Úkraína
51 52 53 54 55 56 57 58 59 … 79 ›
Biden segir Pútín hafa hitt ofjarl sinni í úkraínsku þjóðinni Rússar hafa hert mjög loftárásir sínar á borgir víðs vegar um Úkraínu í dag og fullyrða að þeir hafi náð einni þeirra alfarið á sitt vald. Forseti Bandaríkjanna segir Rússa eiga eftir að finna fyrir afleiðingum innrásarinnar á stöðu sína um langa framtíð. Talið er að um tvö þúsund óbreyttir borgarar hafi fallið frá upphafi innrásarinnar í Úkraínu. Erlent 2.3.2022 19:21
Allsherjarþingið fordæmir innrásina og krefst þess að herlið verði dregið til baka Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna hefur samþykkt ályktun þar sem innrás Rússa í Úkraínu er fordæmd og þess krafist að rússneskir hermenn verði dregnir til baka. Erlent 2.3.2022 17:55
Versti dagur stríðsins hingað til Harðir bardagar hafa staðið yfir í allan dag í Kharkív, Mariupol og Kherson. Eldflaugum hefur rignt yfir borgirnar og stórskotalið herjað á þær. Rússar hafa bætt verulega í árásir á skotmörk í borgum sem ekki þjóna hernaðarlegum tilgangi. Erlent 2.3.2022 16:31
Blaðamannafélagið safnar fyrir úkraínska blaðamenn Blaðamannafélag Íslands hefur hafið fjársöfnun til stuðnings blaðamönnum í Úkraínu. Fram kemur í tilkynningu frá félaginu að mikilvægi fjölmiðla á stríðstímum sé óumdeilt og blaðamenn í Úkraínu þurfi aðstoð til að geta stuðlað að öryggi sínu á meðan þeir miðli til umheimsins fréttum af ástandinu í kjölfar innrásar Rússa. Erlent 2.3.2022 15:36
Úkraínsk tenniskona sló út Rússa og gefur úkraínska hernum allt verðlaunaféð sitt Úkraínska tenniskonan Elina Svitolina vann Rússann Anastasiu Potapovu á móti í Mexíkó sem er hluti af heimsmótaröðinni í tennis. Hún segir þetta hafa verið stóran sigur fyrir sig en um tíma ætlaði hún ekki að mæta til leiks. Sport 2.3.2022 15:00
Erlendum ríkisborgurum meinað að flýja Úkraínu Erlendir ríkisborgarar, sérstaklega af afrískum uppruna, hafa lent í miklum vandræðum við að flýja Úkraínu. Margir þeirra segja að þeim hafi verið vísað úr lestum og þeim meinaður aðgangur að almenningssamgöngum á leið úr landinu. Erlent 2.3.2022 14:09
Veruleiki Úkraínumanna á sjöunda degi stríðs Fátt grípur veruleikann betur en ljósmyndir enda segja þær meira en þúsund orð. Það getur reynst okkur á Íslandi erfitt að gera okkur grein fyrir veruleika Úkraínumanna þessa dagana. Erlent 2.3.2022 13:24
Sameinuðu þjóðirnar kalla eftir 220 milljörðum króna vegna Úkraínu Sameinuðu þjóðirnar og ýmsar hjálparstofnanir hafa í sameiningu farið fram á 1,7 milljarða Bandaríkjadala fjárveitingar í þágu Úkraínu, um 220 milljarða íslenskra króna. Framlögin fara til nauðstaddra í Úkraínu og flóttamanna í nágrannalöndum. Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna óttast mesta flóttamannastraum aldarinnar í Evrópu frá Úkraínu. Heimsmarkmiðin 2.3.2022 12:16
Rússar segja aðra umferð friðarviðræðna fara fram í dag Önnur umferð friðarviðræðna milli Úkraínu og Rússlands fer fram síðar í dag. Þetta kemur fram í frétt rússneska ríkisútvarpsins Tass og þar vísað í starfsmann úkraínska forsetaembættisins. Erlent 2.3.2022 11:59
