Lögreglumál
58 59 60 61 62 63 64 65 66 … 275 ›
Eftirlýstur læsti sig inni í kjallara Háskóla Íslands Lögreglan hafði í dag afskipti af einstaklingi sem var búinn að læsa sig inni í kjallara í húsnæði Háskóla Íslands. Þegar lögregla kom á staðinn var ljóst að búið var að lýsa eftir honum og einstaklingurinn því handtekinn á staðnum. Innlent 27.8.2023 18:57
Lögregla kölluð til vegna mannlausrar bifreiðar sem olli miklu öngþveiti Mikið umferðaröngþveiti myndaðist vegna mannlausrar bifreiðar sem var skilin eftir á miðri Reykjanesbraut nærri Mjóddinni. Lögregla var kölluð til á staðinn og var bifreiðin að endingu fjarlægð af vettvangi með kranabíl. Innlent 27.8.2023 18:15
Sérsveit send á skemmtistað vegna hnífaburðar Talsverður erill var hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Sérsveit Ríkislögreglustjóra var til að mynda tvívegis kölluð út, annars vegar vegna tilkynningar um mann með skammbyssu og hins vegar vegna manns sem sagður var hóta fólki með hníf á skemmtistað. Innlent 27.8.2023 08:04
Ákvörðun um gæsluvarðhald í skútumáli tekin eftir helgi Lögregla segir að rannsókn á smygli 160 kílóa af hassi í skútu hingað til lands í júní gangi vel. Þrír eru í gæsluvarðhaldi vegna málsins en það rennur út á mánudag. Innlent 26.8.2023 06:46
Meintur svikahrappur hafi lofað kynlífi og beðið um pening Kona sem er grunuð um að hafa svikið 25 milljónir af ellefu karlmönnum, þar af nokkrum með þroskaskerðingu er laus úr haldi. Gæsluvarðhaldsúrskurður yfir henni frá því í byrjun mánaðar rann út í dag. Innlent 25.8.2023 15:41
Vildi pening frá foreldrum sínum og hótaði ítrekað að drepa þá Karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 15. september næstkomandi vegna gruns um að hann hafi framið margvísleg hegningarlagabrot. Flest brotin snúa að meintu ofbeldi og hótunum í garð foreldra hans. Innlent 25.8.2023 15:19
Eldurinn kviknaði í iðnaðarbili Tæknideild Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn sinni á vettvangi brunans á Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði. Búið er að staðsetja upptök eldsins en orsök hans liggur ekki enn fyrir. Innlent 25.8.2023 13:30
Framdi rán vopnaður örvum en án boga Vaktin var fremur róleg hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt. Óvenjulegt atvik kom hins vegar upp í miðborginni, þar sem tilkynnt var um rán. Innlent 25.8.2023 06:29
Meintur handrukkari aftur á bak við lás og slá Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að karlmanni verði gert að afplána 445 daga eftirstöðvar fangelsisdóms, sem hann fékk reynslulausn á í lok árs 2021. Maðurinn er með 26 mál í ferli hjá lögreglu, þar á meðal tvö sem varða grun um frelsisviptingar og stórfelldar líkamsárásir. Innlent 24.8.2023 15:21
Segir hefndarbrot gegn lögreglu viðvörunarmerki fyrir samfélagið Prófessor í afbrotafræði við Háskóla Íslands segir íkveikju í bíl lögreglumanns sem rannsökuð er sem hefndaraðgerð vera viðvörunarmerki fyrir löggæsluyfirvöld og íslenskt samfélag. Hann segir ofbeldisbrotum gegn lögreglu þó ekki fara fjölgandi. Innlent 24.8.2023 10:33
Þrír réðust á ungan dreng og reyndu að ná af honum munum Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um rán í gær en þar höfðu þrír einstaklingar reynt að ná munum af ungum dreng og beitt hann ofbeldi. Vildu þeir meðal annars fá skó hans, skartgripi og fleira. Innlent 24.8.2023 06:23
Lögregla rannsakar mannslát á Landspítalanum Lögreglurannsókn er hafin á andláti á Landspítalanum fyrr í þessum mánuði. Andlátið var tilkynnt til embættis landlæknis og lögreglu samkvæmt reglum spítalans. Innlent 23.8.2023 13:34
Situr í gæsluvarðhaldi lengur en lög gera ráð fyrir: „Það einfaldlega gengur ekki í réttarríki“ Undanfarnar vikur hafa reglulega birst fréttir af því að fallist hafi verið á framlengingu gæsluvarðhalds manns sem grunaður er um að hafa banað ungri konu í heimahúsi á Selfossi þann 27. apríl síðastliðinn. Hann mun sæta gæsluvarðhaldi út ágúst og mun þá hafa verið í haldi í átján vikur. Innlent 23.8.2023 13:31
Kæra Vítalíu endanlega felld niður Ríkissaksóknari hefur staðfest ákvörðun héraðssaksóknara frá því í apríl síðastliðnum um að fella niður rannsókn á kynferðisbrotakæru Vítalíu Lazarevu á hendur þeim Ara Edwald, Hreggviði Jónssyni og Þórði Má Jóhannessyni. Innlent 23.8.2023 08:29
