraness, hafi komist að samkomulagi um þetta. Innlent 23.10.2005 15:00
Bolli endurkjörinn formaður Bolli Thoroddsen, formaður Heimdallar, og hans fylgismenn fengu tíu menn kjörna af ellefu í kosningum til stjórnar Heimdallar sem lauk í kvöld. Innlent 23.10.2005 15:00
Uppsagnir vegna sparnaðar Vestmannaeyjabær skuldar fimm milljarða króna. Bæjaryfirvöld ætla að spara 65 milljónir króna árlega með því að leggja niður stofnanir og segja upp sex til tíu starfsmönnum. Innlent 23.10.2005 14:59
14 ára ráðherradómi Davíðs lýkur Ríkisráðsfundur á Bessastöðum klukkan tvö í dag markar endalok á fjórtán ára ráðherradómi Davíðs Oddssonar og pólitískum ferli sem spannar áratugi. Ráðherraskipti verða í þremur ráðuneytum. Innlent 23.10.2005 14:59
Segir fjölmiðla Baugs misnotaða Davíð Oddsson segist horfa á með hryllingi hvernig Baugsmiðlarnir hafi verið misnotaðir, en hann telji að ekki séu dæmi um slíkt í hinum vestræna heimi. Davíð var spurður út í Baugsmál þegar hann kom út af síðasta ríkisstjórnarfundi sínum í morgun. Innlent 23.10.2005 14:59
Spyr hvort eignatengsl réðu ferð Sigurjón Þórðarson, þingmaður Frjálslynda flokksins, gagnrýnir Styrmi Gunnarsson, ritstjóra Morgunblaðsins, harðlega fyrir að hafa látið hjá líða að fjalla um samráð olíufélaganna þegar hann fékk upplýsingar um það nokkru áður en rannsókn Samkeppnisstofnunar hófst. Innlent 23.10.2005 16:58
Undrandi og hneykslaður "Ég er bæði undrandi og hneykslaður á mörgu því sem hefur komið fram síðustu daga," segir Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra um framvindu Baugsmálsins og fjölmiðlaumfjöllun síðustu daga. Innlent 23.10.2005 15:00
Vill opinbera rannsókn á Baugsmáli Margrét Frímannsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, vill opinbera rannsókn á Baugsmálinu. Hún segir frávísun Héraðsdóms á ákærunni í málinu og fréttir síðustu daga um bréfaskipti áhrifamanna hafa skapað efasemdir meðal almennings um heilindi valda- og áhrifamanna sem verði vart eytt nema með rannsókn. Innlent 23.10.2005 14:59
Síðasti fulli vinnudagur Davíðs Dagurinn í dag er síðasti fulli vinnudagur Davíðs Oddssonar í embætti utanríkisráðherra. Á morgun hefur verið boðað til ríkisráðsfundar þar sem Davíð mun segja af sér ráðherradómi og Geir H. Haarde tekur við embætti utanríkisráðherra. Innlent 23.10.2005 14:59
Ríkislögreglustjóri útskýri tafir Ríkislögreglustjóri verður að útskýra hvers vegna embættið hefur lítið eða ekkert aðhafst í nokkrum stórum málum á sama tíma og miklum tíma var varið í rannsókn Baugsmálsins segir Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Framsóknarflokks, í pistli á heimasíðu sinni. Innlent 23.10.2005 14:59
Enn pólitískar þreifingar í Noregi Verkamannaflokkurinn í Noregi ætlar að hefja stjórnarmyndunarviðræður við Sósíalistaflokkinn og Miðflokkinn. Síðarnefndu tveir flokkarnir fengu áttatíu og sjö þingsæti í þingkosningunum en á norska þinginu sitja eitt hundrað sextíu og níu þingmenn. Innlent 23.10.2005 14:59
Sendu Baugsgögn til skattsins Styrmir Gunnarsson ritstjóri Morgunblaðsins og Jónína Benediktsdóttir komu gögnum um Baug til skattayfirvalda. Jón Gerald Sullenberger, sem sendi þeim gögnin, segist ekki hafa vitað að þau hefðu verið send áfram. </font /></b /> Innlent 23.10.2005 14:59
Kannast ekki við óeðlilegar tafir Árni Magnússon félagsmálaráðherra kannast ekki við að óeðlilegar tafir hafi orðið á vinnu nefndar sem hann skipaði og falið var að kanna hugsanlega lagasetningu á starfsemi starfsmannaleiga á íslenskum vinnumarkaði. Ingvar Sverrisson, lögfræðingur ASÍ, gagnrýndi nýverið hversu lengi nefndin hefði starfað án þess að skila niðurstöðu. Innlent 23.10.2005 14:59
Jón Steinar kom að Baugsmáli í maí Kjartan Gunnarsson segist hafa veitt Styrmi Gunnarssyni álit sitt á hæfi Jóns Steinars Gunnlaugssonar sem lögmanns Jóns Geralds um mánaðamót júní og júlí 2002. Samskipti Jóns Steinars og Jóns Geralds hófust hins vegar í maí sama ár. </font /></b /> Innlent 23.10.2005 14:59
Þrýstingur á Berlusconi eykst Enn eykst þrýstingurinn á Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, að reka seðlabankastjórann Antonio Fazio eða segja sjálfur af sér ella. Í gær sagði fjármálaráðherrann Domenico Sinisalco af sér í mótmælaskyni við það að seðlabankastjórinn Fazio sæti sem fastast án þess að nokkur gerði neitt. Erlent 23.10.2005 14:58
