Eldgos og jarðhræringar
12 13 14 15 16 17 18 19 20 … 132 ›
Tveir gígar enn virkir Tveir gígar eru enn virkir í eldgosinu á Reykjanesskaga og er sá nyrðri stærri. Áfram mælast gildi brennisteinsdíoxíðs í kringum eldgosið og í byggð á Reykjanesskaga há. Innlent 4.4.2024 16:52
Funda um opnun Bláa lónsins í fyrramálið Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum fundaði með forsvarsmönnum Bláa lónsins í dag og mun gera það aftur í fyrramálið til að taka ákvörðun um starfsemi lónsins. Hættuleg gasmengun hefur komið í veg fyrir opnun lónsins frá því að eldgos hófst á Reykjanesskaga í síðasta mánuði. Innlent 4.4.2024 16:01
Blaðamenn fá sama aðgengi og aðrir viðbragðsaðilar í hættuástandi Blaðamannafélag Íslands og ríkið hafa komist að samkomulagi að aðgengi blaðamanna að vettvangi þegar hættuástand kemur upp. Með samkomulaginu er blaðamönnum tryggt jafn mikið aðgengi og öðrum viðbragðaðilum á vettvangi. Innlent 4.4.2024 11:09
Ekkert ferðamannagos Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir að ferðamönnum verði ekki hleypt að gosstöðvunum við Sundhnúk á næstunni. Nokkur áhugi er meðal ferðamanna að komast að gosinu. Þeir hafa bókað til þess þyrluferðir og verið snúið við þegar þeir hafa reynt að komast inn á lokað svæði. Innlent 3.4.2024 21:31
Eldgosið í beinni Enn er kraftur í eldgosinu á Reykjanesskaga milli Hagafells og Stóra-Skógfells. Dregið hefur úr virkninni en þetta gos hefur þó staðið lengur en þrjú síðustu gos á undan. Innlent 3.4.2024 13:15
Íslenskir bræður við upptök skjálftans: „Traffíkin stoppaði alveg og hlutir byrjuðu að hrynja“ Að minnsta kosti níu eru látnir og 800 slasaðir eftir að jarðskjálfti að stærð 7,4 reið yfir á Taívan í nótt. Íslendingur á upptakasvæðinu fylgdist með umferð stöðvast og hlutum hrynja þegar jörð tók að skjálfa. Hann og bróðir hans þurftu að flýja inn í land í skyndi þegar flóðbylgjuviðvaranir voru gefnar út. Innlent 3.4.2024 12:10
„Upp með hökuna og áfram gakk“ Skipstjóri fyrsta frystitogarans sem landaði í Grindavík í morgun í fyrsta sinn í fimm mánuði segir blendnar tilfinningar fylgja tímamótunum. Hann fékk ryk í augun þegar skipið sigldi að landi. Útgerðarstjóri segir tilfinninguna gríðarlega góða og gleðilegt að líf sé að færast í bæinn. Innlent 2.4.2024 21:13
Mögulega komið á jafnvægi undir Svartsengi Mögulega er komið á jafnvægi í aðstreymi kviku inn undir Svartsengi og upp úr gígum eldgossins. Þetta gætu jarðefnafræðimælingar staðfest á næstunni. Landris í Svartsengi hefur ekki mælst síðustu daga sem bendir einkum til þess að kvikan safnist síður fyrir í kvikuhólfinu undir Svartsengi en flæði frekar beint út um gosopin. Innlent 2.4.2024 13:26
Virkni enn stöðug og fátt bendir til gosloka Virkni eldgossins við Sundhnúk er enn nokkuð stöðug og segir náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands engin merki um að gosinu sé að ljúka þó slokknað hafi í einum af gígunum þremur. Fréttir 2.4.2024 12:01