Eyþór segir það enga ögrun við Rússa að leggja til Kænugarðsstræti Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir það á engan hátt ögrun við Rússa að leggja til að nafni Garðastrætis verði breytt í Kænugarðsstræti, þrátt fyrir að sendiráð þeirra standi við Garðastræti 33. Fyrst og fremst sé um stuðning við Úkraínu að ræða. Innlent 2.3.2022 11:57
Bein útsending: Innrásin og afleiðingarnar fyrir öryggi í Evrópu Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félag stjórnmálafræðinga standa fyrir opnum fundi um innrás Rússlands í Úkraínu og þær afleiðingar sem innrásin hefur fyrir öryggi í Evrópu. Innlent 2.3.2022 11:31
Navalní kallar eftir mótmælum: „Pútín er ekki Rússland“ Rússneski andófsmaðurinn Alexei Navalní kallar eftir því að Rússar haldi umfangsmikil mótmæli gegn innrásinni í Úkraínu. Þetta segir Navalní í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér þar sem hann situr í fangelsi í Rússlandi. Erlent 2.3.2022 11:02
Pútín sagður einangraður og með ofsóknaræði Starfsmenn leyniþjónusta í Bandaríkjunum og Evrópu vinna hörðum höndum þessa dagana að því að átta sig á hugarástandi Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Erlent 2.3.2022 09:52
Vill breyta Garðastræti í Kænugarðsstræti Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, mun í dag leggja fram tillögu í skipulagsráði borgarinnar þess efnis að nafnanefnd verði falið að breyta heiti Garðastrætis í Kænugarðsstræti. Innlent 2.3.2022 08:39
Íslendingur í Kænugarði segir ýmis vandamál virðast plaga Rússa Óskar Hallgrímsson ljósmyndari, sem búsettur er í Kænugarði, segir síðasta sólahring hafa verið nokkuð rólegan í borginni, fyrir utan tvær stórar sprengingar í gær þar sem ráðist var á sjónvarpsturn annars vegar og minnisvarða um Helförina hins vegar. Erlent 2.3.2022 07:45
Vaktin: Ísland á meðal ríkja sem vísa meintum stríðsglæpum Rússa til rannsóknar Alþjóðasakamáladómstólsins Vika er liðin frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar heldur áfram að fylgjast með þróun mála í vaktinni hér fyrir neðan. Erlent 2.3.2022 06:49
Hart barist í Karkív eftir að rússneskar hersveitir lenda í borginni Rússneskar hersveitir lentu í Karkív um klukkan 3 í nótt og harðir bardagar standa nú yfir milli þeirra og úkraínska hersins. Úkraínsk yfirvöld greindu frá því í nótt að ráðist hefði verið á hersjúkrahús í borginni og að bardagar hefðu brotist út á milli „innrásarhermanna og úkraínskra varnaraðila“. Erlent 2.3.2022 06:22
Jón Gnarr segist hafa verið innblástur fyrir feril Selenskí Jón Gnarr fyrrverandi borgarstjóri segist hafa verið innblástur fyrir pólitískan feril Vólódímir Selenskí Úkraínuforseta. Jón heimsótti Kænugarð í Úkraínu árið 2019 og er enn í einhverju sambandi við forsetann. Innlent 1.3.2022 22:30
Úkraínumenn segjast ætla að endursmíða Drauminn Flugheimurinn virðist hafa misst stærstu flugvél heims, úkraínsku þotuna Antonov 225, sem fullyrt er að hafi eyðilagst í árás Rússa á heimaflugvöll hennar í Úkraínu. Ný gervihnattamynd virðist þó sýna stél hennar óskemmt. Risaþotan var aðeins til í einu eintaki og kom nokkrum sinnum til Íslands. Erlent 1.3.2022 22:20