D-listi fengi hreinan meirihluta Sjálfstæðisflokkurinn fengi hreinan meirihluta og níu fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur ef kosið yrði núna, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Gallups fyrir Ríkisútvarpið. Liðlega 56 prósent þeirra sem tóku afstöðu sögðust styðja Sjálfstæðisflokkinn, tæp 28 prósent Samfylkinguna, 11,5 prósent Vinstri græna, tæp þrjú prósent Framsóknarflokkinn og tvö prósent Frjálslynda flokkinn. Innlent 23.10.2005 14:58
Vill ekki tjá sig um stefnu ÖBÍ Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra vill ekki tjá sig um fyrirhugaða stefnu Öryrkjabandalags Íslands á hendur ríkisstjórninni vegna vanefnda á samningum um hækkun lífeyris frá árinu 2003. Innlent 17.10.2005 23:48
Ráðherrar fóru gegn ráðgjöf HSBC Ráðgjafi einkavæðingarnefndar í sölu ríkisbankanna 2002, HSBC, vildi að skilyrði yrðu sett um verðtilboð Samson í Landsbankann svo tryggja mætti hæsta verðið. HSBC mælti einnig gegn því að farið yrði í viðræður við Samson svo snemma í söluferlinu. Ráðherranefndin hunsaði ráðin. </font /></b /> Innlent 23.10.2005 14:58
Embætti hafi brugðist skyldum Ríkislögreglustjóraembættið hefur brugðist skyldum sínum í rannsókn og útgáfu ákæru í Baugsmálinu að sögn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar. Hún vísar hins vegar ásökunum efnhagsbrotadeildar frá því í morgun um að hún hafi sagt embættinu handstýrt af yfirboðurum sínum alfarið á bug. Innlent 17.10.2005 23:48
Konur leggi niður vinnu Íslenskar konur er hvattar til að leggja niður vinnu þann 24. október næstkomandi, en þá verða liðin 30 ár frá kvennafrídeginum árið 1975. Rósa Erlingsdóttir, verkefnisstjóri hins nýja kvennafrídags, segir að konur verði ekki hvattar til að leggja niður störf með sama hætti gert hafi verið fyrir 30 árum heldur sé því beint til kvenna að leggja niður störf frá klukkan 14.08, en reiknað hafi verið út að þá hafi þær unnið fyrir launum sínum ef litið sé til munar á atvinnutekjum karla og kvenna. Innlent 17.10.2005 23:48
Vill ræða fulla aðild Færeyinga Forsætisnefnd Norðurlandaráðs ætlar að óska eftir fundi með forsætisráðherrum Norðurlanda um fulla aðild Færeyinga að Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni. Nefndin ræddi óskir Færeyinga um fulla aðild í dag og Rannveig Guðmundsdóttir, forseti Norðurlandaráðs, segir að þær hafi fengið mjög góðar undirtektir eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá Norðurlandaráði. Innlent 17.10.2005 23:48
Óttast um líf sitt vegna Rítu Aron Pálmi Ágústson, sem búsettur er í Beaumont í Texas, óttast um líf sitt þar sem hann fær ekki að yfirgefa heimabæ sinn þrátt fyrir yfirvofandi fellibyl. Hann er hræddur um að ef hann fái leyfi til að fara þá verði það orðið of seint. Erlent 17.10.2005 23:48
Funda um val fulltrúa á landsfund Heimdallur, félagsskapur ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, mun í dag funda sérstaklega um val á fulltrúum á landsfund ungra sjálfstæðismanna. Fundurinn sem hefst klukkan 16:30 og er haldinn af kröfu 50 félagsmanna í Heimdalli sem telja fram hjá sér og öðrum félagsmönnum gengið með vali stjórnar Heimdallar á fulltrúum á landsfundinn fyrr í mánuðinum. Innlent 17.10.2005 23:49
Vill ræða um uppsagnir á Blönduósi Jón Bjarnason, þingmaður Vinstri - grænna, fór í dag fram á það við Sturlu Böðvarsson, fyrsta þingmann Norðvesturkjördæmis og samgönguráðherra, að hann kalli þingmenn kjördæmisins saman til fundar. Ástæðan er lokun starfstöðvar Símans og uppsagnir þriggja starfsmanna þeim samfara á Blönduósi sem kynntar voru starfsmönnunum í gær. Innlent 17.10.2005 23:49
Olíufélög krafin um 150 milljónir Reykjavíkurborg krefur stóru olíufélögin þrjú um 150 milljónir króna auk vaxta í bætur vegna samráðs þeirra við gerð tilboða í viðskipti við borgina fyrir árin 1996 til ársins 2001. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi borgarlögmaður, hefur sent olíufélögunum bréf þar sem hann krefur þau um bótagreiðslu ekki síðar en 14. október næstkomandi. Innlent 17.10.2005 23:48
Málaferli ef olíufélög borgi ekki Reykjavíkurborg krefur olíufélögin um 150 milljónir króna í bætur vegna verðsamráðs olíufélaganna við útboð á olíuviðskiptum borgarinnar árið 1996. Borgarstjóri hótar málaferlum ef þau borga ekki. Innlent 23.10.2005 14:58