Segir íbúa ekki hugsa hlutina til enda og treysta sérfræðingum í blindni Bæjarfulltrúi í Grindavík veltir fyrir sér hvort íbúar séu of fljótir á sér með uppkaupum húsnæðis og flótta úr bænum. Hann telur íbúa og bæjarstjórn vera áhorfendur að því sem sé að gerast og hlusti á sérfræðinga í blindni án þess að hugsa hlutina til enda. Innlent 1.4.2024 18:15
„Við erum með tvo trukka og þeir fara mjög hægt yfir“ Slökkvilið í Grindavík berst enn við gróðurelda við gosstöðvarnar við Sundhnjúkagíga. Slökkviliðsstjórinn segir svæðið afar torfærið og að slökkviliðstrukkar fari hægt yfir svæðið. Innlent 1.4.2024 13:42
„Annað hvort að rífa upp tröppurnar eða leyfa þessu að vera“ Pípari sem skoðað hefur skemmdir á húsum í Reykjanesbæ eftir eldgosið í febrúar segir það verða eigendum dýrt að laga fasteignir sínar. Hann telur ábyrgðina liggja hjá þeim sem byggi húsin. Innlent 31.3.2024 20:01
Telja að eldgosinu sé líklega að ljúka Gervitunglamyndir frá NASA og ESA benda til þess að kvikustreymi í eldgosinu við Sundhnúk hafi dregist saman um allt að helming síðasta sólarhringinn. Mögulega þýðir það að eldgosinu lýkur fljótlega. Það hófst þann 16. mars og hafði því staðið í tvær vikur í gær. Innlent 31.3.2024 15:49
„Það er nóg búið að leggja á okkur fyrir“ Byggingatæknifræðingur úr Grindavík segir farir sínar ekki sléttar af samskiptum við Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Hann segir tjónaskoðun ófullnægjandi og kallar eftir breytingum. Innlent 31.3.2024 13:59
Heppin að vera með höfuðverk yfir tveimur auðlindum Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri og mögulegur forsetaframbjóðandi segir að næstu árum verið meiri samkeppni um orku sem framleidd er á Íslandi. Mikilvægt sé að sköpuð sé heildarsýn í orkumálum. Ákvarðanataka um framtíðarnýtingu sé erfið því hún hafi áhrif á aðra auðlind, náttúruna. Innlent 31.3.2024 11:58
Slokknað í syðsta og minnsta gígnum en enn mikil virkni Útlit er fyrir að slokknað sé í syðsta gígnum í eldgosinu við Sundhnúksgígaröðina. Það er sá minnsti. Góð og mikil virkni er þó í hinum tveimur gígunum og sérstaklega í öðrum þeirra, sem er stærstur. Innlent 31.3.2024 09:50
Skipulagssaga, slæleg vinnubrögð við tjónamat og risavaxin verkefni í orkumálum Þjóðmálaþátturinn Sprengisandur er í beinni útsendingu á Bylgjunni og á Vísi frá klukkan tíu til tólf alla sunnudaga. Í þættinum fær Kristján Kristjánsson til sín góða gesti og fer yfir þau málefni sem eru efst á baugi í samfélaginu hverju sinni. Innlent 31.3.2024 09:45
Náðu tökum á gróðureldum við gosstöðvar í gær Slökkviliðsmenn náðu að slökkva í gróðureldum sem blossuðu upp við gosstöðvarnar í gær. Slökkvilið frá Grindavík, Suðurnesjum og Árnessýslu voru við störf og verður áfram viðvera í dag. Mjög þurrt er á svæðinu og engin rigning í kortunum. Innlent 30.3.2024 09:29
„Reynum allt til að missa þetta ekki í sömu stærð“ Slökkvilið Grindavíkur gerir nú hvað það getur til að koma í veg fyrir að gróðureldar við gosstöðvarnar á Reykjanesskaga breiði úr sér og verði jafn stórir og þeir urðu í gosinu í júlí á síðasta ári. Hjálpin kemur víða að. Innlent 29.3.2024 14:27