Innbrot og líkamsárás í Garðabæ Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til vegna innbrots og líkamsárásar í Garðabæ um klukkan 20 í gærkvöldi. Svo virðist sem árásarmaðurinn hafi komist undan en hann er ókunnur. Innlent 23.8.2023 06:21
Segir rannsóknarhagsmuni fyrir löngu gæsluvarðhaldi ekki til staðar Lögmaður mannsins sem grunaður er um að hafa myrt konu á Selfossi í apríl gagnrýnir hve lengi hann hefur setið í gæsluvarðhaldi. Maðurinn var úrskurðaður í gæsluvarðhald þann 27. apríl, sama dag og kona á þrítugsaldri fannst látin í húsi á Selfossi. Innlent 22.8.2023 20:54
Drangahraunsmálið: Sagðist ætla að drepa manninn og síðan hengja sig Maður sem grunaður er um að hafa banað Jaroslaw Kaminski í Drangahrauni í Hafnarfirði þann 17. júní segist hafa stungið hann í sjálfsvörn. Hann stakk Kaminski ítrekað og lýsti því yfir í skilaboðum að hann ætlaði að drepa hann. Innlent 22.8.2023 12:49
Bruninn ekki rannsakaður sem sakamál Eldsvoðinn á Hvaleyrarbraut 22 í Hafnarfirði er ekki rannsakaður sem sakamál. Innlent 21.8.2023 12:22
Hefur ekki heyrt af dýrum sem brunnu inni Vettvangur þar sem gríðarlegur eldsvoði varð í Hafnarfirði í gær hefur verið afhentur lögreglu. Slökkvistarfi lauk í nótt eftir tólf tíma aðgerð. Slökkvistjórinn segist ekki vita til þess að dýr hafi brunnið inni. Innlent 21.8.2023 11:28
Myndir frá vettvangi brunans við Hvaleyrarbraut Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði við Hvaleyrarbraut í Hafnarfirði laust fyrir klukkan 13 í gær og logaði til um klukkan 04 í nótt. Myndir frá vettvangi sýna að húsnæðið, þar sem nokkur fjöldi fólks bjó, er handónýtt. Innlent 21.8.2023 10:49
Tekinn fyrir akstur undir áhrifum en átti að vera í fangelsi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði í gærkvöldi ökumann sem grunaður var um akstur undir áhrifum fíkniefna. Sá var handtekinn og færður til blóðsýnatöku en við nánari athugun reyndist hann ekki hafa mætt til afplánunar í fangelsi. Innlent 21.8.2023 06:27
Mikið unglingafyllerí á Menningarnótt Fimmtán ungmenni voru flutt á athvarf á vegum Reykjavíkurborgar þar sem foreldrar komu og náðu í börn sín. Í nokkrum tilvikum var áfengi hellt niður sem tekið var af ungmennum undir lögaldri. Innlent 20.8.2023 08:34
Lögreglan rannsakar átökin við Vínbúðina Lögregla rannsakar nú slagsmál sem brutust út á bílastæðinu við Vínbúðina á Dalvegi í gærkvöld og hyggst taka skýrslur af tveimur einstaklingum sem voru handteknir í tengslum við málið. Innlent 19.8.2023 15:52
Reyndi að flýja eftir líkamsárás Lögregla hafði uppi á gerendum líkamsárásar í nótt sem tilkynnt var um í miðborg Reykjavíkur en einn þeirra reyndi að flýja vettvang. Voru þeir handteknir og fluttir á lögreglustöðina á Hverfisgötu. Einn var vistaður í fangaklefa en tveimur sleppt að lokinni upplýsingatöku. Innlent 19.8.2023 08:05
Ráðist á Birgittu og Enok með hníf, hamri og piparúða á Dalvegi Tveir menn réðust á Enok Vatnar Jónsson þar sem hann var staddur á bílaplani við Vínbúðina á Dalvegi í Kópavogi um sjöleytið í kvöld ásamt kærustunni sinni Birgittu Líf Björnsdóttur, markaðsstjóra World Class. Innlent 18.8.2023 22:51
Lögregla kölluð til vegna slagsmála á Dalvegi Lögregla var kölluð til vegna slagsmála sem brutust út á bílastæðinu við Vínbúðina á Dalvegi í Kópavogi fyrr í kvöld. Innlent 18.8.2023 20:32
Íkveikja rannsökuð sem hefnd gegn lögreglumanni Héraðssaksóknari rannsakar hvort að íkveikja í bíl lögreglumanns í gærmorgun hafi verið hefndaraðgerð. Bíllinn stóð á bílastæði við heimili mannsins í vesturbæ Reykjavíkur. Innlent 18.8.2023 18:43
Umboðsmaður segir heimildir til framsals löggæsluverkefna of rúmar Umboðsmaður Alþingis hefur sent forseta Alþingis ábendingu þess efnis að orðalag í lögreglulögum um heimildir ríkislögreglustjóra til að fela erlendum ríkisborgurum framkvæmd löggæsluverkefna á Íslandi sé of rúmt. Innlent 18.8.2023 06:49
Próflaus og ölvaður með farþega í skottinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði nokkra ökumenn sem óku undir áhrifum áfengis eða fíkniefna í gærkvöldi. Voru þeir handteknir og færðir til blóðsýnatöku. Innlent 18.8.2023 06:27
Fundu allsbera manneskju í Breiðholtinu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um allsbera manneskju í Breiðholtinu í dag. Samkvæmt tilkynningu lögreglunnar var hún færð á spítala vegna notkunar á fíkniefnum. Innlent 17.8.2023 23:03