Tárvot þrumuræða úkraínskrar blaðakonu vekur heimsathygli Daria Kaleniuk, úkraínskur blaðamaður, grátbað Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, um aukna aðstoð til að berjast gegn innrás Rússa í Úkraínu á blaðamannafundi í dag. Myndband af þrumuræðu hennar hefur vakið heimsathygli. Erlent 1.3.2022 21:37
Forseti Evrópuþingsins segir Putin verða dreginn til ábyrgðar Forseti Úkraínu sakar Rússa um hryðjuverk eftir eldflaugaárás á miðborg næst stærstu borgar landsins í dag. Forseti Evrópuþingsins segir forseta Rússlands og Hvítarússlands verða dregna til ábyrgðar vegna stríðsins í Úkraínu. Erlent 1.3.2022 19:21
Sendiherrann segir að barist verði til síðasta blóðdropa um Kænugarð Olga Dibrova hefur verið sendiherra Úkraínu á Íslandi með aðsetur í Helsinki í tvö ár en vegna Covid faraldursins gat hún fyrst í dag afhent forseta Íslands trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Hún segir Rússa aldrei ná höfuðborginni Kænugarði á sitt vald vegna þess að þeir berjist ekki einungis við úkraínska herinn heldur alla úkraínsku þjóðina Innlent 1.3.2022 18:33
Shakhtar Donetsk flytur brasilíska leikmenn úr landi Úkraínska knattspyrnufélagið Shakhtar Donetsk hefur flutt alla tólf brasilísku leikmenn liðsins yfir til Rúmeníu eftir að innrás Rússa í Úkraínu hófst. Fótbolti 1.3.2022 17:45
Klitschko boxbræður sagðir vera á aftökulista Pútíns Valdimír Pútín sendir ekki aðeins hersveitir inn í Úkraínu því hann virðist líka vera búinn að gera út aftökusveit sem á að einbeita sér að losa hann við þá Úkraínumenn sem hann er sérstaklega ósáttur. Sport 1.3.2022 17:01
Forseti Íslands fundaði með sendiherra Úkraínu Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, tók á móti Olgu Dibrova, sendiherra Úkraínu gagnvart Íslandi, á Bessastöðum í dag. Þetta kemur fram á vefsíðu forsetans. Innlent 1.3.2022 16:28
Katrín fundar með Stoltenberg í Brussel Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundar með Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá NATO. Innlent 1.3.2022 16:19
Bein útsending: Blaðamannafundur sendiherra Úkraínu Olga Dibrova, sendiherra Úkraínu gagnvart Íslandi, býður íslenskum fjölmiðlum til blaðamannafundar síðdegis í dag. Innlent 1.3.2022 16:15
„Mamma, við erum eins og fólkið í seinni heimsstyrjöldinni“ „Mamma, við erum eins og fólkið í seinni heimsstyrjöldinni,“ sagði dóttir Juliu Petryk, íbúa í Kænugarði, þegar mæðgurnar tóku tvo ókunnuga stúdenta inn á heimili sitt um helgina. Stúdentarnir voru þeim alls ókunnugir áður en Rússar réðust inn í Úkraínu en eru nú eins og hluti af fjölskyldunni þeirra. Erlent 1.3.2022 14:32
Diplómatar Sameinuðu þjóðanna snúa baki við Lavrov Diplómatar hjá Sameinuðu þjóðunum hafa margir neitað að hlusta á málflutning Sergei Lavrovs, utanríkisráðherra Rússlands, í dag. Erlent 1.3.2022 13:36
Selenskí segir árásina á ráðhúsið í Karkív vera hryðjuverk Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir að eldflaugaárásin á ráðhúsið í Karkív í morgun sé hryðjuverk. Í nýju ávarpi segir forsetinn að Rússar ætli sér að nota slík ódæði til að draga úr baráttuanda Úkraínumanna. Erlent 1.3.2022 11:57