Stærsti gígurinn orðinn „formfagur“ Stærsti gígurinn í eldgosinu við Grindavík líkist nokkuð öðrum og eldri gígum á Reykjanesskaga. Erfitt er að nálgast gígana eins og staðan er þessa dagana en nýjar drónamyndir varpa ljósi á hvernig þeir líta út. Innlent 28.3.2024 20:47
Útlit fyrir að gasmengun berist til vesturs og suðvesturs Enn er hætta á gasmengun og er útlit fyrir að mengunin berist til vesturs og suðvesturs í dag, meðal annars yfir Svartsengi, Hafnir og Grindavík. Huga þarf að loftgæðum. Virkni eldgossins er enn stöðug og hefur verið þar frá mánudegi. Enn mælist landris en það er hægara en áður. Innlent 27.3.2024 14:07
Má þjóðin ráða? Hvert sem ég fer er fólk að ræða við mig um stöðu heimilisbókhaldsins. Efnahagsástandið er farið að rífa verulega í hjá fólkinu okkar. Fólki sem hefur gert allt samkvæmt bókinni en finnur samt fyrir því að róðurinn þyngist og erfiðara er að láta reikningsdæmið ganga almennilega upp. Skoðun 27.3.2024 14:00
Hættuleg gasmengun kemur í veg fyrir opnun Bláa lónsins Bláa lónið hefur samtals verið lokað í rúmlega áttatíu daga frá því að jarðhræringarnar við Grindavík hófust fyrir fimm mánuðum. Óvíst er hvenær hægt verður að opna á ný vegna hættulegrar gasmengunnar. Innlent 27.3.2024 11:57
Kvika undir Öskju heldur áfram að þrýsta sér upp Eldstöðin Askja sýnir merki um að hún sé að búa sig undir gos. Þar varð skjálftahrina í gær og Veðurstofan sendi í dag frá sér tilkynningu um að landris haldi þar áfram. Innlent 26.3.2024 22:22
Nýrunnið hraun notað til að hækka varnargarðana Verktakar vinna nú allan sólarhringinn að varnargörðum umhverfis Grindavík áður en haldið er í kærkomið páskafrí. Nýrunnið hraun er notað til að hækka garðana. Innlent 26.3.2024 19:20
Ekki forsvaranlegt að opna Bláa lónið að mati lögreglu Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir óbreytt ástand í Grindavík og í kring og því ekki forsvaranlegt að halda úti starfsemi í Bláa lóninu á meðan eldgos er enn í gangi. Það eigi einnig við um aðra starfsemi á svæðinu. Innlent 26.3.2024 15:42
Jarðskjálftahrina í Öskju í gær Í gær varð skjálftahrina í norðvesturhluta Öskju og mældust tæplega 30 skjálftar frá því klukkan átta um morguninn og til hádegis. Sá stærsti sem mældist var 3,5 að stærð og var á um fimm kílómetra dýpi. Þrír skjálftar mældust frá 2,0 til 2,5 að stærð, en aðrir skjálftar voru minni. Innlent 26.3.2024 14:53
Sprungufylling á borði bæjarstjórnar en eðlilegt að hún óski hjálpar Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir ljóst að bæjarstjórn Grindavíkur þurfi að fara með umsjón sprungufyllinga í bænum. Það sé þó ekki óeðlilegt að sveitarfélagið óski eftir stuðningi til þess. Ótímabært sé þó að lofa einhverjum peningafjárhæðum í verkið. Innlent 26.3.2024 14:05
Gasmengun í Bláa lóninu í nótt Nokkur gasmengun mældist við Bláa lónið í nótt en dregið hefur úr henni nú í morgunsárið. Innlent 26.3.2024 08:27
Hvað ef það gýs nær höfuðborgarsvæðinu? Við höfum fylgst með hetjulegri baráttu fólks við náttúruöflin suður með sjó. Eðlilega hafa vaknað spurningar um hvort við hér á höfuðborgarsvæðinu séum klár í slaginn, skyldi fara að gjósa nær okkur. Skoðun 26.3.2024 07:01