Úkraína
22 23 24 25 26 27 28 29 30 … 79 ›
Úkraínuforseti segir hinn frjálsa heim sigra Rússa Rússneskar hersveitir hafa sótt hart fram við bæinn Soledar skammt frá borginni Bhakmut í austurhluta Úkraínu undanfarna sólarhringa. Mikið mannfall hefur verið á báða bóga í tilraunum Wagner hersveita Rússa til að ná Bhakmut á sitt vald undanfarna mánuði. Erlent 11.1.2023 19:21
Pútín skiptir um herforingja í Úkraínu Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra Rússlands, tilkynnti í dag að Valery Gerasimov, formaður herforingjaráðs Rússlands, muni taka yfir stjórn innrásar Rússa í Úkraínu. Gerasimov tekur við af herforingjanum Sergei Surovikin, sem hefur verið yfir innrásinni undanfarna þrjá mánuði. Erlent 11.1.2023 18:10
Rússar sækja fram í Soledar Hersveitir Rússa hafa náð árangri gegn Úkraínumönnum í bænum Soledar í austurhluta Úkraínu. Bærinn er norður af Bakhmut en gífurlega harðir bardagar hafa geisað á svæðinu um langt skeið. Rússar hafa reynt að ná Bakhmut í marga mánuði en virðast nú ætla að reyna að umkringja borgina. Erlent 10.1.2023 22:30
Kallar eftir stigmögnun af hálfu bandamanna Sir Richard Shirreff, fyrrverandi hershöfðingi hjá Atlantshafsbandalaginu, segir að Bretar hefðu átt að senda Úkraínumönnum skriðdreka fyrir mörgum mánuðum. Bretar íhuga nú að senda Challenger-2 skriðdreka til Úkraínu. Erlent 10.1.2023 11:07
Íhuga að senda breska skriðdreka Ríkisstjórn Bretlands íhugar að senda Challenger 2 skriðdreka til Úkraínu. Málið hefur verið til skoðunar í nokkrar vikur en ef af verður verða Bretar fyrstir til að senda Úkraínumönnum skriðdreka sem framleiddir eru á Vesturlöndum. Erlent 9.1.2023 18:15
Ekkert hæft í fullyrðingum Rússa um mikið mannfall Stjórnvöld í Úkraínu vísa alfarið á bug fullyrðingum Rússa frá því í gær sem sögðust hafa fellt 600 úkraínska hermenn á einu bretti í eldflaugaárás. Erlent 9.1.2023 07:36
Senda vestræna bryndreka til Úkraínu Yfirvöld Í Bandaríkjunum og Þýskalandi tilkynntu í gærkvöldi að ríkin myndu senda tugi bryndreka til Úkraínu og þjálfa áhafnir á þá á komandi vikum. Það var í kjölfar þess að Frakkar opinberuðu að þeir ætluðu að senda brynvarin farartæki. Erlent 6.1.2023 10:54
Yfirlýsingar um vopnahlé ekkert nema blekkingar og áróður Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir yfirlýsingar Rússlandsforseta um vopnahlé yfir rússnesku jólahátíðina ekkert annað en blekkingarleik til að freista þess að tefja gagnsókn Úkraínuhers í austurhluta Donbas. Erlent 6.1.2023 08:56
Pútín vill jólavopnahlé Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur skipað Sergei Shoigu, varnarmálaráðherra sínum, að koma á einhliða vopnahléi í hádegi á morgun til miðnættis á laugardagskvöld (7. janúar), eða í 36 klukkustundir. Það er eftir að æðsti klerkur rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar lagði slíkt vopnahlé til. Erlent 5.1.2023 15:47
Sinna íslensk stjórnvöld ekki sem skyldi öryggis- og varnarmálum? Ásakanir um andvaraleysi í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu standast ekki skoðun né heldur fullyrðingar um gerbreyttar aðstæður í íslenskum öryggis- og varnarmálum hennar vegna. Innrásin og stríðið í Úkraínu hafa ekki haft neinar afleiðingar sem veikja undirstöður varna- og öryggismála Íslands eða krefjast endurmats á þeim, hvað þá þess að fast herlið verði á landinu – eins og meðal annars hefur verið kallað eftir. Innherji 5.1.2023 15:39
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rússar sagðir stefna á aðra herkvaðningu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, er að undirbúa þjóð sína fyrir langvarandi átök í Úkraínu og Rússar eru sagðir vera að undirbúa aðra herkvaðningu. Bakhjarlar Úkraínumanna vinna að því að senda ný vopnakerfi til landsins en forðast enn að senda skriðdreka. Erlent 5.1.2023 14:00
Myndir ársins 2022: Eldgos, óveður og menn í járnum Ljósmyndarar og myndatökumenn Vísis voru á ferð og flugi árið 2022. Eldgos, óveður og stjórnmálin voru að sjálfsögðu meðal helstu myndefna en aðgerðir lögreglu og dómsmál komu einnig oft við sögu. Innlent 4.1.2023 09:30
Kokkur Pútíns segir hvert hús í Bakhmut vera virki Rússneski herinn á í basli með að brjóta varnir Úkraínumanna við Bakhmut á bak aftur þar sem „hvert hús er virki“, samkvæmt Yevgeny Prigozhin, eiganda Wagner Group málaliðahópsins. Hann og Wagner hafa leitt viðleitni Rússa við að ná tökum á bænum um mánaða skeið en víglínunum þar hefur verið lýst sem „hakkavél“. Erlent 3.1.2023 15:13
Farsímanotkun sögð hafa leitt til einnar mannskæðustu árásar stríðsins Rússneskir ráðamenn í Donetsk-héraði í Úkraínu segja að þeir hermenn sem féllu í einni af mannskæðustu árásum stríðsins í Úkraínu á nýársnótt geti kennt sjálfum sér um. Úkraínumenn hafi fundið þá vegna þess hve margir af hermönnunum voru að nota farsíma sína. Erlent 3.1.2023 11:16
Selenskí segir drónaárásir Rússa verða langvarandi Selenskí Úkraínuforseti sagði í reglulegu ávarpi sínu í nótt að Rússar ætli sér augljóslega að beita írönskum drónum í meira mæli næstu mánuðina til að draga stríðið á langinn og að ætlun þeirra sé að vona að Úkraínumenn missi baráttuþrekið. Erlent 3.1.2023 07:18
Sagðir hafa fellt hundruð Rússa í einni árás Úkraínumenn eru sagðir hafa fellt hundruð rússneskra hermanna í einni árás í austurhluta Úkraínu á nýársnótt. Fregnir hafa borist af því að flugskeytum hafi verið skotið að skóla í bænum Makívka því þar hafi fjölmargir hermenn verið komnir saman. Erlent 2.1.2023 11:13
Rússar héldu árásum sínum áfram í nótt Loftvarnaflautur hljómuðu í Kænugarði í gærkvöldi og nótt en samkvæmt heimildarmönnum innan úkraínska hersins skutu loftvarnakerfi niður um það bil tuttugu skotmörk, meðal annars dróna. Erlent 2.1.2023 07:14
Fyrstu árásirnar þegar hálftími var liðinn af nýja árinu Rússar héldu árásum sínum áfram á Úkraínu í dag og var fyrstu flugskeytunum skotið á höfuðborgina Kænugarð þegar einungis um hálftími var liðinn af nýja árinu. Skotið var á byggingar í tveimur hverfum höfuðborgarinnar og er að minnsta kosti einn látinn. Erlent 1.1.2023 22:40
Fjöldamargar loftárásir á Kænugarð Fjöldamargar loftárásir hafa verið gerðar á Kænugarð og fleiri borgir Úkraínu í dag. Volodómír Selenskí forseti Úkraínu segir Rússa hafa ætlað sér að eyðileggja nýársfögnuð Úkraínumanna með árásunum. Loftvarnarflautur hafa ómað í höfuðborginni í allan dag. Erlent 31.12.2022 13:25
Yfirrabbíninn í Moskvu hvetur gyðinga til að flýja Rússland Rabbíninn Pinchas Goldschmidt hefur hvatt gyðinga búsetta í Rússlandi til að yfirgefa landið á meðan þeir geta. Hann segist óttast að þeir verði gerðir að blórabögglum fyrir þeim erfiðleikum sem Rússland stendur frammi fyrir vegna innrásarinnar í Úkraínu. Erlent 30.12.2022 08:36
Eldflaugum rigndi yfir Úkraínu: „Tilgangslaus villimennska“ Úkraínuher skaut niður meirihluta 69 eldflauga sem Rússlandsher skaut yfir landið í dag. Fjöldi heimila og mikilvægir innviðir skemmdust í árásunum. Erlent 29.12.2022 22:50
Segja yfir hundrað flugskeyti á lofti yfir Úkraínu Loftvarnaflautur eru sagðar hljóma víða um Úkraínu eins og stendur og þá hafa heyrst sprengingar í Kænugarði. Oleksiy Arestovyck, ráðgjafi Vólódímírs Selenskís, sagði í morgun að fleiri en 100 flugskeytum hefði verið skotið á loft af Rússum, í nokkrum bylgjum. Erlent 29.12.2022 07:47
Rússar hæfðu fæðingardeild í Kherson í stórskotaliðsárás Almennir borgarar í Kherson í Úkraínu flýja nú heimili sín unnvörpum en árásir Rússa á borgina hafa færst í vöxt síðustu tvo sólarhringana. Erlent 28.12.2022 14:48
Stjórnvöld í Rússlandi greiða fyrir varðveislu sæðis hermanna Rússneska ríkisfréttastofan Tass greindi frá því í dag að heilbrigðirsráðuneytið hefði samþykkt að fjármagna áætlun sem mun gera rússneskum hermönnum kleift að láta frysta úr sér sæði, áður en þeir halda á vígsstöðvarnar í Úkraínu. Erlent 28.12.2022 07:38
Úkraínumenn fikri sig nær endurheimt lykilborga í Luhansk Margt bendir til þess að Úkraínumenn séu nú að fikra sig nær því að endurheimta Kreminna, lykilborg í Luhansk héraði, sem gæti opnað möguleika á frekari sókn. Harðir bardagar halda áfram bæði í austur- og suðurhluta Úkraínu. Erlent 27.12.2022 18:11
Selenskí segir átökin í Donbas „erfið og sársaukafull“ Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti segir átökin sem nú standa yfir í Donbas „erfið og sársaukafull“. Ástandið á framlínunni; í Bakhmut, Kreminna og víðar, krefðist styrks og einbeitingar, þar sem Rússar beittu öllum kröftum í að sækja fram. Erlent 27.12.2022 07:36
Úkraínskur dróni komst langt inn í Rússland Rússneski herinn skaut niður úkraínskan dróna við Engels herflugvöllinn. Engels er um sex hundruð kílómetra austur af landamærum Rússlands og Úkraínu. Erlent 26.12.2022 10:38
Frans páfi bað fyrir Úkraínumönnum Frans páfi talaði um innrásina í Úkraínu í jólaávarpi sínu í dag. Hann bað almenning um að biðja fyrir Úkraínumönnum, sem væru án rafmagns og hita. Erlent 25.12.2022 14:19
Segir Rússa reiðubúna til að semja Vladimír Pútín Rússlandsforseti segir Rússa reiðubúna til að semja um endalok innrásar þeirra í Úkraínu. Hann segir Úkraínumenn og vesturlönd ekki vilja ganga að samningaborðinu. Erlent 25.12.2022 13:44
Rússneska sendiráðið gagnrýnir Þórdísi Kolbrúnu harðlega Rússneska sendiráðið gagnrýnir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur utanríkisráðherra harðlega fyrir ummæli sem hún lét falla í sjónvarpsþætti í vikunni. Í þættinum gagnrýndi ráðherra rússnesk stjórnvöld en sendiráðið vísar ummælunum á bug. Innlent 23.12.2022 19:20